Sölvi Tryggvason
Podcast með Sölva Tryggva
Podcast með Sölva er þáttur sem lætur sér ekkert óviðkomandi. Fylgstu með áhugaverðu fólki úr öllum áttum setjast í stólinn hjá Sölva Tryggva.
Author
Sölvi Tryggvason
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 10, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#76 Aron Mola snýr aftur 08.08.2022 1:30:41
Aron Mola mætir aftur til að hafa yfir samsæriskenningar með Sölva. Var allt við 11. september eins og okkur var sagt? Hverjir eru Rothchild? Hvað gerist á Bilderberg fundinum og í Bohemian Grove? Eru valdamiklir aðilar að gera hluti á bak við tjöldin sem aldrei fá að líta dagsljósið? Í þættinum fara Aron og Sölvi yfir allt það helsta í heimi samsæriskenninga. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.s...
#56 Guðmundur Ingi með Sölva Tryggva 08.08.2022 2:08:48
Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikari hefur leikið fjölda hlutverka bæði hér heima og erlendis á farsælum ferli. Nýlega lék Guðmundur lykilhlutverk í tölvuleiknum Assassins Creed Valhalla, sem er á stærðargráðu sem fæstir gera sér grein fyrir. Í þættinum ræða Sölvi Og Gummi um leiklistina, stöðu ungra karlmanna í samfélaginu, fíknisjúkdóma, hvað það er sem einkennir okkur sem þjóð og margt margt flei...
#78 Helga Braga með Sölva Tryggva 08.08.2022 1:21:55
Helga Braga Jónsdóttir hefur um árabil verið einn farsælasti grínisti Íslands. Hún ákvað strax sem ungabarn að ákveða að verða leikkona og það má sannarlega segja að hún hafi látið drauminn rætast. Eftir árin í fóstbræðrum og leikhúsinu vann Helga Braga um árabil sem flugfreyja og hefur ferðast um víða veröld. Í þættinum fara Sölvi og Helga yfir magnaðan feril Helgu, andlega ferðalagið, árin hjá W...
#66 Simmi Vill með Sölva Tryggva 08.08.2022 2:18:52
Sigmar Vilhjálmsson var í áraraðir einn þekktasti sjónvarpsmaður Íslands, bæði á árunum í 70 mínútum og síðar sem aðalkynnir í ,,Idol Stjörnuleit". Síðar stofnaði hann Hamborgarafabrikkuna og hefur á undanförnum árum verið í rekstri ýmissa fyrirtækja. Sigmar notar nú samfélagsmiðla til að fá útrás fyrir þörfina við að gefa út efni og nýtur þar mikilla vinsælda. Í þættinum ræða Sölvi og Sigmar um d...
#65 Veiga Grétarsdóttir með Sölva Tryggva 08.08.2022 1:17:12
Veiga Grétarsdóttir gekk í gegnum gífurlega erfiðleika og feluleik áður en hún ákvað loks að þora að koma út úr skápnum og fara í kynleiðréttingarferli. Fljótlega eftir það tók hún ákvörðun um að fara beinlínis gegn straumnum þegar hún varð fyrst allra til að róa hringinn í kringum Ísland rangsælis. Í þættinum segir Veiga ótrúlega sögu sína, sorgir og sigra og hvernig hún stendur nú uppi hamingjus...
#88 Erna Kristín með Sölva Tryggva 08.08.2022 1:16:12
Erna Kristín Stefánsdóttir er guðfræðingur og samfélagsmiðlastjarna sem hefur vakið mikla athygli fyrir skrif sín um líkamsímynd. Hún hefur undanfarið rætt við mikinn fjölda barna og unglinga og ætlar að halda því áfram. Í þættinum fara Sölvi og Erna yfir sögu Ernu, kosti og galla samfélagsmiðla og margt margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnessspor...
#87 Stelpurnar í Aþenu 08.08.2022 53:57
Mikil umræða hefur skapast um körfuboltaliðið Aþenu og þær þjálfunaraðferðir sem þar eru notaðar. En í allri umræðunni í samfélaginu hefur lítið sem ekkert heyrst frá stelpunum sjálfum. Hér stíga þær fram og segja söguna alla eins og hún blasir við þeim. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Pro...
#80 Kristín Sif snýr aftur 08.08.2022 1:21:23
Kristín Sif Björgvinsdóttir snýr aftur í podcastið. Kristín Sif er afreksíþróttakona og útvarpsmaður og þekkt fyrir að sigrast á alls kyns hindrunum og mótlæti. Í þættinum ræða Kristín og Sölvi um ástríðurnar, jaðarsport, fara yfir lygilega hluti sem mannfólk gerir og margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://...
#75 Rafn Franklín með Sölva Tryggva 08.08.2022 2:02:06
Rafn Franklín Johnson er einkaþjálfari sem hefur kafað dýpra en flestir ofan í allt sem snýr að heilsu. Hann hóf að æfa lyftingar sem unglingur og át þá allt sem að kjafti kom og hugsaði um lítið annað en að verða sterkari. En á ákveðnum punkti áttaði hann sig á því að hann var á leiðinni í óheilbrigða átt og breytti alveg um takt. Rafn gaf nýverið út sýna fyrstu bók: ,,Borðum Betur". Í þættinum r...
#70 Evert Víglunds með Sölva Tryggva 07.08.2022 1:37:32
Evert Víglundsson er stofnandi og eigandi Crossfit Reykjavíkur. Hann hefur í áraraðir unnið við heilsu og hreysti og er leitun að meiri viskubrunni á því sviði. Í þættinum ræða Evert og Sölvi um hvað það er að vera heilbrigður, hvaða skref er hægt að taka ef fólk vill breyta um stefnu, hver eru algengustu mistökin og margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - ww...
#71 Halli Hansen með Sölva Tryggva 07.08.2022 1:50:22
Halli Hansen er magnaður náungi. Hvort sem það er að sitja í fangelsum, vera heimilislaus, ferðast um heiminn án farangurs, eru það allt hlutir sem Halli hefur prófað á eigin skinni. Í þættinum fara Halli og Sölvi yfir reynslu þessa magnaða manns, hvað hann hefur lært á sínu ferðalagi og hvað framtíðin ber í skauti sér. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssp...
#81 Heiðar Logi með Sölva Tryggva 07.08.2022 2:02:37
Heiðar Logi Elíasson er fyrsti atvinnubrimbrettamaður Íslands. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Heiðar Logi upplifað margt og lifað fjölbreyttu lífi. Í þættinum ræða Sölvi og Heiðar um ,,Sörfið", lífsháska, erfiða æsku, sérstaka skólagöngu og margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitnesssport.is Fjarðarkaup / Fræið - https://fjardarkaup.is/fraeid/ Prom...
#64 Annþór með Sölva Tryggva 07.08.2022 1:23:01
Annþór Kristján Karlsson var lengi þekktur fyrir að vera einn alræmdasti glæpamaður Íslands. Hann hefur ekki komist í kast við lögin í talsverðan tíma og segist staðráðinn í að halda sér réttu megin við línuna. Í þættinum gefur Annþór innsýn inn í hugarheim einstaklings sem leiðist á þessa braut og lýsir því hvernig afbrot hans byrjuðu strax í barnæsku. Hann segir margt við glæpaheiminn á Íslandi...
#84 Birgir Hákon með Sölva Tryggva 07.08.2022 56:31
Rapparinn Birgir Hákon vakti mikla athygli þegar hann kom fram á sjónarsviðið með sannar og hispurslausar lýsingar og myndbönd á íslenskum undirheimum og lífsstíl sem fæstir þekkja vel. Eftir að hafa verið djúpt sokkinn í glæpi og neyslu sneri Birgir við blaðinu. Í þættinum ræða Sölvi og Birgir um rappið, glæpaheiminn á Íslandi, nýjan lífsstíl Birgis og margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags...
#62 Geir Ólafs með Sölva Tryggva 07.08.2022 1:03:48
Geir Ólafs kom inn á svið íslenskrar tónlistar svo eftir var tekið. Í fyrstu voru ekki allir sáttir við hann, en með mikilli elju, góðu hugarfari og náungakærleik er í dag erfitt að finna manneskju sem ekki þykir vænt um Geir. Í þættinum ræða Sölvi og Geir um tengingarnar við Kolombíu, söng fyrir Pútín Rússlandsforseta, ofsjónir eftir mikla drykkju og fleira og fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlag...
#69 Steinar Fjeldsted með Sölva Tryggva 07.08.2022 1:24:52
Steinar Fjeldsted er einn af stofnendum hljómsveitarinnar Quarashi, sem náði vinsældum um allan heim. Þegar Steini stofnaði sveitina í kringum tvítugt óraði hann líklega ekki fyrir því sem framundan var. Stórir plötusamningar, ferðalög um allan heim, tónleikahald fyrir tugi þúsunda aftur og aftur. Í þættinum fara Steinar og Sölvi yfir Quarashi ævintýrið, tómleikann sem tók við eftir að því lauk og...
#74 Klara Elías með Sölva Tryggva 07.08.2022 1:14:16
Klara Elías varð vægast sagt þjóðþekkt fyrir tvítugt sem söngkona í hljómsveitinni Nylon. Eftir að hafa verið með líf sitt nánast í raunveruleikaþætti fyrir framan alþjóð fór hljómsveitin í víking og gerði góða hluti í Bretlandi. Eftir það lá leiðin til borg englanna í Los Angeles, þar sem Klara hefur verið síðasta áratuginn. Nú er hún komin heim eftir vægast sagt skrýtið ár í Bandaríkjunum. Í þæt...
#57 Tobba Marínós með Sölva Tryggva 07.08.2022 1:24:58
Þorbjörg Alda Birkis Marínósdóttir, betur þekkt sem Tobba Marínós, kom með hvelli inn á sjónarsvið íslenskra fjölmiðla eftir að hafa menntað sig í fjölmiðlafræði erlendis. Eftir stutt starf í blaðamennsku var henni kippt inn í sjónvarp og síðan þá hefur þessi kjarnakona gert allt milli himins og jarðar. Skrif á bókum, stjórnun í fyrirtækjum, framleiðsla á matvörum og svo auðvitað meira sjónvarp og...
#54 Reynir Trausta með sölva Tryggva 07.08.2022 1:46:01
Reynir Traustason er einn reyndasti blaðamaður Íslandssögunnar. Hann hefur ritstýrt fjölmörgum fjölmiðlum og oft komist í fréttir fyrir að lenda upp á kant við valdhafa. Hér ræða Reynir og Sölvi um sjómennskuna, áratuga feril í fjölmiðlum, hvernig Reynir tók heilsu sína í gegn þegar hann óttaðist um líf sitt og margt fleira. Þátturinn er í boði: Sjónlags - www.sjonlag.is Fitness Sport - www.fitn...
#52 Ragga Ragnars með Sölva Tryggva 07.08.2022 1:29:13
Ragnheiður Ragnarsdóttir var ein öflugasta sundkona Íslands um árabil og fór meðal annars á tvenna Olympíuleika. Fyrir nokkrum árum venti hún kvæði sínu í kross og setti allt sitt í leiklistina. Hún landaði einu af aðalhlutverkunum í sjónvarpsseríunni Vikings sem hefur farið um allan heim. Hér ræða hún og Sölvi um stórmerkilegan feril Röggu í sundinu og leiklistinni, mikilvægi þess að þora að elta...
#68 Jóhann Sigurðarson með Sölva Tryggva 07.08.2022 1:10:46
Jóhann Sigurðarson, stundum kallaður Jói stóri, er einn ástælasti leikari Íslands. Hann byrjaði í leiklist þegar tækifærin voru mun færri en nú og hefur því haldið mörgum boltum á lofti í gegnum tíðina. Rödd hans er líklega ein sú þekktasta á landinu, enda hefur hann lesið inn á ógrynni bóka og sjónvarpsefnis í gegnum tíðina. Í þættinum fara Sölvi og Jói yfir ferilinn, sönginn, sögur úr bransanum...
#63 Beggi Ólafs með Sölva Tryggva 07.08.2022 1:35:45
Sálfræðingurinn Bergsveinn Ólafsson stefndi árum saman að því að verða atvinnumaður í knattspyrnu. Eftir að hafa lagt allt í boltann áttaði hann sig á því að ástríðan var farin og lagði skóna á hilluna og setti alla sína krafta í að læra og miðla meiru í sálfræðinni. Eftir að hafa sökkt sér ofan í ástríðu sína fyrir innihaldsríkara lífi gaf hann nýlega út bókina ,,Tíu skref í átt að innihaldsríkar...
#61 Ólafur Már með Sölva Tryggva 07.08.2022 1:25:39
Ólafur Már Björnsson augnlæknir hefur látið mikið til sín taka í náttúruvernd og hefur vakið athygli fyrir stórbrotnar myndir og myndbönd af íslenskri náttúru. Ólafur var frumkvöðull í laseraðgerðum á augum hér á landi, sem nú þykja nokkuð sjálfsagður hlutur. Í þættinum ræða Ólafur og Sölvi um stöðu heilbrigðiskerfisins á Íslandi, náttúruvernd, ferðalög og mikilvægi þess að finna ástríðu í áhugamá...
#60 Brynjar Níelsson með Sölva Tryggva 07.08.2022 1:33:15
Brynjar Níelsson hefur lengi verið þekktur á vettvangi stjórnmálanna fyrir að þora að viðra óvinsælar skoðanir. Hann hefur gengið lengst íslenskra Alþingismanna í að gagnrýna aðgerðir vegna Covid faraldursins. Í þættinum ræða Sölvi og Brynjar um grundvallaratriði í stjórnmálum, eins og til dæmis hve mikil umsvif ríkisins eigi að vera, mikilvægi þess að kjósendur viti hvar þeir hafi þá sem þeir kjó...
#51 Sigmundur Ernir með Sölva Tryggva 07.08.2022 1:30:44
Sigmundur Ernir Rúnarsson er einn reyndasti sjónvarpsmaður Íslands og hefur verið nær sleitulaust á skjám landsmanna síðan á upphafsárum Stöðvar 2. Hann hefur með árunum lært að njóta þess betur að lifa í núinu og taka allar lífsins gjafir inn að hjartarótum. Í þættinum segir Sigmundur frá eftirminnilegustu viðmælendunum, ferðum í aðrar heimsálfur, lífshættulegum flugferðum með Ómari Ragnarssyni o...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.