RÚV Hlaðvörp
Meðal fólks
Pétur Magnússon hittir fólk þar sem það er statt. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Fyrir fótboltaleik 19.06.2026 51:27
Hvað þarf til að halda stærsta fótboltaleik sumarsins? Við mætum á Víkingsvöll og verjum tíma með sjálfboðaliðum Víkings á meðan þeir undirbúa toppslag við erkifjendurna í Knattspyrnufélagi Reykjavíkur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Bjór 12.06.2026 57:47
Einhvern tímann á síðasta áratug varð breyting á því hvernig við drekkum bjór. Handverksbrugghús opnuðu um land allt sem brugguðu flókna, krefjandi, stundum skrítna bjóra. Svo varð önnur breyting. Hvað gerðist? Í dag heimsækjum við handverksbrugghús og ræðum við bruggmeistara og bjórsagnfræðing og köfum ofan í bjór- og drykkjumenningu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tilraunastöðin 05.06.2026 56:35
Sumarexem, sýklalyfjaónæmi, smitsjúkdómar í fiskeldum. Í dag heimsækjum við Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum og kynnum okkur rannsóknirnar sem fara þar fram. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Veiruheimur 29.05.2026 52:49
„Þetta er veiruheimur sem við búum í, ekki öfugt,“ segir Zarko Urosevic, náttúrufræðingur sem starfar við veirurannsóknir á Landspítala. Í dag fræðumst við um veirur og komumst að því hvort veirur geti verið góðar, hvaða áhrif Covid hafði á veirurannsóknir og hvort við séum tilbúin undir næsta veirufaraldur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Allra meina bót 22.05.2026 55:13
Ættu læknar að skrifa upp á list til að lækna sjúkdóma? Erum við ekki að horfa nógu lengi á hlutina í kringum okkur? Þetta er spurningar sem fyrstu útskriftarnemar af námsbrautinni Listir og velferð við Listaháskóla Íslands varpa fram í sínum lokaverkefnum. Í maí eru haldnir fjölmargir viðburðir þar sem útskrifarnemar verja og kynna lokaverkefnin sín, og við mætum á einn þeirra til að læra meira u...
Þar sem sólin skín ekki 09.05.2026 56:07
Dagsbirta er mikilvæg. Engu að síður byggjum við stundum rými þar sem hana skortir. Í dag heimsækjum við Hlíðarendahverfið í Reykjavík ásamt Páli Jakobi Líndal og ræðum við Önnu Sigríði Jóhannsdóttur, arkíktekt og sérfræðing í dagsbirtu í byggðu umhverfi Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Labbið 04.05.2026 54:51
Hvernig lyktar E.coli? Hvernig finnur þú ávaxtaflugumeyjar? Hvers vegna hvílir leynd yfir starfsemi músarannsóknarstofa? Í dag fylgjum við Valgerði Jakobínu Hjaltalín, nýdoktor við Háskóla Íslands, í gegnum þrjár mismunandi rannsóknarstofur þar sem rannsóknir eru gerðar á lífverum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Kokteilar og barmenning 24.04.2026 58:28
Í dag köfum við dýpra ofan íslenska barmenningu og rekjum sögu handverkskokteilgerðar í Reykjavík til fyrsta barþjónsins á Slippbarnum. Við ræðum við Teit Riddermann Schiöth, forseta barþjónaklúbbs Íslands, Leó Snæfeld, íslandsmeistara í kokteilgerð, og Ásgeir Má Björnsson, kokteilbarþjón. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Íslandsmeistaramót barþjóna 17.04.2026 56:35
Á hverju ári eru haldnar fjölmargar barþjónakeppnir, þar sem barþjónar búa til upprunalegan kokteil, hella upp á og framreiða hann eftir öllum kúnstarinnar reglum. Stærsta keppni ársins hér á landi er Íslandsmeistaramót barþjóna, sem haldin er á Reykjavík Cocktail Week að vori. Björg Elva Friðfinnsdóttir, barþjónn á Geira Smart, er meðal keppenda í ár og við fylgjum henni eftir á meðan hún undirbý...
Arkítektúrkennararnir 10.04.2026 53:44
Við erum ennþá í arkítektúrdeild Listaháskóla Íslands. Í síðasta þætti vörðum tíma með nemendum. Í dag heyrum við í kennurunum. Hvernig takast kennarar í eina arkítektúrskóla landsins á við ábyrgðina að kenna arkítektum framtíðinnar að hugsa um arkítektúr. Eru tengsl milli akademíunnar og raunheimsins? Er LHÍ búbbla? Viðmælendur eru: Auður Atladóttir Elísabet Auður Guðnadóttir Þuríður Guðrún Pétur...
Arkítektúrnemarnir 27.03.2026 56:04
Er byggða umhverfið okkar ljótt? Hvernig lætur það okkur líða? Hvers vegna virðist fólk svona ósátt með nýbyggingar? Til að svara þessum spurningum leitum við á stað þar sem fólk hugsar mikið og gagnrýnið um arkítektúr: Arkítektúrdeild Listaháskóla Íslands. Við verjum deginum með fimm fimmta árs nemum í arkítektúr sem eru að keppast við að klára meistaraverkefnið sitt. Við ræðum við Evu Lind Elías...
Dragfjölskyldutengsl 20.03.2026 56:56
Í þættinum verjum við tíma með dragdrottningunum Lolu von Heart og Chardonnay Bublée á meðan þær undirbúa dragsýninguna House of Heart á skemmtistaðnum Kiki, fræðumst um þetta áhugaverða listform og kynnumst dragsenunni í Reykjavík. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Bílaumboð og geópólitík 13.03.2026 57:00
Af hverju myndu alþjóðleg glæpasamtök gera stórfellda tölvuárás á íslenskt bílaumboð? Til að svara þessari spurningu heimsækjum við Brimborg, framkvæmum ferilsrannsókn á tölvuárás á ónefnt íslenskt fyrirtæki og fræðumst um hópana sem standa að baki aðferðunum sem eru að gjörbreyta hinu geópólitíska landslagi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Frúin 06.03.2026 54:41
Skjólstæðingar Frú Ragnheiðar nota vímuefni í æð, sumir eru heimilislausir, allir í mjög viðkvæmri stöðu. Við förum á vakt í Frúnni, bíl Frú Ragnheiðar sem keyrir um höfuðborgarsvæðið og veitir heilbrigðisþjónustu, nálaskipti og sálfélagslegan stuðning, og ræðum við sjálfboðaliðana og fólkið sem leitar í Frúnna. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Fjórar klukkustundir og fimmtán mínútur á skilunardeild Landspítala 27.02.2026 57:48
Í dag stöndum við vaktina á skilunardeild Landspítala. Þetta er svolítið sérstök deild, lítið þekkt nema meðal þeirra sem tengjast henni með beinum hætti. Skjólstæðingar skilunardeildar verja hér miklum tíma og dvölin hefur oft víðtæk áhrif á líf þeirra. Við ræðum við starfsfólkið á deildinni og fólkið sem ver fjórum klukkustundum og fimmtán mínútum tengt við blóðskilunarvélar. Hosted on Acast. Se...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.