Pétur Guðjónsson
Það er alltaf þriðjudagur
Hversdagsleikinn getur heltekið okkur. Það er ekkert meira grámygluhversdagslegt og þriðjudagar. En við gefum skít í það og kúplum okkur aðeins út og veltum hlutunum fyrir okkur.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.buzzsprout.com
Author
Pétur Guðjónsson
Category
Podcast website
Latest episode
Dec 12, 2023
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
25.Lokaþáttur 12.12.2023 8:16
Í þessum lokaþætti, í bili að minnsta kosti, lítur Pétur aðeins til baka á þættina 24. Vangavelturnar í þessum þætti er um sjálfið okkar eða egóið. Hvar eru skilin á því að vera fullur af sjálfum sér, egóisti eða vera ekki nógu góður við sig? En hver er munurinn á að njóta en ekki þjóta og að hafa gaman? Eða er það sami hluturinn? Síðasta vangavelta hlaðvarpsins er svo um það hvað það er að ver...
24.Jólin eru... 05.12.2023 6:54
Í þessum þætti talar Pétur um birtingarmynd jólanna, kannski ekki síst fyrir börnin. Jólin eru barnsleg eftirvæntingin, það eru ýmsir viðburðir, það er uppbygging alla aðventuna, dagatal, skór í glugga og álfur sem gerir óskunda. Svo kemur jóladagur og þá eru pakkarnir uppteknir, ekkert í skónum, ekkert dagatal og álfurinn farinn heim. Eru jólin því bara eftirvæntingin og tilhlökkunin? Því getu...
23.Svona eru jólin 28.11.2023 6:41
Í þessari viku er litið til aðventunar sem senn gengur í garð. Pétur ræðir um neysluhyggju okkar, um kvíðann sem getur dunið yfir þegar jólin nálgast, jólakvíði. Það þarf að finna réttu gjafirnar og standa sig í jólaboðum en svo þarf líka að huga að heilsunni og réttu buxnastærðinni. Hún getur verið breytileg ef þú ætlar til dæmis að smakka alla jólabjórana sem koma á markaðinn. Eða fara á öll jól...
22.Efasemdir 21.11.2023 8:12
Í þessum 22.þætti veltir Pétur fyrir sér hvers vegna sumir ná oft meiri árangri en aðrir. Er það heppni og vinnusemi eða kemur fleira þar við sögu? Er einhver sérstök heppni sem fylgir sumum, eins og til dæmis íþróttafólk sem er sigursælt. Eða er þetta klippt og skorið, þú verður bara að leggja meira á þig? Er kannski eitthvað yfirnáttúrulegt við suma sem til dæmis gera gull úr öllu sem þeir sne...
21.Draugar seinni hluti 14.11.2023 7:10
Í þættinum skoðar Pétur draugamenningu á Íslandi. Er hún til? Vitnað er í gamlar heimildir um miðilstörf Láru miðils, sem staðin var að svindli þegar hún hélt skyggnilýsingarfundi. Við heyrum frásögn konu sem bjó í húsi með miklum reimleikum og heyrum hvernig undarleg hegðun kattarins hans Péturs og óútskýranleg hljóð áttu sér stað við gerð þáttarins. Engar fullyrðingar eru um tilvist drauganna,...
20.Draugar, fyrri hluti 07.11.2023 7:19
Í þessari viku er það fyrri hluti af tveimur sem fjallar um drauga, fyrirboða og aðrar víddir. Í þættinum eru skoðaðir samanburðir á draugatrú Íslendinga síðustu 50 ár og meðal annars skoðaðar nýlega rannsóknir í þeim efnum. Einnig fáum við að heyra sögu af einstakling sem dreymdi fyrir náttúruhamfarir fyrir nærri 30 árum.
19.Rangur maður 31.10.2023 7:41
Þessa vikuna veltir Pétur fyrir sér hvernig skal greina kjarnann frá hisminu þegar einhver gefur ráð um eitt og annað. Eins og til dæmis heilsuráð, hvaða starf þú átt að taka eða bara hvernig skuli bregðast við einhverjum aðstæðum. Að vera rangur maður eins og segir í laginu getur komið til þegar viðkomandi hlustar á margar mismunandi ráðleggingar en hefur ekki sjálfstraust til þess að standa mér...
18.Hvað er svona merkilegt við það? 24.10.2023 7:08
Í þessari viku er grein sem birtist á Akureyri.net í janúar sl.að mestu umfjöllunarefnið. Þar var fjallað um málefni sem þá voru í fréttum og fjölluðu um karla í samskiptum við konur. Líka um að konur gætu ekki þetta eða hitt. Pétur vitnar í ýmislegt sem í gegnum tíðina hefur þótt kerlingalegt að gera eða ýmislegt sem karlar eiga að gera en konur geta ekki. Til dæmis fyrir 25 árum hafi börnin ha...
17.Mig langar að trúa þér 17.10.2023 7:25
Pétur er að velta fyrir sér völdum og stjórnunarháttum. Spyr hvort það sé algengt að með auknum völdum fari fólk að snúa meira á sannleika og heiðarleika? Eru þegnar þessa lands aldrei ánægðir og gagnrýna innihaldsslaust allt sem gert er við stjórnun landsins? Varla fer einhver út í pólitík til þess að hugsa eingöngu um eigin hagsmuni? Eigum við flest erfitt með peninga og völd, sem leiðir til þe...
16.Sólbrendur með quick tan brúsa 10.10.2023 6:39
Í þessari viku er Pétur rétt nýkominn frá ferðalagi frá Ítalíu og situr við gluggann með haustlægðina í bakgrunni og ræðir um ferðalög okkar Íslendinga síðustu 50 ár. Hvernig við hegðum okkur í dag í samanburði við til dæmis fyrir 50 árum þegar við fórum á sólarströndina. Að einu sinni voru myndaalbúm skoðuð hjá ferðalöngum sem voru á sólarströnd, tollurinn og Tobleron yfir ferðasögunni en núna,...
15. Póstkort frá Ítalíu 03.10.2023 5:06
Þátturinn er frá Ítalíu að þessu sinni eða frá Lake Como þar sem Pétur fer yfir menninguna á staðnum eins og hún kemur honum fyrir sjónir. Hann veltir fyrir sér matarmenningu, lífsgæðakapphlaupi og ýmsu fleira.
14.Reynir 26.09.2023 7:23
Í þættinum þessa vikuna fjallar Pétur um það að reyna of mikið. Meginefni þáttarins er komið úr gamalli bloggsíðu Péturs. Þar er vitnað í bók sem segir frá lærling ræða við lærimeistar sinn um leggja sig fram til að ná settu marki. En svörin hjá lærimeistaranum eru á þá leið, að ef þú reynir of mikið þá tefurðu fyrir þér. Hvernig getur eiginlega staðið á því?
13.Þjóðarsálin 19.09.2023 6:58
Í þessari viku veltir Pétur fyrir sér hvort heimurinn fari versnandi. Þær vangaveltur eru út frá því hvað fólk setur á samfélagsmiðla. Í þættinum er farið yfir að almenningur hafði ekki rödd hér áður fyrr til þess að tjá sig opinberlega en nú hafa allir sem vilja sinn eigin miðil. Tekin eru dæmi frá kommentakerfinu, hversu rætin og ógeðfelld þau geta verið. Því liggur beinast við að spyrja hvort...
12.Yesterday 12.09.2023 8:00
Í þessari viku vitnar Pétur í Bítlalagið Yesterday, um skyndilegar breytingar sem geta orðið í lífinu og að allt getur breyst á augabragði. Út frá þeim vangaveltum þróast spjallið út í nægjusemi og hvernig vandamál okkar geta jafnvel verið sjónarmið, frekar en vandamál. Þegar við stöndum frammi fyrir til dæmis því að missa heilsuna, þá er skiptir lægðin yfir landinu eða há verðbólga mun minna mál...
11.Góða fólkið 05.09.2023 4:53
Þessi þáttur er nokkurs konar framhald af þarsíðasta þætti, þar sem fjallað var um að vera eða ekki vera-eitthvað. Nú er farið aðeins dýpra í það og talað um góða fólkið, sem samkvæmt Pétri eru mögulega þeir sem telja sig yfir aðra hafna. Og þá liggur beinast við að skoða hvað snobb er, því það er mjög líklegt að við tölum um snobbað fólk með ýmsum mismunandi meiningum.
10.Nútíminn er trunta 29.08.2023 7:47
Nútíminn er trunta með tóman grautarhaus Hjartað það er hrímað því heilinn gengur laus (Sigurður Bjóla Garðarsson) Í þættinum er Pétur að velta fyrir sér hvernig er best að fanga núið. Var þetta betra hér áður fyrr, fyrir 30-40 árum þegar við gengum hægar og gátum bara beðið eftir póstkorti frá útlöndum í marga daga og þá var ekkert DHL. Erum við orðin of kröfuhörð. Eins og oft áður leysir Pét...
9.Að vera eða ekki vera.... 22.08.2023 6:52
Í þessari viku eru efnistökin; að vera eitthvað. Hvað er að vera eitthvað? Er það frægð og frami, peningar eða að ná akkúrat þeim markmiðum sem þú ætlaðir?
8.Dónaskapur 15.08.2023 5:33
Í dag er dónaskapur efstur í huga Péturs og reynir hann að horfa á það í aðeins víðara samhengi. Hvað er dónaskapur og hvernig verðum við dónaleg? Er mögulegt að dagsform okkar sem verðum fyrir dónaskapnum spili þar inn í, þannig að okkar upplifum sem verðum móðguð hafi meiri áhrif en okkur grunar? Skiptir meira máli hvernig þú segir hlutina fremur en hvað þú segir?
7.Sérstakt fólk 08.08.2023 7:23
Í þættinum veltir Pétur fyrir sér hvað það er að vera sérstakur. Erum við skrítin ef við erum öðruvísi en aðrir? Við hvað miðum við? Ýmsar hliðar skoðaðar sem og ýmsar staðalímyndir.
6.Vonandi skemmtið ykkur vel 01.08.2023 7:19
Í þessari viku fyrir verlsunarmannahelgina segir Pétur sögu frá einni slíkri helgi, sem gæti verið sönn en líður þó alls ekki fyrir sannleikann. Sagan segir af þremur drengjum sem fara á útihátíð en þurfa að hafa mikið fyrir því að fela vínið innan í hurðum bílsins eða að minnsta kosti þar sem gæslan við hliðið á hátíðinni, finnur það ekki. Svo þegar kemur að því að tjalda, þá komast þeir að þv...
5. Leitin að hamingjunni 25.07.2023 6:23
Í þætti vikunnar er Pétur í hamingjuleit og reynir að leysa gátuna um það af hverju lífið er svona flókið nú til dags. Vangavelturnar koma út frá því ástandi að detta út af vinnumarkaði vegna andlegra veikina. En í tilvitnun í Echart Tolle segir að öll okkar vandamál séu bara blekking hugans. Ætti þá málið ekki að vera leyst bara?
4.Hvað áttu að vita? 18.07.2023 7:12
Hvað áttu að vita? Hvað er að vera gáfaður? Pétur veltir fyrir sér hvort við teljumst gáfuð ef við vitum mikið en erum ekki góð í mannlegum samskiptum. Eða er manneskja sem er góð í mannlegum samskiptum en veit ekki mikið, gáfuð manneskja? Sumt bara veit maður ekki og sumt er ekki öllum gefið, eins og að bora í vegg.
3.Íslenska sumarið 11.07.2023 6:15
Þriðji þáttur af pistlapodcasti Péturs; Það er alltaf þriðjudagur fjallar um íslenska sumarið. Þessi tími, þegar birtan er allsráðandi, mögulega ágætis veður og við förum í fríið, er okkur ákaflega mikilvægur og skal nýtast vel. Þó er ekki þar með sagt að það takist alltaf en miklar væntingar til sumarsins verða stundum að vonbrigðum.
2.Listin að tapa og tapa sér ekki 04.07.2023 7:06
Í þessum þætti er umfjöllunarefnið mannleg hegðun og þá sérstaklega hvað það er sem veldur tapsæri hjá fólki. Af hverju þolir fólk misvel að tapa? Hvað setur í gang þessa tilfinningu sem fær okkur til að svitna, roðna, kreppa hnefa og verða vitlaust? Kannski er svarið að finna í þessum þætti, kannski ekki.
1.Pilot:Álfar, menn, guð og draugar 05.06.2023 5:07
Í þessum fyrsta þætti veltir Pétur fyrir sér hvað trú gerir fyrir okkur eða gerir ekki fyrir okkur. Eru álfar kannski menn og er draugur í aftursætinu á bílnum. Það er alltaf þriðjudagur kemur út vikulega, á þriðjudögum.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.