Matís

Matvælið

Science EN ↓ 13 episodes

Í matvælinu er fjallað um nýsköpun og rannsóknir í matvælaframleiðslu. Matvísindafólk Matís fær hér tækifæri til að tala tæpitungulaust um spennandi og mikilvægar matvælarannsóknir sem stuðla að auknu matvælaöryggi og bættri lýðheilsu.

Author

Matís

Category

Science

Podcast website

matvaelid.captivate.fm

Latest episode

Sep 26, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Sjálfbærari fiskveiðar og verndun vistkerfa 26.09.2025

Haraldur Arnar Einarsson, sérfræðingur á Hafrannsóknastofnun og Sveinn Margeirsson, framkvæmdastjóri nýsköpunar og loftlagsmála hjá Brim komu til okkar í Matvælið og ræddu meðal annars hafrannsóknir, sjálfbærar fiskveiðar, verndun vistkerfa og aðlögunarhæfni í sjávarútvegi. MarineGuardian verkefnið hefur það að markmiði að efla sjálfbærar fiskveiðar og stuðla að verndun sjávarvistkerfa í Atlantsha...

,,Við getum haldið áfram að segja að íslenskt lambakjöt sé best" 16.08.2024

Hafliði Halldórsson, framkvæmdastjóri markaðsstofunnar Íslenskt lambakjöt og Óli Þór Hilmarsson verkefnastjóri hjá Matís eru viðmælendur í Matvælinu að þessu sinni en fyrr á árinu luku þeir vinnu við rannsókn á nýtingarhlutfalli og efnainnihaldi lambakjöts og aukaafurða. Verkefnið var unnið af Matís og markaðsstofunni Íslenskt lambakjöt í nánu samstarfi við afurðastöðvar bæði á norður- og suðurlan...

Plastrannsóknir - ,,Það þurfa öll lönd að gyrða sig í brók, fara að mæla þetta og segja stopp!" 27.06.2024

Sophie Jensen, verkefnastjóri í faghópi Matís sem fæst við lífefni, hefur unnið að flestum plasttengdum verkefnum sem unnin hafa verið hjá fyrirtækinu. Hún er algjör viskubrunnur í málum sem tengjast plastvandanum í samfélaginu, umhverfisvænum lausnum þegar kemur að pökkunarefnum fyrir matvæli, leiðum til að minnka plast á heimilum og áhrifum plasts á fólk. Þessi þáttur er sérlega fróðlegur og fja...

„Þetta eru eiginlega faðernispróf". Erfðagreiningar á eldislaxi á Íslandi 25.01.2024

Sæmundur Sveinsson er fagstjóri erfða hjá Matís og í þessum þætti af Matvælinu ræðir hann um erfðagreiningar á laxi og verkefni þeim tengdum Í þættinum fer hann yfir lífsferil íslenska laxins og erfðafjölbreytileika hans eftir vatnasvæðum, erfðagreiningar á strokulöxum úr sjókvíaeldi og erfðagreiningar á laxi fyrir svokallaða fiskrækt svo eitthvað sé nefnt. Sæmundi er lagið að fjalla um þessi mál...

Betri nýting hliðarhráefna - „þetta er ekki bara eitthvað drasl sem við þurfum að díla við" 11.01.2024

Hildur Inga Sveinsdóttir, verkefnastjóri hjá Matís er viðmælandi að þessu sinni. Hún fjallar um verðmætin sem leynast í hráefnum sem við getum fengið út úr matvælavinnslu en eru þó ekki aðal efnið sem við erum að vinna með; svokölluð hliðarhráefni. Allt þetta tengir hún við evrópska samstarfsverkefnið Accelwater sem hún vinnur að um þessar mundir. Ísland hefur lengi verið framarlega í nýtingu hlið...

Íslenskar búfjártegundir - erfðagreiningar og kynbótstarf 21.12.2023

Sæmundur Sveinsson, fagstjóri erfða hjá Matís er viðmælandi í þessum þætti af Matvælinu og hann fjallar um erfðarannsóknir og kynbætur á íslenskum búfjártegundum á þann hátt að öll geta skilið og haldið athyglinni vel! Á Íslandi eru sumir búfjárstofnar séríslenskir á meðan aðrir eru innfluttir. Nautgripir, hestar, sauðfé og geitur eru alfarið af íslenskum stofnum og það felur í sér að íslenskir að...

Verkaður hákarl - þjóðarréttur íslendinga? 14.12.2023

Snorri Páll Ólason vann að rannsóknum á hákarlsverkun, kæsingu og þurrkun, í meistaraverkefni sínu sem hann vann hjá Matís í samstarfi við Bjarnarhöfn ferðaþjónustu, stærsta framleiðanda á kæstum hákarli á Íslandi með styrk frá Matvælasjóði. Spjallið við Snorra er fróðlegt og skemmtilegt þar sem hann fer til dæmis yfir menninguna í kringum hákarlsát, vísindin sem liggja að baki því að verkun á hák...

ÍSGEM: Upplýsingaveita um innihaldsefni matvæla 22.11.2023

Ólafur Reykdal og Eydís Ylfa Erlendsdóttir eru sérfræðingar í Íslenska gagnagrunninum um efnainnihald matvæla: ÍSGEM. Þau eru viðmælendur í þessum þætti af Matvælinu, hlaðvarpi Matís um rannsóknir og nýsköpun í matvælaframleiðslu. Í þættinum ræða þau um sögu ÍSGEM og tilgang gagnagrunnsins en sögu hans má rekja aftur til ársins 1987 þegar næringarefni ýmissa matvæla voru skráð í fyrsta skipti á Ís...

Við erum að reyna að nota fólk eins og mælitæki... en fólk er ekki mælitæki - Skynmat Matís 10.11.2023

Aðalheiður Ólafsdóttir, skynmatsstjóri Matís er viðmælandi í nýjum þætti af Matvælinu, hlaðvarpi Matís um rannsóknir og nýsköpun í matvælaframleiðslu. Hún ræddi allt það sem í skynmatinu felst, af hverju það er mikilvægt og fyrir hver. Hún sagði auk þess sögur af þeim fjölbreyttu verkefnum sem hún hefur fengist við sem skynmatsstjóri, allt frá því að meta mýkt og lykt af andlitskremi yfir í að met...

Saltfiskur fyrr og nú! 07.02.2023

Kolbrún Sveinsdóttir verkefnastjóri hjá Matís er gestur í Matvælinu, hlaðvarpsþætti Matís. Farið er um víðan völl þegar kemur að saltfisk, sögu hans og menningu.

Skítamix! Sjálfbær áburðarframleiðsla 23.11.2022

Jónas Baldursson verkefnastjóri hjá Matís og Eva Margrét Jónudóttir sérfræðingur hjá Matís ræða hér verkefnið Sjálfbær áburðarframleiðsla, heildstæð nálgun á hringrásarhagkerfið. Rætt er um næringarefni áburðar, frumniðurstöður tilrauna og hvort að verkefnið hefði í raun átt að heita Skítamix.  Farið er yfir sjálfbærni ferla með því að nýta aukaafurði úr ýmsum iðnaði, meðal annars moltu, kjöt...

Erfðabreytingar á örverum 09.08.2022

Gestir hlaðvarpsþáttarins Matvælið að þessu sinni eru þeir Björn Þór Aðalsteinsson, verkefnastjóri hjá Matís og Tryggvi Stefánsson, aðstoðarframkvæmdarstjóri hjá Algalíf. Í þættinum fara þeir yfir markaðsleg og rannsóknarleg sjónarmið í tengslum við erfðabreytingar á örverum.

Gæði og eiginleikar hrossakjöts 08.07.2022

Matvælafræðingurinn Eva Margrét Jónudóttir hefur rannsakað gæði og eiginleika hrossakjöts í nokkur ár. Hún segir frá helstu niðurstöðum og viðhorfi neytenda til hrossakjöts.

Listen to the Matvælið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.