RÚV Hlaðvörp

Ólympíusögur

Sports IS ↓ 9 episodes

Í þáttunum eru nokkrar af hetjum og skúrkum Ólympíusögunnar til umfjöllunar. Gullverðlaunahafinn sem hvílir á Íslandi, Ólympíufarinn sem er eini Íslendingurinn til að vera dæmdur fyrir kynvillu, hlauparinn sem laug til um æsku sína, hetjan sem varð að skúrki fyrir lyfjamisnotkun eru meðal þeirra sagna sem eru sagðar í Ólympíusögum. Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: feeds.acast.com

Author

RÚV Hlaðvörp

Category

Sports

Podcast website

feeds.acast.com

Latest episode

Jul 26, 2024

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 10M+ downloads · 4.7+ rating iOS soon

Episodes

Þetta er ekkert fyrir konur 26.07.2024

Ólympíuleikarnir í París eru strax orðnir sögulegir. Þeir verða nefnilega þeir fyrstu þar sem hlutfall karla og kvenna verður jafnt. Að auki leggur Alþjóða Ólympíunefndin ríka áherslu á það að hafa sem jafnast hlutfall á hverjum degi leikanna þegar kemur að verðlaunagreinum karla og kvenna. En þó svo að þessi mikilvægu skref hafi verið tekin í jafnréttisbaráttunni hefur hún verið löng og ströng. H...

Réttindabaráttan á verðlaunapallinum 24.07.2024

Alþjóða Ólympíunefndin líður ekki neinn pólitískan áróður eða nokkurs konar mótmæli hjá íþróttafólki á Ólympíuleikum. Einhver frægasta íþróttaljósmynd allra tíma er þó frá Ólympíuleikum og rammpólitísk. Þar steyta bandarísku hlaupararnir Tommie Smith og John Carlos hnefum á verðlaunapalli eftir 200 metra hlaupið í Mexíkóborg árið 1968,íklæddir svörtum hönskum, skólausir, með merki mannréttindahrey...

Stjarnan sem varð að skúrki 23.07.2024

Allt íþróttafólk dreymir um að vinna til verðlauna. Það íþróttafólk sem kemst inn á Ólympíuleika er yfirleitt til í að gera næstum allt til að vinna gullið og standa í efsta þrepi á verðlaunapallinum á fullum leikvangi, með hundruð milljónir sjónvarpsáhorfenda að fylgjast með. En hversu langt er sumt íþróttafólk tilbúið að ganga til að komast í sögubækurnar? Í þessum þætti segir frá falli bandarís...

Frá áhugamennsku til atvinnumennsku 22.07.2024

Á Ólympíuleikunum í sumar er nær allt íþróttafólkið sem þar keppir atvinnumenn. Það er hins vegar algjörlega á skjön við upphaflegu hugsjón fyrstu nútíma Ólympíuleikanna árið 1896 og fyrstu áratuganna á eftir. Atvinnumennska, var beinlínis bönnuð. Hvernig þróuðust Ólympíuleikarnir úr þessari áhugamennsku yfir í atvinnumennskuna og hversu hart var tekið á atvinnumönnum hér á árum áður? Hosted on Ac...

Glæpurinn gegn náttúrulegu eðli 19.07.2024

Guðmundur Sigurjónsson Hofdal kom við sögu á þrennum Ólympíuleikum á 40 ára tímabili. Hann var meðal annars í hópi fyrstu íslensku Ólympíufaranna, var mikill frumkvöðull í íslenskri íþróttahreyfingu og vann þar gott starf. En saga Guðmundar er líka sorgarsaga, því hann er eini maðurinn sem dæmdur hefur verið til fangelsisvistar á Íslandi fyrir samkynhneigð mök. Í þessum þætti er saga Guðmundar glí...

Lygasaga Mo Farah 17.07.2024

Hann var ein allra skærasta stjarnan í heimi frjálsíþróttanna og einn vinsælasti íþróttamaður Bretlands. Fólk hafði líka samúð með ótrúlegri baksögu hans, en árið 2022 kom hins vegar í ljós að hún var haugalygi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Brúarsmiðurinn milli austurs og vesturs 16.07.2024

Íþróttafólk getur svo sannarlega haft áhrif á heiminn með frammistöðu sinni, afrekum og framkomu. Fáir íþróttamenn hafa þó haft jafn mikil áhrif og sovéska fimleikakonan Olga Korbut með þátttöku sinni á Ólympíuleikunum í München 1972. Korbut hefur verið nefnd sem brúarsmiður milli austurs og vesturs En í hverju fólust áhrif hennar? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Ólympíumeistari í íslenskri moldu 15.07.2024

Íslendingar hafa unnið bæði til silfur- og bronsverðlauna á Ólympíuleikum, en aldrei gullverðlaun. Samt hvílir einn Ólympíumeistari í íslenskri moldu, og það raunar sögulegur íþróttamaður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Stikla: Ólympíusögur í sumar 28.06.2024

Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson rifjar upp ótrúlegar sögur af íþróttafólki í aðdraganda Ólympíuleikanna í París. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Listen to the Ólympíusögur podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.