Hljóðkirkjan
Svellið
Hlaðvarpið Svellið kafar ofan í þær áskoranir sem karlmenn og drengir standa frammi fyrir í nútímasamfélagi. Sem samfélag höfum við öll hagnast á jafnrétti; menntunarstig þjóðarinnar er hátt, atvinnuþátttaka mikil og hagvöxtur hefur aukist. En hvað mætti betur fara? Leikkonan og þúsundþjalasmiðurinn Birna Pétursdóttir fær til sín frábært fólk úr öllum áttum til að ræða alls konar: föðurhlutverkið, grín og gamanmál, íþróttir, geðheilsu og hvernig maður nær árangri í lífinu. Miðað við skautunina sem er í samfélaginu, þá er mikilvægara en nokkru sinni að finna jafnvægið - og við ætlum að hætta...
Author
Hljóðkirkjan
Category
Podcast website
Latest episode
Feb 20, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#5 „Of feit fyrir mig“ 20.02.2026 1:05:35
Í þessum lokaþætti Svellsins mæta grínistarnir Sveppi og Bolli Már Bjarnason og þjóðfræðingurinn Anna Margrét Hrólfsdóttir í hljóðverið og ræða grín. Má gera grín að öllu eða er sumt „off limits“? Húmor hefur lengi verið notaður til að auðvelda umræðu um erfið og alvarleg málefni. Hins vegar getur húmor líka verið leið til að forðast að takast á við alvarleg málefni eða hreinlega notað í þeim ti...
#4 „Slá í gegn“ 13.02.2026 47:13
Birna ræðir við Magnús Harðarson, forstjóra Nasdaq Iceland, og Þráin Frey Vigfússon, kokk og eiganda veitingastaðarins ÓX, um „skill building“ og hvernig maður nær árangri í lífinu. Hvað er árangur? Erum við kannski enn að skilgreina árangur samkvæmt löngu úreltum gildum? Á hugmyndin um „hús, barn og bíl“ enn þá við þegar sífellt færri hafa kost á að komast í eigið húsnæði og fleiri og fleiri kjó...
#3 „Geta pabbar ekki grátið“ 06.02.2026 1:16:16
Arnar Dan Kristjánsson leikari, Axel Ingi Árnason tónskáld, og Áslaug Kristjánsdóttir sálfræðingur mæta í hljóðverið til Birnu og Baldurs til að ræða alla anga föðurhlutverksins. Sagt er að allt breytist við það að verða foreldri; sambandið við eigin foreldra, sambandið við makann og oft neyðist fólk til þess að horfast í augu við eigin bresti samhliða barnauppeldinu. Í þættinum eru andstæðurn...
#2 „Gerum okkar besta“ 30.01.2026 1:09:23
Kempurnar Gunnar Jarl Jónsson, Kári Garðarsson og Sigrún Agatha Árnadóttir mæta í settið til Birnu og Baldurs og fjalla um mál málanna: íþróttir! Margir karlmenn og drengir líta á þjálfara sína sem fyrirmyndir í lífinu. Íþróttir hafa líka verið nefndar sem góður grunnur fyrir börn til að læra samvinnu og samstöðu á jafningjagrundvelli. En þegar takmarkið er alltaf sigur, hvað verður þá undir í...
#1 „Hjálpaðu mér upp“ 22.01.2026 1:06:37
Í þessum fyrsta þætti Svellsins reima Ragnar Jón Humi Ragnarsson grunnskólakennari, Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri Netöryggismiðstöðvar Íslands, og Ellen Jacqueline Calmon, verkefnastjóri, á sig skautana og rýna í áskoranirnar sem ungir drengir standa frammi fyrir í dag. Í þættinum ræða þau stafræna umhverfið sem börn og ungir drengir lifa og hrærast í, tilfinningar, skaðlega áhrifavalda og já...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.