RÚV

Mannlegi þátturinn

Society IS ↓ 578 episodes

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.netfang: mannlegi@ruv.isUmsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Author

RÚV

Category

Society

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jun 26, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Fjármál við starfslok, drengir í sjávarháska og Haustgildi á Stokkseyri 05.09.2024

Við lok starfsferils er mikilvægt að undirbúa sig fyrir þær breytingar sem verða eftir að störfum lýkur. Með aukinni þekkingu er fengin betri yfirsýn og auðveldara verður að aðlaga sig að breyttu lífsmynstri. Við fengum Lilju Lind Pálsdóttur, viðskipta- og hagfræðing, til þess að fara aðeins yfir þetta með okkur í dag, en hún þekkir vel til lífeyrismála og hefur verið með ráðgjöf og fræðslu til fj...

Bataskólinn og Salóme Katrín með tíu ára millibili 04.09.2024

Bataskólinn er fyrir fólk sem glímt hefur við geðrænar áskoranir og aðstandendur þeirra. Þar er boðið upp á fjölbreytt námskeið sem fjalla öll um bata á einhvern hátt nemendum að kostnaðarlausu. Í síðustu viku var haldinn opinn kynningarfundur um Bataskólann og starfsemi hans og þær Guðný Guðmundsdóttir, verkefnastjóri og Sigrún Sigurðardóttir, jafningjafræðari, komu í þáttinn í dag og sögðu okkur...

Málbjörg og Stamvarpið, Veganestið á Vesturlandi og veðurspjallið 03.09.2024

Málbjörg er fyrir fólk sem stamar og aðstandendur þeirra. Markmið félagsins er að stuðla að umræðu um stam og vera vettvangur fyrir sjálfshjálp og einnig gefa þeim sem stama möguleika á að hjálpa hvert öðru með því að ræða saman í góðu umhverfi og skiptast á skoðunum og reynslu. Nú hefur félagið sett á fót hlaðvarp, Stamvarpið, og sú sem heldur utan um það heitir Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir og v...

Leikárið fyrir norðan, vinkill um eyjar og Birgitta Björg lesandinn 02.09.2024

Mannlegi þátturinn fór í dag aftur í loftið og við höfum undanfarin haust farið yfir það sem leik- og sviðslistahúsin eru með á döfinni í vetur. Við byrjuðum norður á Akureyri, þar er nýtekinn við starfi leikhússtjóra Bergur Þór Ingólfsson. Hann var í beinni útsendingu frá hljóðveri RÚV fyrir norðan og sagði okkur frá því sem verður á fjölunum á Akureyri í vetur. Svo fengum við fyrsta vinkil haust...

Föstudagsgesturinn Lilja Sigurðardóttir og matarspjall um pönnukökur 14.06.2024

Lilja Sigurðardóttir glæpasagnahöfundur, leikskáld og handritshöfundur var föstudagsgestur hjá okkur í dag. Eftir Lilju liggja ellefu bækur, átta þeirra hafa verið þýddar á erlend tungumál og um milljón eintaka verið seld í tuttugu löndum. Því fylgir að sjálfsögðu mikið kynningarstarf, krefst ferðalaga og viðveru á glæpasagnahátíðum um allan heim. Við heyrðum hvað Lilja er helst að fást við þessa...

Nærgætni í samskiptum við veika, Helga Rakel Rafnsdóttir og tölum um tilfinningar, Bergið Headspace 13.06.2024

Hvernig á að ræða MND við fólk sem greinist með þennan taugahrörnunarsjúkdóm og aðstandendur þeirra og hvaða byltingarkenndu lyfjameðferðir eru nú í boði? Þetta og fleira verður rætt á málþingi sem haldið verður í tilefni af alþjóðadegi MND sjúkdómsins þann 21. júní næstkomandi. Helga Rakel Rafnsdóttir, kvikmyndagerðarkona, kom til okkar en hún greindist með sjúkdóminn fyrir rúmum þremur árum. Hún...

Varð blind af streitu, nýtt íslenskt forrit slær í gegn í kvikmyndabransanum 12.06.2024

Anna María Hjálmarsdóttir varð skyndilega blind á öðru auga fyrir umþaðbil ári síðan, án þess að nokkur skýring fyndist og hún var send í sjúkraflugi til Reykjavíkur þar sem hún undirgekkst ótal rannsóknir í kjölfarið. Í nóvember missti hún svo sjónina á hinu auganu og varð því alveg blind. Eftir margar rannsóknir og tilgátur lækna, varð það helst ofan á að líklega hafi langvarandi streita valdið...

Vaxtamál bankanna og Neytendasamtökin, Veðurspjall Einar Sveinbjörnsson 11.06.2024

Íslenskum bönkum er ekki heimilt að breyta vöxtum að vild og skilmálar í lánasamningum þeirra teljast ekki uppfylla skilyrði um gegnsæi og skýrleika. Þetta kemur fram í nýlegu áliti EFTA dómstólsins vegna mála sem Neytendasamtökin höfðuðu á hendur þremur bönkum í sex málum, vegna matskenndra og ógegnsærra vaxtaákvarðana. En hvað þýðir þetta fyrir neytendur? Sjálfa lántakendur og hvað geta þeir ger...

Lesandinn Kristín Ásgeirs,Vinkill vikunnar og Bernskubrek í Kópvogi 10.06.2024

Bernskubrek í Kópavogi er yfirskrift dagskrár sem Marteinn Sigurgeirsson kennsluráðgjafi og kvikmyndagerðrmaður hefur boðið til núna á fimmtudaginn. Sögur og myndefni frá fyrri tímum í bæjarlífinu verða í sviðsljósinu og þar má nefna samskipti unglinga við herinn á stríðsárunum,fimm drengi í sjávarháska,Skiptistöðina,Pönkgangu um Hamraborg og svo baráttuna milli austurbæjar og vesturbæjar. Við ræð...

Jakob Frímann föstudagsgestur og pönnsuspjall 07.06.2024

Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni er tónlistarmaðurinn og þingmaðurinn Jakob Frímann Magnússon Stuðmaður með meiru. Jakob stígur fram á Listahátíð í Reykjavík hinn 8. júní næstkomandi. Þá verður flutt hið dularfulla og splunkunýja spádómsverk Future Forecast af hljómsveitinni Jack Magnet Science sem skipuð er einvalaliði tónlistarmanna. Auk alls sem hann hefur gert í tónlistinni hefur hann g...

ÁLFkonur, Berjadagar og Prjónagleði 06.06.2024

ÁLFkonur er félagsskapur kvenna með ljósmyndun að áhugamáli og hefur starfað saman sem hópur frá árinu 2010. Þær hafa haldið fjölmargar ljósmyndasýningar víða um Akureyri, Eyjafjörð, á Húsavík og í Edinborg Skotlandi. Í þrettánda sinn bjóða ÁLFkonur, í samvinnu við Lystigarðinn á Akureyri og LYST kaffihús upp á ljósmyndasýningu við útisvæðið og veitingasöluna í garðinum. Við hittum Reyni Gretarsso...

Andrea Margrét, Móðurmál 30 ára og póstkort frá Magnúsi 05.06.2024

Það er aldrei of seint að skella sér í nám og láta draumana rætast. Þetta eru skilaboð Andreu Margrétar Þorvaldsdóttur, sem er nýútskrifaður rafvirki frá Verkmenntaskólanum á Akureyri. Andrea er nýorðin fimmtug og er þessa vikuna að klára sveinspróf en hún er búin með þrjú próf af fimm. Á unglingsárum ýjaði kennari að því að hún gæti einfaldlega ekki lært stærðfræði og það kom í veg fyrir að hún f...

Svavar Knútur, listnám fyrir fólk með þroskaskerðingu og Heilsuvaktin 04.06.2024

Svavar Knútur er nýkomin úr tónleikaferðalagi um Ástralíu og Evrópu og nú er hann lagður af stað hringinn í kringum landið með tvöfalt nýtt plötualbúm í farteskinu. Þessi tónlist er á vissan hátt 15 ára úrvinnsla sorgar segir Svavar Knútur sem var í hljóðstofu RÚV á Akureyri í beinni útsendingu í dag. Svo komu þær Áslaug Thorlacius og Björg Jóna Birgisdóttir í þáttinn til að segja okkur frá listná...

Erla Axels við Selvatn, vinkill og Rósa Guðný lesandinn 03.06.2024

Selvatn, í Miðdalslandi í Mosfellsbæ, er sennilega ekki þekktasta vatn Höfuðborgarsvæðisins en þar eru þó nokkuð mörg sumarhús og þar er myndlistarkonan Erla Axels með vinnustofu í Listaseli með góðu útsýni bæði yfir vatnið og Miðdalsheiðina. Erla opnaði sýningu í þessu fallega umhverfi um síðustu helgi og aflvaki myndanna er upplifanir og minningar úr náttúrunni við Selvatn. Verkin vann hún síðas...

Ólafía Hrönn föstudagsgestur og þjóðlegir réttir á kosninganótt 31.05.2024

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Ólafía Hrönn Jónsdóttir, leikkona, söngkona og lagahöfundur. Hún hefur auðvitað leikið fjölda hlutverka á sviði og í sjónvarpi og kvikmyndum og svo er hún meðlimur í Heimilistónum og Hljómsveit Jarþrúðar og hefur sungið víða. Framundan er Sumarkjólaball Heimilistóna í Gamla Bíói, en við fórum auðvitað aftur í tímann með Ólafíu, á æskuslóðirnar, í...

Borgarstjóri og lífsgæðakjarnar og rannsóknir á samsæriskenningum 30.05.2024

Til stendur að byggja á þriðja þúsund íbúðir auk hundruða hjúkrunarrýma á uppbyggingareitum sem hafa verið skilgreindir sem sérstakir „lífsgæðakjarnar” fyrir eldri borgara í Reykjavík. Borgarstjóri skrifaði sl.föstudag undir viljayfirlýsingar um uppbyggingu á fjórum stöðum í borginni þar sem þróuð verður ný nálgun á húsnæði og þjónustu fyrir fólk á besta aldri. Á teikniborðinu eru allt að 2600 nýj...

Gagnvirkt Íslandskort barna, líknardeildin og Jónatan um Rúnar Gunnarsson 29.05.2024

Í tilefni þess að 80 ár eru liðin í ár frá stofnun lýðveldis á Íslandi efndu Safn Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri og Þjóðgarðurinn á Þingvöllum til verkefnisins Heill heimur af börnum - börn setja mark sitt á Íslandskortið. Hugmyndin að því var að hvetja börn til að miðla því sem þeim finnst mikilvægt og áhrifaríkt í lífi sínu og umhverfi á sjónrænan hátt og koma því til skila á nýju gagnvirku Ísla...

Að velja háskólanám, heiftúðug umræðuhefð og veðurspjallið 28.05.2024

5. júní rennur út umsóknarfrestur í flesta háskóla á landinu. Það getur verið snúið að finna út hvaða nám hentar manni best og við fengum Grétu Matthíasdóttur, forstöðukona nemendaráðgjafar Háskólans í Reykjavík, í þáttinn til að fara vítt og breitt yfir sviðið og hvernig hægt er að hjálpa nemendum að finna sína leið. Gunnar Hersveinn, heimspekingur og rithöfundur, kom svo í þáttinn, en hann skrif...

Grindvíkingar heiðursgestir á Sjómannadaginn, vinkill og Sigríður lesandinn 27.05.2024

Sjómannadagurinn, hátíðisdagur allra sjómanna, verður næsta sunnudag, 2. júní. Aríel Pétursson, formaður sjómannadagsráðs, og Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar komu í þáttinn í dag, en Sjóarinn síkáti, hátíð Grindvíkinga, verður sem sagt haldinn í Reykjavík og Grindvíkingar verða sérstakir heiðursgestir í ár. Við fengum þá til að segja okkur frá hátí...

Margrét Einarsdóttir föstudagsgestur og matarspjall um Worchesterhire sósu 24.05.2024

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag var Margrét Einarsdóttir búningahönnuður. Hún hefur rekið tískuverslun, verið stílisti og hannað föt í fjölmörgum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Meðal annars fyrir kvikmyndirnar Hrútar, Vonarstræti og Snertingu, nýjustu mynd Baltasars Kormáks og svo hannaði hún búningana í sjónvarpsþáttröðunum Verbúðinni, Aftureldingu og þessa dagana er hún að vinna í gríða...

Saga Brynhildar, sytkinin á Húðvaktinni og Ingibjörg Smith 23.05.2024

Fyrir nokkrum árum fór Brynhildur Pétursdóttir að finna fyrir einkennum á mjaðmasvæði sem voru sakleysisleg í fyrstu en fóru versnandi og tveimur árum síðar var hún orðin svo slæm að hún þurfti að nota hækjur til að geta gengið. Eftir að hafa hitt ótal sjúkraþjálfara, lækna, osteopata, kírópraktora og nuddara í leit að svari, neyddist hún að leggjast sjálf í rannsóknir og seint og um síðir bárust...

Kvennakórinn Katla, póstkort frá Magnúsi og Vera Sif Rúnarsdóttir 22.05.2024

Við kíktum niður í Hörpu á æfingu hjá kvennakórnum Kötlu en þær eru með árlega vortónleika næstu helgi og kórinn er fjölmennur, en um 80 konur eru skráðar í hann og sérstök áhersla er lögð á búninga, leikmuni og gleði. Þær vilja líka láta gott af sér leiða í okkar samfélagi. Samstýrur kórsins, Hildigunnur Rúnarsdóttir og Lilja Dögg Gunnarsdóttir, sögðu okkur frá starfinu og einnig var rætt við kon...

Náttúran á Heilsuvaktinni, vinkill um nettröll og Dóra Björg lesandinn 21.05.2024

Við byrjuðum þáttinn í dag á Helgu Arnardóttur og Heilsuvaktinni. Rannsóknir sýna svo ekki verður um villst að náttúran hefur góð áhrif á okkur og gott betur því kórtisólið í líkamanum lækkar, blóðþrýstingur lækkar og hjartsláttur líka við það eitt að vera úti í náttúrunni. Kristín Sigurðardóttir, bráða- og slysalæknir sem einblínt hefur á streitu og áhrif hennar síðustu ár, segir okkur þjást af n...

Bjarni Snæbjörnsson föstudagsgestur og matarspjall um sumar og salt 17.05.2024

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Bjarni Snæbjörnsson. Hann hefur leikið og sungið víða á sviði frá útskrift úr leiklistarnámi, en svo vakti hann sérstaka athygli þegar hann samdi söngleikinn Góðan daginn faggi, sem sýndur var í Þjóðleikhúskjallaranum. Í sýningingunni rifjaði Bjarni upp æskuna og glímu sína við að koma út úr skápnum og horfast í augu við það hver hann v...

Bein útsending frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu 16.05.2024

Í dag brugðum við okkur úr húsi og sendum út Mannlega þáttinn frá Skógarhlíð 14 þar sem Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er til húsa. Slökkvilið er byggðasamlag frá árinu 2000 stofnað af Reykjavíkurborg, Garðabæ, Hafnarfjarðarbæ, Kópavogsbæ, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesbæ og Sveitarfélaginu Álftanesi. Verkefnin eru fjölbreytt eins og við komumst að í þættinum, útkallsþjónusta og forvarnir. Viðmælendur...

Listen to the Mannlegi þátturinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.