Sölvi Tryggvason
Podcast með Sölva Tryggva
Podcast með Sölva er þáttur sem lætur sér ekkert óviðkomandi. Fylgstu með áhugaverðu fólki úr öllum áttum setjast í stólinn hjá Sölva Tryggva.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: solvitryggva.libsyn.com
Author
Sölvi Tryggvason
Category
Podcast website
Latest episode
Oct 30, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#69 Steinar Fjeldsted með Sölva Tryggva 07.08.2022 1:24:52
Steinar Fjeldsted er einn af stofnendum hljómsveitarinnar Quarashi, sem náði vinsældum um allan heim. Þegar Steini stofnaði sveitina í kringum tvítugt óraði hann líklega ekki fyrir því sem framundan var. Stórir plötusamningar, ferðalög um allan heim, tónleikahald fyrir tugi þúsunda aftur og aftur. Í þættinum fara Steinar og Sölvi yfir Quarashi ævintýrið, tómleikann sem tók við eftir að því lauk og...
#74 Klara Elías með Sölva Tryggva 07.08.2022 1:14:16
Klara Elías varð vægast sagt þjóðþekkt fyrir tvítugt sem söngkona í hljómsveitinni Nylon. Eftir að hafa verið með líf sitt nánast í raunveruleikaþætti fyrir framan alþjóð fór hljómsveitin í víking og gerði góða hluti í Bretlandi. Eftir það lá leiðin til borg englanna í Los Angeles, þar sem Klara hefur verið síðasta áratuginn. Nú er hún komin heim eftir vægast sagt skrýtið ár í Bandaríkjunum. Í þæt...
#57 Tobba Marínós með Sölva Tryggva 07.08.2022 1:24:58
Þorbjörg Alda Birkis Marínósdóttir, betur þekkt sem Tobba Marínós, kom með hvelli inn á sjónarsvið íslenskra fjölmiðla eftir að hafa menntað sig í fjölmiðlafræði erlendis. Eftir stutt starf í blaðamennsku var henni kippt inn í sjónvarp og síðan þá hefur þessi kjarnakona gert allt milli himins og jarðar. Skrif á bókum, stjórnun í fyrirtækjum, framleiðsla á matvörum og svo auðvitað meira sjónvarp og...
#54 Reynir Trausta með sölva Tryggva 07.08.2022 1:46:01
Reynir Traustason er einn reyndasti blaðamaður Íslandssögunnar. Hann hefur ritstýrt fjölmörgum fjölmiðlum og oft komist í fréttir fyrir að lenda upp á kant við valdhafa. Hér ræða Reynir og Sölvi um sjómennskuna, áratuga feril í fjölmiðlum, hvernig Reynir tók heilsu sína í gegn þegar hann óttaðist um líf sitt og margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitn...
#52 Ragga Ragnars með Sölva Tryggva 07.08.2022 1:29:13
Ragnheiður Ragnarsdóttir var ein öflugasta sundkona Íslands um árabil og fór meðal annars á tvenna Olympíuleika. Fyrir nokkrum árum venti hún kvæði sínu í kross og setti allt sitt í leiklistina. Hún landaði einu af aðalhlutverkunum í sjónvarpsseríunni Vikings sem hefur farið um allan heim. Hér ræða hún og Sölvi um stórmerkilegan feril Röggu í sundinu og leiklistinni, mikilvægi þess að þora að elta...
#68 Jóhann Sigurðarson með Sölva Tryggva 07.08.2022 1:10:46
Jóhann Sigurðarson, stundum kallaður Jói stóri, er einn ástælasti leikari Íslands. Hann byrjaði í leiklist þegar tækifærin voru mun færri en nú og hefur því haldið mörgum boltum á lofti í gegnum tíðina. Rödd hans er líklega ein sú þekktasta á landinu, enda hefur hann lesið inn á ógrynni bóka og sjónvarpsefnis í gegnum tíðina. Í þættinum fara Sölvi og Jói yfir ferilinn, sönginn, sögur úr bransanum...
#63 Beggi Ólafs með Sölva Tryggva 07.08.2022 1:35:45
Sálfræðingurinn Bergsveinn Ólafsson stefndi árum saman að því að verða atvinnumaður í knattspyrnu. Eftir að hafa lagt allt í boltann áttaði hann sig á því að ástríðan var farin og lagði skóna á hilluna og setti alla sína krafta í að læra og miðla meiru í sálfræðinni. Eftir að hafa sökkt sér ofan í ástríðu sína fyrir innihaldsríkara lífi gaf hann nýlega út bókina ,,Tíu skref í átt að innihaldsríkar...
#61 Ólafur Már með Sölva Tryggva 07.08.2022 1:25:39
Ólafur Már Björnsson augnlæknir hefur látið mikið til sín taka í náttúruvernd og hefur vakið athygli fyrir stórbrotnar myndir og myndbönd af íslenskri náttúru. Ólafur var frumkvöðull í laseraðgerðum á augum hér á landi, sem nú þykja nokkuð sjálfsagður hlutur. Í þættinum ræða Ólafur og Sölvi um stöðu heilbrigðiskerfisins á Íslandi, náttúruvernd, ferðalög og mikilvægi þess að finna ástríðu í áhugamá...
#60 Brynjar Níelsson með Sölva Tryggva 07.08.2022 1:33:15
Brynjar Níelsson hefur lengi verið þekktur á vettvangi stjórnmálanna fyrir að þora að viðra óvinsælar skoðanir. Hann hefur gengið lengst íslenskra Alþingismanna í að gagnrýna aðgerðir vegna Covid faraldursins. Í þættinum ræða Sölvi og Brynjar um grundvallaratriði í stjórnmálum, eins og til dæmis hve mikil umsvif ríkisins eigi að vera, mikilvægi þess að kjósendur viti hvar þeir hafi þá sem þeir kjó...
#51 Sigmundur Ernir með Sölva Tryggva 07.08.2022 1:30:44
Sigmundur Ernir Rúnarsson er einn reyndasti sjónvarpsmaður Íslands og hefur verið nær sleitulaust á skjám landsmanna síðan á upphafsárum Stöðvar 2. Hann hefur með árunum lært að njóta þess betur að lifa í núinu og taka allar lífsins gjafir inn að hjartarótum. Í þættinum segir Sigmundur frá eftirminnilegustu viðmælendunum, ferðum í aðrar heimsálfur, lífshættulegum flugferðum með Ómari Ragnarssyni o...
#53 Herbert Guðmundsson með Sölva Tryggva 07.08.2022 1:31:43
Herbert Guðmundsson er löngu orðinn goðsögn í íslensku tónlistarlífi. Þegar talað er um 80´s tímabilið kemur nafn hans strax í huga fólks. Herbert, sem er þekktur fyrir mikinn dugnað og gott hugarfar sat um tíma í fangelsi og missti allt eftir hrunið 2008. Í þættinum fara Sölvi og Herbert yfir magnaðan feril Herberts, sögur úr jailinu, bóksölu fyrir tugi milljóna og margt margt fleira. Þátturinn e...
#50 Herra Hnetusmjör með Sölva Tryggva 07.08.2022 1:18:25
Árni Páll Árnason, betur þekktur sem Herra Hnetusmjör skaust upp á stjörnuhimininn sem unglingur. Rapptónlist hans sló strax í gegn og síðan þá hefur hann verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins. Hann var að gefa út bók, sem óhætt er að segja að sér opinská. Hér ræða Sölvi og Herra Hnetusmjör um fíkniefnaneyslu, rapptónlist, bókaskrif og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - ww...
#59 Jakob Frímann með Sölva Tryggva 06.08.2022 1:15:50
Jakob Frímann Magnússon er maður sem hefur marga fjöruna sopið. Ungur var hann kominn á samning sem tónlistarmaður erlendis á tímum þegar afar fáir Íslendingar reyndu fyrir sér erlendis. Ein af aðalsprautunum í Stuðmönnum, Miðborgarstjórinn, formaður Stefs og svo framvegis og svo framvegis. Í þættinum ræða Sölvi og Jakob um ótrúlegan feril og magnaðar sögur, lykilinn að því að halda sér ungum í an...
#48 Sigga Kling með Sölva Tryggva 06.08.2022 1:15:24
Sigríður Klingenberg, betur þekkt sem Sigga kling, hefur skemmt Íslendingum um árabil með spádómum, bingókvöldum, karókí-kvöldum og mörgu fleiru. Sigga segist sjálf ekkert skilja í því hvers vegna hún vinni við að skemmta, enda sé ferill hennar ein stór afleiðing af því að kunna að segja alltaf já, sama hvernig manni líður. Hér ræða Sigga og Sölvi um mikilvægi þess að njóta hvers dags, hlæja nógu...
#67 Eldur Egilsson með Sölva Tryggva 06.08.2022 1:11:45
Eldur Egilsson er 13 ára gamall frændi Sölva og þar með langyngsti vidmælandi podcastsins hingað til. Í þættinum ræða Eldur og Sölvi um lífið og tilveruna, skólakerfið, hvað fullordna fólkið gæti gert ödruvísi og margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Narfeyrarstofa - https://narfey...
#55 Elísabet Guðmundsdóttir með Sölva Tryggva 06.08.2022 1:24:51
Elísabet Guðmundsdóttir lýtaskurðlæknir, sem á 20 ára feril í faginu í Svíþjóð kom nýverið til Íslands til að starfa á Landsspítalanum. Hún hefur undanfarið talað opinskátt gegn sóttvarnaraðgerðum vegna Covid, sem hún segir að gangi of langt. Elísabet stóð einnig að undirskriftasöfnun um þá kröfu að framhaldsskólar verði opnaðir aftur. Hún vill meina að heilmargt sé hægt að gera til að verjast því...
#49 Bríet með Sölva Tryggva 06.08.2022 1:03:13
Bríet Ísis Elfar er vinsælasti tónlistarmaður Íslands í dag. Síðan platan hennar kom út hafa lög hennar átt topplistana vikum saman. Bríet kom mjög ung fram á sjónarsviðið og vakti strax verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína. Í þættinum ræða Sölvi og Bríet um tónlistina, ástarsorg, hvað fylgir því að vera landsþekkt, reynslu af svitahofum og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags -...
#47 Arnór Guðjohnsen með Sölva Tryggva 05.08.2022 1:28:51
Arnór Guðjohnsen er nafn sem allir íslenskir knattspyrnuáhugamenn geyma, enda er hann einn albesti fótboltamaður Íslandssögunnar. Hér ræða Sölvi og Arnór um ótrúlegan feril Arnórs, hæðir og lægðir, þar sem inn komu sigurleikir gegn stórveldum Evrópu, erfið meiðsli, samningsleysi á tímum þar sem réttur leikmanna var nánast enginn og margt fleira. Í þættinum fara þeir einnig yfir mikilvægi andlega þ...
#46 Róbert Marshall með Sölva Tryggva 04.08.2022 1:49:44
Róbert Marshall hefur víða komið við á löngum og mögnuðum ferli. Hann vann um árabil sem fréttamaður og þáttastjórnandi, stofnaði svo Fréttastöðina NFS ásamt fleirum, áður en hann fór síðar í stjórnmál, þar sem hann sat á þingi. Á síðustu árum hefur hann unnið við ástríðuna, sem er útivist og fjallaferðir, en er nú í starfi sem ráðgjafi forsætisráðherra. Í viðtalinu fara Róbert og Sölvi yfir alla...
#44 Margrét Pála með Sölva Tryggva 03.08.2022 2:04:55
Margrét Pála Ólafsdóttir er sannkölluð kjarnakona. Hún hefur um árabil rutt veginn fyrir nýjar leiðir í menntun barna. Þúsundir ánægðra foreldra hafa nú sent börn sín í skóla Hjallastefnunnar sem Margrét stofnaði. Margrét var ein fyrsta opinbera lesbían á Íslandi og lenti í hremmingum vegna þess. Hér ræða Sölvi og Margrét um það hvernig öll hennar tækifæri voru tekin af henni á einum degi vegna fo...
#45 Guðmundur Ebenezer með Sölva Tryggva 03.08.2022 1:14:38
Guðmundur Ebenezer Birgisson er reyndur sálfræðingur með háskólagráður í 3 greinum, sem sagði upp vel launuðu starfi í Noregi til að elta drauminn og byrja með fyrirtæki sem þróar lausnir í geðheilsu í gegnum internetið. Guðmundur og Sölvi ræða hér mikilvægi þess að þora að elta draumana og setja sér háleit markmið. Þeir fara í þættinum yfir þróun sálfræði og geðheilsu og hvaða lausnir gætu nýst...
#42 Magnús Scheving með Sölva Tryggva 02.08.2022 2:00:21
Magnús Scheving er einn merkilegasti frumkvöðull Íslandssögunnar. Leikfimikennarinn sem endaði á sjónvarpsskjám milljóna manna um allan heim. Hér fara Magnús og Sölvi yfir ótrúlega atburðarrás Latabæjar, þar sem Magnús var með nánast stanslausa dagskrá frá morgni til kvölds á hverjum einasta degi í áraraðir. Þakklætið yfir því að sjá börn í Suður-Ameríku drekka í sig boðskap Íþróttaálfsins, hvað þ...
#43 Ágústa Johnson með Sölva Tryggva 02.08.2022 1:16:51
Ágústa Johnson er einn stærsti frumkvöðull í heilsurækt á Íslandi. Á unga aldri var hún á leið í nám í arkítektúr þegar hún ákvað að skipta um takt og elta ástríðuna. Eftir að hafa menntað sig í íþróttafræði og viðskiptum stofnaði hún sína fyrstu líkamsræktarstöð, Stúdíó Jónínu og Ágústu og eftir það var ekki aftur snúið. Hún hefur nú um árabil rekið Hreyfingu með góðum árangri. Hér ræða hún og Sö...
#41 Frosti Logason með Sölva Tryggva 01.08.2022 1:28:14
Frosti Logason hefur um árabil verið eins konar akkeri í íslensku útvarpi ásamt félaga sínum Þorkatli Mána Péturssyni. Þeir félagar hafa um árabil haldið úti þættinum Harmageddon, sem er þekktur fyrir að hleypa í loftið fólki með óvinsælar skoðanir og ræða málin tæpitungulaust. Hér ræða Frosti og Sölvi um mikilvægi þess að stoppa ritskoðun í fjölmiðlum, tímabilið þar sem Frosti var lykilmaður í hl...
#37 Jónas Sig með Sölva Tryggva 31.07.2022 2:21:04
Jónas Sigurðsson varð vinsæll sem söngvari í ,,Sólstrandargæjunum", sem slógu í gegn með lagið ,,Rangur Maður" og sló síðan aftur í gegn mörgum árum síðar með lagið ,,Hafið er Svart". Það sem færri vita líklega um Jónas er að hann er afburðamaður í tölvuforritun og vann um árabil fyrir tölvurisann Microsoft. Þar var hann valinn í hóp efnilegasta fólks fyrirtækisins, en áður en það tók á flug var J...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.