RÚV
Samfélagið
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Framtíð Heiðmerkur, níkótínpúðafíkn. strákahljómsveitir, AFÉS og Alzheimer 28.05.2025 56:42
Aðgengi almennings að Heiðmörk kann að verða takmarkað í framtíðinni. Veitur stefna að því að loka grannsvæði vatnsverndar fyrir almennri bílaumferð. Í dag verður haldið málþing á vegum Skógræktarfélags Reykjavíkur þar sem framtíð Heiðmerkur verður rædd. Auður Kjartansdóttir, framkvæmdarstjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, kemur og ræðir við okkur um framtíð Heiðmerkur. Síðan fáum við síðasta pakk...
Ættleiðingar, nýja maraþonið, íslenska sumarið og kreppupopp 27.05.2025 59:37
Íslensk ættleiðing er eina ættleiðingarfélagið á Íslandi sem hefur löggildingu frá Dómsmálaráðuneytinu til þess að annast milligöngu um ættleiðingar erlendis frá. Við ætlum að ræða við formann félagsins, Ástu Sól Kristjánsdóttur, um ættleiðingar til Íslands og helstu störf félagsins en margir ættleiddir leita til þess í leit að uppruna sínum. Og við höldum áfram að flytja umfjallanir nemenda í bla...
Skátamerki, brúnkukremsfíkn, rappkúltúr, gervigreind og incel-menning 26.05.2025 59:29
Í þessari viku flytjum við hér í Samfélaginu ellefu umfjallanir úr smiðjum nemenda í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands. Í dag flytjum við fimm umfjallanir: Alma Sól Pétursdóttir fjallar um óhefðbundin, óformleg og krefjandi skátamerki. Ásrún Aldís Hreinsdóttir fjallar um brúnkukremsnotkun íslenskra ungmenna og brúnkukremsfíkn. Baldvin Þór Hannesson fjallar um nýja kynslóð íslenskra rappa...
Hafvernd, Ræktunarstöð Reykjavíkurborgar og íslensk bjórmenning 23.05.2025 59:18
Á dögunum var nýjasta heimildarmynd Davids Attenborough – Hafið – frumsýnd á Íslandi og viðbrögðin hafa verið sterk og jákvæð. Að því tilefni ætla framleiðendur myndarinnar og hópur íslenskra félagssamtaka, í samvinnu við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Háskólann í Reykjavík, að halda fund um hafvernd á Íslandi á mánudaginn. Hér rétt á eftir fáum við til okkar Katrínu Oddsdóttur og And...
Meira um nýyrðasmíð gervigreindar, F.L.Í.S. og dagur líffræðilegrar fjölbreytni 22.05.2025 58:48
Við fjölluðum um nýyrðasmíð gervigreindar í síðustu viku og Eyrún Magnúsdóttir, gervigreindarfréttaritari Samfélagsins, heldur áfram þeirri umfjöllun í dag. Hún ræðir við Huldu Ólafsdóttur og Svanhvíti Lilju Ingólfsdóttur, sérfræðinga í máltækni hjá Miðeind, um nýyrðasmíð gervigreindar og færni hennar í íslensku. Seinna í þættinum fáum við til okkar stofnendur mótmælahreyfingarinnar F.L.Í.S. – eða...
Skyndimótmæli við utanríkisráðuneytið, hlaup og erfðasjúkdómar 21.05.2025 58:32
Stór hópur fólks kom saman við utanríkisráðuneytið í dag og krafðist aðgerða í ljósi ólýsanlegra hörmunga á Gaza. Það er í sjálfu sér ekki nýtt – þessi mótmælahreyfing hefur verið öflug í rúmt eitt og hálft ár, en óhætt er að segja að ákveðinn vendipunktur hafi orðið þegar Sameinuðu þjóðirnar sögðu í gær að allt að 14 þúsund börn myndu svelta á Gaza ef neyðaraðstoð er ekki hleypt inn á svæðið. Þrý...
Gott að eldast, loftslagssamkomulög liðast í sundur 20.05.2025 59:31
Gott að eldast er aðgerðaráætlun stjórnvalda um að auka samstarf varðandi málefni eldra fólks. En er gott að eldast á Íslandi og hvað er hægt að gera til þess að lifa betra lífi á efri árum? Við fáum til okkar Þórunni Huldu Sveinbjörnsdóttur, fyrrverandi formann Landssambands félags eldri borgara, til þess að ræða þessi mál og fleiri. Og svo fáum við til okkar Sigurð Jóhannesson, hagfræðing og for...
Gervigreind fyrir lögfræðinga, sagan í Fossvogskirkjugarði, hnitmiðað viðtal um sveitina 19.05.2025 59:12
Síðustu mánuði höfum við í Samfélaginu fjallað talsvert um mót lögfræði og gervigreindar og þá helst heyrt hvað lögfræðingar segja um gervigreind og gervigreindarlöggjöf. Í dag nálgumst við þessi viðfangsefni úr aðeins annarri átt – og kynnum okkur gervigreindartól fyrir lögfræðinga. Jónsbók er nýtt tól sem gæti haft talsverð áhrif á störf lögfræðinga og nám lögfræðinema. Við fáum til okkar Thelmu...
Útfjólubláir geislar og upplýsingaóreiða í tengslum við matvæli 16.05.2025 55:00
Það hefur verið sólríkt á landinu síðustu daga og það virðist ætla að vera það áfram og af því tilefni ætlum við að ræða við tvo læknisfræðilega eðlisfræðinga hjá Geislavörnum ríkisins til að velta fyrir okkur útfjólubláum geislum og hvenær þurfi að huga að sólarvörn. Edda Lína Gunnarsdóttir og Eyjólfur Guðmundsson setjast hjá okkur í upphafi þáttar til að spjalla um þetta. En síðan ætlum við að h...
Nýyrðasmíð gervigreindar, Afstaða í 20 ár, ofanflóð og loftslagsbreytingar 15.05.2025 59:07
Afstaða, félag fanga, fagnar 20 ára afmæli í ár. Félagið berst fyrir réttindum fanga og við ætlum að ræða formann félagsins, Guðmund Inga Þóroddsson, um fangelsismál almennt. Refilskór, óðlega, tónfæri. Spjallmenni á borð við ChatGPT búa stundum til ný orð þar sem þau vantar og nota oft orð eins og þessi, sem enginn kannast við. Er gervigreindin þannig eins og barn á máltökuskeiði? Eyrún Magnúsdót...
Starfsemi SÁÁ, menning á Vestfjörðum og sýklalyf í ferskvatni 14.05.2025 55:00
Fjölmargir sækja sér árlega meðferð vegna áfengis og vímuefnavanda hjá SÁÁ - samtökum áhugafólks um áfengis og vímuefnavanda. En það hefur margt breyst á undanförnum árum í nálgun á því hvernig er unnið með vímuefnavanda. Við ræðum við Önnu Hildi Guðmundsdóttur, formann samtakanna, um starf þeirra. Í dag fjöllum við líka um vestfirska menningu - á dögunum hittum við Skúla Gautason, menningarfulltr...
Á slóðum sjaldgæfs svepps, Netagerðin á Ísafirði og matvendni 13.05.2025 59:32
Í dag heimsækir Samfélagið Netagerðina á Ísafirði, skapandi rými fyrir arkítekta, klæðskera, blómaskreitingar- og leirlistarfólk og annað sjálfstætt starfandi listafólk á Vestfjörðum. Við skoðum rýmið í fylgd með Heiðrúnu Björk netagerðastjóra og kíkjum í litla verslun sem listafólkið heldur úti. Og síðan fáum við til okkar tvo sérfræðinga í matvendni barna - þær Berglindi Lilju Guðlaugsdóttur dor...
Kynjaþing, þungunarrof í Færeyjum og ræðismaður Nasista í Reykjavík 12.05.2025 58:49
Um helgina hélt Kvenréttindafélag Íslands kynjaþing í sjöunda skipti. Í ár var þingið haldið í Fjölbrautaskólanum við Ármúla og ýmislegt var rætt – meðal annars hin svokallaða anti-gender-hreyfing, vesturnorræn jafnréttisbarátta og þungunarrofslöggjöf í Færeyjum. Samfélagið kíkti við á þinginu á laugardag til að ræða við þau sem þarna voru saman komin, og við heyrum af því í þættinum í dag. Og sam...
Lýðskólinn á Flateyri fer í sumarfrí 09.05.2025 59:45
Samfélagið heilsar frá Flateyri. Í dag kynnum við okkur starfsemi Lýðskólans á Flateyri, ræðum við fólkið sem í honum starfar og fræðumst um nám og nemendur við Önundarfjörð. Við heimsækjum líka Náttúrustofu Vestfjarða í Bolungavík og heyrum ýmislegt um náttúrurannsóknir á Vestfjörðum. Tónlist úr þættinum: Simon and Garfunkel - Keep the customer satisfied. Larkin Poe - Kick the blues. K.ÓLA - Keyr...
Svipmynd af Háskólasetri Vestfjarða 08.05.2025 57:49
Samfélagið heilsar frá Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði. Í dag verjum við þættinum með Peter Weiss, forstöðumanni setursins til tuttugu ára, ræðum starfsemina, námið og rannsóknirnar, spjöllum við fólkið sem starfar í setrinu og hugleiðum framtíð háskólasetursins í ljósi þess að Weiss hefur tilkynnt að hann ætli að hætta sem forstöðumaður í sumar. Og við heyrum líka pistil frá Stefáni Gíslasyni,...
Öruggari Vestfirðir, meiri ofanflóð og vísindaspjall 07.05.2025 59:03
Samfélagið heilsar frá Sauðfjársetrinu á Ströndum, rétt hjá Hólmavík, þar sem Ríkislögreglustjóri og lögreglustjórinn á Vestfjörðum halda fund um öryggi Vestfjarða. Hér er saman komnir fjölmargir Vestfirðingar úr hinum og þessum kimum samfélagsins til að ræða helstu ógnir sem stafa að Vestfirðingum og hvernig hægt er að takast á við þær. Við fjöllum um fundinn og heyrum hvernig hægt verður að gera...
Samfélagið á Ofanflóði 2025 á Ísafirði 06.05.2025 58:47
Samfélagið heilsar frá Ísafirði, þar sem málþingið Ofanflóð 2025 er haldið - þar sem margir helstu sérfræðingar um ofanflóð og ofanflóðvarnir eru saman komnir í Edinborgarhúsinu. Við ræðum við framsögufólk og gesti hér á málþinginu og fjöllum um stöðu ofanflóðvarna hér á Vestfjörðum, sem og á landinu öllu.
Vímuefnaröskun, rafbílarafhlöður og vorið 1974 05.05.2025 59:14
Í dag byrjum við þáttinn á umfjöllun um vímuefnaröskun, sem er einn alvarlegasti heilbrigðisvandinn sem við glímum við – samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni. Röskunin er þó meðhöndlanleg og við eigum meðferðir sem virka – en röskunin einkennist ekki síst af bakföllum og hindranirnar sem blasa við þeim sem sækja sér meðferð eru margar. Erla Björg Sigurðardóttir, lektor í félagsráðgjöf og framkvæ...
Heimsókn í neyslurými og upplifun sögunnar 02.05.2025 58:29
Í dag heimsækir Samfélagið neyslurýmið Ylju í Borgartúni. Þar getur fólk 18 ára og eldra - sem notar vímuefni í æð komið og notað lyfin sín í hreinu og öruggu umhverfi - og fengið lágþröskuldarheilsbrigðisþjónustu. Við ræðum við starfsfólk Ylju í dag um hvernig reynslan hefur verið síðan Ylja opnaði í Borgartúni síðasta sumar - og við heyrum líka í skjólstæðingi Ylju sem segir okkur frá sinni reyn...
Sýndarsjúklingar og fitusöfnun eftir miðjan aldur 30.04.2025 59:07
Í dag verður nýtt færni- og hermisetur Háskóla Íslands og Landspítala opnað formlega. Setrið er í hálfgert æfingasjúkrahús þar sem nemendur HÍ og starfsfólk spítalans geta æft sig að sinna sýndarsjúklingum sem geta farið í hjartastopp, svitnað, blánað og veikst af öllum mögulegum sjúkdómum. Við kíktum í heimsókn í HERMÍS í Eirbergi á Landspítalasvæðinu og skoðuðum setrið ásamt Þorsteini Jónssyni –...
Áhrifavaldar barna, lífið í Róm og góða veðrið 29.04.2025 58:20
Í gær var haldinn fræðslufundur fyrir foreldra þar sem kafað var ofan í heim snallsíma og samfélagsmiðla. Fundurinn bar heitið þekkir þú áhrifavaldana í lífi barnsins þíns? og snerti meðal annars á áhyggjum sem hafa vaknað nýlega um samfélagsmiðlanotkun barna – ekki síst í kjölfar Netflix-þáttanna Adolescence. Nokkur hundruð manns mættu á fundinn, og í dag fáum við til okkar tvö þeirra sem stóðu f...
Landnámsskógur endurheimtur, gervigreind og sifjaspell á 18. öld 28.04.2025 55:00
Í Skagafirði er unnið að því að endurheimta skóglendi, í Brimnesskógum, en þar var blómlegur skógur á landnámsöld. Steinn Kárason garðyrkjumeistari og umhverfishagfræðingur er frumkvöðull að þessu, hann kemur í þáttinn og segir okkur allt um þetta. Í síðustu viku fjölluðum við um mót gervigreindar og tónlistar – og veltum því fyrir okkur hver væri höfundur verks sem framleitt er af gervigreind. Í...
Vika 17, stærðfræði og Kjötborg 25.04.2025 58:12
Á bókasöfnum eru ekki bara bækur - heldur ýmislegt annað og kannski ættu þau að heita eitthvað annað en bókasöfn. Þessi vika er sú 17. á árinu, þetta er alþjóðleg vika heimsmarkmiðanna á bókasöfnum - og Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir verkefnastjóri á Amtsbókasafninu á Akureyri kemur til okkar og segir okkur allt um það. Stærðfræði er alltumlykjandi. Nær allar tækninýjungar, sem hafa breytt lífi okka...
Páfakjör, lífsgæði á efri árum og sjóveiki 23.04.2025 58:47
Frans páfi lést anna páskadag eftir 12 ár á páfastóli og fljótlega hefjast kardínálar handa við að velja nýjan páfa. Þetta ævaforna embætti er sveipað dulúð og við ætlum að velta fyrir okkur hlutverki páfa og ýmsu öðru sem tengist kaþólsku kirkjunni og trúnni með Illuga Jökulssyni. Lífaldur íslensku þjóðarinnar er 80 ár – en aldur við góða heilsu er aðeins um 66 ár. Hvernig fjölgum við heilbrigðum...
Gervigreind í tónlist, kannabis til lækninga og dagur jarðar 22.04.2025 55:00
Á morgun verða mót tónlistar og gervigreindar rannsökuð í Salnum í Kópavogi, þegar Þórhallur Magnússon, rannsóknarprófessor við Háskóla Íslands og prófessor í tónlist við Háskólann í Sussex verður með erindi í viðburðarröð sem heitir Menning á miðvikudögum í Kópavogi. Á viðburðinum fer hann yfir sögu gervigreindar í tónlist og fer yfir helstu uppgötvanir og þróanir á þessu sviði – og hann ætlar að...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.