Délítan
Kjaftæði
Kjaftæði! með Délítunni er spjall- og leikjaþáttur þar sem Délítan (Dagur, Viktor Ingi, og Palli) fær fólk til að ljúga upp í opið geðið á sér. Í hverjum þætti mætir gestur og segir áhugaverðar og skemmtilegar sögur úr sínu lífi en laumar einni lygasögu með. Drengirnir í Délítunni setjast í yfirheyrslusætin og spyrja gestina spjörunum úr til að komast að því hvað er sannleikur og hvað er kjaftæði.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.facebook.com
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Kjaftæði #018 - Þremenningar í þrjú ár [Laufey Ebba] 01.02.2022 34:17
Laufey Ebba: Tik Tok Stjarna, Vinnur við endurskoðun og er hundaeigandi. Átti hún hund, svaf hún hjá frænda eða átti ástarlot með púlara? Komist að sannleikanum í átjánda þættinum af Kjaftæði!
Kjaftæði #017 - Lygar úr Latabæ [Máni Svavarsson] 25.01.2022 47:50
Tónskáld, Techno Tarfur og Konungur Mánavirkis! Eða hvað? Máni Svavarsson kom til okkar á dögunum og sagði okkur frá virkjum, norðmönnum og tónlistarþjófum. Ekki er allt með felldu og kapparnir í Délítunni komast að sannleikanum í sautjánda þættinum af Kjaftæði!
Kjaftæði #016 - Högni, þú ert rækja! [Agnes Halla] 18.01.2022 54:12
Podcast stjórnandi, Tik-Tokkari, Tignarleg Tæfa. Hún Agnes Halla kom til okkar og sagði okkur frá þrísommi með grimmum afleiðingum, einvígi Högna og Sigfinns og hvernig allt rann saman á Vogi. Komist að því hvar lygin liggur í sextánda þættinum af Kjaftæði!
Kjaftæði #015 - Annie Lennox kaupir hest [Hugleikur Dagsson] 11.01.2022 1:00:54
Grínisti, myndasöguteiknari, rithöfundurinn. Hugleikur Dagsson kom til okkar með látum og sagði okkur fræknar sögur af absinthubar í Austur-Evrópu, endurfæðingu í Þjóðleikhúsinu og strangkristna bandinu Scooter. Ekki er allt sem sýnist og munu drengirnir komast að sannleikanum í fimmtánda þættinum af Kjaftæði!
Kjaftæði #014 - Kjarnorkuver undir Hlemmi [Dagur, Palli og Viktor] 04.01.2022 34:50
Pörupiltarnir í Délítunni hefja nýja árið með ennþá sturlaðri, vitlausari og ótrúverðugari sögum en nokkru sinni fyrr. Hvort sem þær tengjast bankaráni, geislavörnum eða stórhættulegum fiskum þá er aldrei að vita hvað er satt eða lygi í fjórtánda þættinum af Kjaftæði!
Kjaftæði #013 - Hamfarir og höfuðhögg [Unnur Jónsdóttir] 28.12.2021 1:01:53
Kvikmyndagerðakona, klippari, verðlaunahafi. Unnur Jónsdóttir kom til okkar á dögunum og sagði okkur að hún hefði fengið ýmislegt í höfuðið, sem og læknavask, nemendafót og leikaralim. En skyldi hún vera að segja satt? Að því ætla drengirnir að komast að í þrettánda þættinum af Kjaftæði!
Kjaftæði #012 - Dramatík í Djúpinu [Berglind Halla] 21.12.2021 56:36
Leikkona, teiknari og nýbökuð mamma. Hún Berglind Halla kom til okkar á dögunum og sagði okkur frá svaðilförum í djúpinu, hvítunni í Frakklandi og týndum tíma í Disneylandi. Þá fór nú að syrta í álinn því ólikt öðrum þáttum höfðu dáðadrengirnir í Délítunni ekki hugmynd um hvort ein eða tvær sögur voru kjaftæði. Komist að því í tólfta þættinum af Kjaftæði!
Kjaftæði #011 - Allir reyna að drepa Felix [Felix Bergsson] 14.12.2021 56:10
Disneyhetjan, Júróvísjónleiðtoginn og Greifi. Hinn eini sanni Felix Bergson kom og reyndi að sannfæra okkur um að hann hafi næstum verið drepinn á sviði, drepinn af Gunna Helga og drepinn "af" sviði. Einhver þessara saga er haugalygi og það er einmitt það sem drengirnir í Délítunni ætla að komast að í ellefta þættinum af Kjaftæði!
Kjaftæði #010 - Geðveiki í gufubaði [Gunnar Helgason] 07.12.2021 1:05:02
Kominn til að verma tíunda þáttinn er enginn annar en Gunnar Helgason! Leikari, leikstjóri, rithöfundur (og hundur ef út í þá sálma er farið). Hann sagði okkur fræknar sögur af Ungfrú Alheimi, íslenskum túristum og skriðdrekagufubaði en mær eru ekki allar sannar. Komist að því hver þessara frásagna er haugalygi í tíunda þættinum af Kjaftæði!
Kjaftæði #009 - Dýrið í Hálsaskógi [Konni Gotta] 30.11.2021 53:45
Adrenalínfíkill, stökkbrettakall, ritsjóri. Hann Konni Gotta kom til okkar og sagði okkur fræknar sögur af ælu, reisnum og hraðakstri allt með því yfirskini að blekkja okkur. En hvar liggur blekkingin? Komist að því í níunda þættinum af Kjaftæði!
Kjaftæði #008 - Lord of the Hrings [Nonni] 23.11.2021 45:50
Jón Sigurður (Nonni) er fimleikakappi, sirkússtjarna og alltaf í hringjum! Hann kom um daginn og sagði okkur frá ævintýralegri tilviljun, tvöföldu hlandi og Ronaldo (já, þeim Ronaldo). Eitthvað var þó hrein lygi. Komist að sannleikanum í áttunda þætti af Kjaftæði!
Kjaftæði #007 - Forðumst fólk [Palli, Dagur og Viktor] 16.11.2021 27:53
"Hlaðvarpsstjörnurnar", glensararnir, "rappararnir". Þið þekkið kappana, það eru Palli, Dagur og Viktor sem stíga hér sjálfir á stokk og ljúga hver að öðrum. Forðast Dagur fólk? Hræðir Palli Börn? Gerast allar sögurnar hans Viktors í Noregi? Hlustið á og komist að sannleikanum í sjöunda þættinum af Kjaftæði!
Kjaftæði #006 - Öfgar, klúnkið og danska klámið [Hulda Hrund] 09.11.2021 57:05
Leikkona, Hafnfirðingur og grjótharður Öfgi. Svo mætti lengi telja því Hulda Hrund segist einnig hafa verið Kryddþruma, barþjónn í níunda bekk og kaupandi atvinnudúnks af kynlífsdeyfikremi. Hvert af þessu er haugalygi getið þið komist að í sjötta þættinum af Kjaftæði!
Kjaftæði #005 - Brotin á báðum [Vigdís Hafliðadóttir] 02.11.2021 42:14
Uppistandari, söngkona, textahöfundur. Svona mætti lengi telja því hjá okkur situr Vigdís Hafliðadóttir og reynir að telja okkur trú um að hún hafi tvíhandleggsbrotnað, verið spurð um peninga og setið fyrir á skinnklæðunum. Piltarnir grafa djúpt og reyna að komast að sannleikanum í fimmta þættinum af Kjaftæði.
Kjaftæði #004 - Fingralaus í fermingarfræðslu [Fjölnir Gísla] 26.10.2021 41:08
Þið þekkið hann úr Já OK og Draugavarpinu! Leikarinn og hlaðvarpskappinn Fjölnir Gíslason leit til okkar og sagði okkur að honum hefði verið bjargað af hundi, þurft að afhenda fullt a fjár til skuggalegra Dana og misst fingur í fermingarfræðslu. Ein af þessum sögum er haugalygi, en hver? Komist að því í fjórða þættinum af Kjaftæði!
Kjaftæði #003 - Sverðaslagur við sérsveitina [Bjartmar Þórðarson] 19.10.2021 48:50
Bjartmar er leikari, leikstjóri, söngvari og raddþjálfi, og svo kennir hann fallhlífastökk! ...Hann kennir ekki fallhlífastökk. En skyldi hann hafa verið hústökumaður, komist í kast við sérsveit Nýju Jórvíkur eða verið stöðvaður af enn annarri mafíunni? Leggið við hlustir og komist að sannleikanum í þriðja þættinum af Kjaftæði!
Kjaftæði #002 - Stemningsmaður! [Kári Þór] 12.10.2021 36:24
Kári Þór Birgisson; samstarfsmaður, mölletmaður, stemningsmaður! Hann er kappinn sem daðraði við lögregluna, mætti óvæntri mótspyrnu á salerni og komst í kast við austur evrópska herramenn. Eða hvað? Það eina sem við vitum er að ein þessara staðreynda er kjaftæði!
Kjaftæði #001 - Ítalska djobbið [Urður Bergsdóttir] 05.10.2021 33:39
Lenti hún í útistöðum við ítölsku mafíuna? Brá hún sér í dulargervi sem fór algjörlega úr böndunum? Játaði vinur hennar morð á djamminu? Það er margt sem leikkonan, söngkonan og pönkarinn Urður Bergsdóttir hefur sér til lista lagt, en kann hún að ljúga? Því ætla drengirnir í Délítunni að komast að í fyrsta þættinum af Kjaftæði!
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.