Karfan

Karfan

Sports IS ↓ 679 episodes

Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.

Author

Karfan

Category

Sports

Podcast website

www.karfan.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Raggi Nat í spjalli - Stóri bekkjartrúðurinn frá Hveragerði 08.05.2018

Ragnar Nathanaelsson er gestur vikunnar í Podcasti karfan.is þar sem hann gerir upp ferilinn en hann hefur komið víða við. Það eru margar stórskemmtilegar sögur sem Raggi segir frá í þessum þætti auk þess sem nýlokið tímabil er gert upp. Umsjón: Ólafur Þór Jónsson og Davíð Eldur 11:45 - Nýjustu fréttir - Danero í Tindastól 16:50 - Ágúst dregur Ragga á æfingar í Hveragerði 13:30 - Veðrið kom í veg...

Warriors gegn Cavaliers, enn og aftur? 07.05.2018

Úrslitakeppni NBA deildarinnar er nú vel komin af stað. Fyrsta umferð óneitanlega meira spennandi en sú önnur, en ekki er ólíklegt að hún klárist á næstu dögum. Í þættinum er farið yfir þessar viðureignir og reynt að sjá fyrir hvernig þetta muni spilast það sem eftir líður. Gestur þáttarins er ritstjóri NBA Ísland og sérfræðingur Stöð 2 Sport, Baldur Beck. Gestur: Baldur BeckUmsjón: Davíð Eldur &a...

(Endurútgefið - Feb 2017) Craig fyrir EuroBasket 07.05.2018

Maltbikarkeppnin fór fram um helgina og stóð KR og Keflavík uppi sem bikarmeistarar í meistaraflokki. Helgin var stanslaus veisla og því er Podcastþáttur vikunar með viðhafnarsniði. Craig Pedersen landsliðsþjálfari Íslands settist niður með okkur og ræddi um körfubolta og íslenska landsliðið. Liðið mun leika á Eurobasket 2017 í Finnlandi en það er annað stórmótið sem landsliðið tekur þátt í. Peder...

(Endurútgefið - Sep 2017) Finnur Freyr fyrir tímabilið 29.04.2018

Rykið er enn að falla hjá körfuboltaáhugafólki eftir Eurobasket 2017. Íslenska liðinu tókst ekki að koma heim með sigur í farteskinu en eftirminnilegt mót fyrir íslenskan körfubolta var það engu að síður. Finnur Freyr Stefánsson aðstoðarþjálfari liðsins settist niður í Podcasti Karfan.is eftir mótið, gerði það upp og ræddi landsliðssumarið sem var tíðindamikið. Einnig voru titlarnir hjá KR ræddir...

(Endurútgefið - Nóv 2016) Helena fyrir síðasta tímabil 29.04.2018

Framundan eru tveir landsleikir hjá A-landsliði kvenna í undankeppni Eurobasket. Leikirnir eru gegn Slóvakíu og Portúgal, mikil breyting er á leikmannahóp liðsins. Helsta breytingin er sú að fyrirliði landsliðsins og besti leikmaður Íslands Helena Sverrisdóttir á von á barni og er ekki með. Hún settist niður með podcasti Karfan.is og ræddi ferilinn, Dominos deildirnar og landsleikina. Hvað gerðist...

Frá Gnúpverjum til Hveragerðis 27.04.2018

Örlítið er eftir af tímabilinu í Dominos deildunum en úrslitaeinvígin eru vel á veg komin og ráðast úrslitin á næstu dögum. Í podcasti vikunnar er spáð í spilin og síðustu leikir gerðir upp. Gestur þáttarins er Máté Dalmay nýráðinn þjálfari Hamars í Hveragerði. Hann gerir upp árin með Gnúpverjum og segir frá því hvernig tækifærið hjá Hamri kom til. Umsjón: Ólafur Þór Jónsson og Davíð Eldur Efnisyf...

Haddi um úrslitaeinvígið, Njarðvík og þjálfun 21.04.2018

Nýr þáttur af Podcasti Karfan.is er kominn í loftið. Þar ræðir Hallgrímur Brynjólfsson, fyrrum þjálfari kvennaliðs Njarðvíkur, feril sinn sem leikmann og sem þjálfara. Haddi, eins og hann er yfirleitt kallaður, fer yfir liðin sem hann spilaði með og hvernig hann leiddist út í þjálfun og rekur síðan Njarðvíkur ævintýrið sitt á nýliðnu tímabili. Við tölum svo almennt um úrvalsdeild kvenna sem er ný...

Upphitun fyrir úrslitaeinvígi Dominos deildanna með Vilhjálmi Steinarssyni 18.04.2018

Á morgun hefjast lokaúrslit Dominos deildar kvenna með fyrstu viðureign Hauka og Vals í DB Schenker Höllinni í Hafnarfirði. Degi seinn fara lokaúrslit Dominos deildar karla svo af stað í Síkinu á Sauðárkróki með fyrsta leik Tindastóls og KR.Podcast Körfunnar fékk aðstoðarþjálfara Hauka, Vilhjálm Steinarsson, til þess að rýna í báðar viðureignir, fara yfir viðsnúning Hauka síðasta árið og ræða nokk...

Upphitun fyrir úrslitakeppni NBA deildarinnar - Getum ekki beðið eftir Lance! 12.04.2018

Í þessum síðasta þætti er farið yfir við hverju er að búast í einvígi fyrstu umferðar úrslitakeppninnar. Úrslitakeppnin fer af stað á laugardaginn með fjórum leikjum, seinni fjórir fyrstu leikirnir eru svo degi seinna. Gestur þáttarins er ritstjóri NBA Ísland og sérfræðingur Stöð 2 Sport, Baldur Beck. Fyrsti leikurinn sem hann mun leiða landann í gegnum er fyrsti leikur Cleveland Cavaliers og Indi...

(Endurútgefið - Nóv 2017) Hlynur og Jakob ræða ferilinn og landsliðið 06.04.2018

Íslenska landsliðið leikur í kvöld sinn fyrsta leik í undankeppni heimsmeistaramótsins 2019. Liðið er í riðli með Búlgaríu Finnlandi og Tékklandi og mun leika á móti þeim þjóðum heima og heiman. Fyrsti leikur liðsins fer fram í Pardubice í Tékklandi, en sá annar komandi mánudag gegn Búlgaríu heima í Laugardalshöll. Liðið kom saman í Tékklandi síðasta mánudag, þar sem það hefur verið við æfingar al...

(Endurútgefið - Jan 2017) Sverrir Þór ræðir um ferilinn og Keflavík 06.04.2018

Keflavík og Tindastóll koma frá hátíðunum í topp sætum Dominos deildanna. Einhverjar breytingar hafa verið gerðar á liðum og körfuboltinn aftur farinn að rúlla eftir ofát og græðgi jólanna. Hið unga og efnilega lið Keflavíkur fær alvöru prófraun strax þegar liðið mætir íslandsmeisturum síðustu þriggja ára Snæfell. Gestur vikunnar er einmitt Sverrir Þór Sverrisson þjálfari Keflavíkur. Hann er næstl...

(Endurútgefið- Jan 2017) Birna Valgarðs um ferilinn og fleira 06.04.2018

Þegar dag fer að lengja sækir alvaran að körfuboltaliðum landsins. Leikirnir fara að skipta meira máli og hvert stig getur skipt á endanum öllu. Í Dominos deild kvenna virðast Keflavík, Snæfell, Skallagrímur og Stjarnan ætla að stinga af en Njarðvík getur breytt því með sigri í vikunni. Danero Thomas flúði Akureyri og skrifaði undir í breiðholti í vikunni. Mun það hafa einhver áhrif eða verða bæði...

Meiri dramatík og spenna framundan? - Undanúrslitin að hefjast 03.04.2018

Undaúrslit Dominos deildar karla hefjast annað kvöld þegar ÍR fær Tindastól í heimsókn. Í hinu einvíginu mætast svo KR og Haukar. Í þætti vikunnar verður farið yfir tíðindamikil einvígi í átta liða úrslitum og spáð í spilin fyrir einvígin í undanúrslitunum. Gestur þáttarins er Hraunar Karl Guðmundsson leikmaður Gnúpverja og körfuboltaáhugamaður mikill. Umsjón: Ólafur Þór og Davíð Eldur Efnisyfirli...

Helena og Finnur Atli ræða lífið og tilveruna 01.04.2018

Nýr þáttur af Podcasti Karfan.is er kominn í loftið. Þar ræða Helena Sverrisdóttir og Finnur Atli Magnússon lífið og tilveruna, bæði innan og utan körfunnar. Hjónin tilvonandi (sem gifta sig í sumar) fara yfir fyrstu minningarnar úr körfunni, tala um fyrsta stefnumótið sitt, ræða körfuboltann í Hafnarfirði og hvernig systkini makans hafi tekið á móti sér. Við ræðum seinasta spennuleik beggja og at...

Er Íslandsmeistaratitillinn á leiðinni úr Keflavík? 01.04.2018

Á morgun hefjast undanúrslit Dominos deildar kvenna með fyrsta leik viðureignar Skallagríms og deildarmeistara Hauka. Degi seinna leika Valur og Íslandsmeistarar Keflavíkur svo fyrsta leik í sínu einvígi. Í þessari síðustu útgáfu Karfan.is er farið yfir deildarkeppnina sem lauk fyrir nokkrum dögum. Hvað kom á óvart, hvaða leikmenn áttu bestu tímabilið, hvað sé í kortunum fyrir úrslitakeppnina og m...

Verðlaunaafhending fyrir 2017-18 NBA tímabilið 27.03.2018

Nú þegar aðeins nokkrir leikir eru eftir af tímabilinu og mörg lið eru komin í hvíldarstöðu fyrir úrslitakeppnina, er vel við hæfi að veita nokkur verðlaun. Hver verður valinn verðmætasti leikmaðurinn, hver er besti varnarmaðurinn, nýliði ársins og eitthvað fleira. Svör við þessum spurningum og hvernig restin af deildarkeppninni á eftir að spilast er að finna í þessari nýjustu útgáfu NBA Podcasts...

Neyðarupptaka eftir körfu aldarinnar 21.03.2018

Í þessari síðustu útgáfu er farið yfir fyrstu leiki úrslitakeppninnar. Þar sem að þrjár af fjórum viðureignum virðast ætla að enda með sópi, eða hvað? Annað kvöld mun Njarðvík mæta KR og ÍR tekur á móti Stjörnunni. Á föstudaginn eiga Haukar við Keflavík og Tindastóll mæta Grindavík. Gestur þáttarins er maður með mikið tölfræðiblæti, sem og er hann einn af fyrrum ritstjórum Karfan.is, Hörður Tulini...

Hvað lið vinnur úrslitakeppni 1. deildar kvenna? 15.03.2018

Nýr þáttur af Podcasti Karfan.is er kominn í loftið. Þar ræðir Bryndís Gunnlaugsdóttir, leikmaður meistaraflokks kvenna hjá ÍR, 1. deild kvenna þetta árið. Við förum yfir gengi ÍR, ræðum ný afstaðna skoðanakönnun 1. deildar kvenna og ræðum framtíð kvennakörfunnar á næstu árum ásamt mikilvægi góðra þjálfara í yngri flokkum kvenna. Umsjón: Helgi Hrafn Ólafsson00:00:30 – Kynning og létt spjall um ÍR...

Úrslitakeppnin að hefjast: Hvað gerðist hjá Keflavík? 13.03.2018

Það er hátíð í bæ hjá körfuboltaáhugafólki landsins. Úrslitakeppnin í Dominos deild karla er að hefjast og framundan er körfuboltaveisla. Í þætti vikunnar spáum við í spilin og gerum upp deildarkeppnina. Gestur þáttarins er Þröstur Leó Jóhannsson leikmaður Keflavíkur. Hann fer yfir ferilinn og gerir upp þetta skrautlega tímabil hjá Keflavík. Umsjón: Ólafur Þór Jónsson og Davíð Eldur 1:00 - Hvar by...

Hvaða lið fer upp í Dominos með Skallagrím? 04.03.2018

Nýr þáttur af Podcasti Karfan.is er kominn í loftið. Þar ræðir Skúli Guðmundsson, stjórnarmaður í karlaráði meistaraflokks karla hjá Skallagrími, 1. deild karla þetta árið. Við förum yfir ný krýnda deildarmeistarana, Skallagrím, ræðum ný afstaðna skoðanakönnun 1. deildar karla og ræðum undir lokin fjölda útlendinga í deildunum á næsta ári og hvort hægt sé að kaupa sér lið og titil á Íslandi. Umsjó...

Jón Arnór: Vill stíga frá leiknum áður en ég verð gæjinn sem er ekki inná í lokin 28.02.2018

Í nýjustu útgáfu af Podcasti Karfan.is er rætt við geitina, Jón Arnór Stefánsson. Farið er yfir víðan völl, þar sem byrjað er á æskuárunum í KR, síðan miðskólann í Bandaríkjunum, NBA árið, ferilinn í Evrópu og margt, margt fleira. Þá er einnig tekin staða á landsliðinu og Dominos deildinni. Undir lokin er svo farið yfir hvar hann sér sjálfan sig á næstu árum. Gestur: Jón Arnór StefánssonUmsjón: Da...

Margrét Sturlaugs: Markmið að gera leikmenn að betri einstaklingum 17.02.2018

Margrét Sturlaugsdóttir körfuboltaþjálfari og fyrrum leikmaður Keflavíkur er gestur vikunnar í Podcastinu. Hún ræðir körfuboltauppeldið, fyrsta titil Keflavíkur og áherslur sínar í þjálfun. Margar góðar sögur af ferlinum koma upp og hið skrautlega hálfa ár sem þjálfari meistaraflokks Keflavíkur gert upp. Auk þess sem Margrét ræðir opinskátt um baráttu sína við veikindi. Umsjón: Ólafur Þór Jónsson...

Russell Westbrook verður aldrei besti leikmaður meistaraliðs 14.02.2018

Í nýjustu útgáfu af NBA Podcasti Karfan.is er farið yfir stöðu liðanna í deildinni. Spáð í spilin fyrir lokasprett deildarkeppninnar, því blóðbaði sem baráttan um 8. sætið í hvorri deild á eftir að vera. Þá er í lokin létt umræða um komandi sumar, bæði hvaða leikmenn séu á leiðinni nýjir inn í deildina, sem og þá búferlaflutninga sem líklegir þykja. Umsjón: Davíð Eldur & Sigurður OrriDagskrá:0...

Æsilegur endasprettur framundan! 02.02.2018

Það styttist heldur betur í úrslitakeppnin í Dominos deildunum. Liðin hafa nú staðfest þá leikmannahópa sem fara í lokasprett deildanna en félagaskiptaglugginn lokaði í liðinni viku. Framundan er æsilegur lokasprettur og til að gera upp síðustu umferðir og taka stöðuna fengum við Hörð Unnsteinsson í spjall. 1:00 - Umræða um Dominos deild karla 18:45 - Umræða um Dominos deild kvenna 31:30 - Hvaða l...

Það er kaos í Cleveland 25.01.2018

Í nýjustu útgáfu af NBA Podcasti Karfan.is er farið yfir stöðu liðanna í deildinni. Spáð í brotthvarfi Jason Kidd frá Milwaukee Bucks, vandræðum Cleveland Cavaliers, fýlunni sem Kawhi Leonard er farinn í og mörgu fleiru. Þá eru stjörnulið deildanna skoðuð í lokin. Þar sem að Sigurður Orri og Baldur Beck færa rök fyrir og velja leikmenn í sín stjörnuliðGestur: Baldur BeckUmsjón: Davíð Eldur & S...

Listen to the Karfan podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.