Podcaststöðin

Spekingar Spjalla

Comedy IS ↓ 290 episodes

Þáttur um fólk, fyrir fólk sem hefur áhuga á fólki.

Author

Podcaststöðin

Category

Comedy

Podcast website

podcast.is

Latest episode

Apr 17, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

161. Slúður, Topp 3, Kvikmyndaskorið og Kaupa eða Selja 28.04.2022

Spekingar eru mættir eftir páskafrí en Jón framlengdi. Endurnærðir að þessu sinni og fóru yfir vikuna og Slúðrið í kjölfarið. Topp 3 fjallaði um lifandi eða dána tónlistarmenn sem þú vilt hanga með og um hvað mynduð þið ræða. Kvikmyndaskor um bestu grill bíómyndirnar og svo loks þeir hlutir sem þú myndir Kaupa eða Selja. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru...

160. Slúður, Topp 3, Hvort myndir þú frekar og Kaupa eða selja 15.04.2022

Spekingar hittust í Nóa Síríus stúdíói Podcastststöðvarinnar með Gull Lite og fóru yfir Páskana. Sæþór var vant við látinn og var hans saknað. Spekingar fóru yfir slúðrið þar sem okkar allra besta Kim Kardash kom við sögu. Topp 3 fór yfir helstu páskahefðir Spekinga og liðurinn “hvort myndir þú frekar” kom aftur eftir hlé. Kaupa eða selja var á sínum stað og að lokum fóru Spekingar yfir komandi vi...

159. Alvöru Slúður, Frægar línur, Game eða lame og Topp 3 08.04.2022

Spekingar hittust í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar og fóru yfir vikuna. Helgin leyndi á sér, þar sem afmæli Sæþórs var haldið heilagt. Slúðrið var á sínum stað og Frægar línur fóru fram úr væntingum. Game eða lame kom aftur eftir hlé og Topp 3 snerist um uppáhalds erlenda uppistandara. Spekingar enduðu á að fara í liðinn, Kaupa eða selja og fóru yfir svo yfir helgina. Upptökur fóru fram í...

158. Vikan, Slúðrið, Frægar línur, Topp 3 og Kaupa eða selja 01.04.2022

Spekingar hittust og fóru yfir málin. Sæþór var fjarri góðu gamni í þetta skiptið og var hans sárt saknað. Spekingar fóru yfir það helsta í vikunni, Slúðrið var á sínum stað, Frægar línur komu skemmtilega á óvart, Topp 3 þar sem farið var yfir topp 3 íþróttaviðburði hjá Spekingum. Kaupa eða selja er nýr liður sem leit dagsins ljós og í lokin var farið yfir helgina. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus...

157. Vikan, Slúður, Gull Lite test-ið og Topp 3 25.03.2022

Heilög þrenning í pop-up stúdíó-i Spekinga þessa vikuna. Sesi stýrir útibúi Spekinga á Tenerife þessa dagana en aðrir voru mættir. Vikan, Slúður, Gull Lite test-ið og Topp 3. Allt á sínum stað en í nýjum búningi. Framkvæmdum hjá FramkvæmdaJóni er lokið, eða hvað? Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite .

156. Amsterdam, framkvæmdir, Slúður, Frægar línur og Topp 3 18.03.2022

Spekingar loksins með fullmannað skip. Spekingar fóru yfir Amsterdam ferðina hjá Matta og framkvæmda Jóni, allt eðlilegt þar, eða hvað? Staðan tekin á framkvæmdunum hjá Jóni. Slúðrið á sínum stað, Frægar línur með óvænt úrslit og Topp 3 með skemmtilegustu og hættulegustu farartækin. Í lokin var farið yfir helgina hjá Spekingum. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Speking...

155. Atli Þór og Halli Melló - Vikan, Slúðrið, Kvikmyndaskorið og Hver er bænin 11.03.2022

Jón og Matti brugðu sér af bæ á vit ævintýra í Amsterdam. Stórir skór að fylla en það gerðum við svo sannarlega. Atli Þór Albertsson og Hallgrímur Ólafsson, Halli Melló, eru gestir Spekinga þessa vikuna. Vikan rædd, heitir bitar í Slúðrinu, Kvikmyndaskorið nú loks með atvinnu leikurum og Hver er bænin með Atla Þór er nýr goðsagnakenndur liður. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvar...

154. Fullmannaðir. Vikan, Slúður, Topp 3 og Sweet Tweet 03.03.2022

Spekingar spjölluðu loksins fullmannaðir. Fórum yfir það helsta í vikunni, Slúðrið var á sínum stað með nokkrum viðbótum, Topp 3 þar sem Spekingar opnuðu sig upp á gátt og Sweet Tweet sem er nýr liður leit dagsins ljós.  Eltið okkur á Instagram og fylgist með framkvæmdunum hjá Framkvæmda Jóni. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite .

153. Konudagurinn, Frægar línur, Lagaval og Framkvæmda Jón 25.02.2022

Spekingar fóru yfir vikuna. Konudagurinn var á sunnudaginn sl. og hvað gerðu Spekingar fyrir sínar bestu? Snjómokstur og ófærð. Verðbúðarrýni Jóns er klár. Frægar línur, Lagaval, Topp 3 og Kvikmyndaskorið á sínum stað. Framkvæmda Jón fór yfir fyrirhugaðar framkvæmdir og hvað hefur þegar verið gert.  Eltið okkur á Instagram og fylgist með framkvæmdunum hjá Framkvæmda Jóni. Upptökur fóru fram í...

152. Gull Lite testið, slúður og topp 3 17.02.2022

Spekingar fóru yfir vikuna, þar stóðu Superbowl, snjóþyngsli og Verbúðin hæst. Slúðrið var á sínum stað, topp 3 náði nýjum lægðum og Sæþór mætti aftur með nýjan lið sem ber nafnið Gull Lite testið. YouTube er ennþá að athuga Verbúðina. Eltið okkur á Instagram og sendið okkur línu um hvað ykkur finnst. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite .

151. Yfirferð á helstu málum, Slúður, Topp 3 og Orðaglens 11.02.2022

Spekingar fóru yfir málin eins og þeim einum er lagið. Dr. Steini kom í Nóa Síríus stúdíóið í fjarveru Sæþórs þar sem hann er að undirbúa barnaafmæli í apríl. Slúðrið var á sínum stað, óvæntar vendingar í frægum línum, Topp 3 það skemmtilegasta sem Spekingar hafa gert og doktorinn mætti með nýjan, lið “Orðaglens”, sem kom á óvart. Jón rýndi að sjálfsögðu Verbúðina. Í lokin var farið létt yfir helg...

150. Spekingar Spjalla 04.02.2022

Spekingar fóru yfir stóru málin að vanda. Jón kom með Verbúðar rýni eins og hann var búinn að lofa. Nýtt sjóðheitt slúður á sínum stað. Menn sýndu innri mann í hvort myndir þú frekar. Farið yfir öll mörk í Topp 3 með engum undirbúningi og Kvikmyndaskorið mætti aftur. Eltið okkur á Instagram og sendið okkur línu um hvað ykkur finnst. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Sp...

149. Spekingar Spjalla 27.01.2022

Spekingar spjölluðu um stóru málin. Snertum létt á fjárans danaleiknum, slúðrið var á sínum stað, Ertu game eða ertu lame leit dagsins ljós, topp 3 og Jón fór með frægar línur. Allt á sínum stað. Eltið okkur á Instagram og sendið okkur línu um hvað ykkur finnst. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite .

148. Áramótaþáttur 4.0 23.01.2022

Veiran skæða náði Spekingum um áramótin og því kemur fjórði áramótaþáttur Spekinga með seinni skipunum. Að vanda farið yfir árið samkvæmt mjög óljósum minningum Spekinga. Við fórum yfir víðan völl og sum málefni heitari en önnur. Það var heitt í hamsi en allir vinir að lokum. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite .

147. Spekingar Spjalla 21.01.2022

Í skammdeginu er ekkert betra en að hlusta á Spekinga. Eftir smá vangaveltur um leik okkar gegn Danmörku snérum við okkur að slúðri. Það er aldrei lognmolla í kring um Kim Kardashian, óvæntar fréttir sem Lína Birgitta fékk og Adam var ekki lengi í Paradís hjá Pamelu Anderson.  Spekingar fóru yfir topp þrjár utanlandsferðir sem þeir hafa farið í og hótel sem hafa staðið upp úr.  Jón fór y...

146. Spekingar Spjalla 14.01.2022

Spekingar biðja hlustendur afsökunar á því að útgáfa þáttanna hefur verið í molum. Við ætlum að bæta úr því á komandi tímum með því að fá í lið með okkur Jón Þór og Sesa til að gera skemmtilegar breytingar á þættinum. Í þessum þætti fórum við yfir það helsta sem upp hefur komið frá síðasta þætti ásamt því að spila kvikmyndaleik í lok þáttar.

#128 Páll Sævar Guðjónsson 2.0 25.11.2021

Heimsmeistaramótið í Pílu hefst þann 15. desember nk. Mótið er stórskemmtilegt sjónvarpsefni sem fer fram yfir jólahátíðina og heimsmeistarinn svo krýndur þann 3. janúar 2022. Páll Sævar Guðjónsson lýsir mótinu á Stöð 2 Sport sem áður. Palli er "rödd" íslensku þjóðarinnar enda einn besti vallarþulur landsins og útvarpsmaður. Við fórum meðal annars yfir landslagið í pílunni, hverjir eru líklegir á...

#17 Spekingar Special 20.11.2021

Þórólfur getur sett múl á samfélagið en hann setur ekki múl á Spekinga. Óbeislaðir kryfja Spekingar samfélagið. Okkur til halds og trausts fengum við YouTubeJón til að fara yfir stöðu málefna líðandi stundar. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite .

#127 Jólabjór 4.0 með Atla Þór Albertssyni 13.11.2021

Að vanda taka Spekingar þá gríðarlegu ábyrgð á sínar herðar að smakka jólabjórana. Í ár voru tappar 45 bjórtegunda rifnir upp og þeir eins misjafnir eins og þeir eru margir. Kári Sigurðsson stýrði flæðinu og Jón Þór Skaftason, Sævar Ríkharðsson, Atli Þór Albertsson og Auðjón Guðmundsson voru okkur til halds og trausts. Við þökkum kærlega fyrir okkur og sérstakar þakkir fá: Borg Brugghús Bruggsmiðj...

#126 Guðjón Pétur Lýðsson 04.11.2021

Guðjón Pétur Lýðsson er einn af okkar ástsælustu knattspyrnumönnum. Þegar hann er ekki að sparka í tuðruna er hann að smíða, fjárfesta eða að selja föt. Guðjón Pétur er gull af manni og með sterka sýn á lífið sem hægt er að læra af. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite .

#16 Spekingar Special 29.10.2021

Spekingar eru þrír að þessu sinni. Sesi mætti til okkar og við fórum yfir þá hluti sem skipta máli. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite .

#125 Sævar Helgi Bragason 15.10.2021

Sævar Helgi Bragason er skærasta stjarna okkar Íslendinga í stjörnufræðunum. Sævar er óþreytandi í að fræða Íslendinga um himingeiminn auk þess sem umhverfismálin eru honum hugleikin. Sævar er orkubolti sem finnst fátt skemmtilegra en að halda mörgum boltum á lofti og sinnir því fjölbreyttum og skemmtilegum störfum. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boð...

#15 Spekingar Special 02.10.2021

Þegar haustið ber að garði er bara tvennt öruggt. Lægðir sækja á landið og Spekingar mæta í stúdíó. Special þáttur að þessu sinni með okkar besta Sesa. Farið yfir það helsta auk þess að dreypa á því sem minna skiptir máli. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite .

#124 Spekingar Special Election Day 23.09.2021

Íslendingar ganga inn í kjörklefann á laugardaginn. Þá er ekki úr vegi að taka púlsinn á kosningabaráttunni. Sérlegir sérfræðingar Spekinga um pólitík, Þórhallur og JútjúpJón, mættu í studíó til að fara yfir málin. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite .

#123 Ásmundur Einar Daðason 18.09.2021

Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra rekur smiðshöggið á seríu okkar þar sem við buðum frambjóðendum í spjall fyrir komandi kosningar. Ásmundur brennur fyrir félags- og barnamálin og hefur lagt ótrúlegt kapp á að bæta umgjörðina í málaflokkunum. Nú óskar hann eftir því að fá að halda því starfi áfram. Ásmundur færir sig nú úr Norðvesturkjördæmi yfir í Reykjavík norður og leiðir þar...

Listen to the Spekingar Spjalla podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.