Elísabet

Morgunbollinn með Elísabetu Gunnars

Arts EN ↓ 36 episodes

Morgunbollinn er besti og mikilvægasti bolli dagsins, hlakka til að deila honum með ykkur.

Author

Elísabet

Category

Arts

Podcast website

www.buzzsprout.com

Latest episode

Dec 22, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

35 // Birgitta Haukdal 22.12.2025

Birgittu Haukdal þarf vart að kynna fyrir hlustendum Morgunbollans. Ein okkar allra skærasta stjarna frá tíma sínum með Írafár, barnabókahöfundur þar sem við fáum að kynnast ævintýrum og áskorunum Láru og fyrst og fremst ótrúlega ljúf og góð manneskja. Morgunbollinn er í boði Pågen, Hverslun og Sjöstrand.

34 // Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður 16.12.2025

Andrea Magnúsdóttir er ein af okkar allra fremstu og farsælustu fatahönnuðum, hún hefur rekið verslunina og vörumerkið Andrea með frábærum árangri í áraraðir. Andrea er þar að auki gull af manneskju og ein af mínum betri vinkonum - njótum morgunbollans með henni.

33 // Birta Líf og Sunneva Einars - Teboðið 06.12.2025

Teboðið í Morgunbollanum, þessar duglegu dömur hafa haldið úti einu vinsælasta hlaðvarpi landsins í áraraðir. Birtu Líf og Sunnevu Einars þarf vart að kynna - áhrifavaldar, frumkvöðlar og ungar konur á uppleið.

32 // Lilja hjá Fischersund 24.06.2025

Listakonan, ljósmyndarinn og ilmsérfræðingurinn Lilja Birgisdóttir hjá Fischersund er viðmælandi Morgunbollans. Hún hefur skapað sannkallaðan undraheim og einstaka upplifun með ilmhúsinu í Fischersundi. Styrktaraðilar Morgunbollans eru: Hverslun og Sjöstrand

31 // Gummi Kíró 25.05.2025

Það hafa margir skoðanir á Gumma Kíró og því er kjörið að nýta tækifærið til að kynnast honum betur. Ljúfari mann er erfitt að finna, svo ótrúlega fær á sínu sviði og þorir að standa með sjálfum sér og fara eigin leiðir. Styrktaraðilar Morgunbollans eru: La Roche-Posay, Hverslun, Arna Mjólkurvörur og Sjöstrand

30 // Lóa í Lindex 11.05.2025

Lóa hefur náð ótrúlegum árangri í verslunarrekstri undanfarin ár. Ævintýrið byrjaði með Lindex og síðar bættust við Gina Tricot, Mayoral og Emil&Lina. Lóa er fyrirmyndar kona - svo ótrúlega dugleg og jákvæð. Styrktaraðilar Morgunbollans eru Hverslun, Sjöstrand og Arna Mjólkurvöru.

29 // Sóley Jóhannsdóttir fatahönnuður 21.04.2025

Ein af okkar allra efnilegustu fatahönnuðum, Sóley Jóhannsdóttir, frumsýndi á dögunum sína fyrstu fatalínu undir eigin nafni. Hún hefur áður starfað hjá tískuhúsum eins og Paul Smith, Isabel Marant og LEMAIRE áður en hún var fastráðin hjá Louis Vuitton. Við kynnumst henni betur í Morgunbolla dagsins. Morgunbollinn er í boði Hverslun, Arna Mjólkurvörur og Sjöstrand.

28 // Alex Sig - @facesbyalexsig 06.04.2025

Listræni förðurnarfræðingurinn Alexander Sig er að slá í gegn á sínu sviði. Hann segir okkur frá lífinu í London, leiðinni þangað og frá spennandi verkefnum sem hann fæst við í dag hjá stjörnumerkinu Charlotte Tilbury. Morgunbollinn er í boði: Hverslun (20% afsláttur með kóðanum "morgunbollinn") Arna Mjólkurvörur (uppáhalds núna = grísk jógúrt + hunang) Sjöstrand (15% afsláttur með kóðan...

27 // Geirlaug - eigandi Hótel Holt (85 ára) 23.03.2025

Hinn heillandi og krafmikla Geirlaug Þorvaldsdóttir er eigandi Hótel Holt. Þrátt fyrir að vera orðin 85 ára þá hefur hún enn ótrúlega ástríðu fyrir því sem hún gerir og er frábær fyrirmynd fyrir sterkar ungar konur.

26 // Una Schram tónlistarkona 10.03.2025

Una Schram er ung kona á uppleið. Tónlistarkona sem hefur staðið á sviði frá því hún var lítil stelpa, lærði söng í háskólanámi í London en býr í dag í Reykjavík þar sem hún menntar sig meira, vinnur á auglýsingastofu og á RÚV samhliða því að semja tónlist, hún er algjör skvísa og frábær fyrirmynd. Njótum morgunbolla með Unu!

25 // Svala Björgvins 23.02.2025

Barna - , unglinga - og eilífðarstjarnan Svala Björgvins mætti í morgunbollann. Hún hefur blandað saman tísku og tónlist og veitt ófáum innblástur í gegnum árin með sínum einstaka stíl.

24 // Maya Einarsdóttir - Framkvæmdastjóri NTC 09.02.2025

María Einarsdóttir er framkæmdarstjóri tískurisans NTC og á stóran þátt í velgengi fyrirtækisins til fjölda ára. Maya er einstaklega dugleg og sterk kona sem hefur mjög áhugaverða sögu að segja af sinni vegferð. Morgunbollinn er í boði Arna Mjólkurvörur - Sjöstrand - Hverslun þar sem kóðinn "morgunbollinn" gefur góðan afslátt í vefverslun hjá öllum aðilum.

23 // Kristín Edda - stofnandi fataleigunnar SPJARA 26.01.2025

Frumkvöðullinn Kristín Edda er stofnandi fataleigunnar SPJARA. Hún er á sama tíma umhverfissinni og mikil tískuskvísa - er hægt að vera bæði? Morgunbollinn er í boði Andrá - Arna Mjólkurvörur - Sjöstrand - Hverslun þar sem kóðinn "morgunbollinn" gefur góðan afslátt í vefverslun hjá öllum aðilum.

22 // Sara Snædís - Stofnandi Withsara 12.01.2025

Sara Snædís er frumkvöðull á sviði hreyfingar og heilsu. Hún stofnaði Withsara, þar sem hún býður uppá fjölbreyttar æfingaleiðir í áskrift á netinu. Við fáum að heyra hennar áhugaverðu sögu yfir ljúffengum morgunbolla. Þessi morgunbolli er í boði Hverslun, Örnu mjólkurvara og Sjöstrand.

21 // Katrín Halldóra 31.12.2024

Leikkonan, söngkonan og hæfileikabúntið Katrín Halldóra kom í ljúfan morgunbolla. Hún hefur heldur betur slegið í gegn sem endurfædd Ellý og segir okkur frá sinni leið sem gekk ekki áfallalaust fyrir sig.

20 // Ástrós Traustadóttir 29.12.2024

Dansarinn, áhrifavaldurinn, raunveruleikastjarnan, hlaðvarpsstjórnandinn og mamman - Ástrós Traustadóttir - er sest hjá mér í morgunbolla og fer yfir málin í lok árs. 

19 // Gréta Hlöðversdóttir 17.12.2024

Gréta Hlöðversdóttir er ein af konunum á bak við íslenska hönnunarmerkið As We Grow sem var stofnað árið 2012 . Gréta hefur skemmtilega sögu að segja, talar reiprennandi spænsku eftir dvöl í Barcelona og það nýtist henni í framleiðslu samskiptum við saumastofu AWG í Perú. Meira í þætti dagsins.

18 // Hildur Yeoman 15.12.2024

Hildur Yeoman er einn okkar allra fremsti fatahönnuður og hefur verið það í áraraðir, frumkvöðull og fyrirmynd sem hefur byggt upp eigið vörumerki og rekið verslun samhliða. Hún hefur klætt íslenskar og erlendar gyðjur af öllum stærðum og gerðum. 

16 // Ása Ninna 02.12.2024

Ása Ninna er manneskja með einstaka útgeislun. Hún hefur átt mörg líf eins og hún orðar það sjálf. Uppalinn á Selfossi, búið lengst af í 101 Reykjavík þar sem hún rak eina vinsælustu fataverslun landsins um langt skeið, í dag þekkjum við hana best sem fjölmiðlakonu en það er aldrei að vita hvað hún tekur sér næst fyrir hendur

17 // Sól Hansdóttir 02.12.2024

Íslenski fatahönnuðurinn Sól Hansdóttir blómstrar í sínu fagi um þessar mundir, hún hefur vakið verðskuldaða athygli frá allra stærstu tískumiðlunum eins og t.d. Vogue. Sól býr og starfar í London en ég náði að plata hana í morgunbolla í heimsókn sinni á Íslandi.

14 // Helgi Ómars 18.11.2024

Helgi Ómarsson er gull af manni - ljósmyndari, áhrifavaldur, útvarpsmaður, tískutöffari, aktívisti, fyrirtækaeigandi, hlaðvarpsstjarna, yogi og fleira og fleira. Kynnumst hlýja og góða Helga í þætti dagsins.

15 // Rós Kristjánsdóttir 18.11.2024

Rós Kristjánsdóttir fæddist og bjó erlendis til 14 ára aldurs, hún vann mikið sem módel á unglingsárum og ætlaði sér svo að feta sömu leið og pabbi sinn sem er mannfræðingur. Lífið tók aðra stefnu og er hún í dag gullsmiður og annar eigandi skartgripamerkisins Hik og Rós.

13 // Hildur Vala 04.11.2024

Hildur Vala hefur bókstaflega skotist uppá stjörnuhimininn og fer nú með hlutverk Elsu á fjölum Þjóðleikhússins. Hún á framtíðina fyrir sér en fór afar áhugaverða leið við að velja sér þennan starfsvettvang. Styrktaraðilar Morgunbollans: - TM - nýjasta varan þeirra, Fjölskylduleiðin, er kjörin fyrir barnafjölskyldur. - H verslun - með kóðanum "morgunbollinn" fáið þið 20% afslátt á hversl...

12 // Elísabet Alma 03.11.2024

Elísabet Alma er mikill fagurkeri - hvort sem litið er til lista, tísku eða innanhúshönnunar. Hún er eigandi og stofnandi Listval. Styrktaraðilar Morgunbollans: - TM - nýjasta varan þeirra, Fjölskylduleiðin, er kjörin fyrir barnafjölskyldur. - H verslun - með kóðanum "morgunbollinn" fáið þið 20% afslátt á hverslun.is.  - Sjöstrand - með kóðanum "morgunbollinn" fáið þið 15% afsl...

10 // Ellen Lofts 20.10.2024

Ellen Lofts er einn af okkar allra færustu stílistum og er ávallt með puttann á púlsinum. Hún hefur upplifað margt magnað á sínum ferli bæði hérlendis og erlendis. Styrktaraðilar Morgunbollans: - TM - nýjasta varan þeirra, Fjölskylduleiðin, er kjörin fyrir barnafjölskyldur. - H verslun - með kóðanum "morgunbollinn" fáið þið 20% afslátt á hverslun.is.  - Sjöstrand - með kóðanum "morg...

Listen to the Morgunbollinn með Elísabetu Gunnars podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.