Tveggja Turnatal
Tveggja Turna Tal
Turninn Jón Páll fær til sín hina ýmsu turna úr íslensku íþróttalífi.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#30 Gunnar Magnússon 20.01.2025 1:56:43
Það er leikdagur á HM í handbolta og tilvalið að kynna einn okkar besta þjón landsliðsins síðustu ár til leiks. Gunnar Magnússon er Víkingur sem hefur verið aðstoðarþjálfari Alfreðs Gísla, Guðmundar Guðmunds og Arons Kristjánssonar hjá landsliðinu auk þess að vera tímabundinn landsliðsþjálfari um stuttan tíma. Gunnar gerði ÍBV fyrstur manna að Íslandsmeisturum í karlahandbolta og hefur leikið sama...
#29 Þórarinn Ingi Valdimarsson 16.01.2025 1:16:19
Þórarinn Ingi Valdimarsson hitti mig í World Class Laugum og ræddi Vestmannaeyjar, Noreg og þurra Norðmenn, FH, Stjörnuna auk þess sem hann valdi lið af mönnum til að taka með sér á þjóðhátíð sem kemur á óvart! Visitor, Lengjan, Hafið Fiskverslun, World Class eru með okkur í liði ásamt auðvitað Budwaiser Budvar! Njótið vel!
#28 Brynjar Karl Sigurðsson 13.01.2025 3:00:37
Brynjar Karl Sigurðsson er fyrrverandi leikmaður, núverandi þjálfari, businesskall, brautryðjandi og óumdeilanlega umdeildur náungi úr Breiðholtinu. Brynjar Karl stofnaði Sideline Sports og í kjölfarið Key Habits og hefur selt hugbúnaðinn til ensku úrvaldsdeildarinnar, NBA og NFL ásamt því að vinna með bestu þjálfurum í heimi. Brynjar Karl er þó líklega þekktastur hjá almenningi á Íslandi fyrir að...
#27 Kristján Arason 06.01.2025 3:00:32
Fyrsti gestur ársins er úr efstu hillu. Kristján Arason er einn af markahæstu landsliðsmönnum í heimi, einn fárra sem hefur skorað meira en 1000 landsliðsmörk. Kristján lék handbolta með FH, var atvinnumaður í Þýskalandi og á Spáni og var á sínum tíma einn besti handboltamaður í heimi. Kristján var líka og er frábær þjálfari. Við fórum yfir víðan völl. Við ræddum Geir Hallsteins, Bogdan, Heine Bra...
#26 Kári Jónsson 30.12.2024 1:29:21
Síðasti gestur ársins er einn af bestu körfuboltamönnum landsins. Hann er alinn upp í Hafnarfirði. Afi hans er Faðir körfuboltans í Hafnarfirði, pabbi hans og föðurbróðir goðsagnir í Haukunum og Kári er þekktur fyrir að geta skorað hvaðan sem er af vellinum, hvenær sem er, hvar sem er! Við fórum yfir víðan völl og enduðum á því að ræða það sem skiptir máli - að vinna! Við Turnarnir þökkum Nettó, H...
#25 Óli Jóh & Sigurbjörn Hreiðars 25.12.2024 2:21:56
Það þarf ekki að kynna Óla Jóh og Bjössa Hreiðars fyrir neinum áhugamanni um íþróttir eða bara skemmtun yfir höfuð. Þeir félagar mættu í miklu stuði í stúdíó og ræddu meðal annars áform um að koma inn í hlaðvarpsheiminn, hvernig Frú Guðný, eiginkona Óla, fékk tvíburana í FH, það skemmtilega við þjálfun, vinnu í sjónvarpi og margt fleira. Við Turnarnir þökkum Nettó, Hafinu Fiskverslun, Visitir, Net...
#24 Kári Ársælsson 23.12.2024 2:26:48
Kári Ársælsson er fyrsti fyrirliði Breiðabliks til að lyfta Íslands og Bikarmeistaratitlinum í meistaraflokki karla í fótbolta. Það gerði hann á lágmarkslaunum! Kári var 16 ára keyptur af Ásgeiri Elíassyni í Þrótt þar sem hann sat stundum á bekknum þegar Þróttarar féllu úr efstu deild eftir að hafa verið efstir eftir fyrri umferðina. Hann stundaði nám í Alabama í Bandaríkjunum og er þekktur "trash...
#23 Grétar Sigfinnur Sigurðarson 19.12.2024 1:43:50
Grétar Sigfinnur Sigurðarson er margfaldur Íslands og bikarmeistari í fótbolta. Vinir hans nefna hann þann vanmetna því hann er raðsigurvegari sem þó hefur ekki alltaf fengið það hrós sem hann á skilið. Hann þurfti að fara krókaleið til að komast í KR-liðið, upplifði mikla höfnum þar en endaði alltaf uppi sem sigurvegari. Við í Turnunum þökkum Nettó, Netgíró, Hafinu Fiskverslun, Fitness Sport, Bud...
#22 Helgi Jónas Guðfinnsson 16.12.2024 1:09:35
Helgi Jónas Guðfinnsson á um margt áhugaverðan feril. Hann varð Íslandsmeistari í körfubolta með Grindavík bæði sem leikmaður og þjálfari og varð svo í haust Íslandsmeistari í fótbolta sem lykilmaður í þjálfarateymi Breiðabliks. Hann var atvinnumaður í körfubolta, spilaði sinn fyrsta leik í efstu deild í knattspyrnu 26 ára, hannaði Metabolic æfingakerfið og hefur skrifað bækur! Það er augljóst að...
#21 Arna Stefanía 12.12.2024 1:09:34
Arna Stefanía Guðmundsdóttir er stórkostleg manneskja. Afrekskona í frjálsum, afrekskona í kennslu, meistari, snillingur og mannvinur í orði sem á borði. Við Arna Stefanía fórum yfir farinn veg, ræddum það að vera barnastjarna, muninn á milli einstaklings og hópíþrótt, áttuðum okkur á því hversvegna við erum perluvinir og plönuðum margra manna date á næsta ári. Við í Turnunum þökkum Nettó, Netgíró...
#20 Teitur Þórðarson 09.12.2024 1:16:08
Fyrri gestur vikunnar er Teitur Þórðarson. Teitur breytti þjálfunaraðferðum í knattspyrnu í Noregi, á Íslandi og í Eistlandi. Hann þjálfaði líka í Kanada og spilaði í Svíþjóð, Frakklandi og Sviss. Teitur hefur flutt 27 sinnum! Teitur var frábær leikmaður. Stór, sterkur og fljótur með ríkt dugnaðargen í skrokknum. Við fórum yfir fullt af hlutum. Árin í Noregi, hvernig það var að spila undir Arsene...
#19 Kristján Ómar Björnsson 05.12.2024 2:12:34
Gestur dagsins er Kristján Ómar Björnsson. Kristján Ómar er einn leikjahæsti leikmaður í sögu Íslandsmótsins í knattspyrnu með skráða 531 mótsleiki hjá KSI auk þess sem hann spilaði í Svíþjóð, geri aðrir betur! Kristján Ómar stofnaði Nú skólann í Hafnarfirði þar sem hann er nú Heilsustjóri. Við fórum yfir víðan völl! Kristján valdi bestu leikmenn sem hann hefur spilaði með, besta þjálfarann, fór y...
#18 Ívar Ingimarsson 02.12.2024 1:34:14
Fyrri gestur vikunnar er Stöðfirðingurinn Ívar Ingimarsson. Ívar var farinn að spila með meistaraflokki fyrir fermingu á Stöðvarfirði þar sem hann náði í menn í frystihúsið til að spila við sig sem krakki. Við fórum yfir feril Ívars á hundavaði. Þar segir frá dagbókarskrifum, seiglu ungs drengs og ákveðni. Einnig ræddum við lausagöngu sauðfjár og nú er spyrillinn kominn í spjallhóp á facebook um e...
#17 Friðrik Ingi Rúnarsson 25.11.2024 2:18:04
Gestur vikunnar er einn af áhrifaríkustu þjálfurum í sögu þjóðar! Friðrik Ingi stýrði Njarðvíkurliðinu til sigurs í Íslandsmótinu þegar hann var einungis 22 ára gamall, geri aðrir betur. Við ræddum Jordan, Phil Jackson, Pat Riley, liðsheild, makamissi, fótbolta, þríhyrningssóknina og um hvað lífið snýst um. Þetta er skylduhlustun. Við í turnunum þökkum Nettó, Netgíró, Lengjunni, Hafinu fiskverslun...
#16 Nik Anthony Chamberlain 18.11.2024 2:14:45
Gestur vikunnar er Íslandsmeistari í fótbolta 2024. Nik Chamberlain kemur frá Englandi, lærði í Alabama og tengdist Íslandi þar í gegnum m.a. Sigga Sör, Kára Ársæls og Hjört Hjartar! Hann kom til Íslands og spilaði á Álftanesi, hjá ÍH (rósir eru rauðar, fjöllin eru blá, hverjir eru bestir - ÍH) áður en hann spilaði fyrir austan hjá Hugin og KFF. Hann setti mark sitt á Íslenskan fótbolta hjá kvenna...
#15 Jóhann Birnir Guðmundsson 09.11.2024 2:27:24
Gestur vikunnar er mjög áhugaverður náungi. Hann æfði eiginlega ekki fótbolta í 3 og 4 flokki því það var ekki lið í Garðinum, þaðan sem Jóhann Birnir kemur. Elton John keypti hann til Watford og þar spilaði hann undir goðsögninni Graham Taylor. Jóhann spilaði svo i Englandi, Noregi og í Svíþjóð áður en hann kom heim til að spila með Keflavík. Eftir ferilinn hefur Jói verið þjálfari Keflavíkur, yf...
#14 Haraldur Árni Hróðmarsson 04.11.2024 2:19:03
Gestur vikunnar er í einu áhugaverðasta starfi í íslenskum fótbolta. Halli þjálfar lið frá bæjarfélagi þar sem enginn býr, því miður. Við ræddum saman um fótboltaferilinn, 48 tíma reglu Bo Hendrikssen, hvernig það var að þjálfa með Heimi Guðjóns, Tuva og Jóni Þór ásamt því sem Haraldur spáir því að trúðurinn Trump verði næsti forseti Bandaríkjanna. Kvikmyndaunnendur landsins munu líka njóta þessa...
#13 Kjartan Atli Kjartansson 27.10.2024 2:41:09
Gestur vikunnar er maður frásagna! Hann hefur unnið titla sem leikmaður og þjálfari í körfubolta, var öflugur targetsenter í neðri deildum í fótbolta ásamt því að hafa gert nánast allt í fjölmiðlum á Íslandi þó hann sé sé eingöngu fertugur. Það má heldur aldrei gleymast að Kjartan Atli er rappstjarna! Við Kjartan Atli ræddum allt milli himins og jarðar. Körfubolti, fótbolti, þjálfun, reglugerðir,...
#12 Árni Freyr Guðnason 21.10.2024 1:53:57
Gestur vikunnar er nýráðinn þjálfari Fylkis, Árni Freyr Guðnason. Árni er alinn upp í Hafnafirði. Hann spilaði upp yngri flokka FH en hans bestu ár sem leikmaður komu í Breiðholtinu sem leikmaður ÍR. Ásamt því að spila þá þjálfaði hann yngri flokka FH en hann hefur einnig þjálfað kvennalið FH og verið yfirþjálfari yngri flokka í Kaplakrika. Árni Freyr tók við ÍR þegar félagið var í vandræðum í 2.d...
#11 Þorsteinn Halldorsson 14.10.2024 1:16:16
Gestur vikunnar er Þorsteinn Halldórsson þjálfari Íslenska kvennalandsliðsins. Steini kemur frá Norðfirði en flutti ungur á mölina og fór í KR og lék þar lengi ásamt að hafa átt góð ár í FH og Þrótti Reykjavíkur. Þjálfaraferillinn er langur og við ræddum að mestu tímann hjá Breiðablik og landsliðinu samt því að hafa fórum yfir hvernig það væri að vera pabbi íþróttafólks. Við þökkum Nettó, Lengjunn...
#10 AgeHaraide 10.10.2024 53:17
Það er komið að fyrstu viðhafnarútgáfu Tveggja Turna Tals þar sem Åge Hareide bauð okkur heimsókn. Við þáðum boðið og fyrstu skipafréttirnirnar í Tveggja Turna Tali áttu sér stað. Við ræddum þjálfun, hugarfar Íslenska landsliðsins, umferðarteppu á leiðinni á Wembley og vináttu okkar manns við Harald Noregskonung! Við þökkum okkar bestu mönnum í Nettó, Netgíró, Lengjunni, Fitness Sport, Tékkneskum...
#9 Magnús Már Einarsson 07.10.2024 1:25:30
Magnús Már Einarsson, Maggi.net, er gestur vikunnar. Magnús byrjaði 13 ára að starfa sem blaðamaður á fotbolti.net og breytti leiknum í umfjöllunumum íslenskan fótbolta ásamt Hafliða Breiðfjörð á næstu 19 árum. Sonur hans fótbrotnaði á fyrir nokkrum árum og það fékk Magga til að hugsa um hvað hann væri að gera í lífinu. Hann hætti á .net og fór að einbeita sér að þjálfun og að vera pabbi. Áranguri...
#8 Halldór Jóhann Sigfússon 30.09.2024 2:17:22
Halldór Jóhann Sigfússon, agaður lögreglumaður frá Akureyri er gestur vikunnar. Við ræddum Kónginn frá Akureyri, Alfreð Gíslason, Julian Duranona ásamt því að fara yfir áhugaverðan feril Dóra á Íslandi og í Þýskalandi. Dóri er metnaðarfullur náungi, eilítið kassalaga og hann hefur getið sér gott orð í þjálfun bæði á Íslandi og niður við Persaflóa! Dóri er ástæðan fyrir því að Ásbjörn Friðriks er í...
#7 Gulli Jóns 23.09.2024 2:53:21
Gunnlaugur Jónsson er gestur vikunnar. Við félagarnir fórum yfir víðan völl enda áhugasvið og ferill Gulla afar athyglisverður. Nýdönsk, afhverju vann FH ekki 89?, Draumalið ÍA frá 1980, Gaui Þórðar, Teitur Þórðar, Selfoss, Valur, Þróttur og fjölmiðlabakterían bar á góma! Við lentum í tómum vandræðum með þjófavörnina, brunavarnirnar og margt fleira. Við þökkum Nettó, Netgíró, Lengjunni, Fitness Sp...
#6 ÓliKristjáns 16.09.2024 2:50:02
Óli Kristjáns er gestur sem allir þekkja. Óli var góður leikmaður fyrir FH, KR, AGF og Íslenska landsliðið og fáir Íslendingar hafa átt eins áhugaverðan þjálfaraferil. Það geta allir lært helling af því að hlusta á Ólaf. Skiptir þá engu hvort um sé að ræða þjálfun eða lífið sjálft. Við þökkum Nettó, Netgíró, Lengjunni og 0% Budvar fyrir samstarfið góða og óskum ykkur öllum þess að njóta vel! Það E...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.