mordskurinn
Morðskúrinn
Þú finnur okkur á samfélagsmiðlum @mordskurinn.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: mordskurinn.podbean.com
Author
mordskurinn
Category
Podcast website
Latest episode
Oct 14, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Óupplýst: Kanika Powell 14.06.2023 27:42
Kanika var búin að koma sér vel fyrir í lífinu og var spennt fyrir komandi tímum. Það var allt þar til að hún byrjaði að fá dularfullar heimsóknir. Eftir fyrstu heimsóknina þá fylgdi önnur, og Kanika var orðin mjög áhyggjufull enda fannst henni eins og hún væri eitthvað skotmark. Þann örlagaríka dag mætti hún heim til sín eftir stúss og á móti henni tóku þessir dularfullu menn sem ætluðu sér aðein...
Raðmorðingi: Hadden Clark 31.05.2023 48:37
Hadden hafði búið hjá bróður sínum í einhvern tíma þar til bróðir hans fékk nóg og bað hann vinsamlegast um að flytja út. Sama dag og flutningurinn átti sér stað hvarf sex ára stúlka úr hverfinu sem þótti í fyrstu vera algjör tilviljun. Það var ekki fyrr en nokkrum árum síðar sem lögregludeildin sem rannsakaði mál stúlkunnar fékk símtal frá annari rannsóknarlögregludeild með möguleg tengsl á mili...
Manndráp: Adrian Jones 24.05.2023 47:57
Adrian Jones var sjö ára gamall þegar hann lést. En af þessum sjö árum voru örfá sem mættu teljast góð. Adrian bjó við gríðarlega vanrækslu, ofbledi og niðurlægingu inn á heimili föður síns, heimili sem hann hefði átt að upplifa sig elskaðann og öruggann. Raunveruleikinn var allt, allt annar. Við vörum við lýsingum í þættinum. Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" ve...
Manndráp: Kimberly Antonakos 16.05.2023 48:02
Þegar Kimberly skilaði sér ekki heim eftir djammið og mætti ekki til vinnu þá byrjuðu vinir og vandamenn að hafa miklar áhyggjur af henni. Á meðan leit af henni stóð yfir var fjölskylda hennar gjörsamlega grunlaus um þann hrylling sem var að eiga sér stað, en fengu þau nokkuð góða hugmynd um það eftir að hafa farið til miðils og fengið upplýsingar frá honum. Þátturinn er í boði Scrub Daddy en með...
Manndráp: Addie Hall 10.05.2023 33:31
Í franska hverfinu í New Orleans bjuggu Addie Hall og Zack Bowen, en þau voru yfir sig ástfangin, eða svo hélt fólk. Það var svo einn dag sem lögreglan fékk símtal um mann sem hafði framið sjálfsvíg á hóteli og við skoðun á líkindu fundu þeir miða, miða sem sagði þeim að kíkja á heimili mannsins. Á heimilinu fann lögreglan veggjakrot sem ýmsum ábendingum, og að lokum ákváðu þeir að opna ofninn......
Mannshvarf: Charlene Downes 02.05.2023 44:05
Charlene var aðeins 14 ára gömul þegar hún hvarf sporlaust úr heimabæ sínum árið 2003. Erfitt reyndist fyrir fjölskyldu hennar að fá aðstoð við leit þar sem lögreglan taldi að hún hafi stungið af. Það var ekki fyrr en nokkrum árum síðar sem lögreglan kom opinberlega fram með kenningu um hvað þeir töldu hafa komið fyrir Charlene og voru tveir menn handteknir. Það átti samt eftir að reynast þeim erf...
Manndráp: Daniel Pelka 26.04.2023 39:22
Daniel Pelka var lítill strákur sem átti svo sannarlega skilið að vera elskaður, dýrkaður og dáður en þvert á móti upplifði hann allt sem barn ætti aldrei nokkurntíman að upplifa. Saga Daniels er saga drengs sem var brugðist og það heiftarlega. Við vörum við sumum lýsingum þáttarins í dag. Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" veitir 20% afslátt inn á www.scrubdaddyisland...
Manndráp: Doan fjölskyldan 19.04.2023 34:52
Þann 30. september árið 2005 hringdi 10 ára Robin í neyðarlínuna og bað um aðstoð þar sem hún hafði heyrt skothljóð og vissi ekki hvað væri í gangi. Þegar lögreglan mætti þá tók á móti þeim hræðilegur vettvangur, sem átti eftir að breyta lífi Robin til frambúðar. Rannsókn hófst í kjölfarið, en af þeim ómeðvituðum var rannsóknardeild lögreglu í um 8 tíma fjarlægðar að rannsaka svipaðan vettvang. Þ...
Manndráp: Kimberly Diane Hill 12.04.2023 27:52
Kimberly Diane Hill fannst látin þann 28 mars árið 2014, á það sem átti að vera 51. afmælisdagur hennar. Aðkoman var hrottaleg enda hafði Kimberly hlotið tugi áverka á höfuð og var hamar notaður sem vopn. Það átti eftir að koma flestum í opna skjöldu þegar upp komst hver árásarmaður Kim hafði verið. Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland kóðinn "morðskúrinn" veitir 20% afslátt af öllum vörum in...
Dularfullur dauði: Joseph Smedley 05.04.2023 38:11
Einn mánudagsmorgun vaknaði Vivian við undarleg SMS skilaboð frá bróður sínum Joseph, þar sem hann sagðist vera að fara úr landi. Enginn heyrði frá honum eftir það og við rannsókn kom í ljós að hann hafði einnig skilið eftir dularfullt bréf heima hjá sér. Nokkrum dögum síðar fannst lík hans, og á mjög undarlegan hátt. Lítil sem engin rannsókn var gerð og fjölskyldan sat uppi með fleiri spurningar...
Manndráp: Arpana Jinaga 29.03.2023 1:02:37
Arpana Jinaga var einhver harðduglegasta unga kona sem sögur fara af. Hún virtist óhrædd við flest, hafði sett sér háleit markmið í gegnum lífið og tekist að ná þeim langflestum áður en hún var hrottalega myrt inn á heimili sínu eftir hrekkjavökupartý. Morð Arpana átti eftir að vera lengi óleyst, en þegar loksins kom að því að réttarhöld í máli hennar fóru fram þá áttu klúðrin eftir að koma í ljó...
Manndráp: Marlene Warren 22.03.2023 46:53
Einn dag árið 1990 var bankað á heimili Warren hjónanna. Marlene fór til dyra og á móti henni tók aðili, klæddur trúðabúningi, með blóm og blöðrur. Marlene var yfir sig ánægð með eiginmann sinn um að koma sér á óvart með slíkum gjöfum, en ánægjunni lauk skyndilega þegar trúðurinn tók upp byssu og skaut Marlene. Trúðurinn gekk svo hægt og rólega í bílinn sinn og keyrði í burtu. Það skildi enginn hv...
Dularfullur dauði: Lori Lee Malloy 15.03.2023 59:12
Lori Lee var þrítug þegar hún fannst látin inn á heimili sínu og það undir fremur dularfullum kringumstæðum. Lori hafði ekki verið hún sjálf dagana fyrir andlát sitt en fjölskylda hennar og vinir áttu erfitt að ná á hana og það sem þótti enn óvenjulegra var að Lori hafði fengið pössun fyrir 18 mánaða gömlu dóttur sína í marga daga. Andlátið var að lokum úrskurðað sem náttúrulegt og engar ástæður...
Mannshvarf: Sky Metalwala 08.03.2023 47:58
Árið 2011 vaknaði Julia með börnum sínum tveimur, Sky og Maile. Fljótlega tók hún eftir því að Sky var veikur og ákvað í kjölfarið að bruna með hann upp á læknavakt. Á leiðinni þangað lenti hún í því að verða bensínlaus á þjóðveginum og tók ákvörðun sem hún átti eftir að sjá eftir alla sína ævi, eða hvað? Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland og Play Komdu í áskrift! Það eru 4-5 þættir í hverju...
Mannshvarf: Millbrook tvíburarnir 01.03.2023 47:16
Dannette og Jeannette voru 15 að verða 16 ára gamlar þegar þær hurfu sporlaust eftir erindagjörðir í gamla hverfinu sínu. Hvarf þeirra var ekki tekið alvarlega, frá degi eitt og átti það eftir að lita rannsóknina og niðurstöðu málsins all verulega. Heimaborg stelpnanna var í lengri tíma þekkt fyrir lítið annað en að mismuna fólki eftir kynþáttum og er saga systrana skólabókadæmi þess. Þátturinn...
Sakamál: Casey White og Vicky White 21.02.2023 45:58
Casey White var með langan glæpaferil að baki en sem dæmi má nefna var hann grunaður um fleiri en eitt manndráp og reyndi einnig að drepa fyrrverandi kærustuna sína. Fyrir þann verknað fékk hann 75 ár í fangelsi og sá fyrir sér að sitja inni það sem eftir var ævi sinnar. Það var ekki fyrr en hann kynntist ástinni í lífi sínu sem hann byrjaði að sjá sólina á ný og það sem þau tóku sér fyrir hendur...
Mannshvarf: Chance Englebert 15.02.2023 55:34
Chance Englebert var 25 ára gamall þegar hann bara gékk frá fjölskyldynni sinni á máta sem var honum mjög ólíkt Það átti aldrei eftir að sjást né heyrast til Chance eftir það Þar sem Chance gekk í burtu sjálfviljugur hef lögreglan ekki haft mestan áhuga á að aðstoða en fjölskylda hans hefur gert sitt allra besta með von um að Chance annað hvort skili sér heim einn daginn eða einhver niðurstaða kom...
Manndráp: Jo, Michelle og Christe Rogers 08.02.2023 44:18
Eftir erfiða tíma heima fyrir ákváðu mæðgurnar Jo, Michelle og Christe að fara í ferðalag til Flórída. Þegar þangað var komið skemmtu þær sér mjög vel og reyndu sitt allra besta í að skoða og sjá allt sem þær gátu. Þær fengu meira að segja tækifæri til þess að fara í bátsferð til að skoða sólsetrið, en gátu aldrei sagt neinum frá því hvernig það var þar sem nokkrum dögum síðar fundust þær látnar. ...
Manndráp: Jacks systurnar 01.02.2023 36:23
Banita Jacks var sögð mjög góð móðir og fæstir höfðu eitthvað á hana út að setja á meðan allt leit út fyrir að vera í lagi Annað átti þó eftir að koma í ljós þegar tveir alríkisfulltrúar bönkuðu upp á heima hjá henni en þangað voru þeir mættir til að bera hana og dætur hennar út Banita hafði átt leyndarmál í langa tíma, eitthvað sem engum hefði getað dottið í hug Þátturinn er í boði Scrub Daddy...
Manndráp: Joe Cinque 24.01.2023 41:07
Joe Cinque hafði kynnst ástinni í lífi sínu, Anu, en þau enduðu á því að flytja inn saman eftir fjarsamband. Anu hafði verið að stríða við andleg og læknisfræðileg vandamál og ekki leið á löngu þar til hana langaði til þess að taka sitt eigið líf, en áður en það myndi gerast, langaði henni að halda kveðjupartý. Það partý fór samt sem áður ekki eins og áætlað var. www.pardus.is/mordskurinn www.fac...
Óupplýst manndráp: Shana Jaros 18.01.2023 40:58
Shana Jaros var ekki nema 18 ára gömul þegar hún var hrottalega myrt inn á heimili sínu - heimili sínu sem hún hafði nýlega fengið á leigu og var að stíga sín fyrstu skref sem sjálfstæð fullorðin kona. Hún hafði verið svo spennt fyrir því sem var framundan en fékk því miður aldrei að framkvæma eða upplifa allt sem hún ætlaði sér. Lögreglan gat með engu móti framfylgt rannsókninni og niðurstaða í m...
Manndráp: Denise Amber Lee 11.01.2023 53:08
Denise var 21 árs þegar henni var rænt frá heimilinu sínu. Nokkur símtöl bárust lögreglu en það allra erfiðasta var þegar Denise sjálf hringdi á meðan ræningi hennar keyrði um með hana. Það tók lögreglu nokkra tíma að finna hana, en því miður var það orðið of seint. Viltu meira efni? Hægt er að skrá sig í áskrift inni á www.pardus.is/mordskurinn en hún kostar 990kr.- á mánuði! Allt eldra efni e...
Manndráp: Danielle van Dam 04.01.2023 55:09
Damon og Brenda nokkur fóru að sofa róleg vitandi að börnunum sínum í værum svefni inn í herbergunum sínum föstudag nokkrun árið 2002. Morguninn eftir vakna þau tilbúin í að eiga góðan laugardag með fjölskyldunni sinni, grunlaus um að eitt barnanna þeirra hvarf um nóttina Hin sjö ára gamla Danielle hafði horfið af heimilinu og var nú hvergi að finna Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóð...
Dularfullur dauði: Sean Daugherty 28.12.2022 48:49
12 ára strákur finnst látinn fyrir utan heimilið sitt og eftir litla sem enga rannsóknarvinnu kemst lögreglan að þeirri niðurstöðu að um sjálfsvíg hafi verið að ræða. Það eru þó nokkur álitamál sem benda á annað og hefur fjölskylda Sean unnið hart síðustu mánuði að því að leiða réttlætið í ljós. www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn
Manndráp: Dominique Dunne 21.12.2022 48:31
Dominique Dunne var ung og upprennandi leikkona og átti allt lífið framundan þegar hún kynntist manni Manni sem hún sjálf átti eftir að falla kylliflöt fyrir en vinir hennar og vandamenn ekki svo mikið Þessi maður átti eftir að hafa gríðarleg áhrif á hennar persónulega líf sem og hennar faglega líf og var tilbúinn að ganga töluvert lengra en margur annar til að sjá til að draumakonan hans yrði ei...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.