Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal

Úti

Sports IS ↓ 82 episodes

ÚTI er hlaðvarp um útivist, ævintýri og fólkið sem er alltaf að finna sér eitthvað til að brasa úti. Í þáttunum er farið yfir fjallamennsku, hjólreiðar, ferðalög, hálendið, náttúruna og alls konar sögur úr íslenskri útivist. Umsjónarmenn eru Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal. Þættirnir eru gefnir út á tveggja vikna fresti. Email: kristin.lyngdal@gmail.com eða buibjarmar@gmail.comInstagram: @utihladvarpHjólavarpið er unnið í samstarfi við Peloton

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: podcasters.spotify.com

Author

Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal

Category

Sports

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Nov 18, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 10M+ downloads · 4.7+ rating iOS soon

Episodes

7. Reiðhjólabændur 07.02.2024

Þátturinn fjallar um Reiðhjólabændur sem eru félagasamtök hjólreiðafólks og hafa verið virk í umræðu um hjólreiðaöryggi ásamt því að koma að ýmsum átaksverkefnum, fræðslu og innanbæjarsamhjóli. Í þættinum er rætt við Birgi Birgison sem er ein aðalsprautan í samtökunum um þessar mundir.  Félagið var stofnað fyrir um 15 árum síðan og hefur vaxið og breyst umtalsvert á þeim tíma. Í þættinum ræðum við...

6. Sönn Íslensk Hjólamál - Glundroði á Grenimel 22.01.2024

Í þessum þætti spjalla Búi og Arna um æfingar, keppnir og lífið í Ástralíu. Arna segir frá svaðilför með nýju vinkonu sinni Glam-Ma og tilraunum sínum við að hitta hjólavinkonu sína Tiffany Cromwell og fylgifisk hennar Valtteri Bottas. Síðar í þættinum snúum við okkur svo að hjólaráni sem átti sér stað á Grenimel. Þar er farið yfir atburði ránsins og eftirmála. Hjólavarpið er í boði Örnu

5. Samgönguhjólreiðar 03.01.2024

Í þessum þætti förum við yfir samgönguhjólreiðar og ræðum við Jökul Sólberg Auðunsson og Brynhildi Bolladóttur sem eru bæði virkir samgönguhjólarar. Jökull hefur lengi skrifað um samgöngur og skipulag í fréttabréfinu Reykjavík Mobility og haldið úti síðunni örflæði.is þar sem hægt er bera saman rafhjól sem seld eru á Íslandi. Brynhildur varð nýlega virk í umræðunni um hjól þar sem hún hélt erindið...

2. Tempúr koddi 03.01.2024

Við förum yfir fyrstu æfingar á erlendri grundu og hugleiðingar um hjólreiðamenningu í Þýskalandi. Eins kíkjum við í heimsókn til kírópaktorsins míns. Hjólavarpið er í boði Örnu

4. Mælingar 03.01.2024

Í þessum þætti förum við aðeins yfir uppleggið í þáttunum og dembum okkur síðan í mælinga pælingar. Við skeltum okkur í álagsmælingu í Greenfit og förum aðeins yfir það og tökum svo stöðuna á æfingum hjá Búa og Örnu sem er komin til Ástralíu. Ef þig langar í lungna- og álagsmælingu geturu fengið 20% afslátt með því að nota kóðan HJOLAVARPID. Hjólavarpið er í boði Örnu.

3. Að byrja að hjóla 06.12.2023

Í þessum þætti segir Arna okkur frá því þegar hún byrjaði að hjóla. Í seinnihluta þáttar förum við síðan yfir stöðuna í hjólaæfingavegferðinni hjá Búa. Tölum um FTP og hvað það er og síðan mikilvægi þess að snúa fótunum hratt. Hjólavarpið er í boði Örnu

1. Ágætis byrjun 08.11.2023

Hjólavarpið er í boði Örnu. Búi og Arna fjalla um vegferð mína við það að byrja að æfa hjólreiðar og vegferð Örnu í undirbúningi fyrir Ólimpíuleika og fleira. Samhliða því verður umfjöllun og viðtöl við fjölbreytt fólk sem nýtir hjólreiðar bæði sem samgöngutæki og hreyfingu.

Listen to the Úti podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.