Elín Ásbjarnardóttir Strandberg

Raddir mæðra

Society IS ↓ 7 episodes

Þættir sem ræða móðurhlutverkið á fræðandi og heiðarlegan hátt, óritskoðað og í sinni raunverulegustu mynd. Farið verður yfir rannsóknir sem snerta á því hvaða áhrif það hefur á einstakling að verða móðir og jafnvel tekin viðtöl við sérfræðinga hvað það varðar. Hugtök á borð við móðurmótunarskeið (e. matrescence) verður sett undir smásjána sem og önnur áhugaverð hugtök á borð við sjálfsmyndarkrísu, mömmuskömm og mömmukulnun. Mýtur á borð við bleika skýið og "góðu mömmuna" verða skoðuð út frá akademískum rannsóknum til þess að kanna hvort þetta séu mýtur eða möguleiki. Hér er leitast við að fræ...

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: podcastle.ai

Author

Elín Ásbjarnardóttir Strandberg

Category

Society

Podcast website

podcastle.ai

Latest episode

Apr 11, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 10M+ downloads · 4.7+ rating iOS soon

Episodes

7. þáttur - mýtan um hina fullkomnu móður 11.04.2025

Í þættinum skoðum við mýtuna um hina fullkomnu móður. Mýtu sem er gamalgróin og er gjarnan nýtt til innvortissamanburðar á erfiðum stundum. Í þættinum er vitnað í: Reddy, N. (2025). The Good Mother Myth. Sacks, A. (2022). The Startup Parent Podcast, þáttur #110: The Myth of the Perfect Mother — And Why You’re Not A “Bad Mom”. instagram: raddirmaedra raddirmaedra@gmail.com

6. Líkamsmynd eftir barnsburð - Spjall með Alexöndru Sif Herleifsdóttur íþróttafræðingi 28.03.2025

Viðtal við Alexöndru Sif Herleifsdóttur, íþróttafræðing um líkamsmynd, líkamsvirðingu og lífið eftir barnsburð. raddirmaedra@gmail.com

5. ósýnilega mamman 14.03.2025

Í þættinum verður farið í það hvernig mæður geta upplifað sig ósýnilegar, hvernig það getur hafa komið til og hvað er til bragðs að taka varðandi þá þróun. Í þættinum er vitnað í eftirfarandi greinar: Fischer, S. Becoming bovine. Benson, & Wolf. Where did I go? The invisible postpartum mother. Símonardóttir, S., & Guðmundsdóttir, (2023). „Manni líður eins og maður sé alltaf að stara í ginið á ljón...

4. Matrescence // Móðurmótunarskeiðið - seinni hluti 07.03.2025

Sjálfstætt framhald af síðasta þætti, en í þetta skiptið aðeins meir um hvaða áhrif þetta skeið getur haft á einstaklinginn. Í þættinum verður farið yfir 5 áhrifaþætti sem móðurmótunarskeiðið getur haft þau sem ganga í gegnum það. Breytta sjálfsmynd, hormónabreytingar, sálfræðileg áhrif, félagsleg áhrif og mögulega tilvistarkreppu. Endilega hafið samband ef þið viljið koma einhverju til skila varð...

3. Matrescence // Móðurmótunarskeiðið 21.02.2025

Í þessum þætti verður farið í fræðilega hluta hugtaksins matrescence eða móðurmótunarskeiðsins eins og ég og mínir leiðbeinendur hafa kosið að þýða það á íslensku. Stutt ágrip á hvað skeiðið hefur í för með sér og nokkrar nýlegar rannsóknir og heimildir ræddar. Heimildir: Raphael, D. (1975). Being Female: Reproduction, Power, and Change. Academic Press. Sacks, A. (2017). "Why We Need the Word Matr...

2. Að hlúa að sér í móðurhlutverkinu 14.02.2025

Í þættinum fer ég yfir nokkur atriði varðandi það hvernig við getum best mætt okkur að mildi í móðurhlutverkinu og hlúð að okkur þegar við erum jafnvel hvergi finnanlegar sjálfar á forgangslistanum. Þessi atriði eru alls ekki tæmandi og hver veit nema ég hendi í framhaldsþátt af þessu umræðuefni síðar. Ef þú hefur einhverjar hugleiðingar varðandi efnið eða vilt koma einhverju á framfæri geturðu ha...

Kynningarþáttur 14.02.2025

Þessi fyrsti þáttur er ætlaður sem stutt kynning á hugmyndinni bakvið podcastið, kynningu á mér, Elínu Ásbjarnardóttur Strandberg, og því helsta sem verður tekið fyrir í seríunni. Endilega hafið samband ef þið hafið einhverjar vangaveltur eða viljið koma einhverju sérstöku á framfæri á raddirmaedra@gmail.com

Listen to the Raddir mæðra podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.