Víkingur Media
Víkings hlaðvarpið
Allt milli himins og jarðar sem tengist Víking og/eða fótbolta.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Hverfisfélagið eins og kirkja 26.06.2026 51:27
Í síðasta þætti Meðal fólks á Rás 1 var fylgst með undirbúningi stærsta leiks sumarsins í Bestu deild karla, þegar Víkingur tók á móti Knattspyrnufélagi Reykjavíkur síðasta þriðjudag. Sverrir Geirdal, varaformaður knattspyrnudeildar Víkings, segir að mikið hafi verið gert til að fá fólk á völlinn sem hafi ekki brennandi áhuga á fótbolta. Félagið geti í dag gegnt því hlutverki sem kirkjan gegndi áð...
Einar Guðnason 21.07.2025 1:16:22
Bjarki og Hörður settust niður með Einari Guðna og ræddu fótbolta, Black Sabbath, Svíþjóð og allt þar á milli. Einar Guðnason er tók nýlega við kvennaliði Víkings og þó flestir Víkingar viti hver hann er þá vildum við aðeins kynnast honum betur. Hvað er Einar búinn að vera að gera síðustu ár? Hvaðan kemur hann og hvernig fótbolta vill hann spila? Þú einfaldlega verður að hlusta. ❤️🖤
Tómas Þór og Halldór Smári Sigurðsson 29.03.2025 46:39
Eftir áratugi í treyjunnni, 464 leiki, 2 Íslandsmeistaratitla, 4 bikara, Evrópuævintýri og ótrúlegt magn af Hamingju segjum við takk við Halldór Smára Sigurðsson. Herra Víkingur nær alls ekki utan um allt sem þú hefur gefið félaginu okkar. Takk Halldór Smári ❤️🖤
Tómas Þór og Arnar Gunnlaugsson 18.01.2025 50:02
Tómas og Arnar fara yfir 6 ár af Hamingju í Hamingjunni. Tómas spyr Arnar spjörunum úr og sýnir honum myndir frá mikilvægum augnablikum á ferli Arnars sem þjálfara Víkings. Takk fyrir allt Arnar og gangi þér vel á nýjum vettvangi. Áfram Víkingur og áfram Ísland. 🖤❤️ Lag í byrjun er eftir Futuregrapher / Árna Grétar og heitir 303 Melody flow. Mælum með að kíkja á þann frábæra listamann. ❤️
Fyrirmyndirnar okkar: Sveindís Jane Jónsdóttir 28.06.2024 1:27:17
Fyrirmyndirnar okkar - þáttur 6 Sveindís Jane Jónsdóttir, leikmaður Wolfsburg og íslenska landsliðsins kíkti í heimsókn í Víkings stúdíóið. Hver er Sveindís Jane? Hvernig náði hún markmiðum sínum? Hvert er uppáhalds augnablikið á ferlinum hingað til? Í hvernig takkaskóm spilar Sveindís og margt fleira! Það var sannur heiður að fá að setjast niður með Sveindísi og ræða um það sem við elskum jú öll,...
Fólkið okkar - Arnar Gunnlaugsson 19.03.2024 1:30:45
Loksins náðum við í skottið á Arnari Gunnlaugssyni þjálfara meistaraflokks karla og stilltum honum upp fyrir framan hljóðnemann í Víkings stúdíóinu. Það er mjög viðeigandi að Hörður og Bjarki hafi grillað Arnar í 90 mínútur og fengu aðeins að kynnast manneskjunni Arnari Gunnlaugssyni betur. Aðeins öðruvísi viðtal en Arnar er kannski vanur, en dómur féll strax eftir viðtalið : "Strákar, þetta...
Fólkið okkar - Þórarinn Einar Engilbertsson 12.03.2024 58:49
Serían "Fólkið okkar" heldur áfram. Hér fáum við að kynnast fólkinu okkar sem gerir allt nema að spila fótboltaleikina sjálfa. Hörður og Bjarki fengu Þórarinn Einar Engilbertsson (Tóta) í heimsókn og ræddu hvað þjálfarastarfið felur í sér og hver sýn Tóta er á þjálfun í yngri flokkunum.
Stelpurnar okkar : Gígja og Rakel 06.03.2024 55:00
Stelpurnar okkar - Season 2 - Þáttur 1 Bjarki og Hörður fengu tvo leikmenn meistaraflokks í heimsókn. Gígja Valgerður Harðardóttir var byrjuð að spila fótbolta í meistaraflokki áður en Rakel Sigurðardóttir fæddist. Farið var yfir ferilinn, hvernig er að vera Víkingur, hvernig tilfinningin var fyrir Rakel að vera í stúkunni á sjálfum Bikarúrslitaleiknum þar sem hún hélt með Breiðablik og margt marg...
Uppgjörið - John og Kristó 30.11.2023 1:19:12
Hörður og Bjarki náðu tali af John Andrews og Kristófer Sigurgeirssyni og fóru yfir stöðuna hjá Meistaraflokki kvenna. Í þættinum er meðal annars að finna : Hvernig fór sumarið 2023? Var John sáttur með árangurinn? Af hverju við Víkingar eigum ekki leikmann í A landsliði kvenna Yngri flokka þjálfun Gerðum smá grín að Kristó Mikil enska töluð af því að John krefst þess að öll viðtöl séu á ensku Hva...
Fólkið okkar - Viktor Bjarki Arnarsson 05.10.2023 1:04:14
Serían "Fólkið okkar" er komin af stað. Hér fáum við að kynnast fólkinu okkar sem gerir allt nema að spila fótboltaleikina sjálfa. Það var því heldur betur við hæfi að hitta á Viktor Bjarka sem tók nýlega við starfi yfirþjálfara yngri flokka Víkings. Viktor er Víkingur í húð og hár en kom víða við á ferlinum sem leikmaður og hefur undanfarin ár starfað við þjálfun. Hörður og Bjarki náðu...
Uppgjörið með Bjarka og Herði 28.09.2023 1:33:36
Bjarki og Hörður mættu "under the lights" í Víkings stúdíóið og fóru yfir tímabilið 2023 hjá Meistaraflokki kvenna. Farið var yfir Lengjubikarinn, Lengjudeildina og að sjálfsögðu Mjólkurbikarinn. Hver var markahæst í sumar? Hver átti flestar stoðsendingar? Hver fékk flest gul spjöld? Njótið vel.
Eftirpartý: 2-2 jafntefli við KR 20.09.2023 9:24
Markús Árni fékk til sín þá Gísla Gottskálk & Þórð Ingason eftir 2-2 jafntefli við KR á heimavelli hamingjunnar í kvöld.
Eftirpartý: 5-3 sigur gegn Breiðablik 27.08.2023 18:00
Aron Baldvin fékk til sín tvo úr starfsliði Víkings þá Sölva Geir & Guðjón Örn eftir 5-3 sigur okkar Víkinga gegn Breiðablik í kvöld.
Eftirpartý: Bikarúrslit 2023 here we come 16.08.2023 10:45
Markús fékk til sín Ara Sigurpálsson & Aron Elís í spjall eftir 4-1 sigur gegn KR á Víkingsvelli og erum við að fara í fjórða bikarúrslitaleikinn í röð!
Eftirpartý: 6-1 sigur gegn HK 13.08.2023 13:20
Aron Baldvin fékk til sín Viktor Örlyg & Gísla Gottskálk í spjall eftir 6-1 sigur gegn HK á Víkingsvelli.
Fyrirmyndirnar okkar: Glódís Perla Viggósdóttir 14.07.2023 1:03:12
Fyrirmyndirnar okkar - þáttur 5 Glódís Perla Viggósdóttir, leikmaður Bayern München og íslenska landsliðsins kíkti í heimsókn í Víkings stúdíóið. Hörður og Hrafnhildur ræddu við Glódísi um upprunann í HK/Víking, tímabilið 2011 þegar hún skorar 14 mörk í 11 leikjum og spilar sem framherji, að byrja ung að spila með meistaraflokki, góð ráð fyrir yngri iðkendur og auðvitað hvað þarf til að ná árangri...
Eurovikes: Riga FC - Víkingur 13.07.2023 18:22
Arnar Gunnlaugsson & Sölvi Geir Ottesen mættu í spjall fyrir leikinn gegn Riga FC.
Fyrirmyndirnar okkar: Karólína Lea Vilhjálmsdóttir 12.07.2023 59:05
Fyrirmyndirnar okkar - þáttur 4 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, leikmaður Leverkusen (á láni frá Bayern München) og íslenska landsliðsins kíkti í Víkings stúdíóið og ræddi við Hörð og Hrafnhildi um ferilinn, að byrja ung í meistaraflokki, titlar, töp og hvað þarf til að ná árangri í fótbolta. Karólína er metnaðarfull fótboltakona sem ætlar að alla leið og það var sannur heiður að fá að setjast niður...
Stelpurnar okkar: Elíza og Unnbjörg 11.07.2023 53:31
Stelpurnar okkar - þáttur 9 Tímabæra umfjöllunin um fyrri hluta tímabilsins Blað var brotið í sögu Víkings podcastsins þegar Bjarki og Hörður tóku á móti Elízu og Unnbjörgu í sjálfri Hamingjustúkunni í Víkinni. Farið var yfir víðan völl eins og vanalega en þó reynt að halda fókus. Það reyndist sumum erfiðara en öðrum því meistaraflokkur karla var að æfa á aðalvellinum á meðan upptökum stóð. Klukku...
Stelpurnar okkar: Kolbrún Tinna og Linda Líf 06.07.2023 1:26:50
Stelpurnar okkar - þáttur 8 Leikmenn meistaraflokks kvenna koma í heimsókn. Við höldum áfram að kynna leikmenn í meistaraflokki kvenna. Til okkar kíktu Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir og Linda Líf Boama og eins og vanalega var rætt um allskonar. Sérstakar þakkir fá Bergdís og Katla fyrir að vera í sjúkraþjálfun hjá Dagmar ákkúrat á meðan á upptökum stóð. Takk kærlega fyrir komuna í Víkings Podcastið K...
Eftirpartý: 2-0 sigur gegn Stjörnunni 24.06.2023 15:24
Markús Árni fær til sín Davíð Örn Atlason og Danijel Djuric til sín í spjall eftir 2-0 sigur Stjörnunni á Víkingsvelli.
Eftirpartý: 3-1 sigur gegn Fram 12.06.2023 16:08
Markús Árni fær til sín Pablo Punyed og Karl Friðleif til sín í spjall eftir 3-1 sigur Fram á Víkingsvelli.
Eftirpartý: fyrsti tapleikur sumarsins 30.05.2023 13:13
Markús Árni fær til sín Halldór Smára og Sölva Geir Ottesen til sín í spjall eftir 2-3 tap gegn Val sem er fyrsti tapleikur sumarsins.
Stelpurnar okkar: Dagbjört og Hafdís 28.05.2023 1:00:03
Stelpurnar okkar - þáttur 7 Leikmenn meistaraflokks kvenna koma í heimsókn. Við höldum áfram að kynna leikmenn í meistaraflokki kvenna. Til okkar kíktu Dagbjört Ingvarsdóttir og Hafdís Bára Höskuldsdóttir og var farið yfir víðan völl, allt frá því hvernig takkaskóm þær spila í, barneignir, jafnréttismál og svo auðvitað tímabilið 2023. Takk kærlega fyrir komuna í Víkings Podcastið Dagbjört Ingvarsd...
Ultravikes: Arnar Gunnlaugs heiðursgestur dagsins 17.05.2023 40:22
Ultravikes er skemmtileg þáttaröð á Víkings podcastinu en umsjónarmenn þáttana eru þeir Jón Stefán og Arnar páll sem ræða allt á milli himins og haf um málefni meistaraflokk karla hjá Víking.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.