RÚV

Mannlegi þátturinn

Society IS ↓ 578 episodes

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.netfang: mannlegi@ruv.isUmsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Author

RÚV

Category

Society

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jun 26, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Anton leitaði upprunans á Indlandi og Haukur Morthens 100 ára 15.05.2024

Við heyrðum sögu Antons Gunnars Ólafssonar í dag. Hann var ættleiddur sjö mánaða gamall, frá Indlandi, af hjónum frá Akureyri. Hann hefur hugsað um uppruna sinn frá barnsaldri, óhjákvæmilega áttaði hann sig á því að hann var ólíkur öðrum börnum í kringum sig. Hann fór þó ekki að hugsa af alvöru um það að leita að uppruna sínum fyrr en eftir að faðir hans lést árið 2016. Hann fékk í sínar hendur sk...

Iceland Innovation Week, forestakjörið og veðurspjallið 14.05.2024

Við fræddumst í þættinum um stærsta nýsköpunar- og frumkvöðlaviburð sem haldinn er hér á landi, einmitt þessa dagana; Iceland Innovation Week. Hátíðin er markaðsgluggi íslenskrar nýsköpunar og þar gefst frumkvöðlum og fyrirtækjum kostur á að standa fyrir viðburðum og kynna starfsemi sína. Melkorka Sigríður Magnúsdóttir stofnaði Iceland Innovation Week ásamt Eddu Konráðsdóttur. Melkorka er listrænn...

Landssamband eldri borgara, vinkill og Kamilla lesandinn 13.05.2024

Landsfundur Landssambands eldri borgara verður haldinn á morgun kl.10 á Hótel Natura. Búist er við fjölda fólks á fundinn frá 55 félögum eldra fólks af öllu landinu, en um 37 þúsund manns eru innan sambandsins. Á fundinum var sérstök áhersla lögð á undirbúning næstu kosninga til Alþingis og möguleikum á að beina kröftum fólks til þeirra stjórnmálaflokka sem styðja kjarabaráttu eldra fólks. Landssa...

Hara systur föstudagsgestir og ítalskt matarspjall 10.05.2024

HARA systur frá Hveragerði komu sáu og næstum því sigrðu X Factor keppnina árið 2007. Þær lentu í öðru sæti eftir spennandi einvígi við Jogvan Hansen, sem þær höfðu reyndar nokkrum mánuðum áður skráð til leiks ásamt sér. Systurnar urðu á skömmum tíma gríðarlega vinsælar og í kjölfarið gáfu þær út plötu og voru bókaðar út um allt land. En það hefur ekki mikið heyrst til þeirra undanfarin ár. Hvar e...

Menntunarsjóður mæðrastyrksnefndar, Alfreð Clausen og póstkort 08.05.2024

Mæðradagurinn er á sunnudaginn og í gær var hleypt af stokkunum söfnunarátaki Menntunarsjóðs mæðrastyrksnefndar, þar sem tilgangurinn er að styrkja efnalitlar konur til náms og þannig veita þeim tækifæri til að bæta lífskjör sín og sinna. Sjóðurinn hefur undanfarin ár styrkt um 500 konur til náms og Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikari og leikstjóri kom í þáttinn í dag, en það var tilkynnt í gær að hú...

Fagleg handleiðsla, golfsumarið og þarmaflóran á Heilsuvaktinni 07.05.2024

Við töluðum aðeins um mannlega þáttinn í Mannlega þættinum í dag, sem sagt mannlega þáttinn á vinnustöðum. Við höfum fjallað talsvert í þættinum um streitu og vanlíðan í vinnunni. Ef stemningin er ekki góð á vinnustaðnum, þar sem starfsfólk jafnvel upplifir sig vanmetið, lítilsvirt og óöruggt, þá eru talsvert meiri líkur á að lenda í kulnun eða að upplifa kulnunareinkenni. Við fengum þær séra Díön...

Fjölmenningarþing, vinkill og Sveinn Sampsted lesandinn 06.05.2024

Fjölmenningarþing var haldið á vegum Reykjavíkurborgar nú um helgina en þingið er mikilvægur vettvangur virkrar umræðu sem snertir á málefnum innflytjenda og fólks af erlendum uppruna. Reykjavíkurborg er fjölmenningarborg og eru um fjórðungur íbúa hennar af erlendum uppruna. Á þinginu var til dæmis varpað fram spurningunum: Fjölmenningarfærni - sitjum við öll við sama borð? Ert þú fjölmenningarfær...

Gísli Örn föstudagsgestur og matarspjall um dýrasta krydd í heimi 03.05.2024

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Gísli Örn Garðarsson, leikari og leikstjóri. Hann útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ árið 2001. Hann hefur sett upp fjölda leiksýninga á Íslandi og erlendis, sem höfundur og leikstjóri og hefur leikið á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpi. Hann hefur starfað við fjölda virtra leikhúsa á Íslandi, í Noregi, Bretlandi, Bandaríkjunum, Þýskalandi og víð...

Stafræn heilbrigðistækni, fuglaganga og Jónatan um Soffíu Karlsdóttur 02.05.2024

Henný Björk Birgisdóttir hjúkrunarfræðingur kom til okkar í dag og fræddi okkur um stafræna heilbrigðistækni en hún hefur nýtt sinn hjúkrunarfræðigrunn og er að vinna með fyrirtækinu Helix með stafræna lausn í smáforritinu Iðunni sem Helix er að þróa og getur sparað hjúkrunarfræðingum töluverðan tíma svo þeir hafi meiri tíma að til að sinna sjúklingum. Semsagt vísir að ákveðinni byltingu í störfum...

Kynheilbrigði og fjölbreyttur taugaþroski, hláturjóga og veðurspjall 30.04.2024

Kynheilbrigði og fjölbreyttur taugaþroski er yfirskriftin á árlegri vorráðstefnu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar sem haldin verður á fimmtudag og föstudag á Hótel Nordica. Umfjöllunarefnið er kynheilbrigði frá bensku til fullorðinsára og hvernig hægt er að mæta betur fjölbreyttum taugaþroska barna og skoðuð verður staðan og þjónustan í þessum málaflokki og fleira. María Jónsdóttir, félagsráðgjafi...

Ökukennsla, vinkill nr. 83 og Gísli lesandi vikunnar 29.04.2024

Þuríður B. Ægisdóttir var endurkjörin sem formaður Ökukennarafélags Íslands á ársþingi um síðustu helgi. Hún var fyrsta konan til að hljóta kosningu sem formaður í félaginu fyrir tveimur árum síðan. Ökukennarafélag Íslands var stofnað 22. nóvember 1946 og er fagfélag ökukennara. Margt hefur breyst í ökukennslu sl. áratugi og við ræddum það betur við Þuríði í þættinum í dag. Við fengum svo vinkil í...

Hallgrímur Ólafsson föstudagsgestur og leynigestur í matarspjallinu 26.04.2024

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Hallgrímur Ólafsson, eða Halli melló eins og hann er oft kallaður. Hann er fæddur og uppalinn á Akranesi, hann starfaði meðal annars á Akraborginni og fór á sjóinn með pabba sínum. Hann byrjaði ungur að spila tónlist og syngja, fluttist um tvítugt til Reykjavíkur, fór í Leiklistarskólann, þar sem hann tengdi misvel við það sem þar var k...

Gosmengun, Barnamenningarhátíð, Vor í Árborg og póstkort úr Eyjum 24.04.2024

Það lá gosmóða og gasmengun yfir höfuðborginni í gær. Gosmóða eða blámóða hefur einkennandi blágráan lit sem myndast er sólarljósið brotnar á ögnum/úða og getur orsakað slen, höfuðverk, ertingu í augum og hálsi auk flensueinkenna. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, og börn eiga að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu. Þeir sem eru síður viðkvæmir geta einnig fundið fyrir ei...

Gengur til styrktar Píeta, Garðyrkjuskólinn á Reykjum og Heilsuvaktin 23.04.2024

Bergur Vilhjálmsson starfar sem slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og björgunarkafari hjá Slökkviliði höfuðborgasvæðisins. Hann er að fara í gang með styrktarverkefni fyrir Pieta samtökin. Hann ætlar að ganga frá Akranesi, í gegnum Hvalfjörðinn og í Grafarholtið og draga á eftir sér þyngdan sleða eða ýta honum á undan sér. Sleðin er rúm 100 kíló og 100 kíló af lóðum verða á sleðanum og eftir hve...

Líknardeildin 25 ára, vinkill og Heiðar Ingi lesandinn 22.04.2024

Líknarmeðferð er hugtak sem margir tengja við yfirvofandi lífslok einstaklinga með illkynja sjúkdóma, þegar „ekkert er lengur hægt að gera“. Staðreyndin er að líknarmeðferð er mun meira en meðferð við lok lífs og margt hægt að gera til að bæta líðan og efla lífsgæði. Líknardeildin í Kópavogi sinnir einstaklingum 18 ára og eldri og fjölskyldum þeirra og þar starfar þverfaglegur hópur starfsfólks, m...

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir föstudagsgestur og matarspjallið 19.04.2024

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra var föstudagsgesturinn Mannlega þáttarins að þessu sinni. Hún hefur verið alþingismaður Norðausturkjördæmis síðan 2013 fyrir Vinstrihreyfinguna grænt framboð. Hún var bæjarfulltrúi í Ólafsfirði, kennari og náms- og starfsráðgjafi við Grunnskóla Ólafsfjarðar og síðar við Menntaskólann á Tröllaskaga. Við fræddumst um rætur Bjarkeyjar, æskuslóðirnar og ferð...

Um Skapta Ólafsson, leiðsöguhundar og karlakórar 18.04.2024

Jónatan Garðarsson kom til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá Skapta Ólafssyni söngvara. Hann var með fyrstu rokksöngvurum Íslands og hann söng meðal fyrstur að syngja rokk á plötu hérlendis, sjónarmun á undan Erlu Þorsteins. Jónatan fór með okkur yfir feril Skapta, sem söng mörg lög sem urðu gríðarlega vinsæl og skipa sér í dag meðal kla...

Heilsuvera og 1700, viðbrögð við Covid, Sigríður Lára Gunnlaugsd. 17.04.2024

Við töluðum í síðustu viku við Sigríði Dóru Magnúsdóttur, forstjóra Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu, meðal annars um álag og langa bið hjá heilsugæslunni. Hún talaði um að oft sé ekki nauðsyn að koma á heilsugæsluna, heldur geti fólk leitað fyrst á heilsuvera.is, bæði í netspjallið og þær upplýsingar sem þar eru, nú eða jafnvel að hringja í 1700 ef erindið er brýnt. En það er ekki víst að all...

Heimildarmynd um Endó, Litli mallakútur og veðurspjallið 16.04.2024

Við fræddumst í dag um heimildarmyndina Tölum um ENDÓ, þar sem rætt er við konur á ýmsum aldri um einkenni og áhrif sjúkdómsins endómetríósu á þeirra líf og störf. Sjúkdómurinn var áður kallaður legslímuflakk, en nú er talað um endó í daglegu tali. Þóra Karítas Árnadóttir, leikstjóri og framleiðandi myndarinnar kom í þáttinn og sagði okkur frá myndinni, með henni kom Karen Ösp Friðriksdóttir, en h...

Fasteingamarkaðurinn f. norðan, vinkill og Bergrún lesandinn 15.04.2024

Haft var eftir seðalbankastjóra í síðstu viku að hann hefði áhyggjur af því að fasteignaverð væri farið að hækka á ný. Mannlegi þátturinn var staddur á Akureyri í dag og til að fá smá yfirsýn yfir fasteignamarkaðinn, til dæmis fyrir norðan, töluðum við við Arnar Birgisson fasteignasala en hann er eigandi og framkvæmdastjóri fasteignasölunnar Eignavers á Akureyri. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni...

Pálmi Guðmundsson föstudagsgestur og matarspjall um kaffi 12.04.2024

Föstudagsgesturinn Mannlega þáttarins í þetta sinn var Pálmi Guðmundsson, hann var markaðs- og dagskrárstjóri á Stöð 2 í 12 ár og dagskrárstjóri hjá Sjónvarpi Símans í 10 ár en starfar nú sem forstöðumaður stafrænnar þróunar hjá Árvakri, Morgunblaðinu og mbl.is. Pálmi er fjölmiðla- og rekstrarhagfræðingur, lagði stund á fjölmiðlafræði í Arizona í Bandaríkjunum og vann meðal annars hér ár RÚV meðfr...

Staðan á Heilsugæslunni, Stóri plokkdagurinn og Finnur Eydal 11.04.2024

Við fáum stundum ábendingar eða óskir frá dyggum hlustendum um umfjöllunarefni í þáttinn og nýlega barst ein slík um stöðuna á heilsugæslunni. Það er að segja viðkomandi var að reyna að fá tíma hjá heimilislækni og fékk tíma í júní. Þriggja mánaða bið. Hvað veldur? Læknaskortur og aukið álag er eitthvað sem við heyrum reglulega. Sigríður Dóra Magnúsdóttir forstjóri heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins...

Galdrar og geimferðir, Delta Kappa Gamma og póstkort frá Magnúsi 10.04.2024

Við fræddumst í dag um það hvernig kennararnir Ármann Halldórsson, ensku- og heimspekikennari við Verslunarskólann og dr. Sveinn Guðmundsson, mannfræðingur og jafnréttisfulltrúi við Háskóla Íslands, nýta sér dægurmenningarfyrirbærin Star Trek og Harry Potter í kennslu. Í gegnum þessa söguheima skoða þeir hvernig dægurmenning getur dregið fram umdeild málefni samfélagsins og jafnvel virkað sem brey...

Samband peninga og hamingju, ofbeldi nemenda og Heilsuvaktin snýr aftur 09.04.2024

Hvert er sambandið milli tekna og velferðar? Eða peninga og hamingju? Hvað miklar tekjur telja einstaklingar sig þurfa og hversu næmt er fólk fyrir breytingum í tekjum? Hvað þarf fólk mikið af peningum til að vera hamingjusamt og hversu mikið breytist hamingja fólks við það að fá hærri tekjur og meiri pening? Við fræddumst í dag um grein sem er fyrsti hluti af doktorsverkefnis Guðrúnar Svavarsdótt...

ADHD fullorðinna, vinkill um forréttindablindu og Margrét lesandinn 08.04.2024

Við fræddumst í dag um bókina ADHD fullorðinna. Bókin varpar ljósi á ADHD eins og það kemur fram á fullorðinsárum. Farið er yfir lykileinkenni og orsakir ADHD, þróun einkenna yfir æviskeiðið, birtingarmyndir og mögulega fylgikvilla, eins og kvíða og þunglyndi. Fjallað er um greiningarferli, meðhöndlun og helstu styrkleika sem fylgt geta því að vera með ADHD. Eins er greint frá leiðum til að bæta s...

Listen to the Mannlegi þátturinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.