Slysavarnafélagið Landsbjörg
Út í óvissuna
Sögur úr starfi Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Undanfarna mánuði höfum við rætt við einstaklinga úr starfi félagsins og farið yfir fjölbreytt málefni sem tengjast starfi Landsbjargar. Nýr þáttur annan hvern miðvikudag. Fyrirspurnir og hugleiðingar má senda á: 📧molar@landsbjorg.is
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.buzzsprout.com
Author
Slysavarnafélagið Landsbjörg
Category
Podcast website
Latest episode
Sep 2, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#10 - Endurnýjun björgunarskipa, unglingastarfið & nýliðaþjálfun 02.09.2026 26:14
Í tíunda og síðasta þætti fyrstu seríu af Út í óvissuna er farið vítt yfir sviðið. Við ræðum endurnýjun björgunarskipaflota Landsbjargar, kynnum okkur öflugt unglingastarf félagsins og fáum innsýn í nýliðastarf björgunarsveita. Endurnýjun björgunarskipaflotans er eitt stærsta verkefni Landsbjargar á síðustu árum en alls stendur til að endurnýja 13 skip víðs vegar um landið. Þá skoðum við líka hver...
#9 - Hálendisvaktin & sögulegir munir í Skógum 19.08.2026 26:58
Í níunda þætti Út í óvissuna fjöllum við um Hálendisvaktina í Landmannalaugum, Nýjadal og Herðubreiðarlindum. Einar Daníelsson segir frá tilgangi verkefnisins, verkefnum sumarsins og helstu tölum. Síðan förum við í Skóga undir Eyjafjöllum, þar sem Guðbjörg Konráðsdóttir, starfsmaður Skógasafns, og Sigurður Harðarson segja frá sögu björgunarsveita og fjarskipta og mununum sem varðveittir eru í safn...
#8 - Útkallsbækurnar & Hannes Þ. Hafstein 05.08.2026 40:46
Í áttunda þætti Út í óvissuna er rætt við rithöfundinn Óttar Sveinsson, höfund hinna vinsælu Útkallsbóka, um sögurnar sem hann hefur safnað úr björgunarstarfi gegnum árin og nýjustu bókina Ég er á lífi. Í seinni hluta þáttarins segir Þorsteinn Þorkelsson, gjaldkeri félagsins og sagnfræðingur, frá ævi og störfum Hannesar Þórðar Hafstein, sem gegndi lykilhlutverki hjá félaginu um áratugaskeið og van...
#7 - Flugbjörgunarsveitin Hellu & Frú Guðrún Jónasson 22.07.2026 34:36
Að þessu sinni hefjum við leikinn á Suðurlandi, nánar tiltekið á Hellu, þar sem Sigurgeir Guðmundsson, félagi í Flugbjörgunarsveitinni Hellu, tók á móti okkur. Við vildum kynnast sögu sveitarinnar og starfseminni á Hellu, og Sigurgeir var sannarlega rétti maðurinn til að leiða okkur í gegnum það. Hann er mikill sögumaður og kunni frá mörgu að segja. Í síðari hluta þáttarins er rætt við Svanfríði L...
#6 - Fyrst íslenskra kvenna að ganga á Mont Blanc 08.07.2026 42:56
Ólafía Aðalsteinsdóttir hóf störf með Hjálparsveit skáta í Reykjavík í upphafi áttunda áratugar síðustu aldar og hefur því fylgst með starfinu þróast í meira en hálfa öld. Hún segir frá því hversu miklu máli skátastarfið skipti á unglingsárunum, vináttunni sem myndaðist, æfingunum og öllu því sem hefur setið eftir. Við förum yfir víðan völl: leitir að rjúpnaskyttum, týndum ungmennum, björgunarstör...
#5 - Neyðarlínan & Björgunarhundasveit Íslands 24.06.2026 38:15
Í fimmta þætti hlaðvarps Landsbjargar höldum við áfram að kynna okkur ólíkar hliðar starfsins. Í fyrri hluta þáttarins ræðum við við Vilhjálm Halldórsson, varðstjóra hjá Neyðarlínunni. Hann hefur starfað þar um árabil og segir okkur frá fyrsta viðbragði þegar neyðarkall berst, samskiptum við þann sem hringir og samspili viðbragðsaðila, þar á meðal björgunarsveita, allt frá útkalli og út á vettvang...
#4 - Bakverðir & Nýtt húsnæði HSSK 10.06.2026 28:00
Í fjórða þætti verður fjáröflun í brennidepli enda mikilvægur liður í starfsemi félagsins. Bakvarðaverkefnið fór af stað árið 2013 og hefur vaxið mikið síðan þá. Rætt var við Flóka Guðmundsson hjá Takk, sem hefur starfað fyrir fjölmörg góðgerðarfélög og sjálfboðaliðasamtök. Við fórum yfir þróunina í fjáröflun, miðla og boðleiðir og hvernig hægt sé að ná til almennings á gervihnattaröld. Í síðari...
#3 - Slysavarnaskóli sjómanna & Áhafnaskipti IMRF 27.05.2026 33:49
Sjóbjörgun verður í aðalhlutverki í þætti vikunnar. Bogi Þorsteinsson, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, tók á móti okkur á Reykjavíkurhöfn og bauð okkur um borð í skólaskipið Sæbjörgu. Hlutverk skólans er að standa fyrir öflugu fræðslustarfi fyrir sjómenn og aðra sem starfa í haftengdri starfsemi. Við fengum kynningu á starfsemi skólans og skipinu sjálfu, auk þess að fræðast um sjóbjörgun og...
#2 - Sjálfboðaliði í tæp 70 ár & Rótarskot á Snæfellsnesi 13.05.2026 31:41
Freyr Bjartmarz hefur séð tímana tvenna í starfi félagsins en hann gekk til liðs við Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur á sjötta áratug síðustu aldar og hefur verið viðloðinn björgunarsveitina í tæp 70 ár. Við fórum yfir víðan völl og ræddum meðal annars eftirminnileg útköll, hvernig starfið hefur þróast í gegnum árin, svaðilfarir á vélsleðum og margt fleira. Í seinni hluta þáttarins var haldið á Snæf...
#1 - Formaður Landsbjargar & Flugslysaæfing 29.04.2026 38:00
Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar, gaf okkur innsýn í starf sitt sem formaður. Hún fór yfir víðfeðmt starf félagsins, áskorunum í starfi og velti einnig fyrir sér framtíðinni, ekki síst í ljósi þess að 100 ára afmæli félagsins er á næsta leiti. Viðtalið var tekið upp í febrúar 2026. Í síðari hluta þáttarins færum við okkur á Reykjavíkurflugvöllur í október...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.