menningarvaktin

Menningarvaktin

Society EN ↓ 17 episodes

Menningarvaktin er nýtt hlaðvarp á Vísi þar sem Símon Birgisson fær til sín góða gesti og fer yfir stóru málin í menningarlífi landsins. Menningarvaktin er ómissandi fyrir þá sem vilja heyra um bestu leiksýningarnar, heitustu kvikmyndirnar og tónleikarýni - beint frá einvala hópi gagnrýnenda Vísis. Fylgstu með Menningarvaktinni frá byrjun - hér á Vísi og öllum helstu hlaðvarpsveitum. Við erum á vaktinni fyrir þig. 

Author

menningarvaktin

Category

Society

Podcast website

menningarvaktin.podbean.com

Latest episode

May 13, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Magnús Jochum, Valur Grettisson og Bubbi Morthens #16 13.05.2026

Blaðamennirnir Magnús Jochum og Valur Grettisson mættu til Símonar. Bubbi Morthens kom svo í skemmtilegt spjall um nýjustu plötuna sína.

Magnús Geir Þórðarson #15 07.05.2026

Menningarvaktin er hlaðvarp um allt það helsta í íslenskri menningu. Í þætti #15 fær Símon Birgisson til sín Magnús Geir Þórðarson, Þjóðleikhússtjóra. Farið verður yfir hvað gerðist bak við tjöldin á leikvetrinum sem nú er að klárast en óhætt er að segja Þjóðleikhúsið hafi átt sýningar í ár sem hafa bæði vakið athygli og umtal. Óresteia sló í gegn hjá gagnrýnendum og áhorfendum og Ormstunga sannað...

Egill Heiðar Anton Pálsson #14 30.04.2026

Menningarvaktin er hlaðvarp um allt það helsta í íslenskri menningu. Í þætti #14 fær Símon Birgisson til sín Egil Heiðar Anton Pálsson, borgarleikhússtjóra. Farið verður yfir hvað gerðist bak við tjöldin á leikvetrinum sem nú er að klárast en Egill var skipaður borgarleikhússtjóri síðasta vor og er þetta því fyrsta leikárið hans í þessu hlutverki; sýningar á borð við Moulin Rouge sem sló í gegn og...

Valur Grettisson, Magnús Jochum og Ómar Úlfur #13 16.04.2026

Magnús Jochum Pálsson og Valur Grettisson fóru yfir sviðið og Ómar Úlfur mætti á plötuvaktina.

Magnús Jochum, Valur Grettisson og Trausti Júlíusson #12 27.03.2026

Símon, Magnús Jochum og Valur fara um víðan völl. Í lok þáttar mætir Trausti Júlíusson og rýnir í nýútgefna jazzplötu.

Jónas Sen og Finnur Bjarnason #11 13.03.2026

Velkomin á Menningarvaktina á Vísi. Hlaðvarp um allt það helsta í íslenskri menningu. Ég heiti Símon Birgisson og skrifa um leiklist á Vísi og hjá mér eru gestir þáttarins í dag - Jónas Sen tónlistargagnrýnandi Vísis og Finnur Bjarnason óperusöngvari og nýráðinn Óperustjóri. Tónlistin er undir nálinni hjá okkur í dag. á Finnur Bjarnason mun sitja fyrir svörum okkar á Menningarvaktina um hina nýju...

Magnús Jochum, Valur Grettisson og Trausti Júlíusson #10 26.02.2026

Nýjar íslenskar kvikmyndir verða í aðalhlutverki í þessum þætti. Menningarvaktin skellti sér á frumsýningu stórmyndarinnar Röskun en framleiðendur myndarinnar hafa bent á að þetta sé eina íslenska kvikmyndin fullfjármagnaða íslenska kvikmyndin á árinu. Röskun var hins vegar ekki eina íslenska kvikmyndin frumsýnd í vikunni - Menningarvaktin skellti sér í Bíó Paradís á myndina Dimmalimm - Returning...

Sigríður Jónsdóttir, Valur Grettisson og Ómar Úlfur #9 13.02.2026

Gestir Menningarvaktarinnar eru Sigríður Jónsdóttir, leiklistargagrýnandi og sérfræðingur leikminjasafns Íslands, Valur Grettisson blaðamaður og Ómar Úlfur Eyþórsdóttir útvarpsmaður. Í þættinum er fjallað um leiksýningarnar Ekki hugmynd í Borgarleikhúsinu og Bústaðinn í Tjarnarbíó. Við ræðum einnig hvaða lærdóm Þjóðleikhúsið getur dregið af velgengni Ormstungu og Óresteiu. Í seinni hluta þáttarins...

Magnús Jochum og Jónas Sen #8 30.01.2026

Gagnrýnendur Vísis þeir Magnús Jochum Pálsson og Jónas Sen voru gestir Símonar í Menningarvaktinni.

Katla Ársælsdóttir og Valur Grettisson #7 15.01.2026

Í nýjasta þætti Menningarvaktarinnar fóru gestir Símonar Birgissonar - þau Katla Ársælsdóttir og Valur Grettisson yfir bestu og verstu sýningar ársins 2025.

Sólveig Arnarsdóttir - hátíðarviðtal #6 22.12.2025

Leikkonan Sólveig Arnarsdóttir settist niður með Símoni Birgissyni og ræddi um ferilinn og lífið. 

Kolbrún Bergþórsdóttir, Jakob Bjarnar og Valur Grettisson #5 11.12.2025

Það er alvöru blaðamanna-tríó sem mætti í Menningarvaktina í þessari viku. Kolbrún Bergþórsdóttir, Jakob Bjarnar Grétarsson og Valur Grettisson ræddu menninguna í þaula. 

Sigurlaug Margrét Jónasdóttir og Magnús Jochum Pálsson #4 27.11.2025

Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, dagskrárgerðarkona á RÚV, og Magnús Jochum Pálsson, gagnrýnandi og blaðamaður, eru gestir Símonar Birgissonar þessa vikuna.

Jón Viðar Jónsson og Valur Grettisson #3 13.11.2025

Jón Viðar Jónsson og Valur Grettisson settust niður með Símoni Birgissyni og ræddu meðal annars um um Hamlet í Borgarleikhúsinu og Jónsmessunæturdraum í Tjarnarbíói.

Magnús Jochum og Valur Grettisson #2 31.10.2025

Blaðamennirnir Magnús Jochum Pálsson og Valur Grettisson settust niður með Símoni Birgissyni og fóru yfir það helsta á Menningarvaktinni. 

Jónas Sen og Valur Grettisson #1 16.10.2025

Í fyrsta þætti Menningarvaktarinnar fær Símon Birgisson þá Val Grettisson blaðamann og Jónas Sen tónlistargagnrýnanda Vísis í heimsókn. Stóru leikhúsin hafa sýnt spilin og rætt verður um fyrstu sýningar vetrarins - hvað hefur floppað og hvað hefur slegið í gegn? Menningarvaktin skellti sér svo á íslensku stórmyndina Eldarnir til að svara stóru spurningunni - er loksins komin alvöru íslensk stórsly...

Menningarvaktin - Kynning 14.10.2025

Menningarvaktin er nýtt hlaðvarp á Vísi þar sem Símon Birgisson fær til sín góða gesti og fer yfir stóru málin í menningarlífi landsins. Menningarvaktin er ómissandi fyrir þá sem vilja heyra um bestu leiksýningarnar, heitustu kvikmyndirnar og tónleikarýni - beint frá einvala hópi gagnrýnenda Vísis. Fylgstu með Menningarvaktinni frá byrjun - hér á Vísi og öllum helstu hlaðvarpsveitum. Við erum á va...

Listen to the Menningarvaktin podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.