Tveggja Turnatal

Tveggja Turna Tal

Sports IS ↓ 80 episodes

Turninn Jón Páll fær til sín hina ýmsu turna úr íslensku íþróttalífi.

Author

Tveggja Turnatal

Category

Sports

Podcast website

soundcloud.com

Latest episode

Jan 15, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#54 Aron Ýmir Pétursson 09.06.2025

Er þjálfun ofmetin? Er DNA-ið á skaganum betra en annarsstaðar? Hvernig nýta skagamenn allar þær lifandi goðsagnir sem alið hafa manninn í fótboltabæ Íslands og þótt víða væri leitað? Aron Ýmir er yfirþjálfari ÍA (La Masia) á Íslandi og við fórum yfir þetta allt og fleira til!

#1 Turnar segja sögur: Írland frá Jack Charlton til Heimis Hallgríms 05.06.2025

Turnar segja sögur er nýr liður þar sem við Krissi setjumst niður og ræðum algjörlega tilgangslausar staðreyndir úr knattspyrnusögunni – sem eru samt óskiljanlega fastar í hausnum á okkur. Í þessum þætti förum við yfir sögu írska landsliðsins, allt frá tímum Jack Charlton til Heimis Hallgríms. Charlton masteraði „the granny rule“ og fékk blessun frá Jóni Páli Páfa í Vatíkaninu. Við kíkjum líka á s...

#53 Þorkell Máni Pétursson 02.06.2025

Þorkell Máni hefur marga fjöruna sopið. Máni kom og við ræddum þjálfaraferilinn hans, stjórnarsetuna í KSI og það að vera fótboltapabbi. Mögulega ræddum við líka um Leeds og pappakassa! Samstarfsaðilar Turnanna eru: Lengjan Hafið Fiskverslun World Class Golfklúbburinn Keilir Budwar

#52 Birna Berg Haraldsdóttir 30.05.2025

Birna Berg hefur marga fjöruna sopið á nokkuð löngum ferli sem knattspyrnukona og handboltakona! Hún lagði knattspyrnuskóna á hillina, tímabundið, þegar hún var 18 ára en þá komin með þrjú tímabil í meistaraflokki á ferilskrána eftir að hafa fengið nokkuð skýr skilaboð frá KSI um hún þyrfti að velja á milli. Þá tók við fengsæll ferill í handbolta á Íslandi, í Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Þýskalandi...

#51 Óskar Smári Haraldsson 26.05.2025

Óskar Smári Haraldsson er bóndasonur úr Varmahlíð. Hann var tvisvar sinnum valinn í lið umferðarinnar í Lengjudeildinni fyrir rúmum áratug síðan og það var hápunktur ferilsins sem var sjálfmiðaður, að hans mati! Kristján Guðmundsson tók í burtur úr honum hrokann og kenndi honum auðmýkt, leikgreiningu og ýmislegt annað og undanfarin fjögur ár hefur Óskar Smári unnið þrekvirki með kvennalið Fram. Vi...

#50 Jóhann Kristinn Gunnarsson 20.05.2025

Jóhann Kristinn Gunnarsson er þjálfari Þór/KA í Bestu deild kvenna. Jói kom til mín á Ölhúsið í Hafnarfirði og við fórum yfir hvers vegna Húsvíkingar hafa búið til allt þetta magn af fótboltamönnum, landsliðið, UEFA-Pro þjálfaragráðuna, munin á að þjálfa stráka og stelpur, Íslandsmeistarartitilinn árið 2012 og margt fleira. Njótið ævinlega vel!

#49 Samantha Smith 15.05.2025

Samantha Smith afrekaði það að vera valinn besti leikmaður Lengjudeildarinnar og vera valin í lið ársins í Bestu deildinni í fyrra, það er afrek! Samantha kom til mín á Ölhúsið í Hafnarfirði og við ræddum uppvaxtarárin, tímann í Texas, hvernig hún svo endaði á Reyðarfirði og í kjölfarið á Breiðablik. Sammy svarar því svo til hvort hún hafi áhuga á að spila fyrir Íslands hönd ef einhver á þingi mæt...

#48 John Andrews 12.05.2025

John Andrews gerði Víking að bikarmeisturum haustið 2023 er liðið lék í næst efstu deild á Íslandi. Það hefur ekki gerst áður og mun ólíklega gerast aftur. John er Íri, frá Cork, sem spilaði í Írlandi og Englandi áður en hann kom til Íslands til að spila með Aftureldingu. Hann hefur þjálfað Aftureldingu, í Indlandi og Bandaríkjunum, á Húsavík og nú í hamingjunni í Víkinni. Hann er þrælfyndinn, hef...

#47 Guðbjörg Ýr Hilmarsdóttir 08.05.2025

Guðjörg Ýr Hilmarsdóttir er stemmningskona úr Kópavogi. Hún er Dj á heimaleikjum Breiðabliks og er svo góð í starfi að re-mixin hennar eru spiluð í Þýsku Bundesligunni. Gugga skilaði nýlega upplifunarhandbók sem lokaverkefni í Háskólanum sem fjallar um hvernig hægt er að fjölga áhorfendum á íþróttaviðburðum. Gugga settist niður með mér og útskýrði fyrir mér hvernig við getum hækkað meðaltalsfjölda...

#46 Adda Baldursdóttir 05.05.2025

Ágerður Stefanía, eða Adda eins og hún er oft kölluð, er alinn upp í Breiðabliki en er í dag goðsögn í Stjörnunni og Val, þar sem hún raðaði inn Íslands- og bikarmeistaratitlum. Þegar leikferlinum lauk hélt hún strax áfram að móta sigurlið – nú í þjálfarateymi með Pétri Péturssyni. Í þessum þætti förum við yfir magnaðan feril, hvernig sigurhugarfar mótast, hvað þarf til að byggja upp sigursælt lið...

#45 Agla María Albertsdóttir 01.05.2025

Velkomin í nýja seríu Tveggja Turna Tals – konur í íþróttaheiminum. Í þessari seríu ræðum við við konur sem hafa markað spor í íþróttalíf okkar allra – leikmenn, þjálfara og leiðtoga, innan sem utan vallar. Þátturinn er í boði Fiskverslunarinnar Hafsins, Golfklúbbsins Keilis, Lengjunnar og Budweiser Budvar – við þökkum þeim innilega fyrir stuðninginn. Fyrsti gestur okkar í þessari seríu er barnast...

#44 Guðjón Örn Ingólfsson 28.04.2025

Guðjón Örn Ingólfsson hefur á síðustu tíu árum verið fitness- og styrktarþjálfari hjá FH, Víkingi og nú KR. Hann hóf ferilinn hjá FH undir stjórn Heimis Guðjónssonar og vann þar einnig með Ólafi Helga Kristjánssyni. Arnar Gunnlaugsson fékk hann svo í Víking, þar sem hann varð Íslandsmeistari tvisvar sinnum og bikarmeistari fjórum sinnum áður en hann hélt heim í uppeldisfélagið sitt, KR, þar sem ha...

#43 Gunnar Jarl 14.04.2025

Gestur vikunnar er Gunnar Jarl Jónsson – sannkallaður þúsundþjalasmiður! Gunnar spilaði í næstefstu deild en áttaði sig snemma á því að hann átti bjartari framtíð sem dómari. Þar hafði hann heldur betur rétt fyrir sér: hann var valinn dómari ársins sex sinnum á aðeins átta árum. En sagan endar ekki þar. Gunnar hefur þjálfað fótbolta, stofnað útvarpsþátt á Fotbolti.net fyrir löngu síðan, starfað se...

#42 Birgir Björn Magnússon 06.04.2025

Birgir Björn Magnússon er íþróttastjóri Golfklúbbsins Keilis, afrekskylfingur og hagfræðingur. Við ræddum afreksgolf á Íslandi, í hverju ungir kylfingar eru góðir og hvar og hvenær kjaftshöggið kemur. Birgir Björn eyddi löngum tíma í Bandaríkjunum í Háskólagolfinu bæði sem leikmaður og. þjálfari. Við fórum yfir þetta allt saman ásamt ýmsu fleiru, eins og til dæmis hverjir bestu kylfingar sögunnar...

#41 Danni&Joi Laxdal 31.03.2025

Gestir vikunnar eru þeir bræður Danni og Jói Laxdal. Við fórum yfir tónlistasmekkinn þeirra, fótboltaferilinn, þjálfarana og leikinn í Kaplakrika 2014 ásamt ýmsu fleiru. Toppmenn!

#40 Atli Gudna 24.03.2025

Atli Guðnason hóf meistaraflokksferil sinn með FH árið 2004 og varð sjöfaldur Íslandsmeistari og tvöfaldur bikarmeistari með liðinu. Hann er leikjahæsti leikmaður í sögu FH í efstu deild, með 285 leiki þar sem hann skoraði 68 mörk og gaf 84 stoðsendingar. ​ Árið 2012 náði Atli þeim merka áfanga, sem enginn annar hefur gert, að verða bæði markakóngur og stoðsendingakóngur Pepsi-deildarinnar. Atli v...

#39 Ásgeir Jónsson 17.03.2025

Gestur vikunnar verður eftir nokkra daga varaformaður HSI. Ásgeir Jónsson er fyrrum formaður handknattleiksdeildar Gróttu/KR og FH, hvar hann vann frábært starf. Hann fékk ásamt góðum mönnum Alexander Petterson til Íslands seint á síðustu öld og ætlar að taka til hendinni hjá HSÍ. Við ræddum þetta allt og margt fleira! Njótið.

#38 Ólafur Þ. Harðarson 10.03.2025

Ólafur Þ. Harðarson er stjórnmálafræðingur og prófessor emiritus við Háskóla Íslands. Við Ólafur ræddum Donald Trump, Gobbels og Mussolini en ennþá meira um íþróttafólk sem tekið hefur sæti á Alþingi Íslendinga. Af nægu er að taka og Ólafur er hafsjór fróðleiks! Þátturinn er í boði Visitor Ferðaskrifstofu, Lengjunnar, Hafsins fiskverslun, Budvar, World Class og Golfklúbbsins Keilis !

#37 Hermann Hreiðarsson Part I 03.03.2025

Gestur vikunnar er enginn annnar en Hermann Hreiðarsson. Hermann er eini Íslendingurinn sem hefur unnið FA cup bikarinn og hefur spilað 332 leiki í Premier League á 15 árum í ensku deildunum. Í þessum fyrri hluta þáttarins fórum við yfir árin í Eyjum og í ensku úrvalsdeildinni. Við ræddum Harry Redknapp, Atla Eðvalds, Joe Royle, Alan Curbishley og fleiri góða menn. Njótið vel! Styrktaraðilar þátta...

#36 Eiður Ben Eiríksson 24.02.2025

Gestur vikunnar er Eiður Ben Eiríksson. Eiður er í þjálfarateymi Íslandsmeistara Breiðabliks og á nokkuð áhugaverðan feril að baki. Hann byrjaði mjög ungur að þjálfa og var orðinn þjálfari í efstu deild kvenna rétt rúmlega fermdur. Eiður hefur komið víða við og unnið með mörgu góðu fólki. Við ræddum þetta allt, fórum vítt yfir sviðið. Eiður er áhugaverður náungi. Hann segir frá því þegar Pétur Pét...

#35 Guðjón Pétur Lýðsson 17.02.2025

Guðjón Pétur Lýðsson er einhver mestu do-er sem fyrirfinnst á Íslandi. Hann er með öll járn heimsins i eldinum ásamt því að reka fjölskyldu og spila fótbolta. Guðjón Pétur hefur spilað með mörgum félögum á Íslandi, sumum oftar en tvisvar og hann nennir engu kjaftæði. Við fórum yfir víðan völl. Hver kenndi honum að sparka í bolta, afhverju varð atvinnumennskan ekki lengri, þjálfaradraumar og margt...

#34 Finnur Orri Margeirsson 09.02.2025

Finnur Orri Margeirsson tilkynnti fyrir nokkrum dögum að hann hefði lagt skóna á hilluna þó svo að ég sé nokkuð viss um að hann vilji spila einn leik til! Finnur spilaði á Íslandi með Breiðablik, KR og FH, sem hann tvísamdi við. Hann átti líka gott tímabil með Lillestrom í Noregi. Við fórum yfir ferilinn, ræddum Metoo, hann valdi bestu leikmenn sem hann spilaði með í liðunum á Íslandi og síðast en...

#33 Hreiðar Haralds 05.02.2025

Næsti gestur er Hreiðar Haraldsson, íþróttasálfræðiráðgjafi. Hreiðar hjálpar íþróttamönnum og íþróttaliðum að styrkja andlega þáttinn til að bæta árangur með því að æfa og efla heilann, það merkilega líffæri. Við ræddum marga lykilþætti í íþróttum, meðal annars sjálfstraust, markmiðasetningu, einbeitingu og mikilvægi þess að vera sinn besti vinur. Samvinna foreldra og þjálfara á líf íþróttamannsin...

#32 Ómar Ingi Guðmundsson 03.02.2025

Ómar Ingi Guðmundsson er yfirmaður hæfileikamótunar KSI, þjálfari U-15 ára landsliðsins og aðstoðarþjálfari U-19 ára landsliðsins. Ómar Ingi þjálfaði yngri flokka HK ásamt því að vera yfirþjálfari félagsins í áratugi áður en hann óvænt tók við meistaraflokk karla hjá félaginu og setti stigamet hjá félaginu í efstu deild. Ómar Ingi hefur líka þjálfað í Mosfellsbæ og í Hveragerði og hvar sem hann ke...

#31 Davíð Snorri Jónasson 27.01.2025

Davíð Snorri Jónasson er alinn upp í Fellahverfinu í Breiðholti. Hann er kennararmenntaður og hefur starfað sem slíkur ásamt því að hafa náð frábærum árangri sem knattspyrnuþjálfari. Davíð Snorri er í dag aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla en hefur einnig þjálfað 21 árs landslið Íslands, yngri landslið ásamt því í að hafa þjálfað hjá Leikni og Stjörnunni. Við fórum yfir feril Davíðs Snorra, hverni...

Listen to the Tveggja Turna Tal podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.