laufid

Laufið - Hlaðvarp

Education EN ↓ 8 episodes

Hér fjöllum við um breytta stjórnunarhætti sem eru að eiga sér stað í íslensku atvinnulífi og allt í kringum okkur. Við segjum meðal annars frá stjórnendum sem eru að ryðja brautina og leiða fyrirtæki í áttina að sjálfbærara og vistvænna samfélagi.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: laufid.podbean.com

Author

laufid

Category

Education

Podcast website

laufid.podbean.com

Latest episode

Jun 27, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 10M+ downloads · 4.7+ rating iOS soon

Episodes

Emilía Borgþórsdóttir Verkefnastjóri sjálfbærni 27.06.2025

Í þessum þætti spjöllum við við Emilíu Borgþórsdóttir, Verkefnastjóra umhverfis- og samfélagsmála hjá Húsasmiðjunni, um vegferð fyrirtækisins í sjálfbærni, fræðslu og framtíðarsýn. Emilía deilir reynslu af að byggja upp sjálfbærnisteymi, þróa stefnu og vinna markvisst að breytingum í rekstri og virðiskeðju. Við ræðum nýrra laga sem taka gildi 1. sept. 2025, áskoranir hjá fyrirtækjum, mikilvægi þát...

Iðan fræðslusetur - Heimsmarkmiðin eru grunnurinn 22.12.2022

Ásgeir Valur Einarsson, leiðtogi sjálfbærni hjá Iðunni fræðslusetri, segir okkur frá vegferð vinnustaðarins í átt að sjálfbærni og af hverju ákveðið var að breyta áherslum innan Iðunnar. Í kjölfar þess að greint var hvaða heimsmarkmið ætti að leggja áherslu á innan Iðunnar voru úrgangsmál tekin í gegn, kolefnisspor fræðslusetursins skoðað og bæði hefur verið boðið upp á námskeið um sjálfbærni og g...

BYKO - Umhverfisvitund frá upphafi 28.07.2022

Byggingavöruverslun Kópavogs, betur þekkt sem BYKO, fagnar 60 ára starfsafmæli árið 2022. Við fengum Berglindi Ósk Ólafsdóttur, sérfræðing í sjálfbærni, til að segja okkur frá sögu BYKO sem á rætur að rekja í garð-, matvæla- og skógrækt en segja má að BYKO hafi verið í miklum tengslum við náttúruna allt frá stofnun.  Við spjöllum um þau tvö skógræktarsvæði sem BYKO á og hefur átt og og hvernig skó...

Vörður - Horft til framtíðar 21.07.2022

Gestir þáttarins eru þau Hildur Grétarsdóttir, gæðastjóri og Ágúst Mogensen, sérfræðingur í forvörnum en bæði sitja þau í sjálfbærniteymi Varðar. Þau segja okkur frá þeirri sjálfbærnivegferð sem Vörður hefur verið í síðasta rúma áratuginn. Við spjöllum um hvernig vegferðin hófst með grasrótarstarfi innan Varðar og hvernig hún þróaðist fljótt í að vera stór hluti af stefnumótun fyrirtækisins. Fyrir...

Matís og Landvernd - Plast, plast allsstaðar 12.07.2022

Vissir þú að hvert okkar innbyrðir 5 grömm - ígildi eins greiðslukorts - af örplasti á VIKU? Allt sem þú vissir ekki um plast með Sophie Jensen, sérfræðingi hjá Matís, og Margréti Hugadóttur, verkefnastjóra hjá Landvernd!  Hér segja þær frá hversdagslegum hlutum sem þú vissir ekki að innihéldu plast, hvernig plastið hjálpaði okkur að kortleggja heimshöfin, hvernig á að segja nei við einnota plasti...

Atmonia - Ammoníak fyrir atvinnulífið 07.07.2022

Atmonia er lítið íslenskt rannsóknarfyrirtæki með stórtæk áform sem gæti umbylt heilum atvinnugreinum; landbúnaði, flutningum, iðnaði og skilað margþættum ávinningi fyrir lífríki, loftslag og heimsbyggðina á næstu árum. Við fengum Guðbjörgu Rist framkvæmdastjóra og Helgu Dögg Flosadóttur rannsóknarstjóra til segja frá því hvernig er að vinna við djúptækni á Íslandi og við lærum hvernig nálgun Atmo...

Samkaup - Samvinna og samfélag 23.06.2022

Starfsfólkið er kjarni fyrirtækis og gegnir lykilhlutverki þegar kemur að umhverfismálum og sjálfbærni. Gunnur Líf Gunnarsdóttir hjá Samkaupum segir okkur frá áherslum Samkaupa þegar kemur að samfélagslegri ábyrgð og hvað allir stjórnendur, ráðgjafar og sjálfbærniteymi þurfa að hafa hugfast vilji þeir láta til sín taka á þessu sviði. Við förum vítt og breitt yfir starfsemi félagsins og fáum fjölbr...

Mannvit - Hvers vegna sjálfbærni? 22.06.2022

Hvers vegna skiptir sjálbærni máli fyrir fyrirtæki og af hverju ættu fyrirtæki að láta sig umhverfis- og samfélagsmál mikið varða.  Laufið fékk Maríu Stefánsdóttur og Söndru Rán Ásgrímsdóttur, sérfræðinga hjá Mannviti til að fjalla um sjálfbærni í fyrirtækjarekstri og hvers vegna það er orðið mikilvægara en nokkru sinni fyrr. Við tökum fyrir grænar fjárfestingar, umhverfisvænar byggingar, Heimsmar...

Listen to the Laufið - Hlaðvarp podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.