mordskurinn
Morðskúrinn
Þú finnur okkur á samfélagsmiðlum @mordskurinn.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: mordskurinn.podbean.com
Author
mordskurinn
Category
Podcast website
Latest episode
Oct 14, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Manndráp: Sharon Smith og Debra Helmick 14.12.2022 34:55
Sharon eða Shari eins og hún var gjarnan kölluð, var á leið heim þegar hún stoppaði stutt til þess að sækja póstinn. Faðir hennar sá bílinn í heimreiðinni en þegar Shari skilaði sér ekki heim fór hann út að athuga með hana, og komst að því að hún var hvergi sjáanleg. Ekki leið á löngu þar til fjölskyldan byrjaði að fá símtöl frá aðila sem hafði áhugaverðar upplýsingar og með dögunum sem liðu byrja...
Mannshvarf: Angela Green 07.12.2022 1:01:40
Angela Green fæddist í Kína en hafði flutt til Bandaríkjanna til að elta ástina sína en þar átti hún eftir að eiga mjög gott líf lengi framan að. En eitthvað gerðist árið 2019, eitthvað sem varð til þess að Angela hefur ekki séðst síðan. Hvað nákvæmlega gerðist, verður erfitt að komast að og hver nákvæmlega kom að því en dóttir Angelu grunar aðeins einn einstakling um að hafa orðið valdur að hvar...
Dularfullur dauði: Brandon Embry 30.11.2022 58:58
Þegar fjölskylda Brandon hafði ekki heyrt í honum í nokkra daga, þá ákvað móðir hans og systir að taka sig saman og keyra heim til hans. Þegar þangað var komið var ákveðið að hringja í lögreglu, sem fór inn og fann Brandon í mjög slæmu ástandi á gólfinu heima hjá sér. Honum var flýtt á bráðamóttöku, og gerðu læknar allt til þess að reyna að bjarga honum, en án árangurs. Íbúðin var í rúst, allt út...
Manndráp: Linsey Wilson Quy 23.11.2022 42:32
Linsey Wilson Quy var 17 ára gömul þegar hún var óvænt ófrísk, hún hafði verið í sambandi með ungum strák en það hafði ekki gengið þegar leið á meðgönguna og úr varð að Linsey var að horfa fram á það að hlutverk sem einstæð móðir. Þetta hlutverk hræddi hana mikið og hún var kvíðin fyrir því sem koma skyldi þegar hún kynntist manni sem hún taldi í fyrstu að væri draumaprinsinn hennar, Annað átti...
Mannrán: Thad Phillips 15.11.2022 32:43
Thad Phillips var þrettán ára gamall þegar hann vaknaði við það að einhver var að bera hann út úr sínu eigin húsi. Honum fannst það ekkert skrítið enda sofnaði hann oft í sófanum, en í þetta skipti var hann borinn út úr húsinu. Hann skildi lítið hvað var í gangi en hafði litlar áhyggjur, þar til hann var skyndilega mættur í hús til ókunnugs manns þar sem hann gat hvergi farið. Þátturinn er að sjá...
Fjöldamorð: Geronimo Bank Murders 09.11.2022 46:18
Hvað taka menn upp á þegar þeir horfa fram á mikinn fjárhagsvanda? Fæstir myndu taka upp á því sem Jay nokkur gerði í slagtogi við kærasta sinn Þeir höfðu verið staurblankir nánast allt sitt samband, orðnir ráðþrota enda komið að lokuðum dyrum hvert sem þeir fóru nú þegar þeir voru búnir að maxa alla lánaheimild sem þeir gátu fengið Það sem þeir tóku upp á var ómannúðlegt svo ekki meira sé sagt...
Manndráp: Stephen Hricko 02.11.2022 36:26
Hjón fara á morðráðgátukvöld yfir valentínusarhelgi til þess að reyna að bjarga hjónabandinu, en aðeins eitt þeirra lifir nóttina af. 20% afsláttur af öllu inni á www.scrubdaddyisland.is með kóðanum morðskúrinn www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn
Dularfullur dauði: Hugues de la Plaza 26.10.2022 31:38
Hugues sem var upprunalega franskur, hafði flutt til Bandaríkjanna í leit að sínu draumalífi. Það hafði tekist stórkostlega hjá honum, hann var í góðri vinnu, átti góða vini og virkilega naut lífsins í botn Það var því sem þruma úr heiðskíru lofti þegar hann fannst látinn inn á heimilinu sínu einn morguninn og það sem verra var, lögreglan kærði sig lítið um að vinna að neinni rannsókn Þátturinn...
Manndráp: MacDonald fjölskyldan 19.10.2022 53:46
Aðfaranótt 17. febrúar árið 1970 vaknaði Jeffrey upp við öskur eiginkonu sinnar og dóttur. Yfir honum stóðu þrír karlmenn og ein kona, sem byrjuðu þá og þegar að lemja hann þar til hann varð meðvitundarlaus. Þegar hann rankaði við sér, þá hljóp hann um húsið en gerði skelfilega uppgötvun. Rannsókn lögreglu var bara alls ekki upp á sitt besta en með það litla sem hægt var að vinna með komust þeir a...
Manndráp: Heather Quan 11.10.2022 47:01
Heather Quan var rétt rúmlega 21 árs þegar hún fannst látin inn á heimili sínu sem hún deildi með kærasta sínum. Heather hafði fundist látin þegar foreldrar kærasta hennar óskuðu eftir velferðareftirliti þann 25 desember, en þá höfðu parið ekki skilað sér í kvöldmat. Við velferðareftirlitið kom í ljós að ekki var allt í lagi innan íbúðarinnar og eftir mikinn hasar komust lögreglumenn inn Þá fór at...
Mannshvarf: Skelton bræðurnir 05.10.2022 44:06
Tanya og John voru búin að stofna sína yndislegu fjölskyldu saman, en þau áttu bræðurna Andrew, Alexander og Tanner. Drengirnir höfðu eytt þakkargjörð með föður sínum árið 2010. Þegar móðir þeirra ætlaði að sækja þá daginn eftir, þá kom faðir þeirra með nokkrar útgáfur af sögum um hvar þeir væru niðurkomnir. Það var m.a. að aðili a vegum sértrúarsöfnuðar hafi sótt þá og að kona sem hann hafði kynn...
Óupplýst: Al Kite 28.09.2022 47:45
Al Kite var einhver reglusamasti maður sem til var og það kom öllum gjörsamlega að óvörum þegar hann fannst látinn inn á sínu eigin heimili Hann hafði orðið fyrir fólskulegri árás og að virtist, algjörtlega tilefnislausri árás Enginn var undir grun einfaldlega vegna þess að eini maðurinn sem lögreglan hafði áhuga á virtist hreinlega ekki vera til Og það hefur verið ástæða þess að lausn hefur ekki...
Manndráp: Bill McGuire 21.09.2022 1:03:00
Þann 5. maí árið 2004 fannst fyrsta ferðataskan af þremur sem innihélt sundurskornar líkamsleifar. Rannsóknarlögreglumenn áttu tvö erfið verkefni framundan, að bera kennsl á líkamspartana og að finna út hver bar ábyrgð á morðinu. Það átti eftir að reynast þeim erfitt en þegar litið var á heimilislíf fórnarlambsins þá fór ákveðin atburðarrás að koma í ljós. Í kjölfarið hefur morðinginn fengið nafni...
Óupplýst: Jessica Easterly 14.09.2022 1:07:17
Árið 2019 hringdi Jessica í vinkonu sína og tilkynnti henni um áætlanir sínar - hún ætlaði loksins að láta verða að því að fara frá eiginmanni sínum Eiginmanni sem hafði alltaf reynt sitt besta að láta sig líta vel út en raunin var allt önnur Jessica hvarf sporlaust sama dag og hún hringdi í vinkonu sína, hún átti ekki eftir að finnast fyrr en 10 dögum síðar, látin. Rannsókn á andláti Jessicu v...
Manndráp: Lauren Giddings 07.09.2022 41:51
Hin 27 ára Lauren var að undirbúa sig fyrir próf í laganáminu sínu yfir sumarið. Hún hafði lítinn tíma til þess að heyra í fjölskyldu og vinum en var vön að láta reglulega vita af sér, svo þegar enginn hafði heyrt í henni í einhvern tíma þá urðu allir áhyggjufullir. Eftir nokkra daga kom í ljós skelfileg atburðarrás sem átti eftir að breyta lífi margra. Viltu meira efni: www.pardus.is/mordskurin...
Manndráp: Tia Rigg 31.08.2022 33:39
Tia Rigg var 12 ára gömul þegar hún fór að heiman og sást aldrei aftur á lífi. Morðingi hennar var mjög veikur einstaklingur sem hafði mánuðina á undan fengið þráhyggjur fyrir í fullri hreinskilni, hrikalega viðbjóðslegum hlutum. Saga Tiu er sorgarsaga að öllu leiti en það er sorglegt hve harkalega kerfið brást henni Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Með kóðanum "morðskúrinn" færðu 15% a...
Mannshvarf: Leigh Occhi 23.08.2022 42:57
Leigh Occhi var 13 ára gömul þegar hún hvarf við dularfullar aðstæður frá heimili sínu í Missisippi, en það var á þeim tíma sem fellibylurinn Andrew reið yfir. Blóð fannst inni á heimilinu en engin merki voru um Leigh. Stuttu eftir hvarf hennar fékk fjölskyldan send gleraugun hennar í pósti en ekki var vitað hver sendandinn væri. Málið hennar er mjög dularfullt, en móðir hennar telur sig vita nákv...
Manndráp: Sierah Joughin 17.08.2022 52:46
Sierah Joughin bjó í litlu samfélagi, það sem átti að vera öruggt samfélag en annað átti eftir að koma á daginn Sierah hvarf á leiðinni heim til sín, sporlaust. Hún hafði hjólað langleiðina heim til sín með kærastann sinn sér við hlið þegar þau kvöddust og Josh, kærastinn hennar sá hana aldrei aftur Það átti eftir að sannast hversu mikilvægt er að almenningur hafi greiðari aðgang að sumum gögnum...
Mannrán: Shannon Matthews 10.08.2022 44:20
Shannon var 9 ára gömul þegar hún hvarf skyndilega á leið sinni heim úr skólanum. Áhyggjufull móðir hennar tilkynnti hana týnda og rannsókn lögreglu leiddi ekkert í ljós, svo strax var hafist handa við að athuga hvort henni hafi einfaldlega verið rænt. Hún fannst svo að lokum um 24 dögum eftir mannránið. Ræningi hennar stóð fjölskyldunni nær en öllum grunaði. Viltu meira efni: www.pardus.is/mo...
Manndráp: Amanda Cope 03.08.2022 52:11
Amanda Cope var 12 ára gömul þegar hún fannst látin í rúminu sínu Andlátið hafði borið að með saknæmum hætti og það var augljóst frá upphafi Það átti hinsvegar eftir að reynast mjög erfitt að komast að því hver aðdragandi morðins hafði verið og lögreglan snerist í ansi marga hringi og komst í raun aldrei að neinni eiginlegri niðurstöðu þó að dæmt hafi verið í máli Amöndu Þátturinn er í boði Sc...
Manndráp: Caffey fjölskyldan 26.07.2022 40:50
Caffey hjónin voru mjög elskuleg og vel liðin í samfélaginu. Þau ólu upp þrjú börn og voru með strangar reglur inni á heimilinu. Einn dag brutust inn þrjú ungmenni og skutu fjóra fjölskyldumeðlimi af fimm og eitt barnanna var tekið í gíslingu heim til árásaraðilanna, eða hvað? Það var nefninlega vitni til staðar sem gat sagt lögreglu hvað hafði gerst þetta örlagaríka kvöld. Þátturinn er í boði Sc...
Manndráp: Yun Mi Hoy 20.07.2022 28:52
Yun Mi Hoy hafði átt í ansi stormasömu sambandi við dóttur sína í gegnum árin Isabella dóttir hennar hafði í grunninn verið mjög reið út í foreldra sína að hafa skilið þegar hún var ung en án vitund allra var Isabella með geðsjúkdóm sem hún fékk enga meðhöndlun við. Því fór svo eitt ágúst kvöldið að Isabella myrti móður sína á hrottalegan máta Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "mor...
Raðmorðingi: Nathaniel Bar-Jonah 13.07.2022 46:33
Nathaniel var ekkert eðlilegasta barnið. Hann var einungis 7 ára gamall þegar hann reyndi að kyrkja nágrannastelpu til dauða, en sem betur fer kom móðir hans að honum. Það var hinsvegar engin refsing og hélt hann ótrauður áfram, þar sem glæpir hans stigmögnuðust. Þegar lögreglan mætti heim til hans einn daginn þá blöstu við þeim sjón sem þeim grunaði bara alls ekki. Nathaniel hafði m.a. boðið nágr...
Manndráp: Yvette Pena & Luis Romero 06.07.2022 54:00
Jaime Osuna var ekki orðinn árs gamall þegar það var orðið ljóst að lífið hans yrði erfiðara en hjá flestum en hann hlaut sínu fyrstu áverka bókstaflega í móðurkvið. Þetta átti eftir að vera áhrifaþáttur í lífi Jaime en hann varð með öllu ónæmur fyrir tilfinningum í kjölfarið og það var akkúrat það sem ýtti honum út í alvarlega glæpastarfsemi og síðar morðæði. Þátturinn er í boði Scrub Daddy Í...
Mannshvarf: Susan Powell 28.06.2022 54:00
Susan Powell var gift tveggja barna móðir sem hvarf skyndilega eftir að hafa tekið kríu. Eiginmaður hennar og börnin fóru skyndilega í útilegu og þegar þau komu heim þá var hún horfin. Augu lögreglunnar beindust fljótt að eiginmanni hennar, sem og tengdaföður, en hann hafði verið mjög óviðeigandi við hana. Ekki leið á löngu þar til annað áfall dundi yfir fjölskylduna og aðrir meðlimir mættu örlögu...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.