RÚV Hlaðvörp

Konungssinnar í Kísildal

Society IS ↓ 13 episodes

Konungurinn lengi lifi, skrifaði Donald Trump um sjálfan sig á samfélagsmiðlum í febrúar. Frá því að hann tók við embætti forseta hefur hann unnið að því að gjörbylta bandarísku stjórnkerfi og samfélagi með suðurafríska tæknimógúlinn Elon Musk sér við hlið. Hugmyndirnar sem þeir styðjast í niðurrifinu og uppbyggingu hins nýja samfélags hafa lengi verið að bruggast í tæknigeiranum - og þær eru róttækari en marga grunar. Lýðræðið er komið á endastöð, og Bandaríkin þurfa snjallan forstjóra sem stýrir samfélaginu eins og sprotafyrirtæki. Það þarf að byggja upp einveldi, nýtt konungsdæmi, segja jaf...

Author

RÚV Hlaðvörp

Category

Society

Podcast website

shows.acast.com

Latest episode

Apr 29, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

13. Ellison-feðgar eignast allt 29.04.2026

Larry Ellison er einn ríkasti maður í heimi. Auður hans er mestallur í hlutabréfum fyrirtækis sem hann stofnaði í Kísildalnum árið 1977. Fyrirtækið heitir Oracle og sérhæfir sig í hýsingu og vinnslu gagna. Hann á eyju, orrustuþotur og börn sem hafa áhuga á kvikmyndum og hafa gert sig gildandi í Hollywood.  Ef að kaup Larry og sonar hans David á Warner Bros Discovery ganga í gegn munu þeir feð...

12. Mannætukóngurinn Sam Altman 16.04.2026

Á næstu árum er óhjákvæmilegt að einhver muni þróa stórhættulega ofur-gervigreind. Það er spurning upp á líf og dauða hver það er sem muni stjórna þessari tækni. Sam Altman vill að við treystum honum fyrir því. Það eru þó ekki allir sammála því að stórhættulega ofur-gervigreindin sé óhjákvæmleg og finnst jafnvel önnur vandamál af völdum gervigreindar meira aðkallandi að leysa. Um þetta er fólk inn...

11. Gönguskíðagarpurinn Dr. Alex Karp 01.04.2026

Hann er heimspekingur í Kísildal, en hann er ekki heimspekingur Kísildalsins. Þvert á móti þá sker hann sig úr og gerir í því að aðgreina sig frá öðrum tæknifyrirtækjum Kísildalsins. Við fjöllum um Alex Karp, framkvæmdastjóra Palantir. Áður en hann varð framkvæmdastjóri og síðar milljarðamæringur, þá var hann doktorsnemi í heimspeki við Goethe-háskóla í Frankfurt. Palantir er eitt umdeildasta fyri...

10. Sæðisgjafinn Elon Musk 05.06.2025

Elon Musk hefur lýst yfir mikilli vanþóknun á nýju frumvarpi Bandaríkjaforseta, Big, Beautiful Bill, því það mun auka ríkisútgjöld og vinna gegn þeirri miklu niðurskurðarvinnu sem Musk og liðsmenn hans í DOGE, hagræðingahópnum, hafa staðið í síðastliðna 130 daga. Hvort þetta þýði að áhrif Musks fari minnkanndi í Hvíta Húsinu á eftir að koma í ljós. En fyrir hvað stendur hann, fyrir hverju berst ha...

9. Guðfræðingurinn J.D. Vance 26.05.2025

Varaforseti Bandaríkjanna er kaþólskari en Páfinn. Hann fann trúna fyrir örfáum árum, skírðist til kaþólskrar trúar og segir það móta mjög sýn sína á pólitík. Áður en J.D. Vance hélt inn á hið pólitíska svið var hann metsöluhöfundur. Árið 2016 gaf hann út Hillbilly Elegy, þar sem hann lýsir uppvexti sínum í Ohio og Kentucky, þar sem hann bjó við óöruggar heimilisaðstæður en með hjálp ömmu sinnar o...

8. Þeir ætla að lifa að eilífu 14.04.2025

Í áttunda þættinum sökkvum við okkur ofan í baráttuna gegn dauðanum sem er háð þessa dagana í Kísildalnum og mögulega í heilbrigðisráðuneyti Donalds Trump. Peter Thiel, Jeff Bezos, Sam Altman og fleiri tækniforstjórar moka peningum í rannsóknir á langlífi. Þeir ætla að lifa að eilífu. Andlit þessarar hugmyndafræði er Bryan Johnson, undir formerkjunum Don’t Die, ekki deyja. Við skoðum tengsl Trans-...

7. Hannes Hólmsteinn og bandaríska hægrið 03.04.2025

Hannes Hólmsteinn Gissurarson er prófessor emeritus í stjórnmálafræði og hefur sérhæft sig í frjálshyggju. Hann þekkir til í Silicon Valley, hefur hitt Peter Thiel og einnig marga helstu hugsuði frjálshyggjunnar. Hann hefur rætt við Thatcher og Hayek og Milton Friedman. Fáir þekkja hægristefnuna jafn vel og hafa barist jafn mikið fyrir sjónarmiðum frjálshyggjunnar hér á landi, í ræðu og riti. Við...

6. Crypto-keisarinn David Sacks 27.03.2025

Á dögunum var David Sacks útnefndur gervigreindar og rafmynta-keisara hvíta hússins, semsagt helsti ráðgjafi Trump í þessum málefnum. Sacks er gamall skólafélagi Peter Thiel og JD Vance hefur sagt hann sinn nánasta félaga í Kísildalnum. Sacks eignaðist umtalsverða peninga eftir að hann tók þátt í að koma Paypal á koppinn, og hefur æ síðan verið áhugasamur um rafmyntir. Í þessum þætti sökkvum við o...

5. Starfsneminn Marc Andreessen 21.03.2025

Í þætti dagsins kynnum við okkur hugmyndir fjárfestisins Marc Andreessen. Marc hefur þangað til nýlega verið yfirlýstur demókrati en nú styður hann Trump. Hann tók þátt í því að hjálpa Trump að velja inn starfsfólk í nýju Trump-stjórnina og kallar sig ólaunaðan lærling hjá D.O.G.E. Hvað gerðist? Hverjar eru skoðanir Marc Andreessen, sem hefur stundum verið kallaður hugmyndafræðingur Kísildalsins?...

4. Libbar og amerískt lýðræði 14.03.2025

Fjórði þátturinn er með óvenjulegu sniði. Við fáum til okkar viðmælendur sem hjálpa okkur að skilja stofnun bandaríska lýðveldisins og frjálslyndisstefnuna, liberalismann, sem Peter Thiel og fleiri álíta að sé komin á endastöð. Viðmælendur: Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur og Páll Rafnar Þorsteinsson heimspekingur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

3. Borgarskipulagsfræðingurinn Balaji Srinivasan 10.03.2025

Við fjöllum um útópískar hugmyndir Kísildalsins, meðal annars Netríkið, Network State, sem Balaji Srinivasan hefur talað fyrir. Við ræðum meðal annars GAZA Inc, Prospera og tilraunir Praxis til að kaupa Grænland. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

2. Bloggarinn Curtis Yarvin 10.03.2025

Curtis Yarvin er tölvunarfræðingur og bloggari. Hann er líka maður myrku upplýsingarinnar, eða Dark Enlightenment og hann hefur lengi talað fyrir því að Bandaríkin þurfi að taka upp konungsveldi. Við kynnum okkur hugmyndir Curtis Yarvin eða Mencious Moldbug, eins og hann kallaði sig áður, og tengsl hans við Hvíta húsið. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

1. Frumkvöðullinn Peter Thiel 10.03.2025

Við fjöllum við um þýsk-amerísk-nýsjálenska fjárfestinn Peter Thiel, læriföður varaforsetans JD Vance og fyrsta áhrifamanninn úr Silicon Valley sem studdi við Donald Trump. Það efni sem við notuðum við gerð þáttarins var meðal annars eftirfarandi: Textar eftir Peter Thiel: - Zero to One: Notes on Startups, Or How to Build the Future (2014) - Education of a Libertarian (2009): https://www.cato-unbo...

Listen to the Konungssinnar í Kísildal podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.