visir

Pallborðið

Society EN ↓ 48 episodes

Viðtalsþáttur á Vísi þar sem kafað er í mál í brennidepli.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: visir.podbean.com

Author

visir

Category

Society

Podcast website

visir.podbean.com

Latest episode

Mar 20, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Kappræður Helgu Þóris og Eiríks Inga 30.04.2024

Eiríkur Ingi Jóhannsson og Helga Þórisdóttir voru gestir Hólmfríðar Gísladóttur í Pallborðinu. Þau bjóða sig fram til forseta Íslands.

Kappræður Arnars Þórs, Ásdísar Ránar og Ástþórs 26.04.2024

Forsetaframbjóðendurnir Arnar Þór Jónsson, Ásdís Rán Gunnarsdóttir og Ástþór Magnússon mættust í Pallborðinu á Vísi í umsjón Hólmfríðar Gísladóttur.

Kappræður Höllu, Katrínar og Steinunnar Ólínu 23.04.2024

Halla Tómasdóttir, Katrín Jakobsdóttir og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir forsetaframbjóðendur voru gestir Hólmfríðar Gísladóttur í Pallborðinu.

Baldur Þórhalls, Jón Gnarr og Halla Hrund 19.04.2024

Baldur Þórhallsson, Halla Hrund Logadóttir og Jón Gnarr voru gestir Hólmfríðar Gísladóttur í Pallborðinu á Vísi.

For­­tíðar­draugar og fram­­tíðar­á­skoranir nýrrar ríkis­stjórnar 10.04.2024

Nýjustu vendingar í pólitíkinni voru til umræðu í Pallborðinu í dag. Gestir Pallborðsins voru Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, og Teitur Björn Einarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Konung­legt klúður og forsetafabúleringar 14.03.2024

Fólk út um allan heim veltir því nú fyrir sér hvað hefur drifið á daga Katrínar prinsessu af Wales og á litla Íslandi virðast menn bíða eftir því að nafna hennar Jakobsdóttir stígi undan feldi og tilkynni af eða á um forsetaframboð. Anna Lilja Þórisdóttir, blaðamaður og royalisti, Einar Bárðarsson, plöggari og plokkari, og Stefanía Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar og fyrrvera...

Útlendingamálin í brenni­depli 08.02.2024

Útlendingamálin og staðan sem upp er komin varðandi einstaklinga sem fastir eru á Gasa voru til umræðu í Pallborðinu. Gestir þáttar voru Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, og Nína Helgadóttir, teymisstjóri í málefnum flóttafólks hjá Rauða krossinum.

Veður­stofan gagnrýnd fyrir að deila ekki gögnum 31.01.2024

Veðurstofa Íslands safnar gríðarlegu magni gagna um veðurfar, jarðhræringar, vatnafar og loftslag, svo eitthvað sé nefnt. Sérfræðingar segja stofnunina hins vegar trega til að deila umræddum gögnum. Fjallað er um málið í Pallborðinu en gestir þáttar eru Haraldur Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, Dr. Ólafur Rögnvaldsson, stofnandi og eigandi Belgings, og Ingvar Kristinsson, framkvæmdastjóri...

Deilan um þátt­töku Ís­lands í Euro­vision harðnar 26.01.2024

Á Ísland að sniðganga Eurovision? Kiknar RÚV undan þrýstingi og hættir við þátttöku? Breytist allt með þátttöku Palestínumanns í Söngvakeppninni? Stefán Eiríksson útvarpsstjóri, Margrét Kristín Blöndal, tónlistarkona og aðgerðasinni, og Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur voru gestir Kristínar Ólafsdóttur í Pallborðinu á Vísi þar sem þátttaka Íslands í Eurovision var til umræðu. 

Hvað heldur stjórnar­flokkunum saman? 24.01.2024

Stjórnarþingmennirnir Diljá Mist Einarsdóttir Sjálfstæðisflokki, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Vinstri grænum og Stefán Vagn Stefánsson Framsóknarflokki ræddu stöðuna á stjórnarheimilinu við Heimi Má Pétursson í Pallborðinu á Vísi.   

EM-pallborðið: Hitað upp fyrir milliriðilinn 18.01.2024

Stefán Árni Pálsson fékk Bjarna Fritzson, þjálfara ÍR og fyrrverandi landsliðsmann, og Einar Jónsson, þjálfara Fram, til að spá í spilin og gera upp frammistöðu íslenska liðsins á mótinu til þessa í EM útgáfu af Pallborðinu. 

Hvað er stjórnar­and­staðan að hugsa? 17.01.2024

Leiðtogar stjórnarandstöðuflokkanna mættu til Heimis Más Péturssonar fréttamanns í Pallborðið á Vísi í dag, til að ræða stöðuna í pólitíkinni.

EM-pallborðið: Allt undir í fyrsta leik 12.01.2024

Ísland mætir Serbíu í fyrsta leik á Evrópumótinu í handbolta. Liðið leikur einnig með Svartfellingum og Ungverjum í riðli. Einar Jónsson, þjálfari Fram, og Bjarni Fritzson, þjálfari ÍR, og fyrrum landsliðsmaður verða gestir Stefáns Árna Pálssonar í Pallborðinu. Þar verður hitað upp fyrir mótið, rætt við íþróttafréttamenn Stöðvar 2 og Vísis sem staddir eru í Munchen í Þýskalandi.

Hvað felst í þjóðar­sátt og fyrir hverja er hún? 10.01.2024

Hólmfríður Gísladóttir stýrir Pallborðinu þar sem Kjaraviðræður, kjarasamningar og möguleg þjóðarsátt voru til umfjöllunar. Gestir þáttarins voru Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, og Helgi Pétursson, formaður Landssambands eldri borgara.

Hver tekur við af Agnesi? 05.01.2024

Hólmfríður Gísladóttir stýrir Pallborðinu þar sem Pétur Markan biskupsritari, séra Jóna Hrönn Bolladóttir og séra Örn Bárður Jónsson eru gestir. Fjallað er um biskupskjör og stöðu þjóðkirkjunnar.

PISA könnun og mennta­málin - seinni hluti 07.12.2023

Fyrrverandi menntamálaráðherrar ræða hvað sé hægt að gera vegna niðurstöðu PISA kannannar. Lilja Alfreðsdóttir, núverandi menningar-og viðskiptaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar og Illugi Gunnarsson ræða um þróunina, rýna í vandann og um leiðir til að snúa þróuninni við.

PISA könnun og mennta­málin - fyrri hluti 07.12.2023

Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, Sigríður Ólafsdóttir, dósent við menntavísindasvið HÍ og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, deildarforseti við Háskólann á Bifröst ræddu menntamál og PISA könnunina.

Átta vikur þar til kjarasamningar renna út 05.12.2023

Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóra SA og Finnbjörn A. Hermannsson forseti ASÍ mættust í Pallborði Vísis og fóru yfir komandi samnininga.

Er verið að ofgreina ADHD? 28.11.2023

Gestir Pallborðsins verða Karl Reynir Einarsson, formaður Geðlæknafélags Íslands, Pétur Maack, formaður Sálfræðingafélags Íslands, og Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD samtakanna.

Kristín og Freysteinn ræða náttúruhamfarir í Grindavík 14.11.2023

Tveir af færustu jarðvísindamönnum þjóðarinnar ræða um atburðina á Reykjanesskaga, þau Freysteinn Sigmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, og Kristín Jónsdóttir, eldfjalla- og jarðskjálftafræðingur, og yfirmaður náttúruvár á Veðurstofunni. Þáttastjórnandi var Kristján Már Unnarsson.

Íþróttir barna 01.11.2023

Æstir foreldrar á hliðarlínunni, meiðsli barna, ofþjálfun og andleg heilsa barna í íþróttum eru á meðal þess sem rætt var um í Pallborðinu í beinni útsendingu á Vísi. Gestir þáttarins voru þau Sif Atladóttir fyrrverandi knattspyrnukona og verkefnastjóri Leikmannasamtaka Íslands, Jón Gunnlaugur Viggósson fyrrverandi handknattleiksmaður, íþróttastjóri, unglingalandsliðsþjálfari og yfirþjálfari hæfil...

Átök Ísraelsmanna og Hamas 10.10.2023

Stefán Pálsson, varaborgarfulltrúi og fyrrverandi formaður Samtaka herstöðvarandstæðinga, og Stefán Einar Stefánsson, siðfræðingur og fjölmiðlamaður, ræddu um átökin á milli Ísraelsmanna og Hamas.

Rýnt í af­sögn Bjarna og fram­haldið 10.10.2023

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og ráðherra, Hildur Sverrisdóttir, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, og Ólafur G. Harðarsson stjórnmálafræðingur voru gestir Pallborðsins á Vísi. Til umræðu voru stórtíðindi dagsins; afsögn Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra.

Listen to the Pallborðið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.