Þjóðmál
Þjóðmál
Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#364 – Kaffispjall með Björt Ólafsdóttur 28.10.2025 1:06:30
Björt Ólafsdóttir, fv. ráðherra og nú framkvæmdastjóri Iðu fasteignaþróunarfélags, fjallar um viðbrigðin við því að fara úr stjórnmálum í einkarekstur og uppbygginu fyrirtækis. Við ræðum um viðhorf stjórnmálamanna til atvinnulífsins og verðmætasköpunar. gagnslausar aðgerðir ríkisvaldsins á húsnæðismarkaði, óraunhæf markmið í losunaráætlunum, hvort að bara loftslagsaktívistar geti orðið umhverfisrá...
#363 – Helgarvaktin með Heiðari Guðjóns og Snorra Mássyni – Bakslag í verðmætasköpunarhaustinu 24.10.2025 1:37:29
Heiðar Guðjónsson og Snorri Másson fara yfir stöðuna undir lok vikunnar. Við ræðum um verðmætasköpunarhaustið sem virðist ætla að breytast í (Kristrúnar) Frostavetur, hvaða áhrif það hefur þegar heilt álver er nálægt því að loka, hvort það sé ástæða til að hafa áhyggjur af störfum framtíðarinnar, hvort rétt sé að endurvekja loftslagskvíðann hjá fólki, kvennaverkfall og hið meinta bakslag, utanríki...
#362 – Ásgeir Baldurs og Bjarnheiður fjalla um uppgang og stöðu ferðaþjónustunnar 21.10.2025 1:04:59
Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri Kötlu DMI og fv. formaður SAF, og Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventure, ræða um stöðu og framtíðarþróun ferðaþjónustunnar, samkeppnina við önnur ríki og samkeppnishæfni Íslands, um vöxtinn sem hefur orðið í greininni og hvaða áhrif hann hefur haft á bæði efnahagslífið og samfélagið, hvað megi betur fara, aðkomu stjórnvalda sem virðist ekki alltaf vit...
#361 – Helgarvaktin með Herði og Stefáni Einari – Gjöf við vina er ekki Marshall aðstoð 17.10.2025 1:26:10
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir stöðuna í nýjum þætti. Við ræðum um skammarbréf fjármálaráðherra til fjárlaganefndar, nýja könnun um fylgi flokkanna í Reykjavík, yfirvofandi verkfall flugumferðarstjóra, góðgerðarstarf Viðreisnar á kostnað almennings, ofríki ríkisstarfsmanna, viðkvæma stöðu í Húsi atvinnulífsins og margt fleira.
#360 – Sannleikurinn er sagna bestur, nema þegar kemur að skattahækkunum 14.10.2025 1:25:29
Andrea Sigurðardóttir og Ingvi Þór Georgsson fara ítarlega yfir það hvernig veiðigjaldafrumvarpið var keyrt áfram síðastliðið vor, þeim blekkingum sem var beitt, gögn sem sögð voru til en aldrei birt, orðræðu sem var í besta falli villandi, hvaða áhrif frumvarpið mun hafa (og er þegar byrjað að hafa) og þannig mætti áfram telja. Gera má ráð fyrir því að sitjandi ríkisstjórn komi með fleiri sambæri...
#359 - Helgarvaktin með Orra Hauks og Þórði Gunnars – Hógværð er okkar helsti kostur 10.10.2025 1:23:59
Orri Hauksson vélaverkfræðingur og Þórður Gunnarsson hagfræðingur fara yfir allt það helsta, þau fyrirsjáanlegu tíðindi að stýrivextir héldust óbreyttir, hvaða lesa mátti úr orðum seðlabankamanna, hvaða áhrif það hefur að vaxtakostnaður sé orðinn næst stærsti útgjaldaliður ríkisins, gullverð sem nú er í hæstu hæðum, fyrirhugaðan samruna Íslandsbanka og Skaga, væntanlegan formansslag í Framsóknarfl...
#358 – Kaffispjall – Ragnar Árnason ræðir um hvort Íslandi sé betur borgið innan eða utan ESB 07.10.2025 1:00:44
Ragnar Árnason fer efnislega yfir kosti og galla þess að ganga í Evrópusambandið, hvort það muni bæta efnahag landsins eða hag heimila, hvort að við þurfum í raun á því að halda að ganga í sambandið, hvaða áhrif gjaldmiðlamálin hafa, hvort öryggi landsins verði meira og margt fleira sem snýr að þessu máli sem nú er orðið eitt helsta stefnumál sitjandi ríkisstjórnar.
#357 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Einari - Við erum músikalskt par, sannkallaðir jazzgeggjarar 03.10.2025 1:44:59
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson skipa nýja menningardeild Þjóðmála. Við ræðum um laun rithöfunda, gjaldþrot Play og drauminn um að reka tvö flugfélög, ársfund SA og það skrýtna samband sem nú er á milli atvinnulífsins og ríkisstjórnarinnar, varaformannsslag í Miðflokknum, þingmenn Samfylkingarinnar sem ætla að banka upp á heima hjá þér og margt fleira skemmtilegt.
#356 – Aukaþáttur – Þjóðmál á ársfundi SA 02.10.2025 38:30
Við sóttum ársfund Samtaka atvinnulífsins (SA) sem haldinn var í dag og förum yfir allt það helsta í sérstökum aukaþætti Þjóðmála. Rætt er við Jón Ólaf Halldórsson, formann SA, Andrés Magnússon, fulltrúa ritstjóra á Morgunblaðinu, Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair, og Helgu Árnadóttur, framkvæmdastjóra hjá Bláa lóninu.
#355 – Hörður og Örn ræða um fall Play 30.09.2025 56:30
Viðskiptablaðamennirnir Hörður Ægisson og Örn Arnarson fjalla um fall Play, sem í dag hætti starfsemi og óskaði eftir gjaldþrotaskiptum. Við ræðum upp aðdraganda gjaldþrotsins, brösóttan rekstur þess í þau fjögur ár sem félagði flug, samkeppnina í fluginu, áhrifin á íslenskt efnahagslíf og margt fleira sem snýr að þessu.
#354 – Helgarvaktin með Bergþóri Óla og Jens Garðari 26.09.2025 1:43:04
Alþingismennirnir og frændurnir Bergþór Ólason og Jens Garðar Helgason fara yfir allt það helsta. Rætt er um stöðuna i stjórnmálunum, hvort það sé ætlað hlutverk minnihlutans á Alþingi að beygja sig í duftið þegar ríkisstjórnin vill koma sínum málum að, áhrif vaxta og verðbólgu á bæði stjórnmál og atvinnulíf, hvort það sé þess virði að taka pólitíska slagi ef það skilar sér ekki í fylgisaukningu í...
#353 – Kaffispjall með Sigurði Má 23.09.2025 1:09:45
Sigurður Már Jónsson ræðir um skattastefnu breskra og norska yfirvalda sem hefur valdið því að efnameira fólk, sem er einmitt það fólk sem skattahækkanir beinast að, hefur flutt úr landi og millistéttina sem situr eftir og þarf að greiða reikninginn. Þá er rætt um misheppnaða innflytjendastefnu, það hvernig stjórnmálamenn hafa ekki sinnt þeim málum sem brenna á fólki, viðhorf til atvinnulífsins og...
#352 – Helgarvaktin með Gunnari Úlfars og Hildi Björns 19.09.2025 1:19:27
Gunnar Úlfarsson og Hildur Björnsdóttir ræða um stjórnvöld sem vilja segja fólki hvernig það á að búa, um sveitastjórnarkosningarnar í vor og hvaða mál munu þar brenna á fólki, mögulega oddvita flokkanna í Reykjavík, möguleika á olíuvinnslu á Drekasvæðinu, hluti sem stjórnmálamenn ræða mikið en gera minna í að laga og margt fleira sem bar á góma í vikunni.
#351 – Frosti Loga og Hermann Nökkvi ræða um Charlie Kirk 16.09.2025 1:08:43
Fjölmiðlamennirnir Frosti Logason og Hermann Nökkvi Gunnarsson ræða um Charlie Kirk, sem var myrtur í síðustu viku, þau áhrif sem hann hafði á ungt fólk bæði Vestanhafs og víða um heim, þær skoðanir sem hann setti fram og hélt á lofti, viðbrögðin við andláti hans, tilraunir fjölmiðla til að mála upp dökka mynd af honum og fleira. Þá er einnig rætt um umræðuhefðina og þörfina á heilbrigðum skoðanas...
#350 – Helgarvaktin með Herði og Stefáni Einari sem koma saman á ný 12.09.2025 1:54:15
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson koma saman á ný eftir alltof langa fjarveru. Við ræðum það sem hæst bar í vikunni í bland við annað. Förum yfir það sem helst bar á góma við þingsetningu og stefnuræðu forsætisráðherra, nýkynnt fjárlög, þær skattahækkanir sem í vændum eru, tillögu um að selja Landsbankann, hvort atvinnustefna ríkisstjórnarinnar skili einhverjum árangri og margt fleira. Lok...
#349 – Víglínan sem haggast lítið – Kristján Johannessen fer yfir stöðu mála í Úkraínu 08.09.2025 1:14:27
Kristján Johannessen ræðir um stöðuna í Úkraínu, af hverju víglínan færist lítið, hvaða vopnum er verið að beita og hvernig, hvort að Vesturlönd hafi staðið sína plikt í stuðningi við Úkraínu, hvort að stríðið eða niðurstaðan þess komi okkur almennt við, hvort útlit sé fyrir frið og margt fleira sem snýr að þeim átökum sem hafa nú staðið yfir í rúmlega þrjú og hálft ár.
#348 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Einari – Með allt á hreinu, hreinu gagnvart samfélaginu 05.09.2025 1:27:53
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara yfir allt það helsta, þjóðfélagsumræðu sem snýst um hvað má segja og hvað ekki, ákvörðun um að skipta út þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, hvort einver sakni VG af þingi, mögulegan formannsslag í Framsóknarflokknum og margt fleira.
#347 – Kaffispjall með Rannveigu Eir og Hilmari Þór í Reir Verk 02.09.2025 54:45
Hjónin Hilmar Þór Kristinsson og Rannveig Eir Einarsdóttir reistu fyrir 20 árum litla raðhúsalengju í Vesturbæ Reykjavíkur. Það lagði grunninn af því fyrirtæki sem við í dag þekkjum sem Reir Verk, en þau hafa á þeim tíma sem liðinn er komið að framkvæmdum á mörgum af helstu byggingarreitum á Höfuðborgarsvæðinu. Þau ræða hér um uppbygginguna, hvernig fasteignamarkaðurinn hefur þróast, um helstu áhr...
#346 – Helgarvaktin með Einari Þorsteins og Halldóri Halldórs 29.08.2025 1:27:30
Einar Þorsteinsson og Halldór Halldórsson ræða um stöðuna í borginni, nýjustu kannanir um fylgi flokka, hvort að Framsókn nái vopnum sínum, hvort að Sjálfstæðisflokkurinn eigi mögulega á því að komast í meirihluta, hvort að innstæða sé fyrir fylgi Samfylkingarinnar og annað sem snýr að pólitíkinni. Þá er rætt um skipulagsmálin og íbúðauppbyggingu, hvernig stjórnmálaskoðanir skiptast eftir hverfum,...
#345 – Frjálshyggja 101 með Hannesi Hólmsteini 27.08.2025 1:12:24
Hannes Hólmsteinn Gissurarson fer yfir grundvallarkenningar hægri manna, af hverju hægri menn hafa þær skoðanir sem þeir hafa og á hverju þær byggjast, hvaða hlutverki ríkisvaldið ætti að gegna, hvort að frjálshyggjan sé mannúðleg stefna eða ekki, um mikilvægi eignarréttarins, hvenær gengið er of langt í skattheimtu, hvort að brauðmolakenningin sé til í raun og veru, hver megi eiga auðlindirnar og...
#344 – Maraþonþáttur á Uppi bar – Part III 22.08.2025 3:49:13
Þriðji maraþonþáttur Þjóðmála lítur dagsins ljós og þjóðin ærist af gleði. Gestir þáttarins eru Stefán Einar Stefánsson, Þórður Gunnarsson, Sandra Ocares, Andrea Sigurðardóttir, Bergþór Ólason, Orri Hauksson, Þórður Pálsson, Heiðar Guðjónsson, Hörður Ægisson, Örn Arnarson, Sigríður Á. Andersen, María Björk Einarsdóttir, Jakob Frímann Magnússon, Sævar Helgi Bragason, Kristín Gunnarsdóttir, Ólöf Ska...
#343 – Albert Jónsson fer yfir stöðuna áður en vélarnar lenda í Washington 18.08.2025 1:14:55
Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra og einn helsti sérfræðingur landsins í alþjóðamálum, ræðir um fund forseta Bandaríkjanna og Rússlands sem virðist að öllu óbreyttu ætla að skila litlum árangri, stöðu Úkraínumanna sem kann að skýrast að einhverju leyti á fundi í Washington í dag, hvernig vestræn ríki hafa brugðist við átökum Úkraínu og hegðun Rússa og fleira. Þá er einnig rætt um skort á uppl...
#342 – Stöðufundur með Ingva Þór og Þórði Gunnars – ÁTVR í tilvistarkreppu – Ekkert líf í höfnum á landsbyggðinni 13.08.2025 1:12:45
Ingvi Þór Georgsson og Þórður Gunnarsson mæta í Þjóðmálastofuna og fara yfir allt það helsta. Við gerum stuttlega upp golfmót Þjóðmála, ræðum um útflutningsskatta í Bandaríkjunum, nýja úttekt Viðskiptaráðs um efnahagsleg áhrif af því fáa sem ríkisstjórnin (sem stundum vill kalla sig verkstjórn) kom í gegnum þingið í vor, vaxtaákvörðun Seðlabankans í næstu viku, hvort að hlutabréfamarkaðurinn sé í...
#341 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Einari – Það sem ráðherrann vildi sagt hafa 07.08.2025 1:46:30
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson slá á létta strengi og kæta landsmenn með nærveru sinni í hlaðvarpi þjóðarinnar. Rætt er um einbeittan (brota)vilja ríkisstjórnarinnar sem vill troða okkur inn í ESB, óljós skilaboð utanríkisráðherra í samtölum við erlenda miðla, þögn forsætisráðherra um tollamál, rugludalla sem vilja skerða akademískt frelsi, stöðu flokka í könnunum sem og önnur málefni...
#340 – Kerfisvilla í skipulagsmálum skekkir fasteignamarkaðinn 05.08.2025 59:50
Sigurður Stefánsson, framkvæmdastjóri Aflvaka þróunarfélags, ræðir um stöðuna á fasteignamarkaði, orsakirnar fyrir þeim miklu verðhækkunum sem hafa átt sér stað á þeim markaði á liðnum árum og hvað afleiðingar þær hafa, möguleika ungs fólks að komast inn á markaðinn, um gallaða löggjöf um skipulagsmál sveitarfélaga og kerfisvillur, hvernig leysa megi úr flækjunni, hvernig lýðfræðin hefur áhrif á m...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.