VR stéttarfélag

VR hlaðvarpið

Business EN ↓ 13 episodes

Hlaðvarp VR stéttarfélags um réttindi, vinnumarkaðinn og málefni sem snertir félagsfólk og samfélagið allt.

Author

VR stéttarfélag

Category

Business

Podcast website

vr.is

Latest episode

May 7, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

H fyrir hagfræði #8 – Atvinnustefna og efnahagsmál með Gylfa Zoega 07.05.2026

Atvinnustefna ríkisstjórnarinnar hefur nú litið dagsins ljós. Hvað felst í henni og hvað þýðir hún fyrir launafólk? Hefur hún áhrif á atvinnuhorfur næstu kynslóða? Gylfi Zoega hagfræðiprófessor ræðir við þau Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, og Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóra Vísbendingar, um atvinnustefnu og menntakerfið og, ekki síst, stöðu efnahagsmála.

H fyrir hagfræði #7 - Hvað er þjóðarsátt? 17.04.2026

Ýmsum hugtökum er fleygt fram um þessar mundir í tengslum við kjarasamninga og efnahagsmál. Höfrungahlaup er eitt þeirra, þar sem alþjóðlegur barnaleikur er notaður sem myndlíking. Annað er Þjóðarsátt og þá vísað til þríhliða samninga sem gerðir voru á vinnumarkaði á síðustu öld. En hvað var Þjóðarsáttin og við hvað er átt þegar fólk kallar eftir Þjóðarsátt í dag? Halla Gunnarsdóttir, formaður VR...

H fyrir hagfræði #6 - Olíukreppan og hagnaðardrifin verðbólga 26.03.2026

Verðbólgan mælist nú 5,4% og verðhækkanir á olíu eru farnar að taka til sín. Í nýjasta þætti H fyrir hagfræði fara Halla Gunnarsdóttir, formaður VR og Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, yfir hvernig verðbólga getur verið keyrð áfram af verðhækkunum. Þá fara þau sérstaklega yfir þau víðtæku áhrif sem olíukreppan gæti haft og hvað er hægt að gera í því.  Gestur þáttarins er Runólfur Ól...

H fyrir hagfræði #5 - Aðhald í ríkisrekstri 13.03.2026

Orðið aðhald kemur fyrir tæplega 300 sinnum í ræðusafni Alþingis á yfirstandandi þingi. En hvað er þetta aðhald? Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, og Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, halda áfram að spá í spilin í efnahagsmálum. Gestur þáttarins er Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, sem segir frá því hvernig aðhald í ríkisfjármálum hefur áhrif á stærstu heilbrigðisstofnun land...

H fyrir hagfræði #4 - Hagfræði leikskólanna 26.02.2026

Hagfræði leikskólanna – er það til?  Já, leikskólar eru ein af grunnstoðum samfélagsins og þeir eru þjóðhagslega hagkvæmir. Í nýjasta hlaðvarpsþætti VR, H fyrir hagfræði eru því leikskólarnir aðalumræðuefnið. Í þættinum ræða Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, og Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, saman um efnahagsmál, á mannamáli. Gestur þáttarins að þessu sinni er Henný Hinz, aðstoða...

H fyrir hagfræði #3 – Stýra stýrivextir þér? 12.02.2026

Allt hækkar og ekki lækka lánin! Í síðustu viku tilkynnti Seðlabankinn að stýrivextir yrðu óbreyttir. En til hvers eru eiginlega stýrivextir? Í þriðja þætti af hlaðvarpi VR H fyrir hagfræði fjalla Halla Gunnarsdóttir og Ásgeir Brynjar Torfason um tæki til að draga úr verðbólgu. Hávaxtastefnan er komin í þrot, segja þau, hún er hörð við skuldara og leigjendur en ívilnar þeim sem eiga peninga. Gestu...

H fyrir hagfræði #2 – Verðbólga og náttúrulögmál 29.01.2026

Verðbólga er komin yfir 5% samkvæmt nýjustu mælingum Hagstofunnar. Er verðbólgan eitthvað náttúrulögmál? Hvað er vísitala neysluverðs? Hlaðvarp VR fjallar að þessu sinni um verðbólgu og verðbólgumælingar. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, og Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, ræða nýjar verðbólgutölur. Ásta Jenný Sigurðardóttir, sérfræðingur í vísitöludeild Hagstofunnar, útskýrir vís...

H fyrir hagfræði #1 - Atvinnustefnan og Mariana Mazzucato 15.01.2026

H fyrir hagfræði er hlaðvarpsþáttur þar sem fjallað er um efnahagsmál út frá sjónarhóli launafólks. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR og Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum, kryfja hugmyndir á sviði hagfræðinnar og draga fram tengslin á milli kenninga og dagslegs lífs. Þau fá til sín góða gesti sem hafa sérþekkingu á sviði efnahagsmála og ræða bæði stórar og smáar hugmyndir, allt á mannamál...

Þessar konur eru algerar hetjur í mínum augum 21.10.2025

 Í síðasta þættinum af hlaðvarpsseríunni með konum í VR spjallar Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, við reynslumiklar konur úr atvinnulífinu sem hafa einnig allar verið kjörnar til trúnaðarstarfa fyrir VR. Viðmælendur eru Ólafía B. Rafnsdóttir, fyrsti kvenformaður VR, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir, núverandi stjórnarkona og Stefanía Magnúsdóttir sem sat í stjórn VR í 20 ár og einnig varaformaður...

Um leið og ég fór að æfa mig í íslensku þá opnaðist allt 06.10.2025

Ferðaþjónustan er orðin ein stærsta atvinnugreinin á Íslandi og í þessum þætti spjallar formaður VR, Halla Gunnarsdóttir, við konur sem starfa við fjölbreytt störf innan hennar. Rætt er við Eyrúnu Gunnarsdóttur, móttökustjóra hjá Fosshótelum, Eriku Martins Carneiro sem starfar sem leiðsögukona hjá Góu Travel og Jennifer Schroder, söluaðila hjá 360 Wanderlust og stjórnarkonu í VR. Opið og fræðandi...

Svakalega ertu vígaleg á þessum lyftara! 15.09.2025

Í þessum þætti er rætt við konur sem starfa við lagerstörf og eru í VR. Rætt er við þær Sunnevu Blöndal hjá BYKO, Ágústu Ýr Írisardóttur hjá Bauhaus og Rebekku S. Hannilbalsdóttur sem starfar hjá Halldóri Jónssyni. Rætt er um ýmislegt sem viðkemur því að starfa á lager, hvernig er að vera kona í því starfi, framkomu viðskiptavina, fordóma, Kvennafrídaginn og margt fleira.

Margt hefur breyst til hins betra, en það er allskonar eftir 25.08.2025

Í tilefni af Kvennaári 2025 hefur VR hleypt af stokkunum hlaðvarpi um stöðu kvenna á vinnumarkaði. Í þessum þætti tekur Halla Gunnarsdóttir formaður VR á móti þeim Arndísi Arnarsdóttur hjá Hagkaup, Júlíönu Einarsdóttur hjá Aðföngum og Kristínu Sævarsdóttur hjá Húsasmiðjunni. Heiti þáttarins gefur fyrirheit um innihaldið, Margt hefur breyst til hins betra en það er alls konar eftir! Til umræðu er k...

21.000 skref á dag - Konur í verslun 31.07.2025

Félagsfólk VR vinnur við fjölbreytt störf í þjóðfélaginu en rætur félagsins liggja í verslun. Það er því vel við hæfi að hefja þessa þáttaröð með konum í verslun. Hér ræðir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, við þær Alexandriu Petrinu Arnarsdóttur hjá Ikea, Guðrúnu Maríu Jóhannsdóttur hjá Húsasmiðjunni og Guðnýju S. Bjarnadóttur hjá Vero Moda um starfið í versluninni, vinnuumhverfið og helstu áskor...

Listen to the VR hlaðvarpið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.