Aríel Pétursson

Sjókastið

Society IS ↓ 28 episodes

Sjókastið er hlaðvarp sem tengir sig við hafið með lifandi hætti, stýrt af Aríel Péturssyni, formanni Sjómannadagsráðs.

Author

Aríel Pétursson

Category

Society

Podcast website

www.sjomannadagurinn.is

Latest episode

Jun 2, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#28 Anna Kristjánsdóttir - vélstjórinn þjóðþekkti 02.06.2026

Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel Pétursson við Önnu Kristjánsdóttur, vélstjóra, sjómann, pistlahöfund og eina þekktustu samfélagsrödd Íslands. Anna segir frá uppvextinum, árunum á sjónum, starfinu sem vélstjóri og fjölskyldulífinu áður en hún steig fram og hóf eitt eftirtektarverðasta persónulega ferðalag sem íslenskt samfélag hefur orðið vitni að. Við ræðum um lífið á sjó, fjölskylduna, i...

#27 Gísli Jóhann Hallsson - yfirhafnsögumaður 26.05.2026

Hvað þarf til að taka við stjórninni þegar stærstu skip heims sigla inn á íslenskar hafnir? Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Gísla Jóhann Hallsson, yfirhafnsögumann Faxaflóahafna, manninn sem hefur það hlutverk að leiða risaskip óhult inn til hafnar. Gísli segir frá leiðinni inn í starfið, ábyrgðinni sem fylgir því að taka ákvarðanir undir mikilli pressu og hvernig það er að stíga um b...

#26 Jón Steinar Árnason - áhættusækni skipstjórinn og frumkvöðullinn 28.04.2026

Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Jón Steinar – skipstjóra, útgerðarmann og frumkvöðul sem hefur tekið stóra slagi, unnið mikla sigra en jafnframt tekið dýfur og alltaf lent á fótunum aftur. Hann ólst upp á Seyðisfirði, fór ungur á sjó og mótaðist snemma af hörðum veruleika sjómennskunnar. Leiðin lá á Gullfoss, í stýrimannaskólann og áfram í skipstjórn þar sem ábyrgðin var algjör. En sa...

#25 Hörður Kjartansson – húsvörður á daginn, bjargvættur á kvöldin 15.04.2026

Hörður Kjartansson er einn af þessum mönnum sem halda samfélaginu gangandi án þess að berja sér á brjóst Í áratugi starfaði hann sem húsvörður hjá Hrafnistu og Sjómannadagsráði – þar sem hann varð fljótt þekktur sem maðurinn sem vissi allt, gat lagað allt og sagði aldrei nei. Hann náði einstöku sambandi við íbúa hjúkrunarheimilisins og var hvers manns hugljúfi, en á bak við hlýjuna leyndist líka u...

#24 Gaui „Smái“ Hafsteinn – stökk í ískaldan sjó til að bjarga flugmanni 09.03.2026

Í þessum þætti af Sjókastinu sest Aríel niður með sjómanninum Guðjóni Hafsteini Guðmundssyni , eða Gauja smáa , sem byrjaði aðeins 14 ára gamall til sjós og á að baki nær fjörutíu ára feril á íslenskum togurum . Guðjón segir frá fyrstu ferðinni sem messagutti á Gullfossi , lífinu á síðutogurunum , hvernig menn gátu farið þrisvar á kaf á einni vakt , og þeirri miklu byltingu sem varð þegar skuttoga...

#23 Frosti Logason - alltaf á móti straumnum 09.02.2026

Í þessum þætti ræðir Aríel við Frosta Logason , rokkara, fjölmiðlamann og hlaðvarpsstjórnanda sem hefur orðið ein umdeildasta rödd íslenskrar samfélagsumræðu á síðustu árum. Farið er yfir lífshlaup Frosta; fjölmiðlaferil hans, trúleysið og síðar meir trúrækni, menningardeilur samtímans og sjómennskuna sem Frosti hellti sér út í og togar alltaf í hann. Þetta er opið, persónulegt og krefjandi samtal...

#22 Sigurður Jökull - talsmaður skemmtiferðaskipa 27.01.2026

Skemmtiferðaskipin eru eitt umdeildasta mál íslenskrar ferðaþjónustu. Gullnáma eða ágangur? Í þessum þætti af Sjókastinu ræðum við við Sigurð Jökul , lobbyista skemmtiferðaskipabransans á Íslandi. Við förum yfir stærð greinarinnar, efnahagsleg áhrif, álag á hafnir og samfélög – og spyrjum stóru spurninganna um ábyrgð, umhverfi og siðferði. Hversu miklu skila skemmtiferðaskipin raunverulega til þjó...

#21 Kári Stefánsson - Óþægilega heiðarleigi vísindamaðurinn 13.01.2026

Kári Stefánsson í Sjókastinu – kjaftshögg, húmor og kaldur sannleikur Í þessum þætti fáum við Kára Stefánsson í eitt beittasta og skemmtilegasta viðtal sem við höfum tekið í Sjókastinu. Við förum vítt og breitt og stingum á ýmis kýli  en alltaf með húmorinn og heiðarleikann í forgrunni. Við ræðum meðal annars: af hverju Kári „býður fólki reglulega upp á kjaftshögg“ í umræðunni skoðanir hans á sjáv...

#20 Reynir Traustason - umdeildi blaðamaðurinn af sjónum 16.12.2025

Krassandi viðtal við Reyni Traustason í Sjókastinu . Reynir er sjómaður að upplagi sem fór inn í blaðamennsku af fullum þunga og hefur lifað lífi sem minnir fremur á skáldsögu en ferilskrá. Í viðtalinu ræðum við meðal annars: þegar hann smyglaði amfetamíni frá Amsterdam hótanir og átök vegna blaðamennsku reynslu hans af lífsbjörg á sjó rithöfundastörf og lífsviðhorf hvernig sjómennska mótar karakt...

#19 Hanna Katrín atvinnuvegaráðherra 26.11.2025

Í þessum þætti tekur Aríel á móti Hönnu Katrínu Friðriksson, atvinnuvegaráðherra. Við ræðum persónulega reynslu hennar og förum svo beint í stærstu hitamál sjávarútvegsins: • hækkun veiðigjalda og áhrif þeirra á smærri fyrirtæki • hvort auknar álögur dragi úr fullvinnslu og störfum á Íslandi • fiskeldi – þjóðhagslegur ávinningur strax eða í fjarlægri framtíð? Beinskeyttur og upplýsandi þáttur fyri...

#18 Þór Sigfússon - Guðfaðir Sjávarklasans 13.11.2025

Þór Sigfússon hefur gegnt lykilhlutverkum í íslensku viðskiptalífi allt frá því að stýra Verzlunarráði og Sjóvá yfir í að stofna og leiða Íslenska sjávarklasann. Í þessum þætti ræðum við líf hans og leiðir, hugmyndina um „100% nýtingu“ sjávarauðlinda og hvernig samstarf, tengslanet og nýsköpun geta umbreytt heilli atvinnugrein. Við förum líka inn í manneskjuna sjálfa. Hvað drífur hann áfram og hva...

#17 Jón Frímann Eiríksson - skipstjórinn kornungi 21.10.2025

Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Jón Frímann Eiríksson, skipstjóra sem hóf feril sinn ungur og hefur alla tíð lifað og andað fyrir sjómennsku. Jón Frímann segir frá fyrstu árum sínum á sjó, ábyrgðinni sem fylgir því að stýra skipi og þeirri sýn sem hann hefur mótað á lífið og tilveruna úti á hafi. Þeir ræða einnig um hvernig breyttir umhverfisþættir hafa áhrif á lífríki sjávar — og hve...

#16 Vilhjálmur Birgisson - Baráttumaður af Skaganum 07.10.2025

Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel Pétursson við Vilhjálm Birgisson, formann Starfsgreinasambands Íslands og Verkalýðsfélags Akraness. Vilhjálmur hefur lengi verið einn skýrasti og beinskeyttasti talsmaður launafólks á Íslandi — maður sem hikar ekki við að segja hlutina eins og þeir eru. Í þættinum fer Aríel með Vilhjálmi yfir lífshlaup hans, baráttu fyrir réttlæti á vinnumarkaði og hvernig...

#15 Pétur Jakob Pétursson - svissneski vasahnífur sjávarútvegsins 30.09.2025

Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Pétur Jakob Pétursson, fyrrum sjómann og margfróðan sjávarútvegsfræðing sem ólst upp í Grímsey og á að baki langa reynslu á sjó og í sjávarútvegi. Við förum yfir æskuárin á eyjunni, störf hans hjá Samherja og hvernig hann sér íslenskan sjávarútveg í samanburði við erlendan. Einnig ræðum við sóknarfæri í veiðum, vinnslu og tækni, viðkvæm mál eins og auðl...

#14 Guðrún Hafsteinsdóttir - Formaður Sjálfstæðisflokksins 23.09.2025

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, sest niður í Sjókastinu. Við ræðum persónulega hlið hennar sem sjómannsfrú, fjölskylduna, reynsluna úr atvinnulífinu og starfið í ráðherrastól. En við förum líka í stóru pólitísku málin: klofinn flokk, landamærin, veiðigjöldin, brennivín í búðir og hvernig Sjálfstæðisflokkurinn getur endurheimt tiltrú almennings...

#13 Guðmundur Helgi Þórarinsson - formaður VM 16.09.2025

Í þessum þætti af Sjókastinu sest Aríel niður með Guðmundi Helga Þórarinssyni , einum af röddum sjómanna á Íslandi undanfarna áratugi. Við ræðum æskuár hans og fyrstu skref á sjó, baráttuna í kjaramálum, gagnsæi í verðlagningu, auðlindarentumál og lífeyrisréttindi sjómanna. Guðmundur Helgi fer líka yfir helstu áfanga í félagsmálum, áskoranir sem sjómenn hafa staðið frammi fyrir, og framtíð íslensk...

#12 Valdimar Víðisson - sjómaður sem varð bæjarstjóri 02.09.2025

Í þessum þætti af Sjókastinu hittum við Valdimar Víðisson, bæjarstjóra Hafnarfjarðar. Hann segir frá uppvexti sínum á Vestfjörðum, árum sínum á sjó og hvernig leiðin lá þaðan í kennslu, skólastjórn og pólitík. Við ræðum áherslur hans í bæjarstjórn, sýn hans á framtíð Hafnarfjarðar og gagnrýna umræðu um íslenska menntakerfið. Kynntu þér manninn á bak við titilinn – sjómaðurinn, skólastjórinn og bæj...

#11 Kjartan Páll - strandveiðibaráttumaður og háskóladoktor 24.06.2025

Í þessum þætti hittum við Kjartan Pál Sveinsson, formann Félags strandveiðimanna, og föru yfir það hvað strandveiðar eru í raun: lífsviðurværi, táknræn barátta fyrir réttlátari dreifingu auðlindarinnar – eða kerfi óhagkvæm leið til að afla þjóðarbúinu tekna. Við kynnumst Kjartani sem er doktor í félagsfræði, flakkaði heimshorna á milli og lenti í fangelsi í Egyptalandi. Við skyggnumst í hugmyndafr...

#10 Markús Alexandersson - níræður skipstjóri í fullu fjöri 17.06.2025

Markús Alexandersson hóf sjómannsferil sinn í Noregi aðeins 18 ára gamall og sigldi meðal annars á olíuskipum milli Asíu og Miðausturlanda á tímum Kóreustríðsins. Í þessum þætti segir hann frá ævintýrum sínum á úthöfunum, lífinu um borð og kraftmikilli ævi á sjó og landi. 

#9 Georg Lárusson - forstjóri Landhelgisgæslunnar 10.06.2025

Í þessum þætti ræðum við við Georg Kr. Lárusson, forstjóra Landhelgisgæslunnar.  Við kynnumst Georgi á persónulegu nótunum, ræðum við hann um hvort fókus Gæslunnar eigi að vera á leit og björgun eða þá varnarmál. Við heyrum um fjaðrafok í kringum hugmyndir um sölu á flugvél Gæslunnar, olíukaup skipanna í Færeyjum, samspil ríkis og varnarstefnu, gagnrýni á utanríkisstefnu Íslands og framtíð landsin...

#8 Eiríkur Ingi Jóhannsson - sjómaðurinn sem fór í forsetaframboð 04.06.2025

Eiríkur lifði fjóra tíma í ísköldum sjó eftir að Hallgrímur SI-77 sökk undan ströndum Noregs þar sem þrír fórust. Hann hjólaði einn fimm sinnum kringum Íslands og seinna meir hringinn um Írland – og bauð sig svo fram til forseta Íslands. Í þessum þætti af Sjókastinu sest Eiríkur Ingi Jóhannsson við borðið og segir frá ævintýrum sínum, lífsháska, þögninni eftir storminn og hvers vegna hann ákvað að...

#7 Jón Bjarnason - Ráðherrann sem forðaði Íslandi frá inngöngu í ESB? 27.05.2025

Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra – og manninn sem að eigin sögn, og að mati margra, forðaði Íslandi frá því að ganga í Evrópusambandið. Jón rifjar upp hvernig hann leiddi baráttuna fyrir yfirráðum Íslendinga yfir makríl í eigin lögsögu og segir frá því hvernig þessi ákvörðun, ásamt hans eigin röggsemi, hafi orðið vendipunk...

#6 Guðmundur Kristjánsson í Brimi - útgerðarmaðurinn sem syndir á móti straumnum 19.05.2025

Í þessum þætti af Sjókastinu hittum við Guðmund Kristjánsson, útgerðarmann og forstjóra Brims. Guðmundur ræðir æskuárin á Rifi, hvernig hann fetaði sín fyrstu skref í íslenskum sjávarútvegi og hvernig hann byggði upp eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins. Við komumst að því hvernig ungi og hlýðni drengurinn frá Rifi breyttist í stórútgerðarmann með sterkar skoðanir og skarpa sýn á framtíð gr...

#5 Haukur Hólm - Fréttamaðurinn sem hefur migið í saltan sjó 13.05.2025

Í þessum þætti af Sjókastinu hittum við Hauk Hólm, fréttamann sem á ævintýralegt lífshlaup að baki. Haukur hefur lengi verið þekktur fyrir beinskeyttan fréttaflutning og skarpa sýn á íslenskt samfélag en í dag skyggnumst við inn í persónulegri hliðar hans. Við ræðum um líf hans á sjó, bæði í æsku þegar hann réri sem unglingspiltur og síðar þegar hann sigldi skútum á fullorðinsárum. Haukur deilir m...

#4 Ágúst Halldórsson - kolólöglegt kajakævintýri óheflaða Eyjamannsins 06.05.2025

Í þessum hressilega "skemmtiþætti" ræðir Aríel við Ágúst Halldórsson vélstjóra, fjölskyldumann og hrekkjalóm úr Vestmannaeyjum. Við förum yfir lífið og tilveruna í Eyjum, uppátækin sem Ágúst hefur dundað sér við í gegnum tíðina og ævintýri sem margir myndu hugsa sig tvisvar um áður en þeir létu verða af – eins og þegar hann reri algjörlega óvart á kajak út í Surtsey. Það var mikið hlegið...

Listen to the Sjókastið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.