Vaktinn

VAKTINN

Tv IS ↓ 60 episodes

Vaktinn - Hús vaktarinnar á Íslandi Djúpgreining á þáttaseríunni Fangavaktin sem tröllreið öllu árið 2009.  Fylgið okkur á Instagram og TikTok - VAKTINN vaktinpod@gmail.com

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.buzzsprout.com

Author

Vaktinn

Category

Tv

Podcast website

www.buzzsprout.com

Latest episode

Nov 5, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.7+ rating iOS soon

Episodes

Atvinnuviðtalið - Guðjón Smári 24.03.2025

Guðjón Smári er útvarpsmaður á FM957 og mikill aðdáandi vaktarseríanna. Guðjón Smári hefur líkt og Ólafur Ragnar tekið þátt í söngvakeppni á Stöð 2 og unnið í útvarpinu á FM. Hann mætir til okkar með faglega yfirferð sína á Dagvaktinni og kynnumst við honum og hans tengingu við þættina vel.  Minnum á Pubquiz á fimmtudag næstkomandi kl. 21:00

Viðhafnarútgáfa Vaktans - Dagvaktin edition 29.01.2025

Þorvar og Grétar einir bestu vinir okkar vaktarbrósa eru mættir í settið og eru tilbúnir til að gefa okkur nýja sýn á seríuna. Við förum í verðlaunaafhendinguna frægu og síðasta skriðdýrahorn seríunnar þar sem við kynnumst manninum Professor Alfred Romer en hann var langt á undan sinni samtíð.  Takk fyrir samfylgdina í gegnum Dagvaktarseríuna og heyrumst fljótt aftur.

Dagvaktin Grand Final - "Þú ert besti vinur minn." 15.01.2025

Í þessum grand final förum við yfir margt. Skoðum ræðuna hans Georgs og hvaðan hún sótti innblástur. Förum yfir Phoenix Reptile Expo 2018 og til hvers eru snúningsprikin sem börn og fáránlingar veifa á 17. júní? Síðast en ekki síst svörum við að sjálfsögðu spurningunni sem allir spurðu sig um eftir síðasta þátt, er Gugga að rísa upp eins og fönix? Framundan er að sjálfsögðu Viðhafnarútgáfan og njó...

S02E10 - "Ert þú hrísmóðir?" 18.12.2024

Loksins er komið að næsta þáttarþætti. Margt, mjög margt, sem þarf að fara yfir í dag. Bolsévikar og Romanov, hvað er það eiginlega? Hver er munurinn á hrísmóðir og ljósmóðir og heyrum í Bergþóri stórsöngvara. Þessi þáttur er einfaldlega úr efstu hillu. Vægast sagt.  Góðar stundir.

Atvinnuviðtalið - Kristín og Starkaður Pétursbörn 25.11.2024

Kæru hlustendur, í Oranjeboom þætti vikunnar fáum við í heimsókn systkinin Kristínu og Starkað í Georgstof stúdíóið. Þau eru mun dýpri í vaktarheimum en flestir og var einstaklega gaman að fá þeirra sýn á seríurnar.  Glöggt er gests augað eins og sagt var fyrir hart nær 50 árum og þau orð eru jafn sönn í dag og þau voru þá. Njótið einstaklega vel.

S02E09 - "Nú er ekki tími til að tilla." 24.10.2024

Í þætti dagsins skoðum við dýnamíkina sem ríkir á milli Georgs og Óðins auk þess sem við reynum að kafa í baksögu Óðins. Hefur hann jafnvel unnið á Bjarkarlundi áður? Hvað er merkilegast við kameljón? En og aftur ströndum við á umræðu um Aristóteles og Alexander þar sem við höfum ekki kynnt okkur fræði Hómers nægilega vel og lofum við góðri skýrslu í næsta þætti.

S02E08 - "Gugga að smíða geimflaugar!" 16.10.2024

Okkar kæru félagar í Oranjeboom - Álfurinn - Coolbet - Skúbb með okkur að vana. Förum yfir skröltorma, Aristótales og Alexander. Sláum auðvitað á þráðinn í góða einstaklinga og skoðum eldhúsið hans Víglunds á Saurum. Að ógleymdri umræðu um hnit og þá sérstaklega austur og vestur.

S02E07 - "Ég hef aldrei komið til Minsk." 03.10.2024

Okkar bestu vinir eru Oranjeboom - Coolbet - Álfurinn - Skúbb Í þessum þætti förum við yfir ýmislegt. Kynnumst Tokay Gecko-um og hvað eru eiginlega gular vatnsmelónur. Hvetjum ykkur til að biðja herra hótelstjóra að slaka á ykkur einum ísköldum meðan þið hlustið.

Atvinnuviðtalið - Þráinn Orri og Arnar Þór 18.09.2024

Þráinn Orri og Arnar Þór kíktu í Georgstof stúdíóið. Þeir félagar eru pungdjúpir í Vaktarheimum og þekkja alla frasa og öll atriði út og inn. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna en einnig þökkum við Coolbet, Oranjeboom, Álfinum og Skúbb.

S02E06 - "Kjánalegt?" 12.09.2024

Okkar allra bestu vinir eru Oranjeboom - Álfurinn - Coolbet - Skúbb Nú færum við inn í mikið breytingaskeið Dagvaktarinnar. Hvernig er sú upplifun að koma til fyrirheitna landsins, Komodo? Förum yfir Battle Royale - Animal edition og kynnumst föðurást. Njótið vel kæru vinir.

S02E05 - "Það þurfti að lensa út úr kvikindinu." 21.08.2024

Okkar ástsælustu eru Oranjeboom - Álfurinn - Coolbet - Skúbb Í þessum þætti er mikið sem þarf að kryfja. Hlustendur fá að kynnast Komodo drekum loksins og við ræðum sveitaböll. Sólinn Sandó upp með hendur allir saman. Gleymum auðvitað ekki að ræða Æsufellið og skoðum betur skattstjórann. Góðar stundir.

Atvinnuviðtalið - Kristján Andri sagnfræðingur 25.07.2024

Að vana eru vinir okkar Oranjeboom, Álfurinn, Coolbet og Skúbb. Kristján Andri fer yfir kommúnisma og tengingu stefnunnar við Vaktarseríurnar og þá sérstaklega Georg Bjarnfreðarson. Skoðum byltingar, agabrot og að sjálfsögðu móður sagnfræðinnar, framtíðina.

S02E04 - "Gling-Gló hét hljómplatan." 17.07.2024

Okkar bestu vinir eru sem áður Oranjeboom - Álfurinn - Coolbet - Skúbb Í þætti vikunnar kryfjum við ýmis mál til mergjar. Förum yfir ferðasögu þar sem takmarkið var að bera hin eitruðu Gila skrímsli berum augum. Afhverju hræðist einhver háhyrninga og þó að við höfum ekki mikinn smekk fyrir tónlist Bjarkar þá eru mæður okkar miklir aðdáendur. Njótið hlustendur kærir.

Aukavaktinn - Gugga / Ólafía Hrönn Jónsdóttir 11.07.2024

Okkar kæru vinir eru Álfurinn, Oranjeboom, Coolbet og Skúbb. Við fengum Guðbjörgu Ragnarsdóttur til okkar. Við köllum hana Guggu, hún er ekki kölluð neitt annað hér í sveit. Förum yfir víðan völl með henni. Hvernig er að vera fjallkonan og hvernig var 17. júní skemmtun á Reykhólum?

S02E03 - "Fyrirgefðu að ég rakst óvart utan í þig" 03.07.2024

Okkar allra bestu félagar eru sem fyrr Oranjeboom, Álfurinn, Coolbet og Skúbb. Þetta er sveppaþátturinn frægi. Hvaðan koma "froskarnir" í Garðabæ? Kvenfélög og Fjallkonur. Tökum nokkur símtöl í tónlistarfólk og aktivísta á hinum ýmsu sviðum. Góðar stundir.

S02E02 - "Þetta er fjölskylduhótel, ekki afdrep fyrir lostalæti." 19.06.2024

Maður minn. Okkar frábæru félagar í Oranjeboom, Álfinum, Coolbet og Skúbb komu clutch fyrir þennan þátt því hann er þétt pakkaður. Við förum yfir busanir, kvenfélög og skátamót í Hveragerði. Semsagt stiklað á stóru að vana í bland við djúpköfun þar sem kafað er ofan í kjölin á þætti tvö. Hann er mikilvægur hvað varðar aðlögun karaktera að breyttu sögusviði, sveitinni.  Góðar stundir.

S02E01 - "Hvar ertu með liminn Ólafur?" 05.06.2024

Gott að vera komnir aftur kæru vaktarbrósar. Okkar allra bestu vinir eru Oranjeboom, Álfurinn, Coolbet og Skúbb og þökkum við þeim kærlega fyrir. Í þætti dagsins köfum við djúpt og kynnumst Reykhólshreppi af alvöru. Álfasögur, Leynivopnið og bolir sem frítt með dóti sem þú verslar í stórmörkuðum. Skoðum líka upphaf skátahreyfingarinnar. Njótið.

Atvinnuviðtalið - Gunnar Birgisson 17.04.2024

Gunnar Birgisson er góðkunningi flestra landsmanna eftir að hafa verið tíður gestur heima í stofum á sunnudagskvöldum. Það sem fæstir kannski vita er að Gunnar er einnig einn mesti aðdáandi Vaktarseríanna sem finnst og því ber að fagna. Við fórum um víðan völl. Hvaða leik opnar Gunnar sínar skákir á, Western Union svindlið sem hann varð fyrir og fáum faglega skýrslu um Natteskiftet, norsku útgáfu...

Aukavaktinn - Georg / Jón Gnarr 14.04.2024

Við gætum ekki gert þetta án okkar bestu vina sem eru Oranjeboom - Álfurinn - Coolbet - Skúbb Þáttur dagsins er í þyngri kantinum. Jón Gnarr er mættur í Georgstof stúdíóið og má með sanni segja að farið sé yfir víðan völl. Lögleiðing skriðdýra, starfsmannasjóðurinn og hvernig sér Jón fyrir sér lífið á Bessastöðum? Ætlar hann að leyfa því að gerast að sýklum þar sé bara gefið að drekka svo þeir ver...

Aukavaktinn - Gestur Valur Svansson 10.04.2024

Gestur Valur er titlaður hugmyndasmiður næturvaktarinnar. Við fengum hann í Georgstof stúdíóið og hann sagði söguna af því hvernig hugmyndin að Næturvaktinni varð til. Hann sagði okkur söguna á bak við Georg og Ólaf, auk þess að fara yfir hvernig það var að vera skilinn útundan þegar framleiðsla þáttanna fór loks af stað. Það má með sanni segja að Næturvaktin var 20 years in the making. Förum einn...

S01E13 - VIÐHAFNARÚTGÁFAN 03.04.2024

Þá er komið að stóru uppskeruhátíðinni og þökkum við Oranjeboom, Álfinum, Útilegumanninum, Skúbb og Eldey Films fyrir að hjálpa okkur við að gera hana að veruleika. Hér snýst allt um seríuna í heild sinni. Við hringum í Pálma fyrrum verslunarstjóra á bensínstöð Skeljungs við Laugaveg og veitti hann okkur innsýn í líf starfsmanns við bensínstöðina á þessum tíma. Hvað stóð uppúr í seríunni? Georg le...

S01E12 - "Má það vera á kreditkortanúmeri móður minnar?" 20.03.2024

Við erum hér þökk sé Oranjeboom - Álfurinn - Útilegumaðurinn - Skúbb - Eldey Films. Tilfinningaþrungin stund en það er komið að síðasta þættinum. Uppgjör á uppgjör ofan. Barn verslar á kreditkortanúmeri móður sinnar. Förum í utanlandsferð og skoðum hvort það sé turn-off að aðili af hinu kyninu vilji versla rúm í IKEA frekar en í verslun sem býður upp á vörur sem fara betur með bakið á manni. Takk.

S01E11 - "Styður þú klám?" 14.03.2024

Okkar allra bestu vinir eru Álfurinn, Oranjeboom, Útilegumaðurinn, Skúbb og Eldey Films. Kæru hlustendur, það er komið að því. Nú býðst ykkur að hlusta á okkur ræða um læðuna og dekkin... og rotturnar. Sprengjum nokkrar bólur, eru starfsmenn bensínstöðva klámfíklar og kynfræðsla Vaktans í fyrsta skipti. Njótið.

Aukavaktinn - Daníel / Jörundur Ragnarsson 08.03.2024

Vá. Jörundur Ragnarsson sjálfur kom til okkar og ræddi við okkur um Daníel Sævarsson og fleira. Flestir ættu að þekkja Daníel en hver er Jörundur? Fæstir vissu hvað væri framundan þegar hann mætti seint á Hyundai Accentinum sínum í prufu hjá téðum leikara Ragnari Bragasyni en eina sem maður getur sagt er bara rest is history. Þökkum Jörundi kærlega fyrir komuna. Takk.

S01E10 - "Við ætluðum til Svíþjóðar hálfvitinn þinn." 27.02.2024

Okkar allra bestu eru Oranjeboom - Álfurinn - Útilegumaðurinn - Skúbb - EldeyFilms Þá er komið að honum, stóri peningaþátturinn. Ef það er einhver þáttur sem við hvetjum ykkur til að horfa á tvisvar þá er það þessi. Peningar, peningar, peningar. Gott að hafa viðskiptafræðing sem einn af þáttastjórnendum Vaktans, þá verður öll slík umfjöllun fagleg. Við förum yfir gengi. Við förum yfir útilegur og...

Listen to the VAKTINN podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.