Daníel Óli

Trivíaleikarnir

Society IS ↓ 64 episodes

Trivíaleikarnir færa pub quiz stemninguna beint heim til þín, hvar sem þú ert og hvað sem þú ert að gera. Tvö tveggja manna lið etja kappi í léttri og skemmtilegri spurningakeppni þar sem spurningar um allt milli himins og jarðar dynja á keppendum. Hvort sem þú elskar pub quiz og spurningaspil eða veist varla hvað Gettu Betur er, að þá er eitthvað fyrir þig í Trivíaleikunum. Hlustaðu, hlæðu með okkur og lærðu eitthvað nýtt í leiðinni. Fáðu þrjá þætti í hverjum mánuði með áskrift á Patreon: https://www.patreon.com/trivialeikarnir

Author

Daníel Óli

Category

Society

Podcast website

trivialeikarnir.net

Latest episode

Jun 22, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

56. Suðumark - hlustist til enda* 22.06.2026

Já það er komið að fimmtugasta og sjötta þátt Trivíaleikanna og aldrei verið mikilvægara að hlusta á allan þáttinn til enda en nú. Það sauð upp úr og ofan í stúdíóinu en að þessu sinni skellti Öddi sér í dómarasætið og Jón Hlífar, Daníel, Ingi og Heiðdís María öttu kappi. Hver er hinn gríski guð víns? Í hvaða mánuði forna tímatalsins er allra heilagra messa? Þetta og margt annað er tæklað í þættin...

55. Stefán Gyrðir og Glæsibærinn 26.05.2026

Já það er komið að fimmtugasta og fimmta þætti Trivíaleikanna - afsakið hve seint þessi þáttur kemur út, það hefur verið erfitt að ná tökum upp á síðkastið. Shoutout líka á nýja sponsorinn okkar Frisbígolfbúðinni - tékkið á þeim í Glæsibænum! Í þennan kyngimagnaða þátt mættu þau Arnór, Heiðdís, Ingi og Bjarni Halldór í sinn annan þátt. Hver er söluhæsta breiðskída Kendricks Lamar? Hvaða Studio Ghi...

54. Magnus Carlsen lausnin 15.04.2026

Fimmtugasti og fjórði þáttur Trivíaleikanna, í stúdíóið mættu Daníel Óli, Kristján, Ingi og splunkunýr keppandi úr fortíðinni, Bjarni Halldór sem keppti við Daníel, Arnór og Inga eitt sinn í Gettu Betur en Arnór Steinn skellti sér einmitt í dómarasætið að þessu sinni og því um sannkallaða endurfundi að ræða. Í hvaða landi er að finna höfuðborgina Dhaka? Fyrir hvað stendur skammstöfunin BSÍ? Þetta...

53. Kröddi og cuckstólarnir 08.03.2026

Já það er komið að 53. þætti Trivíaleikanna en að þessu sinni kíktu þeir Kristján, Jón Hlífar, Ingi og Öddi í sjóðblautt stúdíó hlaðvarpsins. Hvaða tveimur löndum í Suður-Ameríku á Brasilía ekki landamæri að? Hvað hefur hver spilari mörg spil á hendi þegar spilaður er skítakall með hefðbundnum spilastokki? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Kristján, Öddi, Ingi og Jón Hlífar.

10P. Rottan í horninu (Patreon þáttur) 19.02.2026

Vegna gríðarlegra anna spurningahöfundar að þá hefur þáttur mánaðarins tafist um nokkra daga - við vildum þó brúa aðeins bilið fyrir ykkur kæru hlustendur og leyfum ykkur því að heyra einn gamlan Patreon þátt frá því í haust í millitíðinni. Njótið vel kæru hlustendur og endilega kíkið á Patreon hjá okkur, þar getið þið fengið tugi þátta fyrir litla 8$.

52. 2000's-leikarnir (þemaþáttur) 14.01.2026

Fimmtugasti og annar þáttur Trivíaleikanna og þið vitið hvað það þýðir, þemaþáttur! Að þessu sinni varð fyrsti áratugur 21. aldarinnar fyrir valinu eða 2000's þema. Tvö kunnugleg lið, Arnór Steinn og Marín Eydal kepptu við Jóni Hlífari og Kristjáni í svakalegum 2000's slag þar sem Britney Spears, MP3 spilarar og DVD diskar komu víða við sögu. Hver var Region kóði Evrópu á DVD diskum? Hvaða...

51. Formalínið hans Gísla Marteins 14.12.2025

Já það er komið að nýjum þætti. Að þessu sinni skellti Arnór Steinn sér í dómarasætið og okkar eigin Ingi & Haraldur Örn tóku á móti glænýjum keppendum Þorra Líndal & Andreu í svakalegum þætti. Úr hvaða ávöxt eru sveskjur myndaðar? Hvaða knattspyrnulið hét upprunalega Newton Heath? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Ingi, Haraldur Örn, Þorri Líndal og Andrea.

Jóladagatalið 2025 (tilkynning) 25.11.2025

VIÐ ERUM AÐ GEFA ÚT JÓLADAGATAL Í ÁR! Dagatalið inniheldur sjö þætti af Trivíaleikunum sem byrja að droppa 1. desember nk. og svo droppar nýr þáttur áfram á 3-4 daga fresti alveg fram að Jólum þegar lengri úrslitaþáttur droppar á aðfangadagsmorgun! Um er að ræða fyrstu útsláttarkeppni í sögu Trivíaleikanna, átta lið tóku þátt með sextán keppendum, í hverri umferð detta út tapliðin og sigurliðin ha...

50. Live á Arena (50th episode special) 01.11.2025

Við fögnum 50 þáttum af Trivíaleikunum með fyrsta live þættinum okkar, sem tekinn var upp á Arena í Kópavogi þann 17. okt 2025 fyrir framan fullan sal. Við erum ennþá agndofa yfir móttökunum sem við fengum - takk allir sem mættu og allir sem hlusta og gera okkur kleift að halda þessari veislu gangandi. Liðin tvö voru mynduð af tveimur af íkonískustu liðum Trivíaleikanna frá upphafi: Marínu og Arnó...

49. Við rændum Pittinum 22.10.2025

Já þið lásuð rétt kæru hlustendur, við fengum stórmeistarana Braga Þórðarson og Kristján Einar Kristjánsson úr Pitturinn Podcast til að kíkja við í stúdíóið með tilheyrandi gleðskap og formúlufróðleik. Kristján Einar og Kristján úr Trivíaleikunum mynduðu lið og Bragi ásamt okkar allra besta Inga gáfu þeim góða samkeppni. Hvað heitir sidekick Radioactive Man í sjónvarpsþáttunum The Simpsons, hvað e...

Fimmtugasti þáttur live á Arena! (tilkynning) 14.10.2025

Já þú last rétt við tökum upp 50. þátt Trivíaleikanna live á Arena í Kópavogi þann 17. október klukkan 20:00 ekki láta þig vanta á þennan stórviðburð!

48. Eitt þúsund ár af skírlífi 06.09.2025

Já það er komið að fertugasta og áttunda þætti Trivíaleikanna. Í sjóðblautt stúdíóið mættu Arnór Steinn, Jón Hlífar, Kristján og Ingi. Hart var barist og mikið svitnað, ekki missa af þessari veislu! Hvort var það Benito Mussolini eða Voldemort sem sagði "Mikilleiki vekur öfund, öfund elur illsku, illska elur lygar"? Hvað hétu ræningjarnir þrír í leikverkinu um Kardemommubæinn? Þetta og m...

47. Blái mörðurinn 04.08.2025

Fertugasti og sjöundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni brá hópurinn sér í stúdíó Sánu að nýju og okkar allra besti Kristján settist í fyrsta sinn í spyrils- og dómarasætið. Tvö þungarvigtarlið tókust á í kjölfarið en Daníel og Ingi mættu Arnóri og Jóni í títanískum hamfaraslag vitsmuna og fræðimennsku. Ekki missa af þessari veislu. Hvaða leikari fór með hlutverk Blade í Blade þríleiknum. Frá...

46. Kröddi og grunsamlega þunga skútan 07.07.2025

Já það er komið að fertugasta og sjötta þætti Trivíaleikanna og að þessu sinni var þátturinn algjör negla. Marín Eydal og Daníel Óli mynduðu stórskemmtilegt teymi sem tókst á við hörkusterkt lið Ödda og Kristjáns á meðan að Arnór Steinn vermdi þáttastjórnendasætið. Júlí markar tímamót í sögu Trivíaleikanna þar sem við munum héðan í frá vera að gefa út þrjá þætti í hverjum mánuði og lækkuðum einnig...

Fleiri þættir & ódýrari áskrift (tilkynning) 01.07.2025

Já þú last rétt! Við erum að fjölga fjölda þátta af Trivíaleikunum sem við gefum út í hverjum mánuði og lækka áskriftargjaldið sömuleiðis, sturlað! Hlustaðu á kynninguna, skelltu þér á Patreon og vertu með okkur í veislunni!

6P. Nespresso Halli (Patreon þáttur) 30.06.2025

Við vildum leyfa ykkur öllum að prófa að hlusta á einn af þeim fjölmörgu frábæru þáttum sem við erum að bjóða upp á inni á Patreon þessa dagana. Kíktu á Patreon vef okkar, komdu í áskrift og fáðu hátt í 20 þætti sem eru þar inni nú þegar! Heyrst hefur að áskriftargjaldið hafi lækkað á síðustu dögum, mæli með að tékka á því! Keppendur: Arnór Steinn, Marín Eydal, Ingi & Haraldur Örn.

45. Lana Del Reykjavík 29.05.2025

Fertugasti og fimmti þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mættu Arnór Steinn, Ástrós Hind, Jón Hlífar og Kristján í gamla góða stúdíó 9A seint á þriðjudagskvöldi. Chi-húa-húa og Lanmótið Lana Del Reykjavík - ekki missa af þessari veislu. Nafn hvaða eftirréttar merkir á ítölsku „eldaður rjómi.” Hvaða land á flesta páfa á eftir Ítalíu? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Arnór Ste...

44. Íslensk skyrglíma 28.04.2025

Fertugasti og fjórði þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mættu Kristján og Hnikarr þeim Inga og Ödda í títanískum reginslag í gamla góða stúdíói 9A. Ekki missa af þessari skyrþöktu veislu! Hver var fyrsta skáldsagan sem var skrifuð í allri heild sinni á ritvél? Hvaða tæknirisi framleiddi fyrsta örgjörvann sem var seldur almenningi? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Kristján,...

43. Imodium félagar 30.03.2025

Fertugasti og þriðji þáttur Trivíaleikanna en að þessu sinni mættu Kristján, Jón Hlífar, Ingi og Heiðdís María í upprunalega stúdíó hlaðvarpsins, hið yndislega Stúdíó 9A. Ekki missa af þessari Imodium veislu. Hvert er fjölmennasta landlukta land heims? Hvað gefur verðmætasta prikið í Míkadó mörg stig? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Kristján, Jón Hlífar, Ingi og Heiðdís María

42. 80's-leikarnir (þemaþáttur) 25.02.2025

Já þið lásuð rétt, það er loksins komið að þemaþætti! Að þessu sinni vorum við með kosningu á Instagram þar sem hlustendur sendu inn tillögur og níundi áratugurinn (80's) var valinn úr þeim uppástungum. Magnús Hrafn og Jón Hlífar tóku á móti Daníel Óla og Kristjáni í gamla góða stúdíó 9A en í dómarasætið brá sér okkar allra besti Arnór Steinn. Fyrir hvaða Bond kvikmynd samdi Duran Duran þemala...

Heima Quiz III (Patreon þáttur) 13.02.2025

Já þið lásuð rétt - við ætlum að leyfa ykkur að prófa einn af Patreon þáttunum okkar frítt. Heima Quiz er í rauninni Pub Quiz sem þú getur spilað heima hjá þér eða hvar sem þú ert. Þú getur ýmist keppt á móti Inga og Kristjáni eða keppt við maka, vin, foreldra eða hvern sem er - þú ræður algjörlega ferðinni. Daníel ber upp 16 flokkaspurningar, eina textabók og þríþraut og þú svarar á blað (við bjó...

41. Sumarbúðir í Jemen 22.01.2025

Fertugasti og fyrsti þáttur Trivíaleikanna en í þennan kyngimagnaða þátt mætti Haraldur Örn frá hlaðvarpi Fótbolti.net þar sem hann er með spurningakeppnisþáttinn "Fótbolta nördinn." Í liði með Haraldi var enginn annar en okkar allra besti Stefán Geir en á móti þeim tveimur keppti eitt kunnuglegasta lið hlaðvarpsins "Heiðingi" eða Heiðdís María og Ingi. Hvaða þrjú ríki kallaði...

40. Krókódílar, baunir og kokteilar 04.01.2025

Fertugasti þáttur Trivíaleikanna en að þessu mættu Marín Eydal og Ingi þeim Kristjáni og Hnikarri sem létu vel um sig fara í Stúdíó Frystikistu. Hvert er enska og þekktara heiti eitursins Kristspálma? Hvaða íslendingur lék stórt hlutverk í lokaseríu sjónvarpsþáttanna um Dexter? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Keppendur: Marín Eydal, Ingi, Kristján og Hnikarr Bjarmi.

Pub Quiz Trivíaleikanna (tilkynning) 30.11.2024

Já þið lásuð rétt! Þann 05. desember 2024 klukkan 21:00 verða Trivíaleikarnir með Pub Quiz í Arena Kópavogi. Hlustaðu á kynninguna og ekki láta þig vanta á fimmtudaginn næsta!

39. Við rændum Villa Naglbít 28.11.2024

Þrítugasti og níundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni rændum við tónlistarmanninum og spurningaþáttagoðsögninni Vilhelm Antoni eða Villa Naglbít eins og hann er kallaður og buðum honum sæti í ísköldu stúdíó Sána. Auk hans mættu til leiks Trivíaleikakempurnar Arnór Steinn, Ingi og Kristján í einhverjum eftirminnilegasta þætti hlaðvarpsins. Nafn hvaða pastategundar merkir einfaldlega „litlar tu...

Listen to the Trivíaleikarnir podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.