Hanna og Kristín
Lof mér að tala
Lof mér að tala eru þættir í boði Hönnu Birgisdóttur og Kristínar Sigrúnar. Þær eru málglaðar vinkonur sem eiga það sameiginlegt að þrífast á athygli annara. Sumir myndu segja að Lof mér að tala fjalli fyrst og fremst um menningu, með sérstaka áherslu á lágmenningu. Hanna og Kristín kryfja fréttir og atburði vikunnar af einstakri nákvæmni og spila jafnvel skemmtileg hljóðbrot með. Aðrir eru hógværari og lýsa Lof mér að tala með þremur en um leið áhrifaríkum orðum: Fresh! Happy! Mex! Instagram: @lofmeradtalaTiktok: @lofmeradtala
Author
Hanna og Kristín
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 9, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Lof mér að tala: 24. Jólageðveikin 22.12.2025 1:01:44
GLEÐILEGA HÁTIÐ! Stelpurnar eru ferskar. Hinrik líka. Margt er rætt. Jólaboð, tónleikar, lélegar jólagjafir en Kristín segir frá einni slíkri (úff), grjót í möndlugraut og almenn vitleysa. Kristín er einstaklega greindarskert í þessum nýja þætti, bæði upp á orðalag og já almennri rökhugsun en hún Hanna er orðin smá þreytt á jólunum. Njótið hátíðarinnar og því sem eftir er af árinu! #uppi
Lof mér að tala: 23. „Ég er sjúklingur" 16.12.2025 53:44
Endajaxlatökur, netflix, sjúklingar og jólasveinar. Hanna er bólgin og aum en Kristín er ósátt með það að vera komin á þann aldur að verða þunn eftir örfáa drykki (). Annars þá þylur Hanna upp hámhorf síðustu viku sem var vægast sagt sláandi. Stelpurnar svara örfáum spurningum hlustenda og ræða frétt vikunnar. Svo er fyrirsögn vikunnar ekki af verri endanum. LETS GO!
Lof mér að tala: 22. Q&A og 6-7 helgin 09.12.2025 55:16
Stelpurnar áttu rosa menningarlega 6-7 helgi. Kristin fór í leikhús og í bíó á kvikmyndina Wicked: for good. Hanna djammaði til 5. Margt var rætt, þ.á.m sogtæki frá Temu, kókdrama í Garðabæ og jólalög en stelpurnar svöruðu misgáfulegum spurningum frá þeirra dyggu hlustendum. Jú svo fékk Kristín hrós frá engum öðrum en fyrrverandi menningarmálaráðherra… túnið inn og þér munið heyra.
Lof mér að tala: 21. The Joey Show (feat. Jóhann Kristófer) 01.12.2025 55:39
KEMST HANN OFAR?! Við fengum engan annan en fjöllistamanninn Jóhann Kristófer í stúdíóið til okkar í dag. Jóhann eða Joey Christ, eins og hann er oft kallaður, hefur komið víða að. Hann stofnaði útvarpsstöð, leikstýrði raunveruleikaþáttunum Æði, hefur leikið í ýmsum leikverkum og gaf nýverið út plötuna Joey 3. Stelpurnar ræða aðeins við hann um ferilinn og upphafið en síðan er farið um víðan völl....
Lof mér að tala: 20. Að klóna eða ekki klóna 24.11.2025 59:08
VELKOMIN Í 20. ÞÁTT LOF MÉR AÐ TALA! Veikindi, rónar, Beggi Másson, raunveruleikaþættir, kynsjúkdómar og konseptið að eyða sex milljónum í að klóna dýr. Kristín segir frá ævintýrum sínum á Balí undir lok þáttar og Hanna grét úr hlátri, en Kristín grét úr sorg. Enda bjóðum við öllum tilfinningum velkomin hér í Lof mér að tala❤️.
Lof mér að tala: 19. Problematic á hrekkjavökunni 04.11.2025 52:36
Wowowow velkomin í 19. þátt Lof mér að tala! Stelpurnar eru ferskar eftir mikla djamm helgi, enda var hrekkjavakan að ganga um bæ. Hanna segir okkur frá versta búningnum sem hún hefur farið í og Kristín segir frá problematic búningum. Röntgen, ný tónlist, Aron Kristinn og rasistar í miðflokknum. Það er sem sagt eitthvað fyrir alla í nýjasta þætti LMAT #takkfans.
Lof mér að tala: 18. Lélegir DJ-ar og feik meðganga 27.10.2025 54:06
Verið hjartanlega velkomin í fyrsta þátt vetrarins! Kristín og Hanna byrja veturinn vel, þær eru þunnar en bera það með sóma, ekki skömm, enda kvenfyrirmyndir. Hér í 18. þætti er farið um víðan völl: Kvennaverkfall, hrekkjavökubúningar, lélegir DJ-ar og nýtt áhugavert par er kynnt til leiks. Annars liggur Hanna ekki á skoðunum sínum hvað varðar frægan Færeying. Þar sem langt er liðið frá síðasta þ...
Lof mér að tala: 17. Brostu, þú ert í Reykjavík 14.10.2025 56:23
Jæja nýr þáttur!!!Stelpurnar ræða hin ýmsu mál, jafnt merkileg og ómerkileg. Missir maður sjónina við það að taka Ozempic? Fjölskylduboð og kvíðnar ömmur eru meðal viðfangsefna. Stelpurnar kynntu stefnuskrá nýs stjórnmálaflokks sem þær hafa sett á laggirnar fyrir komandi sveitastjórnarkosningar - Brosandi borg. Þær fara með skemmtilegar rangfærslur og velta sér upp úr heimspekilegum spurningum: Va...
Lof mér að tala: 16. Ókristilegar 07.10.2025 54:43
Velkomin í 16. þátt Lof mér að tala! Hér er ein risa stór tilkynning: LJÓÐIÐ ER KOMIÐ AFTUR og Hanna hefur lestur á ný! Stelpurnar eru í stuði og hafa frá mörgu að segja: Ókristilegir prestar, munnmök og lagatextar, tískustraumar, nýr íslenskur stjórnmálaflokkur lítur dagsins ljós og Taylor Swift gaf nýverið frá sér plötu sem allir… hata? This and more on #letthemtalk.
Lof mér að tala: 15. Ungfrú Ísland Teen er AI vélmenni 02.10.2025 58:21
VIÐ ERUM KOMNAR AFTUR - did you miss us? Play er farið á hausinn, hvítasta Hollywood par allra tíma segir skilið við hvort annað, Hanna heldur því fram að Erika Kirk sé AI vélmenni og fyrirbærið Ungfrú Ísland Teen er sett á laggirnar. Jú, og Hanna og Kristín eiga báðar í ofbeldissambandi við prentara. Ekki missa af þessari veislu!
Lof mér að tala: 14. Lóan er komin (feat. Lóa Björk Björnsdóttir) 21.09.2025 1:10:40
Stelpurnar fengu til sín útvarpskonuna og grínistann , Lóu Björk Björnsdóttur. Lóa hefur frá miklu að miðla en stelpurnar fengu að svamla smá í hennar viskubrunni, það mætti segja að lífsins alvara hafi tekið yfir hér hjá okkur í Lof mér að tala. Meðal viðfangsefna voru: hlutverk samfélagsmiðla í dag, útlitskröfurnar blessuðu, hugarfar og margt, margt fleira.
Lof mér að tala: 13. Veipum friðsamlega 10.09.2025 1:00:08
Heil og sæl, land og þjóð og verið velkomin í þrettándann. Vá, mikið um að vera og mikið um að ræða! Stelpurnar kryfja Óktoberfest, velta hugtakinu “baddie” fyrir sér og Kristín gerir tilraun til þess að íslenska það. Umræðuefni á borð við bragð bann nikótínvara, fólk sem rekur við á tónleikum og sterk matarlykt koma við sögu. Hinrik og Kristín áttu hvor um sig móment með frægu fólki sem ber að ne...
Lof mér að tala: 12. Við og hin 03.09.2025 56:04
12. ÞÁTTUR ER KOMINN Í HÚS OG LÝÐURINN TRYLLIST Stelpurnar hafa frá mörgu að segja eins og svo oft áður. Skemmtiferðaskip, tónleikar á háskólatorgi, tásublæti, möguleg Fifth Harmony endurkoma og Októberfest nálgast. Hinrik og Hanna smökkuðu gonster og segja okkur frá þeirri skemmtilegri reynslu. Kristín býður upp á nýtt tónverk og það má segja að allir verði að hlusta á þann unað. Þetta og meira í...
Lof mér að tala: 11. Hin heilaga þrenning: Ástin, þágufallssýki og Gonster 27.08.2025 57:46
Mætti bjóða yður Gonster? Hanna og Kristín ræða hin ýmsu mál, bæði stór og smá! Karlmenn í hælasokkum, blæti fyrir smökkun orkudrykkja og þemabrúðkaup eru meðal viðfangsefna þáttarins. Kristín skammast sín fyrir lag vikunnar, Hanna kynnir nýjan lið og fan vikunnar er ekki af verri endanum…Ástin er í loftinu eins og svo oft áður og stelpurnar ræða eina ákveðna trúlofun #ástin.
Lof mér að tala: 10. Ástandið 20.08.2025 57:21
The one where Kristín og Hanna rífast um Iceguys… Velkomin í 10. þátt af lof mér að tala! Stelpurnar hafa aldrei tekið upp jafn kaótískan þátt og endurspegla viðfangsefni þáttarins það svo sannarlega: Októberfest, gymbros, conceptið að eggja fólk og hvernig týpur fara á Iceguys tónleika. Hanna og Kristín spyrja einnig þeirrar mikilvægu spurningu sem hljómar svona: Hvar…. Er…. Patrik Atlasson?
Lof mér að tala: 9. Vinnandi konum er best að lifa (feat. Gríma Valsdóttir) 08.08.2025 1:06:19
OMG NÝR ÞÁTTUR OG FRÁBÆR GESTUR!! Hanna og Kristín fengu til sín Grímu Valsdóttur, vinkonu og snilling, til að ræða hinar ýmsu vinnur sem þær vinkonur hafa unnið í gegnum tíðina! Störfin eru eins mismunandi eins og þau eru mörg og stelpurnar tala misvel um reynsur sínar i störfunum…. Verslunarmannahelgin var rýnd í þaula og stelpurnar segja frá misgáfulegum ákvörðunum sínum yfir helgina. Ljóð viku...
Lof mér að tala: 8. Druslur í Texas 28.07.2025 1:09:09
OMG NÝR ÞÁTTUR!! Í þessum 8. þætti af Lof mér að tala fara stelpurnar um víðan völl. Á meðal viðfangsefna eru mömmur á Facebook, furðuleg viðbrögð Íslendinga þegar þeir heyra í brunabjöllu, hinir ýmsu tónleikar og vægast sagt umdeild samtök….. Sumarbragur er yfir stelpunum og Hanna kemur með hugmyndir fyrir hlustendur um hvað sé hægt að gera um verslunarmannahelgina en Kristin um hvað henni… finns...
Lof mér að tala: 7. Son, wife and God 20.07.2025 1:00:29
HVAÐ GERÐIST Á 7 DÖGUM? EKKERT. EN 7. ÞÁTTUR AF LOF MÉR AÐ TALA ER KOMINN ÚT… Því miður komst okkar elskulegi tæknimaður og vinkona, Hinrik, ekki þar sem hann er fyrir norðan að elta veðrið. Í hans stað kom hún Ingibjörg Fía, vinkona og hugsuður. Þátturinn var því ögn kaótískari en venjulega og við afsökum langa bið eftir nýjum þætti... ekki örvænta þó því við lofum veislu. Hver eru umræðuefnin? J...
Lof mér að tala: 6. Kyntröll í Flatey 10.07.2025 1:03:42
WHATS POPPIN? BRAND NEW LOF MÉR AÐ TALA JUST HOPPED IN. Í 6. þætti ræða stelpurnar m.a. Bubba Morthens, kvennaboltann, íslensku sumarkonuna og hina klassísku íslensku útilegu en stelpurnar fóru í eina slíka í Flatey á dögunum. Hanna kynnir einnig inn nýjan lið… Þetta og fleira í #letmetalk
Lof mér að tala: 5. Tiktok frægðin og bjór í Kringlubíó 01.07.2025 1:01:46
HÆHÆ ÞETTA ER SARA Í JÚNÍK, LOF MÉR AÐ TALA VAR AÐ DROPPA NÝJUM ÞÆTTI! Hanna og Kristín eru alltaf jafn málefnalegar. 10 ár síðan fyrsta serían af SKAM kom út, tónlistarkonan Lorde gaf út nýja plötu í vikunni, íslenska bíómenningin verður skoðuð og greind. Eins og svo oft áður kemur bærinn við sögu en Hanna liggur ekki á skoðunum sínum um American bar, ásamt öðrum menningarlegum stöðum í Reykjavík...
Lof mér að tala: 4. Hæ, hó, jibbí, jei 18.06.2025 55:47
Another day, another Lof mér að tala. Kristín er þunglynd en Hanna er til í að ræða um hátíðardaga! Helstu viðfangsefni þáttarins eru eftirfarandi: 17. júní sem concept, barnamyndin ljóta litla lifran, Brynjar Níelsson og fallegar mjóar konur á tánum. Ásamt fleiru.
Lof mér að tala: 3. Barcelona debrief (feat. Una Ragnars) 13.06.2025 1:01:41
Tell a friend to tell a friend, the bitch is back! Halló halló, við erum komnar aftur beinustu leið frá Barcelona (borið fram barþelona) og í þetta sinn erum við með gest. Já, hún Una Ragnarsdóttir er hérna með okkur og við förum um víðan völl: Primavera útihátíðin, ógeðsleg hostel á meginlandinu, flugferð frá helvíti og ástartjáning spænskra karlmanna. Vonandi höfum við verið aufúsugestir #takk.
Lof mér að tala: 2. Málefnalegar gellur með bílpróf 04.06.2025 50:10
Í þætti vikunnar fögnum við vinkonurnar stórum áfanga í lífi Kristínar. Hin heila þrenning, FM95BLÖ, Taylor Swift og smørrebrød er meðal viðfangsefna þáttarins. Vikan er krufin og lög vikunnar fá að líta dagsins ljós
Lof mér að tala: 1. Lof mér að byrja 29.05.2025 58:10
Hér í fyrsta þætti Lof mér að tala fara Hanna og Kristín um víðan völl. Við ræðum Justin Bieber, áfengisvanda ungmenna á Kirkjubæjarklaustri og hvað Hanna er með ömurlegan tónlistarsmekk. Við segjum orðið „ógeðslegt” rúmlega þrjátíu sinnum og tölum um tengingu okkar við Kaþólsku kirkjuna. Verið öll velkomin og megi Guð blessa ykkur og íslenska forystuféð. Amen.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.