RÚV
Mannlegi þátturinn
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.netfang: mannlegi@ruv.isUmsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Útkallsbækurnar í 30 ár og Napóleon 09.11.2023 50:00
Útkallsbækur Óttars Sveinssonar hafa verið gríðarlega vinsælar í næstum þrjá áratugi. Fyrsta bókin kom út árið 1994 og þrítugasta bókin, Útkall - Mayday - erum að sökkva! var að koma út. Bækurnar segja sannar sögur úr íslenskum raunveruleika og miðað við móttökurnar þá hafa þær hitt beint í mark hjá íslenskum lesendum, auk þess að hafa verið einnig gefnar út í Bandaríkjunum, Þýskalandi, Danmörku o...
Tónlist og heilabilun, upphrópunarmerkið og og póstkort 08.11.2023 54:01
Magnea Tómasdóttir söngkona hefur um árabil helgað sig tónlistarstörfum með eldra fólki og fólki sem er með heilabilunarsjúkdóm. Hún kennir námskeiðið Tónlist og heilabilun og býður upp á tónlistarnámskeið í Seiglunni hjá Alzheimersamtökunum og heldur námskeið hjá Mími fyrir starfsfólk hjúkrunarheimila og aðstandendur heilabilaðra um það hvernig hægt er að nota tónlist í umönnun fólks. Anna Sigríð...
Fjármál við starfslok, Hjartans mál og krónískar bólgur 07.11.2023 50:00
Lilja Lind Pálsdóttir, viðskipta- og hagfræðingur og sérfræðingur í lífeyrismálum, stýrir námskeiðinu Á tímamótum - fjármál við starfslok hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Markmið námskeiðsins er að aðstoða fólk við að undirbúa sig fyrir starfslok og þær breytingar sem verða eftir að störfum lýkur. Það er ýmislegt sem hafa ber í huga og mikilvægt er að skoða hvaða möguleikar eru í boði og hvað ber...
Hugleiðsla, rafmagnsvinkill og Jónína lesandinn 06.11.2023 50:00
Kulnun á vinnustöðum er ein stærsta áskorun atvinnulífsins í dag. Rannsóknir Prósent sýna að 10% starfsfólks upplifir mikla tilfinningalega örmögnun. Stress, álag og kvíði er í sífellt meira mæli að keyra fólk í þrot. Hofið er jafnvægissetur sem hjálpar vinnustöðum að bæta geðheilbrigði starfsfólks og standa til dæmis að hugleiðslu í streymi fyrir vinnustaði. Agnes Andrésdóttir, eigandi Hofsins, o...
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir föstudagsgestur 03.11.2023 50:00
Föstudagsgesturinn í Mannlega þættinu að þessu sinni var Akurnesingurinn Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir. Eva Laufey varð landsmönnum fyrst kunn sem matarbloggari, en svo hefur hún auðvitað skrifað matreiðslu- og bakstursbækur, hún hefur verið umsjónarmaður vinsælla sjónvarpsþátta, útvarpsþátta og nú síðast tók hún að sér starf markaðs- og upplifunarstjóra Hagkaups og situr jafnframt í framkvæmda...
Einmannaleiki, Covid í dag og börn sem eiga tvö heimili 02.11.2023 50:00
Það hefur komið fram í fjölmiðlum að einmanaleiki sé algengur meðal eldra fólks á Vesturlöndum og stundum er talað um faraldur. Ásgeir Rúnar Helgason sálfræðingur tekur undir að þetta sé faraldur og segir að skilgreining okkar á einsemd sé sú að hafa engan til að deilda með erfiðum tilfinningum. Á vefsíðunni www.lifdununa.is er að finna áhugavert viðtal við Ásgeir og hann kkom í þáttinn í dag. All...
Tjáknin, þarmaflóran og líf á öðrum hnöttum 01.11.2023 51:25
Í dag, þegar við eyðum flest öll miklum tíma, jafn vel of miklum tíma, á samfélagsmiðlum og þegar tölvupóstar og smáskilaboð eru stór hluti af samskiptum okkar þá er ein hlið á þeim samskiptum sem við gerðum tilraun til að skoða aðeins í þættinum í dag. Það eru lindistáknin, eða tjáknin, sem sagt það sem heitir Emoticons á ensku. Broskallarnir, þumalputtarnir, hjörtun og ótal fleiri. Það eru á fjó...
Heilaheill, Piparfólk og lægðin Ciarán 31.10.2023 50:00
Á sunnudaginn var alþjóðadagur heilablóðfallsins en um það bil 2 einstaklingar fá slag á dag hér á landi. Heilablóðfall, eða slag, er þriðja algengasta dánarorsökin í heiminum. Þórir Steingrímsson formaður Heilaheilla og Björn Logi Þórarinsson, lyf- og taugasérfræðingur á Taugadeild Landspítala, komu í þáttinn í dag og fræddu okkur frekar hvað beri að hafa í huga, orsök heilablóðfalls, stöðuna í þ...
Fjarnám, hrekkjavökuvinkill og Gísli lesandinn 30.10.2023 50:00
Stór Byggðaráðstefna, búsetuþing, verður haldin í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ 2.nóvember þar sem allar helstu kanónur þessa lands í byggðarannsóknum mæta, eins og það er orðað í fréttatilkynningu. Meðal þess sem verður talað um er aðgangur fólks að fjarnámi og jafnrétti til náms óháð búsetu. Líneik Anna Sævarsdóttir þingkona spjallaði við okkur í dag, en hennar erindi á ráðstefnunni fjallar um fj...
Föstudagsgesturinn Drífa Snædal, Matarspjallið Popp 27.10.2023 50:00
Drífa Snædal var föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni. Hún er talskona Stígamóta frá 1.mars síðastliðnum og fyrrverandi forseti ASÍ en hún var fyrsta konan til að gegna því starfi og tók við því 26.okt 2018. Drífa er fædd í Reykjavík en hefur einnig búið á Hellu og í Lundi í Svíþjóð. Við ræddum við hana um æskuna, unglingsárin og ýmislegt fleira. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var á sínu...
Táknmálstónleikar,Vox Feminae 30 ára og sundlaugarmenning 26.10.2023 50:00
Sérstakir táknmáls-tónleikar verða haldnir í Tjarnarbíói næstu helgi þar sem sviðsett verða ljóð á íslensku táknmáli og kannaðar verða nýjar slóðir í sviðslistum. Heyrnalausir og heyrandi sitja hlið við hlið á tónleikunum þar sem Döff ljóðlist og kórverk skapa áður óséðan samleik. Þau komu hingað Haukur Darri Hauksson og Elísabet Thea Kristjánsdóttir. . Í ár fagnar kvennakórinn Vox feminae 30 ára...
Heilsuspjall, Líf og dauði og póstkort frá Magnúsi 25.10.2023 50:00
Jóhanna Vilhjálmsdóttir fjölmiðlakona er mikil áhugamanneskja um heilsu og hefur um árabil sökkt sér niður í rannsóknir á heilsu og forvörnum gegn sjúkdómum og hún er einnig höfundur tveggja heilsubóka út hafa komið hér á landi undir heitinu Heilsubók Jóhönnu: Eiturefnin og plastið í daglegu lifi okkar og Heilsubók Jóhönnu: Matur, lífsstíll, sjúkdómar. Jóhanna verður hjá okkur annað slagið í vetur...
Betra líf með ADHD, Samtök ungra bænda og fuglaáhugi 24.10.2023 50:00
Október er alþjóðlegur vitundarmánuður fólks með ADHD og ADHD samtökin eiga að auki 35 ára afmæli í ár. Samtökin hafa minnst tímamótanna undir yfirskriftinni Betra líf með ADHD í 35 ár sem er einmitt yfirskrift alþjóðlegrar ráðstefnu á Grand Hótel 26. og 27. október sem haldin verður á vegum samtakanna. Gera má ráð fyrir að um það bil 20 þúsund Íslendingar séu með ADHD greint eða ógreint, börn og...
Yfir magnaravörður, kakóvinkill og Gunnar lesandinn 23.10.2023 50:00
Gunnar Árnason hljóðmaður er 5 faldur Edduverðlaunahafi og er með yfir 35 ára reynslu í sínu fagi. Nú vill hann deila þessari reynslu og kenna eftirvinnslu hljóðs í kvikmyndum og leiknu sjónvarpsefni. Hann byrjaði sem hljóðmaður á Hótel Sögu og færði sig svo hægt og rólega frá dansleikjum, tónleikum og leikhúsum fyrst yfir í auglýsingar og svo í sjónvarps- og kvikmyndagerð þar sem hann hefur starf...
Egill Helgason föstudagsgestur og hægeldað matarspjall 20.10.2023 50:00
Egill Helgason var föstudagsgesturinn okkar í dag. Hann hóf fjölmiðlaferil sinn sem blaðamaður í fréttablöðum á borð við Alþýðublaðið, Tímann og Helgarpóstinn og stundaði nám fjölmiðlafræði í alþjóðaskólanum Journalistes en Europe í París á árunum 1986-87. Egill hóf störf í sjónvarpi árið 1988, fyrst í sjónvarpsþáttunum Mannlega þættinum, sem fjölluðu um ýmsa þætti íslensks þjóðernis, síðar varð h...
Breytingaskeiðið og meðfæddir ónæmisgallar 19.10.2023 50:00
Í gær var alþjóðlegur dagur breytingaskeiðsins og bók ársins 2023 í Bretlandi er bókin Breytingaskeiðið jákvæður leiðarvísir að nýju upphafi. Höfundarnir eru þær Davina McCall og Naomi Potter. Davina er þekkt bresk sjónvarpskona og eldheit talskona aukinnar þjónustu fyrir konur á breytingaskeiðinu. Hún hefur gert tvo sjónvarpsþætti um þetta umfjöllunarefni: Sex, Myths and the Menopause og Sex, Min...
Dauðinn, Pabbastrákar og Bílar í lífi þjóðar 18.10.2023 50:00
Við heyrðum í Birni Þorlákssyni í dag, en út er komin bók eftir hann sem heitir Dauðinn. Í bókinni, sem tók fjögur ár að skrifa, fjallar Björn efnislega um dauðann og talar við fólk sem hefur tekist á við feigðina í ýmsum myndum, ræðir við dauðvona fólk og þá sem hafa misst ástvini og fléttar saman við rannsóknir og hugleiðingar. Við töluðum við Björn um bókina í dag. Svo fengum við pabbastráka í...
Skaðaminnkun, Ungleikhús og haustveðrið 17.10.2023 50:00
Helena Bragadóttir, geðhjúkrunarfræðingur, kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá erindi sem hún og Sigurður Örn Hektorsson munu flytja á ráðstefnu um fíknistefnu sem skipulögð er af RIKK, Rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum við HÍ og Rótinni. Erindið er um skaðaminnkun og heilbrigðisþjónustu í íslenskum fangelsum og við fengum Helenu til að segja okkur betur frá erindinu í þættinum, en ráðstefna...
Kennaradeild HA, skúringavinkill og Smári lesandi vikunnar 16.10.2023 50:00
30 ár eru síðan byrjað var að bjóða upp á kennaranám við Háskólann á Akureyri. Deildin hefur stækkað og þróast í takt við tímann og námsframboðið orðið fjölbreyttara. Til að segja okkur frá þessum tímamótum og almennt frá starfsemi Kennaradeildar HA kom til okkar Birna María Brattberg Svanbjörnsdóttir deildarforseti Kennaradeildarinnar. Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og í þett...
Anna Svava föstudagsgestur og nammispjall 13.10.2023 50:00
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikkonan, grínarinn og ísbúðareigandinn Anna Svava Knútsdóttir. Hún hefur leikið í fjölda kvikmynda- og sjónvarpsverkefna, t.d. gamanþáttunum Ligelglad, Verbúðinni og fjölda áramótaskaupa. Hún hefur verið talsvert mikið í uppistandi og stofnaði svo og rekur ísbúðina Valdísi ásamt manni sínum, Gylfa Þór Valdimarssyni. Við fórum með henni aftur í...
Ofbeldismenn, Tjútt og gigtardagurinn 12.10.2023 50:00
Ofbeldismenn á Íslandi verða til umræðu á ráðstefnu á vegum Stígamóta sem fer fram í dag á Hótel Hilton. Þar verður leitast við að svara spurningunum: Hverjir beita ofbeldi og af hverju? Hvernig er hægt að aðstoða menn við að hætta að beita ofbeldi? Og hvað er það í samfélaginu og menningunni sem viðheldur ofbeldi? Þær Drífa Snædal, talskona Stígamóta og Anna Þóra Kristinsdóttir ráðgjafi hjá Stíga...
Kristjana Arngrímsdóttir tónlistarkona og póstkort frá Magnúsi Einars 11.10.2023 50:00
Kristjana Arngrímsdóttir söngkona og tónlistarkona sem búsett er í Svarfaðardal er búin að gefa út glænýjan geisladisk með 10 frumsömdum lögum, flest samin við ljóð skáldkvenna. Við hittum Kristjönu á kaffihúsi í miðvænum á Akureyri og spjölluðum við hana um tónlistina og heima og geima. Við fengum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni og hann kemur víða við í póstkortinu að þessu sinni. Hann byrjar...
Aflið á Akureyri,Leiklistarskóli Akureyrar og Markaðsstofa Norðurlands 10.10.2023 50:00
Aflið eru samtök sem voru stofnuð á Akureyri árið 2002 í framhaldi af tilraunastarfsemi Stígamóta þar sem í ljós kom mikil þörf fyrir samtök af þessu tagi. Starfsemin byggir á forsendum þolenda kynferðislegs ofbeldis og/eða heimilisofbeldis. Frá upphafi hefur Aflið vaxið þó nokkuð, árið 2011 voru viðtöl 685 og árið 2018 náðu viðtöl ákveðnum toppi en þá voru þau 1460 talsins. Starfandi ráðgjafar hj...
Aðgengi að heyrn, heimsmálin í Vinkli dagsins og lesandi vikunnar 09.10.2023 50:00
"Aðgengi að heyrn" er yfirskrift ráðstefnu á vegum Heyrnarhjálpar sem haldinn verður 10.október. Áætlað er að heyrnarskertir á Íslandi séu um 20% af þjóðinni eða um 74.000. Eitt af því sem ómeðhöndluð heyrnarskerðing getur valdið er snemmbúin elliglöp, þunglyndi og félagsleg einangrun. Þessu vill Heyrnarhjálp breyta og vilja að heyrnarskertum standi til boða heyrnartæki og þjónusta án tilits til s...
Berglind Festival föstudagsgestur og sælusnakk 06.10.2023 50:00
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Berglind Pétursdóttir, eða Berglind Festival. Hún hefur vakið mikla athygli fyrir innkomur sínar í þáttunum Vikan með Gísla Marteini á föstudagskvöldum og nú síðasta föstudag, í fyrsta þætti vetrarins, sló hún í gegn þegar hún lýsti íslensku sumarkonunni, með hatt í ponsjói og kampavínsglas í hendi við laxveiðiá. Berglind er menntaður dansari en...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.