Þjóðmál
Þjóðmál
Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#314 – Kaffispjall með Eyjólfi Árna 06.05.2025 1:03:30
Eyjólfur Árni Rafnsson hefur verið formaður Samtaka atvinnulífsins (SA) í átta ár Hann mun láta af störfum á aðalfundi samtakanna í næstu viku. Í nýjum þætti Þjóðmála fer Eyjólfur Árni yfir þessi ár sem hafa að margra mati þótt róstursöm, kosti og galla vinnumarkaðsmódelsins hér á landi og hvort raunhæft sé að færa sig nær skandinavíska módelinu, samskiptin við verkalýðshreyfinguna, hvort að þeir...
#313 – Verkalýðsdags-helgarvakt með sextugum Andrési og síungum Stefáni Einari 01.05.2025 1:29:30
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson mæta í Þjóðmálastofuna að loknum löngum vinnudegi og fara yfir allt það helsta. Rætt er um hneykslunarbylgju vegna norskra auglýsinga, skort á efnislegri umræðu um aðför að atvinnulífinu, flótta nýs formanns Sjálfstæðisflokksins, skrýtnar ráðningar í Valhöll, njósnamál, yfirlæti héraðssaksóknara og margt fleira.
#312 – Birna Ósk fjallar um stöðuna í alþjóðaflutningum 28.04.2025 48:37
Birna Ósk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri hjá APM Terminals, ræðir um starfsemi félagsins sem rekur hafnir út um allan heim, stöðuna í alþjóðlega flutningakerfinu og alþjóðaviðskiptum, hvaða áhrif mögulegt tollastríð getur haft til skemmri og lengri tíma, hvaða áhrif truflum á siglingaleiðum getur haft og fleira þessu tengt. Þá er einnig rætt um stöðuna á Mílu og Skel, en Birna Ósk situr í stjórn b...
#311 – Helgarvaktin með Þórði og Erni – Kristrúnu hlýtur að svíða í prófgráðuna 25.04.2025 53:31
Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson mæta á helgarvaktina og fjalla um allt það helsta sem er að eiga sér stað í þjóðfélaginu, aðför ríkisstarfsmanna og stjórnmálamanna gegn verðmætasköpun, illa undirbúin stjórnarfrumvörp, máttlausa gagnrýni á máttlausar hagræðingaraðgerðir, áhugaleysi stjórnmálanna á því að tala máli fyrirtækja á erlendum vettvangi og margt annað skemmtilegt.
#310 – Skítamix stjórnvalda á skökkum fasteignarmarkaði 23.04.2025 1:19:00
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, og Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, fjalla um nýja skýrslu Viðskiptaráðs um húsnæðisstefnu stjórnvalda, um óeðlileg afskipti hins opinbera sem skekkt hafa fasteignamarkaðinn, um hringrásina sem þarf að vera til staðar á markaðnum og fleira í þeim dúr. Þá er einnig rætt um áætlun ríkisstjórnarinnar að neyða sveitarfélög til að hækka skatta...
#309 – Páskaþáttur – Andrés og Stefán Einar koma beint af Jómfrúnni 19.04.2025 1:53:55
Eftir að hafa snætt á Jómfrúnni mættu þeir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson beint í Þjóðmálastofuna til að fara yfir allt það helsta um og fyrir páska. Við ræðum um andverðugleikasamfélagið sem sumir vilja skapa, það hvernig sumir líta á alla verðmætasköpun sem eign hins opinbera, pólitíska stöðu forsætisráðherra og framgöngu húskarla Samfylkingarinnar og margt, margt fleira.
#308 – Grímur Sæmundsen í kaffispjalli 15.04.2025 1:23:30
Bláa lónið hefur fyrir margt löngu fest sig í sessi sem sterkt alþjóðlegt vörumerki og einstakt aðdráttarafl fyrir íslenskra ferðaþjónustu. Grímur Sæmundsen, forstjóri og einn stærsti eigandi fyrirtækisins, ræðir í ítarlegu viðtali um þær áskoranir sem félagið hefur farið í gegnum á liðnum árum, sú uppbygging sem er framundan í Svartsengi og annars staðar á landinu, fyrirhugaða skráningu á markað...
#307 – Helgarvaktin með Herði og Daða í Visku – Ringulreið á mörkuðum heimsins 11.04.2025 1:39:06
Hörður Ægisson, ritstjóri Innherja og yfirmaður greiningardeildar Þjóðmála, og Daði Kristjánsson, framkvæmdastjóri Visku, ræða um áhrifin af tollastefnu Bandaríkjaforseta, almennt um stöðuna á mörkuðum og alþjóðaviðskiptum, hvernig næstu misseri kunna að líta út og þar fram eftir götunum. Þá ræðum við um inngrip Seðlabankans á gjaldeyrismarkaðinn, hvers vænta megi við næstu vaxtaákvörðun, þögn líf...
#306 – Einar Örn ræðir um breytingar á rekstri Play 07.04.2025 48:00
Einar Örn Ólafsson, forstjóri og einn stærsti eigandi Play, fer yfir rekstur flugfélagsins, þær breytingar sem verið er að gera á rekstrarmódelinu, stofnun dótturfélagsins á Möltu og tilgang þess, stöðuna í ferðaþjónustunni, þau áhrif sem tollastríðið getur haft og margt fleira.
#305 - Helgarvaktin með Þórði og Ingva Þór - Hvar eru gögnin? 04.04.2025 59:34
Þórður Gunnarsson, aðalhagfræðingur Þjóðmála, og Ingvi Þór Georgsson, framkvæmdastjóri Aflamiðlunar og fyrrum stjórnandi Pyngjunnar, fara yfir allt það helsta í vikunni. Við ræðum um veiðigjöldin og undarlega herferð ríkisstjórnarinnar við að hindra verðmætasköpun í sjávarútvegi, stöðuna eftir fyrstu 100 daga ríkisstjórnarinnar, nýjan Þjóðarpúls og litla fylgisaukningu Sjálfstæðisflokksins, ákvörð...
#304 - Upplýst umræða um sjávarútveg í miðri upplýsingaóreiðubrælu 31.03.2025 1:40:52
Einar Sigurðsson, stjórnarformaður Ísfélagsins, fer yfir stöðuna í sjávarútvegi, starfsemi Ísfélagsins, skráningu félagsins á markað, samþjöppunina sem þurfti nauðsynlega að eiga sér stað, staðreyndalausa umræðu um greinina, samanburðinn á íslenskum og norskum sjávarútvegi, fyrirhugaða skattahækkun ríkisstjórnarinnar, miklar fjárfestingar í greininni, fjárfestingar í „ótengdum” greinum og margt fl...
#303 - Afmælis-björkvöld Þjóðmála á Kringlukránni 27.03.2025 1:33:22
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um hrakfarir ríkisstjórnarinnar frá þvi að hún tók við völdum fyrir þremur mánuðum, almennt um stöðuna í stjórnmálum, hvort að Stefán Einar sé að stefna að því að verða bæjarstjóri í Garðabæ, hvort að það sé nýtt vandamál fyrir ríkisstjórnina í vændum, hvernig stjórnarandstaðan mun standa sig, um óviðeigandi spjallgrúbbur og margt annað sem vert er...
#302 – Þriggja mánaða busavígsla ríkisstjórnarinnar að baki – Björn Bjarnason fer yfir stöðuna 24.03.2025 1:08:45
Björn Bjarnason, fv. ráðherra, ræðir um stöðu ríkisstjórnarinnar eftir afsögn menntamálaráðherra, þau ósköp sem hafa gengið yfir á fyrstu þremur mánuðum ríkisstjórnarinnar, ummæli sem hann lét falla um Flokk fólksins í hlaðvarpi Þjóðmála í byrjun ársins og fleira. Þá er rætt um stefnu og orðræðu Bandaríkjaforseta í garð vestrænna ríkja, stöðu mála í Úkraínu, hvort að vestræn ríki þurfi að friðþægj...
#301 - Helgarvaktin með Herði og Erni - Þegar þú leggst með hundum færðu flær 21.03.2025 1:20:11
Hörður Ægisson og Örn Arnarson fara yfir helstu tíðindi úr pólitíkinni, afsögn mennta- og barnamálaráðherra og vandræði ríkisstjórnarinnar í kringum það mál, nýja borgarstjórann sem hrökklaðist úr formannsstól í Sambandi íslenskra sveitarfélaga, upptakt forsætisráðherra fyrir skattahækkunum og fleira. Þá er rætt um nýlega stýrivaxtalækkun Seðlabankans og hvers megi vænta um frekari vaxtalækkanir,...
#300 - Bubbi Morthens í ítarlegu viðtali 18.03.2025 2:11:59
Bubbi Morthens, einn áhrifa- og afkastamesti tónlistarmaður Íslands í áratugi, er gestur í 300. þættinum í hlaðvarpi Þjóðmála. Rætt er við Bubba um ferilinn sem nú spannar rúm 45 ár, hvort að líf Bubba sé eins og opin bók sem öll þjóðin má lesa, um viðskiptahliðna á því að vera tónlistarmaður, hvort að pólitískar skoðanir hans séu tilviljunum háðar eða hvort að þær endurspegli samfélagið á einhver...
#299 – Helgarvaktin með Andrési og Þórði – Mun Ásthildur Lóa kaupa páskaegg? – Hvað gerir Ásgeir í næstu viku? 14.03.2025 1:14:28
Andrés Magnússon og Þórður Gunnarsson fjalla um allt það helsta sem á daga okkar hefur drifið síðustu daga, áherslu ríkisstjórnarinnar á strandveiðar gegn betri vitund, hvernig alið er á tortryggni í garð sjávarútvegsins, ummæli menntamálaráðherra um dómskerfið, átök meðal sósíalista, komandi stýrivaxtaákvörðun, verðhækkanir á kaffi og kakó sem hafa áhrif hér á landi – og margt fleira.
#298 – Borgarstjóri á ofurlaunum – Síðasta fréttin um styrkjamálið enn óskrifuð 11.03.2025 53:00
Andrea Sigurðardóttir og Sandra Ocares fjalla um ofurlaun borgarstjóra, um það hvernig Reykjavíkurborg hefur fegrað fjárhagsstöðu sína með reikningi Félagsbústaða, hvaða væntingar (ef einhverjar) má hafa til nýs borgarstjórnarmeirihluta, um það hvort að nýr formaður Sjálfstæðisflokksins sé líklegur til að auka fylgi flokksins, um málefni ÍL-sjóðs í samhengi við kröfuna um ríkisrekinn samfélagsbank...
#297 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Þórði Pálssyni 06.03.2025 1:31:16
Sigríður Andersen og Þórður Pálsson ræða um yfirvofandi tollastríð og þau áhrif sem það kann að hafa á vestræn hagkerfi, um viðskiptahindranir Evrópusambandsins og þann skaða sem þær valda íbúum innan sambandsins, um friðarhorfur í Úkraínu, um hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar sem ríkisstjórnin vill ekkert kannast við þegar á reynir, stöðu fjölmiðla og ægivald ríkisfjölmiðilsins á þeim markað...
#296 – Landsfundarþynnkan – Var framtíðinni frestað? 03.03.2025 1:05:30
Andrés Magnússon og Þórður Gunnarsson fara yfir nýafstaðna kosningu um formann Sjálfstæðisflokksins, hvað bar á milli frambjóðenda, hvort að baráttan hafi verið háð á fundinum sjálfum eða fyrir hann, stöðu nýs formanns og hvernig næstu misseri geta litið út og fleira. Auk þess er fjallað um stöðu ríkisstjórnarinnar, undarlegt útspil Dags B. Eggertssonar í umræðu um Evrópumál og margt fleira.
#295 – Landsfundarkokteill með Andrési og Stefáni Einari 28.02.2025 1:36:00
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um kveðjuræðu Bjarna Benediktssonar á landsfundi Sjálfstæðisflokksins, formannskjör í flokknum sem fram fer um helgina, um neyðarsjóð Ragnars Þórs Ingólfssonar, um borgarstjóra sem veit ekki hvað samningur við kennara mun kosta, vandræði ríkisstjórnarinnar og margt fleira.
#294 – Gunnar í Almenna og Ólafur í Birtu fara yfir stöðu lífeyrissjóðanna í hagkerfinu 25.02.2025 1:15:59
Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins, og Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs, ræða um stöðu lífeyrissjóðanna, eignarhald þeirra á skráðum fyrirtækjum og samskiptum við einkafjárfesta, tilnefningarnefndir og áhrif sjóðanna á stjórnarkjör, hvort að lífeyrissjóðirnir eigi að hafa skoðun á starfskjaramálum og kaupréttasamningum, um sjálfbærni stefnu þeirra...
#293 – Helgarvaktin með Jóni Sigurðssyni í Stoðum 21.02.2025 1:47:23
Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða, ræðir um bréf sín til hluthafa félagsins sem vakið hafa athygli á liðnum árum, um rekstur og fjárfestingar Stoða, um fjármálamarkaðinn, mögulegar sameiningar banka, hvernig reglur og skattar bitna helst á viðskiptavinum bankanna, mýtuna um að ríkið þurfi að eiga banka, gagnrýni hans og fleiri á vaxtastefnu Seðlabankans, stöðuna á hagkerfinu og framtíðarhorfur, hlut...
#292 – Guðrún Hafsteinsdóttir í viðtali fyrir formannsframboð 19.02.2025 59:00
Guðrún Hafsteinsdóttir ræðir um formannsframboð sitt í Sjálfstæðisflokknum, um endalok síðustu ríkisstjórnar, um erindi Sjálfstæðisflokksins, um meintar fylkingar innan flokksins, hvernig stjórnmálamenn líta á atvinnulífið og margt fleira.
#291 – Valentínusardagur með Stefáni Einar og Andrési 14.02.2025 1:48:00
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson mæta í rólegt og rómantískt í Þjóðmálastofunni fyrir þessa helgi. Það er allt undir í þætti dagsins, listamenn sem gera kröfu á aðra, skrýtin aðför að sjávarútvegi, byrlunarmálið sem Rúv vill helst gleyma, formannskosning í Sjálfstæðisflokknum og innanflokksátök sem fáir vilja kannast við, málefni Grænlands og margt fleira.
#290 – Hver þarf sjónvarp þegar við fáum allt okkar drama í stjórnmálunum? 11.02.2025 1:01:58
Björn Ingi Hrafnsson og Ólöf Skaftadóttir ræða um krísustjórnina á stjórnarheimilinu, það sem helst kom fram – og kom ekki fram – í stefnuræðu forsætisráðherra og umræðum um hana í gærkvöldi, um formannskjör í Sjálfstæðisflokknum og loks stöðuna í Reykjavíkurborg og hvernig framhaldið kann að líta út eftir að borgarstjóri rauf meirihlutasamstarf vinstri flokkanna.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.