RÚV

Mannlegi þátturinn

Society IS ↓ 578 episodes

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.netfang: mannlegi@ruv.isUmsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Author

RÚV

Category

Society

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jun 26, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Bein útsending frá Ljósinu endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð 14.12.2023

Þátturinn var í beinni útsendingu frá Ljósinu á Langholtsveginum en Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. Í Ljósinu er lögð áhersla á að umhverfið sé styðjandi, að það sé heimilislegt, notalegt og að fólk finni að sé velkomið og allir eru jafn mikilvægir. Starfsemin byggir á hugmyndafræði iðjuþjálfunar, á þeirri sýn að það að hafa...

Styrktartónleikar fyrir Grindvík, Fyrir alla muni og Barbari Kvartett 13.12.2023

Næsta sunnudag verður á dagskrá sjónvrapsins sérstakur jólaþáttur af þáttunum vinsælu, Fyrir alla muni, en ný þáttaröð hefur göngu sína í febrúar. Í jólaþættinum bregða Sigurður Helgi Pálmason og Viktoría Hermannsdóttir sér í ferðalag og skoða sögu íslenskra jóla. Þau velta fyrir sér jólahefðum og hvers vegna við höldum jólin eins og við gerum. Sigurður Helgi kom í þáttinn í dag. Við fengum svo að...

Aðgengi í ferðaþjónustu, jól Kristínar Helgu og kuldaveðurspjall 12.12.2023

Við fræddumst í dag um verkefnið Gott aðgengi í ferðaþjónustu sem Ferðamálastofa stendur fyrir í samvinnu við Öryrkjabandalag Íslands, Sjálfsbjörgu og Mannvirkjastofnun. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni búa 15% mannkyns við einhvers konar fötlun. Og það er auðvitað alls ekki nógu gott ef stór hluti þess fólks getur ekki ferðast og skoðað það sem það vill vegna slæms aðgengis. Ásbjörn Bjö...

Samhjálp, vinkillinn og Ingi lesandi vikunnar 11.12.2023

Við fræddumst um starfsemi Samhjálpar í dag en þau samtök, eins og önnur góðgerðarsamtök, biðla til þjóðarinnar um að sýna náungakærleika og láta gott af sér leiða í jólamánuðinum. Samhjálp rekur kaffistofu fyrir heimilislausa og bágstadda, meðferðarstofnunina Hlaðgerðarkot og einnig áfangaheimili og nytjamarkað. En hvers konar hjálp kemur sér best? Edda Jónsdóttir framkvæmdastjóri Samhjálpar kom...

Hanna Birna föstudagsgestur og matarspjall um mola og puru 08.12.2023

Hanna Birna Kristjánsdóttir var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag. Hún er fyrrum innanríkisráðherra, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og borgarstjóri í Reykjavík. Eftir að hún sagði skilið við stjórnmálin hefur hún m.a. verið ráðgjafi á aðalskrifstofu UN Women í New York, verið formaður framkvæmdastjórnar Women Political Leaders (WPL) og verið í forsvari fyrir alþjóðlega ráðstefnu kvenleið...

Staða hinsegin eldra fólks, Anna Bergljót og örsögur ritlistarnema 07.12.2023

Í síðustu viku var fundur á vegum norrænu samtakanna NIKK, þar sem fjallað var um stöðu hinsegin eldra fólks á Norðurlöndunum og hvað væri hægt að gera til að bæta hana. Á fundinum voru kynntar tvær skýrslur um stöðuna og við fengum Þorbjörgu Þorvaldsdóttur, verkefnastjóri hjá Samtökunum '78 og Ragnhildi Sverrisdóttur, sem var fundarstjóri á norræna fundinum til þess að segja okkur frá því hvað ko...

Ásta frá Yogavin, örsögur um Óróa og póstkort frá Magnúsi 06.12.2023

Við getum lært að vingast við taugakerfið í amstri dagsins og þurfum kannski sérstaklega á því að halda nú í aðdraganda jólanna. Mjúkar yogahreyfingar, öndun, hugleiðsla og tónheilun geta hjálpað og við forvitnuðumst um hvernig við getum komið betra jafnvægi á taugakerfið með verkfærum sem hjálpa okkur að hafa betri stjórn á viðbrögðum og gjörðum. Ásta Arnardóttir frá Yogavin kom í heimsókn og ben...

Konukot og Glóð, jólin í Reykjavík og sykurspjall 05.12.2023

Við fræddumst um Konukot í dag, en Konukot er neyðarskýli fyrir húsnæðislausar konur í Reykjavík rekið af Rótinni samkvæmt þjónustusamningi við Reykjavíkurborg. Konum hefur verið að fjölga sem koma í Konukot og þær dvelja þar lengur en áður. Við fengum Halldóru R. Guðmundsdóttur framkvæmdastjóra Konukots til okkar til að segja okkur frá starfseminni og með henni kom Erling Jóhannesson gullsmiður s...

Kjaramál fatlaðs fólks, nytjahyggjuvinkill og Ingibjörg lesandinn 04.12.2023

Í gær, 3.desember var alþjóðadagur fólks með fötlun og á honum er kastljósinu beint að réttindabaráttu fólks með fötlun og mikilvægu framlagi þess breiða hóps í samfélaginu. Fólk með fötlun er um 15 prósent mannkyns samkvæmt skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, eða um 57 þúsund manns hér á landi. Í tilefni dagsins voru hvatningaverðlaun ÖBÍ veitt í gær og þau hlaut Bíó Paradís í þetta s...

Þorgeir Ástvaldsson föstudagsgestur og fullveldismatarspjall 01.12.2023

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Þorgeir Ástvaldsson, fjölmiðlamaðurinn, tónlistarmaðurinn og skemmtikrafturinn. Hann hóf sinn fjölmiðlaferil 1977 í útvarpsþættinum Popphornið hér á Rás 1, svo stýrði hann vinsælum sjónvarpsþætti, Skonrokki, og svo þegar Rás 2 tók til starfa var Þorgeir ráðinn forstöðumaður stöðvarinnar. Fyrsti útsendingardagur var auðvitað 1. desember 1983, því...

Sparnaður við úrvinnslu áfalla, Ásgarður handverkstæði og örsögur 30.11.2023

Í viðtali í þættinum í síðustu viku var vitnað í niðurstöður greiningar hagfræðings um það að grípa fyrr inn í erfiðar aðstæður barna og að aðstoða börn við að vinna úr áföllum og þann gríðarlega ávinning af því að gera það fyrir þjóðfélagið. Því með því verði hægt að spara gríðarlegan kostnað vegna fjölbreyttra afleiðinga áfallanna síðar meir fyrir heilbrigðis- og menntakerfið og í félagslegri þj...

Sorgartréið, þjóðdansar og þjóðbúningar og Höfuðdagur 29.11.2023

Jólahátíðin á auðvitað að vera hátíð ljóss og gleði, en fyrir þau sem syrgja ástvin getur þetta verið mjög kvíðvænlegur tími því lífið er breytt og hefðir með ástvini eru ekki lengur til staðar. Við fengum í dag Hrannar Má Ásgeirs Sigrúnarson, stjórnarformann Sorgarmiðstöðvar, og Gísla Álfgeirsson, stuðningsmann miðstöðvarinnar til að segja okkur frá sinni reynslu er þeir leituðu fyrst til miðstöð...

NÚ grunnskóli, Anna Rósa grasalæknir og veðurspjallið 28.11.2023

Við heyrum stöðugt fréttir af afleiðingum snalltækja og samfélagsmiðla á okkur og kannski ekki síst yngstu kynslóðirnar, sem þekkja ekki annan veruleika en að þessi tæki eru alls staðar í seilingarfjarlægð og allir eru alltaf sítengdir við netið. Þetta hefur auðvitað haft áhrif á til dæmis skólahald og því var áhugavert að kynnast aðeins NÚ grunnskólanum sem er í Hafnarfirði sem leggur mikla áhers...

Búseti 40 ára, þvottavélavinkill og Skúli lesandinn 27.11.2023

Byggingarfélagið Búseti fagnar 40 ára afmæli í ár, nákvæmlega var það í gær 26.nóvember. Slagorðið Barátta fyrir búsetu fylgdi félaginu í upphafi þegar húsnæðismál voru í upplausn. Páll Gunnlaugsson arkitekt sat í fyrstu stjórn Búseta og hefur einnig setið í formannstóli félagsins. Hann hefur nú skrifað bók um sögu félagsins en það var stofnað af áhuga og frumkvæða fjölda fólks sem lét sig varða s...

Kolbeinn Tumi föstudagsgestur og kalkúnaspjall 24.11.2023

Kolbeinn Tumi Daðason er fréttastjóri Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar og hann var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag. Kolbeinn Tumi lærði byggingaverkfræði í Seattle í Washingtonríki og er að auki með meistarapróf í blaðamennsku frá Háskóla Íslands. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í vesturbæ Reykjavíkur og hann sagði okkur frá tíðum ferðum fjölskyldunnar til Skotlands, en f...

Hjólar 12 þúsund km. í ár, Fúsi og Aggi og söngstund í Hannesarholti 23.11.2023

Við heyrðum sögu Einars Guttormssonar í dag. Hann greindist með parkinson fyrir um 5 árum og hafði fundið einkenni í u.þ.b. fimm ár þar á undan. Við greiningu tók Einar þá ákvörðun að hreyfa sig til að vinna á móti einkennunum og hann stóð heldur betur við það, hann hjólar um það bil heilt maraþon á hverjum degi, stundum allt upp í 200 kílómetra á dag. Hann hefur toppað sig á hverju ári og hefur h...

Gefum íslensku séns, viðlagahúsin og póstkort frá Magnúsi 22.11.2023

Við fræddumst í dag um verkefnið Gefum íslensku séns, íslenskuvænt samfélag sem er á vegum Háskólaseturs Vestfjarða, Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða, Ísafjarðabæjar og Súðavíkurhrepps. Þetta verkefni hlaut viðurkenninguna Evrópumerkið núna í ár en verkefnið gengur út á að gera fólk meðvitað um hvernig innflytjendur læra íslensku og fá samfélagið í heild til að aðstoða fólk að tileinka sér tungumálið....

Vernd mannlegra innviða, ungir aðstandendur og plastmengun 21.11.2023

Vernd mannlegra innviða á Reykjanesi er nafnið á pistli sem Diljá Ámundadóttir Zoega skrifaði á visir.is. Hún er með diplómu á meistarastigi í sálgæslufræðum og hefur mikið skoðað áföll og samfélagsleg áföll. Í greininni er hún að velta fyrir sér stöðunni á Reykjanesi, þar sem til dæmis hefur verið samþykkt frumvarp á Alþingi um vernd innviða á Reykjanesi. Diljá bendir á að það þurfi líka að huga...

Grindarbotninn, sextugasti vinkillinn og Guðjón lesandi 20.11.2023

Dr. Þorgerður Sigurðardóttir er sérfræðingur í kvensjúkdóma- og fæðingarsjúkraþjálfun með áherslu á grindarbotn. Hún lauk doktorsnámi árið 2020 þar sem rannsóknarefni hennar sneri að heilsu kvenna og áhrifum fæðingar á grindarbotn og einnig skoðaði hún hvort sjúkraþjálfun og fræðsla geti bætt heilsu og lífsgæði kvenna á þessu mikilvæga skeiði lífsins. Þorgerður kom í þáttinn í dag og fræddi okkur...

Álfrún Helga föstudagsgestur og eftirréttaspjall 17.11.2023

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikkonan, sviðshöfundurinn og leikstjórinn Álfrún Helga Örnólfsdóttir. Hún hóf mjög ung að leika, bæði á sviði og fyrir framan kvikmyndavélar og þegar hún fór í leiklistarnám til London þá var hún þegar orðin reynslumikill leikari. Hún hefur leikið víða eftir útskrift en ferillinn hennar hefur tekið áhugaverðar beygjur undanfarin ár þar sem leik...

Barnaþing, Hulda Jóhannsdóttir og herferð Amnesty 16.11.2023

Þriðja barnaþing umboðsmanns barna verður haldið á morgun í Hörpu. Um 150 börn víðs vegar að af landinu, á aldrinum 11-15 ára, eru skráð til þingsins. Börnin sem þingið sækja verða með umræður um umfjöllunarefni sem börnin velja sjálf og niðurstöðurnar verða kynntar ríkisstjórn sem framlag til stefnumótunar í málefnum barna. Salvör Nordal umboðsmaður barna kom í þáttinn til að segja okkur betur fr...

Fílalag með Sinfó, Ástvaldur Zenki og dansverk um breytingaskeiðið 15.11.2023

Bergur Ebbi Benediktsson og Snorri Helgason hafa undanfarin ár verið með eitt vinsælasta hlaðvarp landsins, Fílalag, þar sem þeir taka fyrir eitt lag í hverjum þætti og bókstaflega fíla það á bráðfyndinn og líka fróðlegan hátt. Þeir hafa svo til dæmis gert Fílalagsþætti í sjónvarpinu auk þess að vera á sviði fyrir framan fulla sali af áhorfendum en annað kvöld ætlar þeir stíga á svið Elborgarsals...

Ráðstefna gegn hatursorðræðu, Kurt Weill og 60 ár frá Surtsey 14.11.2023

Á fimmtudaginn verður norræn ráðstefna á vegum Mennta- og barnamálaráðuneytinu þar sem rætt verður um hvernig réttinda- og lýðræðislegt skólaumhverfi getur unnið gegn hatursorðræðu í skólum. Þar verður rætt um fordóma og hatursorðræðu á Íslandi, einkum er snýr að skólasamfélaginu og áskoranir og tækifæri sem felast í tjáningarfrelsinu, möguleg úrræði og hvað hefur reynst vel á hinum Norðurlöndunum...

Ingibjörg Jónsdóttir, Don Kíkóti og Ævar Örn lesandinn 13.11.2023

Í tilefni af níræðisafmæli Ingibjargar Jónsdóttur verður efnt til samkomu í Gunnarshúsi 14. nóvember n.k. þar sem fjallað verður um hana sem rithöfund og þýðanda. Ingibjörg dó árið 1986, en eftir hana liggur talsvert höfundarverk sem reynt verður að gera skil í stuttri dagskrá. Meðfram heimilisstörfum og uppeldi sex barna vann Ingibjörg sem blaðamaður en einnig við þýðingar og önnur ritstörf. Hún...

Arnmundur Ernst föstudagsgestur og eftirrétta nostalgía 10.11.2023

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn og nú tónlistarmaðurinn Arnmundur Ernst Backman Björnsson. Leiklistin er honum í blóð borin, hann hóf ungur að leika og það talsvert mikið, bæði á sviði og fyrir framan myndavélar. Og eftir leiklistarnám og hefur hann haldið áfram að leika í fjölda verkefna á sviðsfjölum og skjánum. Nú í vor söðlaði Arnmundur um og hóf sólóferil í tónli...

Listen to the Mannlegi þátturinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.