Valtýr Björn

Mín skoðun

Sports EN ↓ 999 episodes

Podcast með Valtý Birni

Author

Valtýr Björn

Category

Sports

Podcast website

valtyrbjorn.podbean.com

Latest episode

Jul 3, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

565.þáttur. Mín skoðun 10052022 10.05.2022

565.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Besta deild kvenna og úrslitakeppni kvenna í handbolta eru til umræðu í dag ásamt að sjálfsögðu körfuboltanum. Enski boltinn og Erling Haaland. Hvað fær hann í laun hjá City? Það er enn verið að spila í Boganum á Akureyri og meiðslalistinn lengist. Afhverju er KSÍ að leyfa leiki þarna? Þetta og margt fleira er til umfjöllunar í dag. Njótið. 

564.þáttur. Mín skoðun 09052022 09.05.2022

564.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag spjöllum við Þórhallur Dan um ýmislegt að vanda. Ítalski og enski boltinn, Besta deildin, Lengjudeildin, dómaramál, úrslitakeppnin í handbolta og körfubolta, og svo aðeins að þessu undarlega liði Man. Utd. Þetta og margt fleira. Njótið. 

563.þáttur. Mín skoðun 06052022 06.05.2022

563.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ingi Þór Steinþórsson aðst.þj. Stjörnunnar í körfubolta spáir í úrslitaeinvígi Vals og Tindastóls og Gunnar Gunnarsson þjálfari kvennaliðs Hauka í handbolta spáir í undanúrslitaleikina í kvennahandboltanum. Þórhallur Dan er svo á línunni og við spjöllum um evrópuboltann. Besta deildin er um helgina, Lengjudeildin, enski boltinn og sá ítalski ásamt því að við ræ...

562.þáttur. Mín skoðun 05052022 05.05.2022

562.þáttur. Mín skoðun Ég og Þórhallur Dan spjöllum um margt í dag. Meistaradeildin í gær, Evrópudeildin og Sambandsdeildin í kvöld. Úrslitakeppnin í handbolta, Besta deild kvenna. Lengjudeild byrjar í kvöld og Þórhallur Dan spáir fyrir sumarið, hverjir falla og hverjir fara upp? Krummasögur eru í dag en þær tengjast Víkingi Ól. og FH. Njótið.

561.þáttur. Mín skoðun. 04052022 04.05.2022

561.þáttur. Mín skoðun. Í dag hringi ég í Andra Stein Birgisson og við spáum í Lengjudeildina sem hefst á morgun. Andri Steinn kemur með sína spá og fleiri mola. Þórhallur Dan er svo á línunni og við ræðum um Liverpool, meistaradeildina, Real Madrid og Man. City og svo um leik Víkings og Stjörnunnar þar sem ummæli Tómasar Þórs um Víking eru rædd og fleira til. Njótið.

560.þáttur. Mín skoðun. 03052022 03.05.2022

560.þáttur. Mín skoðun. Í dag förum ég og Þórhallur Dan yfir sportið. Besta deildin er tekin fyrir eftir leiki gærdagsins, úrslitakeppnin í handbolta og úrslitakeppnin í körfubolta. Villarreal-Liverpool í meistaradeildinni og enski boltinn ásamt fréttum og slúðri. Njótið.

559.þáttur. Mín skoðun. 02052022 02.05.2022

559.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag förum við Þórhallur Dan um víðan völl. Njárðvík íslandsmeistari í körfubolta og Tindastóll og Valur mætast í úrslitum karlameginn. Úrslitakeppnin í handbolta er tekin fyrir og svo að sjálfsögðu Besta deildin í fótbolta ásamt enska boltanum, ítalska og mörgu fleiru. Njótið. 

558.þáttur. Mín skoðun. 29042022 29.04.2022

558.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan ræðum um ýmislegt í dag. Úrslitakeppnin í handbolta og körfubolta karla og kvenna. Besta deild karla er á sínum stað, evrópuboltinn, enski boltinn og sá ítalski. Þetta og svo margt fleira í þætti dagsins. Góða helgi. 

557.þáttur. Mín skoðun. 28042022 28.04.2022

557.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag förum ég Þórhallur Dan um víðan völl. Mino Raiola umboðsmaður er til umfjöllunar, Mjólkurbikarinn, Liverpool-Villarreal, Evrópudeildin, Sambandsdeildin, enski boltinn, úrslitakeppnin í handbolta og körfubolta og svo umræða um rasisma. Njótið dagsins. 

556.þáttur. Mín skoðun. 27042022 27.04.2022

556.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Ég og Þórhallur Dan ræðum um ýmislegt í dag. Man. City og Real Madrid kenndu fólki í gær hvernig á að spila fótbolta. Við ræðum um leikinn sem og Bestu deild kvenna, úrslitakeppnina í körfubolta og úrslitakeppnina í handbolta. Verða Juventus, R.Madrid og Barcelona bönnuð frá keppnum á vegum UEFA? Þetta og margt fleira. 

555.þáttur. Mín skoðun. 26042022 26.04.2022

555.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um íslenska boltann, karla og kvenna. Leiki gærkvöldsins, og leiki kvöldsins. Meistaradeildin er til umfjöllunar en Man. City og R.Madrid mætast í kvöld, handboltinn er á sínum stað og svo körfuboltinn. Þetta og margt fleira. Njótið

554.þáttur. Mín skoðun. 25042022 25.04.2022

554.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag heyri í í tveimur mönnum. Þórhallur Dan spjallar við mig um handboltann hér innalands, körfuboltann og svo Bestu deildina í fótbolta. Við förum aðeins í enska boltann og svo einnig í þann ítalska og fleira til. Þóroddur Hjaltalín er svo á línunni um dómaramál og við förum yfir áherslur dómgæslunnar í sumar og fleira. Njótið.

553.þáttur. Mín skoðun. 22042022 22.04.2022

553.þáttur. Mín skoðun.  Heil og sæl. Það er nóg um að vera í dag. Þórhallur Dan spáir í spilin í Bestu deildinni og enska boltanum og einnig um stöðuna hjá FH varðandi Eggert Gunnþór.  Arnar Daði þjálfari Gróttu í handbolta spáir í úrslitakeppnina sem nú stendur yfir og Ingi Þór aðstoðarþjálfari Stjörnunnar í körfubolta spáir í úrslitakeppnina í körfubolta. Sem sagt nóg um að vera og gleðilegt su...

552.þáttur. Mín skoðun. 20042022 20.04.2022

552.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan spjöllum um margt í dag. Við byrjum á Bestu deild karla. Síðan er það Liverpool-Man. Utd og enski boltinn í kvöld. Úrslitakeppnin í körfubolta er tekin fyrir og svo handbolti kvenna þar sem Ísland mætir Svíþjóð í kvöld. Þetta og margt margt fleira. Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn kæru yndislegu hlustendur.. 

551.þáttur. Mín skoðun. 19042022 19.04.2022

551.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan förum um víðan völl í dag. Besta deildin byrjaði í gær og við förum yfir það sem og umræðu í kringum leikinn sem fór fram á twitter um Eggert Gunnþór leikmann FH. Valur er meistari meistaranna í kvennaboltanum. Ísland pakkaði Austurríki saman í umspili fyrir HM í handbolta og við ræðum um Liverpool-Man. Utd. sem er í kvöld. Þetta og margt fl...

550.þáttur. Mín skoðun. 18042022 18.04.2022

550.þáttur. Mín skoðun.  Heil og sæl. Í dag spáum við í spilin fyrir Bestu deild karla sem hefst í dag. Andri Steinn Birgisson, Óli Stefán Flóventsson og Þórhallur Dan spá í deildina í sumar og raða liðunum í sætin 1-12. Hverjir verða meistarar og hverjir falla? Njótið

549.þáttur. Mín skoðun. 13042022 13.04.2022

549.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag er nóg um að vera. Ég og Þórhallur Dan tölum um meistaradeildina, evrópudeildina, íslenska kvennalandsliðið í fótbolta sem vann tékka í gær. GEGGJAÐ. Úrslitakeppnin í körfubolta er til umfjöllunar, og Tóti Dan spáir kemur með sína spá í Bestu deild karla. Hún er athyglisverð. Þá heyri ég í Sigga Sveins en Ísland mætir Austurríki í dag í fyrri leik liðanna...

548.þáttur. Mín skoðun. 12042022 12.04.2022

548.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan höfum um ýmislegt að spjalla í dag. Úrslitakeppnin í körfubolta, meistaradeildin í fótbolta, íslenska kvennalandsliðið sem mætir tékkum í dag. Er Kolbeinn Sigþórsson að hætta í fótbolta? Þetta og margt margt fleira. Njótið.

547.þáttur. Mín skoðun. 11042022 11.04.2022

547.þáttur. Mín skoðun. Það er nóg um að tala hjá mér og Þórhalli Dan í dag. Víkingur er meistari meistaranna. Enski boltinn og ófarir Man. Utd. Stórleikur Man. City og Liverpool er til umfjöllunar. Tvö bestu lið heims? Olísdeild karla, úrslitakeppnin í körfubolta karla og kvenna og margt fleira. Njótið.

546.þáttur. Mín skoðun. 08042022 08.04.2022

546.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag förum ég og Þórhallur Dan um víðan völl. Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta, Evrópukeppni félagsliða í gær, enski boltinn um helgina og stórleikur Man. City og Liverpool. The Masters er til umfjöllunar, Subwaydeildir karla og kvenna og svo Víkingur-Breiðablik sem mætast á sunnudag í Meistarar Meistaranna. Þetta og margt fleira. Njótið og takk fyrir að h...

545.þáttur. Mín skoðun. 07042022 07.04.2022

545.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag hringi ég til Noregs. Halldór Stefán Haraldsson er þjálfari kvennaliðs Volda í handbolta og hann var að ná þeim ótrúlega árangri að koma línu í efstu deild í Noregi. Því næst heyri ég í Þórhalli Dan og við tölum meistaradeildina í fótbolta í gær, enska boltann og Eric Ten Hag. Íslenska kvennalandsliðið mætir Hvíta-Rússlandi í undakeppni HM í dag. Subwayde...

544.þáttur. Mín skoðun. 06042022 06.04.2022

544.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan komum víða við í dag. Meistaradeildin í fótbolta í gær og í kvöld er tekin fyrir. Enski boltinn, Subwaydeildin í körfubolta karla, Tiger Woods og The Masters er til umfjöllunar, KSÍ, Paul Pogba og margt margt fleira. Njótið. 

543.þáttur. Mín skoðun. 05042022 05.04.2022

543.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag heyri ég í Magnúsi Val Böðvarssyni (Magga Bö), en hann er vallarstjóri hjá KR. Við ræðum um gras og gervigras. Verður KR-völlurinn tilbúinn 25.apríl? Og margt fleira. Þórhallur Dan er svo að sjálfsögðu á línunni. Við spjöllum um ítalska boltann, enska boltann, meistaradeildina, Subwaydeildina í körfubolta og margt margt fleira. Njótið. 

542.þáttur. Mín skoðun. 04042022 04.04.2022

542.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag förum ég og Þórhallur Dan um víðan völl. Við spjöllum um grasvelli og gervigrasvelli. Landslið karla í fótbolta er tekið fyrir. Pistill Sæbjörns Þórs Þórbergssonar Steinke inná fótbolti.net er tekinn fyrir. Enski boltinn, ítalski boltinn og VAR og fleira til. Njótið. 

541.þáttur. Mín skoðun. 01042022 01.04.2022

541.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag er nóg um að vera. Fyrst hringi ég í Benedikt Guðmundsson þjálfara Njarðvíkur í körfubolta en Njarðvík varð í gær deildarmeistari í Subwaydeildinni. Því næst heyri ég í Ólafi Kristjánssyni yfirmanni knattspyrnumála hjá Breiðabliki og að lokum er Guðjón Þórðarson þjálfari Víkings frá Ólafsvík í spjalli. Þórhallur Dan notaði 1.apríl til að skreppa til útlan...

Listen to the Mín skoðun podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.