fr

visir

Pallborðið

Viðtalsþáttur á Vísi þar sem kafað er í mál í brennidepli.

N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : visir.podbean.com

Auteur

visir

Catégorie

Society

Site du podcast

visir.podbean.com

Dernier épisode

24 sept. 2026

Où écouter ?

Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponible

Les podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts

Télécharger sur Google Play Installe-la gratuitement Android près de 10 M de téléchargements · note de 4,8 iOS bientôt

Épisodes

Klukkan tifar og staðan sögð við­kvæm 24.09.2026

Kjaramál voru til umræðu í Pallborðinu á Vísi. Frestur til að segja upp kjarasamningum vegna forsendubrests rennur út eftir sléttar tvær vikur, eða þann 8. október. Staðan er sögð viðkvæm og kröfur aðila ólíkar. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR mættust í Pallborðinu.

Línurnar lagðar fyrir spennandi þing 03.09.2026

Gera má ráð fyrir að þingveturinn hefjist með hvelli enda nóg um að vera í samfélaginu. Verðbólga hefur ekki verið meiri í tvö ár, forsendur kjarasamninga eru brostnar og enn er óvíst hvernig fer með umsókn Íslands að Evrópusambandinu eftir að þjóðin hafnaði aðildarviðræðum.  Við snertum á þessum málum og mörgum öðrum í beinni útsendingu í Pallborðinu á Vísi.

Satt, logið og um­deildar aug­lýsingar 27.08.2026

Farið verður yfir samsæriskenningar og fleiri fullyrðingar sem tæplega standast skoðun í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardag í fjórða og síðasta Pallborði Vísis fyrir kosningar. Auk þess verður kosningabaráttan hingað til gerð upp af álitsgjöfum. Stjórnmálafræðingarnir og þáttastjórnendur Skuggavaldsins þau Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir mæta í fyrri hluta þáttarins og ræða upp...

Hasar í umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna 26.08.2026

Þriðja Pallborð fréttastofu Vísis að viðræðum fór fram í dag en þar mættu þau Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Jónas Hagan Guðmundsson, fjárfestir og einn stofnenda Já til að sjá sem fulltrúar Já-ara en Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins og Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris Creations, áður CCP, mættu fyrir hönd Nei-ara.

Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? 20.08.2026

Evrópumálin eru enn í brennidepli í Pallborðinu. Í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að því hvað innganga í Evrópusambandið myndi þýða fyrir ungt fólk á Íslandi. Hvort ætti ungt fólk að kjósa já eða nei? Gestir eru Jóhannes Óli, María Malmquist, Magnea Gná og Steinar Ingi.

Já-arar og nei-arar í Pallborði 20.08.2026

Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar, og Gréta María Grétarsdóttir, stjórnarkona í Já til að sjá mættu þeim Ernu Bjarnadóttur, stjórnarkonu í Heimsýn, og Júlíusi Viggó Ólafssyni frá Áfram Ísland í pallborðsumræður um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið.

Evrópusambandið: Nei eða já? 23.07.2026

Rætt var um þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Gestir Hólmfríðar Gísladóttur í Pallborðinu voru Hjörtur J. Guðmundsson alþjóðastjórnmálafræðingur, Gréta María Grétarsdóttir verkfræðingur, Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður og Gauti B. Eggertsson prófessor í hagfræði.

Ofbeldisalda hjá ungmennum 20.03.2025

Gestir Bjarka Sigurðssonar í Pallborðinu eru þau Hermann Austmar, faðir í Breiðholti, Heimir Ríkarðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, Elísa Ingólfsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur og Helga Þórðardóttir, formaður skóla- og frístundasviðs borgarinnar.

Um­ferðar­öryggi og 200 milljarða viðhaldsskuld 13.03.2025

Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu, Ólafur Guðmundsson umferðaröryggissérfræðingur, Guðmundur Valur Guðmundsson framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar og Þorgrímur Sigmundsson þingmaður Miðflokksins í Norðausturkjördæmi voru gestir Hallgerðar Kolbrúnar E. Jónsdóttur í Pallborðinu.

Hvar stendur Ís­land gagn­vart Trump, tollastríði og breyttri heims­mynd? 06.03.2025

Pawel Bartoszek, Friðjón Friðjónsson, Stefán Pálsson og Sigríður Á. Andersen voru gestir Elínar Margrétar Böðvarsdóttur fréttamanns í Pallborðinu á Vísi. 

Brýnustu verkefnin í borginni 27.02.2025

Berghildur Erla fékk til sín oddvita í Reykjavík til að ræða brýnustu verkefnin í borginni sem framundan eru. Gestir voru Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri og oddviti Framsóknar, Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, Helga Þórðardóttir, oddviti Flokks fólksins og Líf Magneudóttir oddviti Vinstri grænna.

Áslaug Arna og Guðrún í Pallborðinu 24.02.2025

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Guðrún Hafsteinsdóttir, frambjóðendur til formanns Sjálfstæðisflokksins, mættu í Pallborðið til Vésteins Arnar Péturssonar.

Fjórir berjast um for­manns­sætið í VR 18.02.2025

Bjarni Þór Sigurðsson, stjórnarmaður í VR, Flosi Eiríksson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands og núverandi ráðgjafi hjá Aton, Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, og Þorsteinn Skúli Sveinsson, sérfræðingur á mannauðs- og stefnusviði BYKO voru gestir Hólmfríðar Gísladóttur í Pallborðinu þar sem formannskjör VR voru til umræðu.

Kjara­deila grunn­skóla- og leik­skóla­kennara 05.02.2025

Þau Ragnheiður Stephensen grunnskólakennari í Garðaskóla í Garðabæ, Kristófer Már Maronsson í málsóknarfélagi barna og formaður fræðslunefndar í Skagafirði og Jón Pétur Zimsen fyrrverandi kennari og skólastjóri og þingmaður Sjálfstæðisflokksins voru gestir Berghildar Erlu í Pallborðinu á Vísi.

Handboltaæði runnið á þjóðina 22.01.2025

Stefán Árni Pálsson hitar upp fyrir leik Íslands og Egyptalands og keppni í milliriðlum á heimsmeistaramótinu í handbolta karla ásamt þeim Ásgeiri Erni Hallgrímssyni og Bjarna Fritzsyni í Pallborðinu.

Sér­fræðingar rýna í stöðuna á loka­sprettinum 25.11.2024

Margrét Helga Erlingsdóttir, fréttamaður, fær til sín þau Þóru Ásgeirsdóttur, framkvæmdastjóra Maskínu, Eirík Bergmann, stjórmálafræðiprófessor við Bifröst, Huldu Þórisdóttur, prófessor í stjórnmálasálfræði við HÍ og Brynjólf Gauta Guðrúnar Jónsson, doktorsnema við Hí til að rýna í stöðuna á lokasprettinum.

Rýnt í hæðir og lægðir baráttunnar 18.11.2024

Hlaðvarpsstjórnendur sem halda úti umfjöllun um kosningarnar mættu í myndver til þess að fara yfir stöðuna. Þórhallur Gunnarsson úr Bakherberginu, Kristín Gunnarsdóttir úr hlaðvarpinu Komið gott, Gísli Freyr Valdórsson hjá Þjóðmálum og Þórarinn Hjartarson sem heldur úti Einni Pælingu.

Hvalveiðafár og skóla- og heil­brigðis­mál 13.11.2024

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Gunnar Smári Egilsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Sigmar Guðmundsson voru gestir Pallborðsins í dag. Til umræðu voru meðal annars nýjustu vendingar í skoðanakönnunum og pólitíkinni og skóla- og heilbrigðismál, svo eitthvað sé nefnt. Pallborðinu stýrði Hólmfríður Gísladóttir fréttamaður.

Hvaða lausnir bjóða flokkarnir? 11.11.2024

Í þetta skiptið tekur Berghildur Erla á móti Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra og oddvita Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, Ölmu Möller landlækni í leyfi sem leiðir lista Samfylkingar í Kraganum, Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur þingmanni sem fer fyrir lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður og Bergþóri Ólasyni, þingmanni og oddvita Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi. 

For­menn Fram­sóknar, Flokks fólksins og Sam­fylkingar ræða málin 06.11.2024

Nú er röðin komin að formönnum síðustu þriggja flokkanna sem bjóða fram í öllum kjördæmum í komandi alþingiskosningum. Þetta eru Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar og Inga Sæland formaður Flokks fólksins sem mættu í settið til Elínar Margrétar Böðvarsdóttur fréttamanns.

Sjónum beint til vinstri 04.11.2024

Margrét Helga Erlingsdóttir fékk til sín þær Svandísi Svavarsdóttur, formann Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, leiðtoga Sósíalistaflokks Íslands á sviði Alþingis og Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, þingflokksformann Pírata.

For­menn flokka sem bítast um fylgi frá hægri 30.10.2024

Elín Margrét Böðvarsdóttir fékk til sín formenn flokka á hægri væng stjórnmálanna, flokka sem eru líkir um sumt en ólíkir um annað og teygja sig mislangt til hægri frá miðjunni. Þetta eru þau Bjarni Benediksson, formaður Sjálfstæðisflokksins, Arnar Þór Jónsson, formaður hins nýstofnaða Lýðræðisflokks, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður...

Grímur, Halla Hrund, Jens Garðar og Víðir mætast 28.10.2024

Berghildur Erla fær til sín Grím Grímsson yfirlögregluþjón sem er í 3. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, Jens Garðar Helgason, aðstoðarforstjóra Kaldvíkur sem leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, Víðir Reynisson, sviðsstjóra almannavarna, sem er oddviti Suðurkjördæmis fyrir Samfylkingu og Höllu Hrund Logadóttur fráfarandi orkumálastjóra og forsetaframbjóðanda...

Nýliðar í landsmálapólitík mætast 24.10.2024

Elín Margrét Böðvarsdóttir fékk til sín þau Snorra Másson, fjölmiðlamann og oddvitaefni Miðflokksins, Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar sem sækist eftir 3. sæti Sósíalistaflokksins, Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR og oddvitaefni Flokks fólksins og Ólaf Adolfsson, lyfsala og oddvitaefni Sjálfstæðisflokksins.

Kanónur kveðja og rýna í stöðuna 22.10.2024

Margrét Helga Erlingsdóttir fréttamaður fékk til sín þau Steinunni Þóru Árnadóttur, þingmann Vinstri grænna, Oddnýju Harðardóttur, þingmann Samfylkingarinnar, Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, þingmann Pírata og Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmann Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi aðstoðarmann dómsmálaráðherra.

Écoute le podcast Pallborðið sur Replaio

La radio et les podcasts dans une seule appli - gratuite, sans inscription. Installe-la dès aujourd'hui et ne rate pas le lancement

Télécharger sur Google Play

Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics