Valtýr Björn

Mín skoðun

Sports EN ↓ 999 episodes

Podcast með Valtý Birni

Author

Valtýr Björn

Category

Sports

Podcast website

valtyrbjorn.podbean.com

Latest episode

Jul 3, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

540.þáttur. Mín skoðun. 31032022 31.03.2022

540.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan förum í dag um víðan völl. Handbolti hér innanlands, KSÍ er til umfjöllunar, meistaradeild kvenna í fótbolta, fréttir og slúður og margt fleira. Þá hringi ég í Svala Björgvinsson körfuboltagúrú en lokaumferðin í Supwaydeild karla er í kvöld. Við spjöllum um leiki dagsins og fleira í þeim dúr. Njótið.

539.þáttur. Mín skoðun. 30032022 30.03.2022

539.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um íslenska U21 árs landsliðið og stöðu liðsins. Við förum síðan ítarlega í A-landsliðið okkar og það má eiginlega segja að um uppgjör sé að ræða. Umspil HM er tekið fyrir, lazer ruglið sem leikmenn Egyptlands urðu fyrir í leiknum gegn Senegal, ÍBV og FH mætast í kvöld í Olísdeild karla  og margt fleira. Njótið. 

538.þáttur. Mín skoðun. 29032022 29.03.2022

538.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um Subwaydeild karla en þar er mikil spenna fyrir síðustu umferðina. U21 árs landsliðið í fótbolta mætir Kýpur í dag og A-landsliðið leikur gegn spánverjum. Við spáum í spilin og Tóti velur sitt byrjunarlið. Við spáum einnig í leikina í umspili HM sem eru í kvöld. Fréttir og slúður er á sínum stað og Tóti svarar tveimur hlus...

537.þáttur. Mín skoðun. 28032022 28.03.2022

537.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag hringi ég til Akureyrar í Heimi Örn Árnason en hann er söðla um á vormánuðum, fer úr sportinu og í bæjarpólitíkina. Því næst heyri ég í Þórhalli Dan. Við förum yfir víðan völl. Handbolti hér innanlands og í Þýskalandi, körfubolti, A og U21 árs landsliðin í fótbolta karla. Undankeppni HM, fréttir og slúður. Sem sagt, nóg um að vera. Njótið. 

536.þáttur. Mín skoðun. 25032022 25.03.2022

536.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan förum um víðan völl í dag. Íslensku landsliðin okkar, U21 og A-landsliðin og A-kvenna. Umspil HM er tekið fyrir en Ítalía féll úr leik í gær. Þýski handboltinn er til umfjöllunar og margt margt fleira blandast svo saman við þetta allt. Njótið helgarinnar. 

535.þáttur. Mín skoðun. 24032022 24.03.2022

535.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan ræðum í dag um Olísdeildir karla og kvenna. Við tölum einnig um körfuboltann hér heima og förum svo í umspil HM í fótbolta karla en fyrri leikirnir í umspilinu eru í kvöld. Við förum í hugsanleg byrjunarlið og fleira til. Meistaradeild kvenna er til umfjöllunar, fréttir og slúður og margt fleira. Njótið. 

534. þáttur. Mín skoðun. 23032022 23.03.2022

534. þáttur. Mín skoðun.  Heil og sæl. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um fótbolta vítt og breytt. Tennis kemur við sögu, meistaradeild kvenna í fótbolta, Olís-deildir karla og kvenna og við tölum aðeins um Paul Pobga sem hefur glímt við þunglyndi. Fréttir og slúður er svo í lokin ásamt fleiru. Njótið. 

533.þáttur. Mín skoðun. 22032022 22.03.2022

533.þáttur. Mín skoðun.  Heil og sæl. Í dag hringi ég í Viðar Örn Kjartansson atvinnumann í fótbolta sem leikur með Vålerenga í Noregi. Við ræðum um landsliðið og hann sjálfan og margt fleira. Þá heyri ég í Þórhalli Dan og við höldum áfram að tala um landsliðsvalið. Afhverju eru Viðar Örn og Willum Þór ekki valdir og margt fleira í þeim dúr. Krummasaga dagsins er um KSÍ og við ræðum það aðeins. Þe...

532.þáttur. Mín skoðun. 21032022 21.03.2022

532.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag heyri ég í Kristjáni Einari Kristjánssyni Formula-1 snillingi en keppni hófst um helgina og Ferrari menn komu sáu og sigruðu. Þá hringi ég í Þórhall Dan og við tölum um enska boltann, körfuboltann hér heima og svo einnig um landsliðsvalið fyrir leikina gegn finnum og spánverjum í fótbolta. Þetta og margt fleira. Njótið.

531.þáttur. Mín skoðun. 18032022 18.03.2022

531.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Benedikt Guðmundsson körfuboltaþjálfari er á línunni og við spáum í úrslitaleikina í bikarnum sem eru á morgun. Því næst hringi í Þórhall Dan og við förum yfir meistaradeildina í fótbolta en það var dregið í 8-liða úrslit í dag. Við spáum í spilin og tölum einnig um Evrópudeildina og Sambandsdeildina. Íslenski boltinn er á sínum stað og svo í lokin ein stutt Kr...

530.þáttur. Mín skoðun. 17032022 17.03.2022

530.þáttur. Mín skoðun. Í dag tölum ég og Þórhallur Dan um HSÍ og dómgæslu. Úrskurð aganefndar og margt fleira í þeim dúr. Tölum um VÍS bikarinn í körfubolta og dómgæslu þar, enski boltinn er á sínum stað og Liverpool-umræða. Meistaradeildin í fótbolta, fréttir og slúður og margt fleira. Njótið. 

529.þáttur. Mín skoðun. 16032022 16.03.2022

529.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um meistaradeildina í fótbolta og tökum stöðu Man. Utd. aðeins fyrir. Við spáum í leiki kvöldsins og leik Arsenal og Liverpool. Lengjubikarinn er til umfjöllunar, fréttir og slúður og svo bikarinn í körfubolta. Njótið. 

528.þáttur. Mín skoðun. 15032022 15.03.2022

528.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um Bestu deild karla en keppni þar hefst eftir 1 mánuð og 3 daga. Lengjubikarinn er til umræðu og enski boltinn. Meistaradeildin er á dagskrá í kvöld og þar eru tveir stórleikir. Við komum aðeins inná körfuboltann hér heima og margt fleira. Njótið. 

527.þáttur. Mín skoðun. 14032022 14.03.2022

527.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um ýmislegt. Handboltinn um helgina og dómgæsla koma við sögu, Lengjubikarinn, enski boltinn og ítalski boltinn.  Íslenska landsliðið í fótbolta karla og svo í lokin er ein Krummasaga. Þettta og margt fleira. Njótið. 

526.þáttur. Mín skoðun.11032022 11.03.2022

526.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Páll Ólafsson, Nostradamus og handboltagoðsögn, er í spjalli í dag og við förum í úrslitaleikina í bikarnum sem eru á morgun.  Þórhallur Dan er svo á línunni og við komum víða við. Enski boltinn, evrópuboltinn í gær, Lengjubikarinn í gær og í dag, PSG, Neymar, Messi, Mbappe og félagar, vandræði Man. Utd. og margt margt fleira. Njótið. 

525.þáttur. Mín skoðun. 10032022 10.03.2022

525.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag heyri ég í Gunnari Gunnarssyni þjálfara kvennaliðs Hauka í handbolta. Við spáum í leiki dagsins í Final 4 ásamt því að ræða aðeins um núverandi fyrirkomulag keppninnar. Þórhallur Dan er svo á línunni og við komum víða við. Meistaradeildin, Chelsea og Abramovich, Evrópudeildin, enski boltinn og hvað kostar 1 klst. í fótboltahúsunum. Smá yfirsýn yfir...

524.þáttur. Mín skoðun. 09032022 09.03.2022

524.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag hringi ég í Pál Ólafsson handboltagoðsögn og við spáum í leikina í Final 4 í bikarkeppni karla sem eru í dag og við  tölum einnig um aðstöðuleysi afreksfólks okkar. Þórhallur Dan er svo á línunni og við ræðum um leiki gærkvöldsins í meistaradeildinni og einnig um leiki kvöldsins. Aðstöðuleysi afreksfólksins okkar kemur við sögu ásamt Lengjubikarnum og fle...

523.þáttur. Mín skoðun. 08032022 08.03.2022

523.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag spjöllum við Þórhallur Dan um ýmislegt. Enski boltinn, staða Everton í deildinni. Meistaradeildin í kvöld. Líkleg byrjunarlið hjá Liverpool og Inter. Þá tölum við um fyrirkomulag Final 4 í handboltanum hér heima og slúður og fréttir eru svo á sínum stað. Í lokin hringi ég svo í hinn eina sanna Sigga Hlö en kappinn á afmæli í dag. Njótið. 

522.þáttur. Mín skoðun. 07032022 07.03.2022

522.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Ég og Þórhallur Dan förum um víðan völl í dag. Ítalski boltinn og Lengjubikarinn eru fyrst til umræðu og síðan tekur enski boltinn við. Kvennalandsliðið í handbolta vann Tyrkland í gær og svo ræðum við einnig um þýska handboltann ásamt fleiru. Herra Vestri, Samúel Samúelsson, er svo á línunni en loksins er Vestri búinn að ráða þjálfara. Njótið. 

521.þáttur. Mín skoðun. 04032022 04.03.2022

521.þáttur. Mín skoðun. Sæl og blessuð. Í dag tölum við Þórhallur Dan um margt og mikið. Olísdeild karla, Subwaydeildin í körfubolta, enski boltinn um helgina og stórleikur Man. City og Man. Utd. Ítalski boltinn er til umfjöllunar, þýski handboltinn, slúður og margt margt fleira. Undir lok þáttar hringi ég til Ísafjarðar í herra Vestra,Samúel Samúelsson, og athuga stöðuna á þjálfaraleit félagsins....

520.þáttur. Mín skoðun. 03032022 03.03.2022

520.þáttur. Mín skoðun.  Heil og sæl. Í dag förum ég og Þórhallur Dan um víðan völl. Íslenska kvennalandsliðið í  handbolta, Lengjubikarinn er á sínum stað, enski bikarinn og einnig ítalski bikarinn. Við ræðum um sölu Abramovich á  Chelsea og förum aðeins í slúður dagsins. Njótið. 

519.þáttur. Mín skoðun. 02032022 02.03.2022

519.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um blikaliðið í fótbolta og einnig um Lengjubikar karla og kvenna. Við spjöllum um enska bikarinn en Tottenham féll úr leik í gær. Ítalski bikarinn er til umræðu, Tyrkland - Ísland í handbolta kvenna, Abramovich eigandi Chelsea og margt margt fleira. Njótið.

518.þáttur. Mín skoðun. 01032022 01.03.2022

518.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um ástandið í íþróttunum vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Afleiðingarnar fyrir íþróttafólk í Rússlandi og fleira til. Lengjubikarinn er til umræðu, æfingaaðstaða yngri flokka í Kórnum þar sem bumbuboltinn fær að vera inni á meðan yngri flokkar æfa úti á sama tíma. FA-Cup, ítalski bikarinn og svo Krummasaga ofan af skaga. Njótið....

517.þáttur.Mín skoðun. 28022022 28.02.2022

517.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag förum ég og Þórhallur Dan um víðan völl. KSÍ og nýr formaður. Ný stjórn og hvað ætlar KSÍ að gera varðandi Rússland? Enski boltinn og VAR og að sjálfsögðu bikarmeistarar Liverpool, íslenski boltinn er tekinn fyrir, körfuboltalandsliðið okkar og svo Ómar Ingi Magnússon töframaður. Njótið.

516.þáttur. Mín skoðun. 25022022 25.02.2022

516.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag heyri í tveimur aðilum. Fyrst í Þórhalli Dan og við tölum um KSÍ-stjórnarkjörið. Hver verður næsti formaður? Það var dregið í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar í morgun, körfubolti og handbolti, pistill Jóns Rúnars inná Fótbolta.net og pistill Barkar Edvardssonar formanns Vals eru til umræðu og margt fleira. Síðan heyri ég í Benedikt Guðmundssyni þjálfara...

Listen to the Mín skoðun podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.