Hrafndis M
Örlítið í ólagi
Lífið er allskonar, eins og þetta podcast. Hér spyrjum við spurninganna sem enginn bað um svör við, förum djúpt í hlutina og pælum örlítið of mikið í öllu - með húmor, speki og smá tilvistarkreppu á kantinum.
Author
Hrafndis M
Category
Podcast website
Latest episode
Feb 12, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#20 Fyrirmynd – hver er hún í raun? 12.02.2026 26:12
Ég hef aldrei fundið manneskju sem var 100% mín fyrirmynd. Og kannski var vandamálið að ég hélt að fyrirmynd ætti að vera fullkomin. Ég hélt hún ætti að vera stöðug, örugg, rétt, „rétt gerð“. En lífið virkar ekki þannig. Í þessum þætti tala ég um: – Af hverju 30% af manneskju getur verið nóg – Af hverju fólk sem særði mig kenndi mér jafn mikið og þeir sem studdu mig – Af hverju börnin mín eru stun...
#19 Emotions vs. Feelings – er munur og hver er hann? 29.09.2025 1:20:52
Emotions vs. Feelings – er munur og hver er hann? Við segjum oft: „Ég er svo stressuð“ eða „ég er með kvíða“ – en vitum við raunverulega hvað við erum að finna? Í þessum þætti skoðum við hvort það sé munur á emotions og feelings – og hver hann er. Við förum í heimsókn til möndulsins (amygdala), gamla öryggisvarðarins í heilanum sem ýtir á neyðarhnappinn jafnvel þegar við erum ekki í neinni hættu....
#18 Imposter Syndrome – Hvað er það? 16.08.2025 43:30
Hefurðu einhvern tímann hugsað að þú sért bara heppin, að þú eigir í raun ekki skilið hrós eða að aðrir muni bráðum komast að því að þú veist minna en þau halda að þú gerir? Þá ert þú ekki ein/n. Því í þessum þætti ætlum við ræða imposter syndrome – hvað það er, af hverju við upplifum það, hvernig það mögulega tengist ADHD og AuDHD, og hvaða verkfæri við getum notað til að breyta þessari innri sög...
#17 Hvers vegna líður mér svona? – Fæðingarþunglyndi og skömm 29.07.2025 1:19:05
Meðgöngu- og fæðingarþunglyndi snerta um 1 af hverjum 7 mæðrum á Íslandi – en samt er þögnin oft háværari en hjálpin. Í þessum þætti skoðum við bæði klínískar og tilfinningalegar hliðar: áhættuþætti, einkenni, úrræði og meðferð – en líka mannlegu sögurnar, skömmina, afneitunina og vonina. Ég opna mig um mína eigin reynslu af fæðingarþunglyndi og deili því sem hjálpaði mér að stíga upp úr þessu erf...
#16 „Fokk it“ er stundum það besta sem við getum sagt við okkur sjálf. 19.07.2025 54:58
Þátturinn í dag er tileinkaður öllum þeim stundum þar sem við erum alveg að bugast, alveg að missa þolinmæðina, alveg að missa vitið eða skíthrædd – og segjum: Fokk it - Ég geri þetta bara. Ég deili mínum eigin "fuck it" mómentum, þar sem ég ákvað að fara í átt sem var óviss, hræðileg og og stundum bráð nauðsynleg – og hvað gerist þegar við hættum að bíða eftir leyfi og förum að lifa lífinu á eigi...
#15 Það sem pirrar mig við þig – og af hverju það snýst um mig í raun 20.06.2025 53:33
Í þessum þætti langar mig að fara betur í það hvernig sambönd – hvort sem það eru ástarsambönd, vinátta eða fjölskyldutengsl – spegla oft dýpstu sárin og falin svæði innra með okkur. Við skoðum hvað það þýðir þegar eitthvað „pirrar“ okkur í öðrum, hvernig við bregðumst við með varnarháttum eða „projectum“ eigin óöryggi – og hvers vegna sambönd eru kannski besti vettvangurinn fyrir skuggavinnu. Það...
#14 Það sem þú forðast, heldur áfram að stjórna þér – Shadow work 13.06.2025 51:05
Hvað ef það sem þú ert að fela, bæla og forðast – er lykillinn að frelsi? Í þessum þætti kafað ég inn í „shadow work“, eða skuggavinnu – sjálfsvinnu sem gengur út á að skoða og samþykkja þá parta af okkur sem við höfum lært að skammast okkar fyrir eða bæla niður. Ég útskýri hvað skugginn er samkvæmt hugmyndum Carl Jung, hvernig hann birtist í daglegu lífi og hvers vegna við speglum oft okkar eigin...
#13 Sumar, spjall og smá hjátrú 23.05.2025 44:54
Í þessum létta og sumarlega þætti spjöllum við vinkonurnar Hrafndís og Linda um allt og ekkert – sólardagana, sumarið, framtíðar drauma, smá hjátrú og allt það sem brennur á okkur í augnablikinu. Það er hlátur, hlýja og örlítið rugl – akkúrat það sem sólin pantaði 🌼✨
#12 ,,Ertu viss um að þú sért að muna þetta rétt?" - Hvernig birtingarmynd gaslýsingar í nánum samböndum getur verið 15.05.2025 1:26:35
Í þessum þætti ræðum við gaslýsingu - hvað hún er, hvernig hún birtist og hvers vegna hún getur verið svona ruglingsleg. Við förum yfir dæmi bæði úr rómantískum samböndum og vináttu, og deilum okkar eigin reynslu af því að efast um eigið minni, skynjun og sjálfstraust. Ef þú hefur einhvern tímann hugsað ,,Var þetta svona?" eða ,,Er ég bara að ímynda mér þetta?" - þá er þessi þáttur fyrir þig.
#11 Að loka dyrunum – við eigin foreldra 05.05.2025 1:03:34
Í þessum þætti tala ég um það að loka á foreldra – að fara no contact. Þetta er ekki létt ákvörðun. Hún kemur ekki án djúprar togstreitu, sorgar og sjálfskoðunar. Ég opna mig hér í dag og berskjalda, ég segi frá minni eigin reynslu: hvernig andlegt, fínt og ósýnilegt ofbeldi mótaði sjálfsmynd mína – og af hverju ég varð að velja sjálfa mig, jafnvel þótt það þýddi að slíta tengslin sem ættu að vera...
#10 Ákvörðunarþreyta: Þegar heilinn segir bara ,,ég veit ekki, jájájájá...error" 30.04.2025 53:04
Hvað gerist þegar þú þarft að ákveða allt – og ert kannski líka með ADHD-heila sem þolir illa þrýsting, valmöguleika og endalaus „mamma/má ég?“ köll? Í þessum þætti ræðum við ákvörðunarþreytu (Decision fatigue) : hvað hún er, af hverju hún virkar svona harkalega á fólk með ADHD – sérstaklega í foreldrahlutverkinu – og hvernig við getum dregið úr henni með húmor, rútínum og virðingu fyrir eigin mör...
#9 Tvær eins, en samt ekki - Samtal mæðgna um ódæmigerða einhverfu, sjálfsvitund og tengsl 17.04.2025 1:14:00
„Tvær kynslóðir. Einn heill heimur af öðruvísi upplifun.“ Í nýjasta þætti í Örlítið í ólagi talar Hrafndís og Alex Eva dóttir hennar um hvernig það er að vera móðir og dóttir – og báðar með ódæmigerða einhverfu. Við förum yfir hvernig einhverfa birtist með ólíkum hætti eftir aldri, kyni og aðstæðum. Hvernig við lærðum að sjá styrkleika þar sem áður voru „vandamál“. Hvernig það er að maskera sig í...
#8 Þegar tunglið dregur til tíðinda-PMMD og árstíðir líkamans 11.04.2025 1:00:02
Í þessum þætti höldum við áfram ferðalaginu inn í innra landslag kvenna. Við skoðum PMMD – alvarlega, en oft vangreinda hormónatengda röskun sem getur haft djúp áhrif á andlega heilsu, tengsl og sjálfsmynd. En við stoppum ekki þar. Við tengjum punktana milli líkama okkar og náttúrunnar – hvernig tíðahringurinn speglar árstíðirnar, fasa tunglsins, og hvernig við getum lært að mæta okkur sjálfum með...
#7 Tíðahringurinn, tilfinningarnar og ruglið: PMDD og við sem missum vitið mánaðarlega 08.04.2025 1:01:11
Í þessum þætti tölum við um það sem oft er hunsað, ruglað saman við „bara PMS“ og læðist aftan að mörgum án þess að fá nafn: PMDD. Við förum yfir hvernig tíðahringurinn hefur áhrif á andlega heilsu, sjálfsmynd og daglegt líf – og hvernig það er ekki ímyndun, væl eða eitthvað sem á að ,,þola bara”. Þetta er þáttur fyrir konur, fyrir þá sem elska konur, og fyrir alla sem vilja skilja betur hvað í ós...
#6 Ofurnæmni fyrir höfnun: Rejection Sensitive Dysphoria (RSD) 04.04.2025 1:02:43
Í þessum þætti skoðum við Rejection Sensitive Dysphoria – hvernig höfnun og gagnrýni getur haft djúp áhrif á sjálfsmynd, líkama og líðan. Við tölum um hvernig RSD tengist ADHD, hver líkamlegu viðbrögðin geta verið, og hvernig hægt er að byggja upp bjargráð og þrautseigju gagnvart þessum ósýnilegu en raunverulegu sársauka. Ef þú hefur einhvern tíma tekið hluti „of nærri þér“ – þá gæti þessi þáttur...
#5 PTSD, C-PTSD og EMDR: Þegar hugurinn geymir það sem líkaminn man 02.04.2025 51:57
Í þessum þætti ræðum við áfallavinnu, EMDR-meðferð og hvernig áföll geta laumað sér inn í daglegt líf án þess að við áttum okkur á því. Við veltum fyrir okkur muninum á PTSD og C-PTSD, af hverju ,,aðeins stress" getur verið eitthvað allt annað, og hvers vegna maður getur fundið fyrir skömm þó maður hafi gert sitt besta. Þetta er einlæg og örlítið óþægilega heiðarleg umræða - en líka full af hlýju,...
#4 Þegar dótið ræður: Söfnunarárátta, óreiða og skömmin sem fylgir 28.03.2025 44:54
Átt þú líka erfitt með að losa þig við hluti? Tengir þú við hluti á ótrúlegan hátt og finnur jafnvel fyrir skömm þegar heimilið fyllist af dóti? Í þessum þætti köfum við ofan í söfnunaráráttu, óreiðu og tilfinningarnar sem fylgja því að eiga of mikið af hlutum. Af hverju er svona erfitt að sleppa takinu, og hvað getur maður gert til að ná betri stjórn? Þetta og fleira í Örlítið í ólagi.
#3 Kvíði og láta hann ekki stjórna sér ásamt hugleiðingum lífsins (María Rún Baldurs) 26.03.2025 1:29:48
Í þættinum í dag fáum við að kynnast Maríu Rún, ræðum við hana um lífið og tilveruna. Hvernig er að vera með kvíða en leyfa honum ekki stjórna sér, mikilvægi öndunar og hugleiðslu.
#2 Ástartungumálin 5 21.03.2025 1:19:47
Velkomin í 2.þátt af ,,Örlítið í ólagi", hlaðvarpið þar sem ,,chaos" er okkar strúktúr og allir fá að vera eins og þeir eru. Í þessum þætti fáum við að kynnast Lindu Sæberg örlítið, heyrum að Hrafndís heldur rosalega mikið upp á orðið ,,já" og förum létt yfir ástartungumálin 5 og hvað þau þýða. Dýfum tánum rétt aðeins í hvað er kink og hvernig er hægt að tengja þau við ástartungumálið okkar. Uppru...
#1 Kynningarþáttur 19.03.2025 1:02:36
Velkomin í mest ´chaos´ fyrsta þátt í nýja podcastinu ,,Örlítið í ólagi." Lífið er óskipulagt... eins og þetta podcast, þar sem uppáhaldsorðin mín eru ,,uummm, ooooogggg, já & podcast!" Hér spyrjum við spurninganna sem enginn bað um svör við, förum djúpt í hlutina og pælum örlítið of mikið í öllu - með húmor, speki og smá tilvistarkreppu á kantinum. Þetta er algerlega, ótrúlega, stórkostlega ú...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.