RÚV Hlaðvörp

Súrinn

Society IS ↓ 7 episodes

Í þúsundir ára hefur mannfólkið bakað ilmandi súrdeigsbrauð í samstarfi við örverur súrdeigsins. En súrdeigsbakstur á Íslandi nær þó varla svo langt aftur? Hver ætli sé elsti súr á Íslandi og hvar er hann að finna? Ragnheiður Maísól Sturludóttir leggur af stað í rannsóknarleiðangur til þess að komast að uppruna súrdeigsins á Íslandi. Við nánari skoðun á þessari litlu deigklessu vakna stórar spurningar um mannfólkið og tengsl okkar við heiminn. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: shows.acast.com

Author

RÚV Hlaðvörp

Category

Society

Podcast website

shows.acast.com

Latest episode

Dec 29, 2024

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 10M+ downloads · 4.7+ rating iOS soon

Episodes

6. þáttur: Eistneski súrinn 29.12.2024

Í þessum sjötta og síðasta þætti veltir Ragnheiður Maísól fyrir sér af hverju súrdeigsbakstur varð svona vinsæll á tímum covid-faraldursins. Hún er þó aðallega að velta fyrir sér hvernig stendur á því að við myndum tilfinningatengsl við deigklessu í krukku og gerum allt sem í okkar valdi stendur til að halda henni á lífi. Í þættinum er rætt við Hildi Margrétardóttur, Valgerði Grétu Gröndal, Ölmu D...

5. þáttur: Heilög Fransiska og Alaskasúrinn 29.12.2024

Hvernig endar súrdeigsmóðir, sem er beintengd sænsku konungsfjölskyldunni og Nóbelsverðlaununum, í Mosfellsbæ? Og hvernig flækist hún þaðan á Djúpavog? Ragnheiður Maísól hittir þessa víðförlu súrdeigsmóður sem nefnist Heilög Fransiska. Svo er það hin súrdeigsmóðirin á Höfn í Hornafirði sem hefur jafnvel ferðast víðar og má rekja alla leið aftur til gullæðisins í Bandaríkjunum. Já, og hvað er þetta...

4. þáttur: Skyrið hennar Bergþóru 29.12.2024

Ragnheiður Maísól er að velta fyrir sér örverum súrdeigsins og grúska í minjaskrá Þjóðminjasafnsins þegar hún rekst á þrælmerkilegar skyrleifar. Líklega eru þetta elstu varðveittu minjar hér á landi um samstarf mannfólks og örvera í eldhúsinu. Uppfull af forvitni leggst hún í frekari rannsóknir á þessum skyrleifum og fer þá aðeins út af sporinu í leitinni að elstu súrdeigsmóður Íslands. En er skyr...

3. þáttur: Baskasúrinn 24.12.2024

Leitin að elstu súrdeigsmóður Íslands tekur óvænta stefnu einn morguninn þegar Ragnheiður Maísól er að fara með dóttur sína í leikskólann. Frá leikskólanum berst leitin vestur á Strandir, þaðan austur á Seyðisfjörð, því næst til Baskalands og loks suður til Reykjavíkur þar sem í ljós kemur að háöldruð súrdeigsmóðir leynist í ísskáp einum þar í borg. Og þetta er engin venjuleg súrdeigsmóðir heldur...

2. þáttur: Atvinnusúrinn 24.12.2024

Ragnheiður Maísól reynir að átta sig á sögu brauðmenningar á Íslandi og hvar sé líklegast að bakað hafi verið samfleytt úr súrdeigi um lengri tíma hér á landi. Þetta leiðir hana í hveitifyllt bakherbergi nokkurra bakaría víða í Reykjavík. Þar kemst hún m.a. í kynni við risastóra steinmyllu og rúnstykkjavél frá 1952 og hittir fyrir þó nokkrar súrdeigsmæður. Í þættinum er rætt við Laufeyju Steingrím...

1. þáttur: Súrdeigsmóðirin 24.12.2024

Hvað er eiginlega þetta fyrirbæri, súr og súrdeigsmóðir, sem eru á allra vörum? Í fyrsta þætti kemst Ragnheiður Maísól að því að elsta súrdeigsmóðir heims er líklega um 4500 ára. En hver er elsta súrdeigsmóðir Íslands? Sjálf veit Ragnheiður Maísól ekkert um uppruna sinnar eigin súrdeigsmóður. Getur mögulega verið að sú elsta Íslands sé í raun hennar eigin? Í þættinum er rætt við Sigfús Guðfinnsson...

Súrinn stikla 23.12.2024

Útvarpsþáttaröðin Súrinn samanstendur af 6 þáttum og kemur á hlaðvarpsveitur 24. desember. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Listen to the Súrinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.