Sundfélag Akraness
Útvarp Akranes
Upptökur frá Útvarpi Akranes
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Árið 2025: Brennivídd 08.12.2025 1:56:59
Bergur Líndal og Þórður Helgi ræða kvikmyndagerð, kvikmyndir og allt sem því við kemur. Sérstakur gestur er Kjartan Kjartansson.
Árið 2025: Nían í nærmynd 08.12.2025 56:22
Elfa, Þórunn og Sandra fara yfir unglingsárin og rifja upp hvað var inn á árunum 1985 - 1995. Spiluð verður tónlist frá þessum tíma í bland við spjall um dægurmenningu þá og nú.
Árið 2025: Grundaskóli í Útvarp Akranes 08.12.2025 1:25:28
Í þættinum fara nemendur og kennarar í árgangi 2010 yfir reynsluna af uppsetningu söngleiksins Smells. Kór Grundaskóla lítur við og kíkt verður í tónmenntakennslu.
Árið 2025: Akrafjall síðdegis 08.12.2025 1:27:32
Pétur Magg stýrir þættinum "Akrafjall síðdegis" þar sem skemmtilegir Skagamenn koma í spjall um hreyfingu, útivist og ferðalög. Fallhlífastökkvari flotkennari og ferðamálafrömuðir hafa staðfest komu sína í þáttinn auk bakgarðshlaupara. Ekki missa af þessu!
Árið 2025: Svana Gísla – Akranes og ABBA 08.12.2025 1:30:47
Ólafur Páll Gunnarsson ræðir við Skagakonuna Svönu sem ólst upp á Stekkjarholtinu og Skagabrautinni og hefur unnið með mörgu af þekktasta tónlistarfólki heims undanfarinn aldarfjórðung - David Bowie, Beyoncé og Jay-Z, Rolling Stones, Kylie Minogue, Coldplay og ABBA, en hún er framkvæmdastjóri ABBA Arena og Abba Voyage í London.
Árið 2025: Sundlögin 08.12.2025 1:47:50
Gummi og Hjörvar fara yfir stóru málin, Gummi stingur sér til sunds, farið í leikinnn Hver á röddina og þátturinn endar með tónlistaratriði.
Árið 2025: ÍA í fókus 08.12.2025 1:52:15
Bræðurnir Heiðar Mar og Björn Þór Björnssynir ræða íþróttir á Akranesi og setja ÍA í fókus. Þá ræða þeir við fulltrúa þeirra íþróttagreina sem tilheyra ÍA en fólk veit ekki endilega mikið um.
Árið 2025: Hálfviddar 08.12.2025 1:42:09
Iddi, Viddi og TinderTom fara yfir árið 2025 og ræða kynþokkafyllstu menn Akraness. Nýir aldursflokkar kynntir til sögunnar í þeirri keppni.
Árið 2025: Minning um Orra 04.12.2025 2:04:50
Minning um Orra Harðar er þáttur þar sem við bregðum okkur inn á kvöldvöku til heiðurs Orra sem var haldin á bókasafninu á Vökudögum í lok október. Fjöldi tónlistarfólks kom fram og lék tónlist Orra og spjallaði um hann í sófanum á milli tónlistaratriða. Umsjónarmenn kvöldsins, þeir Gulli Jóns, Halli Melló og Hjörtur Hjartar hafa búið til tvo þætti upp úr þessari mögnuðu kvöldstund og er sá fyrri...
Árið 2025: Einlitar eða marglitar 01.12.2025 1:55:22
Helgi Reyr Auðarson Guðmundsson tekur á móti gestum og ræðir álitamál tengd jólunum og jólahefðum.
Árið 2025: Syndum af stað 01.12.2025 1:35:38
Hjörvar og Gummi hefja Útvarp Akranes árið 2025 með því að fara yfir dagskrána, heyra í fólki og ræða það sem verður um að vera á Akranesi fyrstu helgi í aðventu 2025.
Árið 2025: Við, við og við, við viðtækin 30.11.2025 1:58:16
Hljómsveitin Díó Tríó býður til kvöldstundar þar sem hlustendum er boðið í ferðalag um stefnur og strauma unglingsáranna í tónlist.
Árið 2025: Sjötugur og síungur 29.11.2025 1:23:18
Anna Björk Nikulásdóttir rekur sjötíu ára sögu Tónlistarskólans á Akranesi og fær til sín góða gesti.
Árið 2025: Tveir í vaðlaug 28.11.2025 1:52:41
Alexander og Patrekur heilsa að þessu sinni frá Eindhoven
Árið 2024: Upprisan 01.12.2024 51:58
Þátturinn Upprisan á rætur sínar að rekja til útvarpsstöðvarinnar FM103 á Húsavík þar sem hann var á dagskrá óreglulega í nokkur ár. Því má segja að þetta sé upprisa Uprisunar, en svo má líka sleppa því. Form þáttarins hefur verið óljóst frá upphafi, sem og efnistök og má búast við að Upprisan haldi uppteknum hætti í þetta skiptið. Þáttarstjórnandi hefur einu sinni í draumi kennt sálfræði við Hásk...
Árið 2024: Hvenær drepur maður mann? 01.12.2024 53:02
Haraldur Benediktsson rekur sögu Jóns Hreggviðssonar
Árið 2024: HálfViddar 30.11.2024 1:09:36
Tómas Alexander Árnason, Viðar Engilbertsson og Ingi Björn Róbertsson
Árið 2024: Einsi Skúla og Arnardalur 30.11.2024 1:05:34
Í þættinum "Einsi Skúla & Arnardalur" ræða fulltrúar '74 árgangsins um jákvæð áhrif Einars á ungmenni á Akranesi. Umsjónarmaður Hjörtur Hjartarson.
Árið 2024: Hátíðardómsdagur 30.11.2024 1:18:36
Nú þegar hátíðin nálgast bjóða Vera Líndal og Bryndís Ottesen ykkur inn í hlýjuna á Útvarpi Akraness með glænýjum (en samt rammstolnum) útvarpsþætti! Í anda hlaðvarpsins „Dómsdagur“ frá Hljóðkirkjunni ætla þær að taka á hátíðlegum málefnum af mikilli festu – og dæma þau í bak og fyrir. Aðventugestir koma við sögu með heimsendingu af jólagóðgæti sem lífgar upp á umræðurnar. Fylgist með þessu Jólale...
Árið 2024: Aðallega bækur 30.11.2024 44:57
Katrín Lilja ræðir við höfundana Sigrúnu Elíasdóttur og Hugrúnu Björnsdóttur um skrif og sköpun og jólabækurnar.
Árið 2024: Verkalýðsfélagið í 100 ár 30.11.2024 51:47
Dagbjört Guðmundsdóttir og Elín Th. Reynisdóttir stýra þættinum "Verkalýðsfélag Akraness í 100 ár". Verkalýðsfélag Akraness fagnaði 100 ára afmæli í október. Starf þess tengist bæjarlífinu á ýmsan hátt og hér er stiklað á stóru í fjölbreyttri sögu félagsins.
Árið 2024: Slaghörputónar 30.11.2024 1:48:07
Birgir Þórisson Bæjarlistamaður Akraness 2024 Umsjónarmaður: Hlynur Benediktsson
Árið 2024: Abba í fimmtíu ár 29.11.2024 47:39
Í þættinum "ABBA í 50 ár" ætla dansdrottningarnar Bryndís og Villa í tónum og tali að þakka ABBA fyrir tónlistina. Farið verður yfir feril sveitarinnar, rýnt í lög og texta og að sjálfsögðu munu ABBA lögin sígildu hljóma inn á milli gullkorna þáttastjórnenda.
Árið 2023: Holt og bolt í gegnum tíðina 26.11.2023 1:50:07
Gunnlaugur I. Sigfússon
Árið 2023: Jólakassinn 26.11.2023 3:06:43
Ólafur Páll Gunnarsson og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.