Karfan

Karfan

Sports IS ↓ 679 episodes

Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.

Author

Karfan

Category

Sports

Podcast website

www.karfan.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Yfir/Undir Austurströndin - Verður Markelle Fultz stjörnuleikmaður? 26.08.2018

Nú styttist í að NBA deildin fari af stað. Mikið af hræringum hafa átt sér stað á leikmannamarkaði sumarsins og er liðunum því áætlað misjafnt gengi. Árlega fer NBA Podcast Körfunnar yfir over/under stuðla Westgate, þar sem spáð er í spilin fyrir komandi tímabil. Að þessu sinni er það ritstjóri NBA Íslands og lýsir Stöðvar 2 Sport, Baldur Beck, sem fer yfir hvert einasta lið deildarinnar. Gestur:...

Annar hluti - Sveinbjörn Claessen: Fúll ef við gerum ekki betur en í fyrra 21.08.2018

Sveinbjörn Claessen: Fúll ef við gerum ekki betur en í fyrra Sveinbjörn Claessen leikmaður ÍR ákvað að leggja skóna á hilluna síðasta vor eftir 13 ára farsælan feril. Það var búið að vera á dagskránni hjá Körfunni í allt sumar að ná í kappann og gera þessi ár aðeins upp. Úr því varð svo nú síðustu helgi. Afraksturinn tæpir þrír klukkutímar af spjalli, en með því sló Sveinbjörn met sem Hrafn Kristj...

Gunnhildur og Berglind í spjalli í Hólminum 20.08.2018

Það er stutt í tímabilið og úrvalsdeild kvenna virðist ætla að verða þrælöflugt. Í tilefni þess heimsótti Karfan.is systurnar Gunnhildi og Berglindi Gunnarsdætur í Stykkishólminn. Þær fóru ekki í úrslitakeppnina á seinasta tímabili og stefna á að laga það á komandi tímabili. Við förum aftur í tímann og skoðum upphaf meistaraflokks kvenna hjá Snæfell og hlutverk systranna innan liðsins. Fjölskylda...

Fyrri hluti - Sveinbjörn Claessen: Ég hefði ekki verið tekinn svona af lífi 20.08.2018

Sveinbjörn Claessen leikmaður ÍR ákvað að leggja skóna á hilluna síðasta vor eftir 13 ára farsælan feril. Það var búið að vera á dagskránni hjá Körfunni í allt sumar að ná í kappann og gera þessi ár aðeins upp. Úr því varð svo nú síðustu helgi. Afraksturinn tæpir þrír klukkutímar af spjalli, en með því sló Sveinbjörn met sem Hrafn Kristjánsson setti árið 2016 um einhverjar 35 mínútur. Því ekki úr...

Ólöf Helga: Aldrei verið þekkt fyrir að taka auðveldu leiðina 16.08.2018

Miklar hræringar hafa verið á leikmanna og þjálfaramarkaði Dominos deildar kvenna fyrir komandi tímabil. Líklega ein stærsta sú að Ólöf Helga Pálsdóttir Woods var ráðin þjálfari hjá ríkjandi Íslandsmeisturum Hauka. Hennar fyrsta þjálfarastarf í efstu deild. Í þessari síðustu upptöku af Podcasti Körfunnar fer Ólöf í gegnum feril sinn sem leikmaður, hvernig hún leiddist út í þjálfun og svo er spáð í...

1 á 1: Kristófer Acox í einlægu spjalli 16.08.2018

Í þessum fyrsta þætti af 1 á 1 hjá Körfunni er gesturinn Kristófer Acox. Kristófer er nýjasti atvinnumaður Íslendinga í körfubolta og flytur til Frakklands á næstu dögum. Í þættinum er rætt um agann í Bandaríkjunum, titlana hjá KR, landsliðið, ævintýrin í Filipseyjum og B5 svo einhver dæmi séu tekin. Umsjón: Ólafur Þór Jónsson Efnisyfirlit: 1:45 - Uppeldið í Vesturbænum - Upprennandi framherji í f...

Gunnar Ólafsson - "Hlakka til að mæta gömlum liðsfélögum og vinum" 14.08.2018

Nú þegar tímabilið er við það að byrja og flest lið farin að æfa stíft náði Karfan.is góðu spjalli við Gunnar Ólafsson, leikmann Keflavíkur sem er nýbúinn með fjögur ár af háskólabolta hjá St. Francis. Gunnar segir frá sinni reynslu af því að vera úti í New York í háskólanámi og stífu körfuboltaprógrammi í fjögur ár. Hann segir frá hlutverkaskiptum milli ára, æfingaálagi og íþrótta aðstöðunni úti...

Martin Hermannsson - "Allt gerist af ástæðu" 09.08.2018

Í eitt af lokaviðtölum sumarsins náði Karfan.is löngu og góðu spjalli við Martin Hermannsson, nýjasta leikmann Alba Berlin og byrjunarliðsmaður íslenska landsliðsins. Martin ræðir upphafið, heimildarmynd sem gerð var um sig, háskólaárin í Long Island University og ákvörðunina að slíta skólagöngunni fyrir sakir atvinnumennskunnar. Hann segir frá símhringingu sem að hann fékk frá Tony Parker sjálfum...

Getum við hætt að búa til afsakanir fyrir Russell Westbrook? 07.08.2018

Ennþá er þó nokkuð í að NBA deildin rúlli af stað. Mikið af pælingum eru hinsvegar í gangi um hvernig þetta næsta tímabil eigi eftir að vera. Í þættinum fara þeir Davíð og Sigurður yfir nokkra hluti sem þeim hlakkar til að sjá á komandi tímabili. Umsjón: Davíð Eldur & Sigurður OrriDagskrá:Létt hjal (00:30) Luca Doncic í NBA deildina (05:30)Eru Boston tilbúnir? (12:30)Hvað gerir Kawhi fyrir Rap...

Ótímabær kraftröðun Dominos deildar kvenna - Power Ranking 01.08.2018

Nú þegar styttast fer í undirbúningstímabil flestra liða eru leikmannahópar liðanna að skýrast. Enn er margt óljóst en leikmannamarkaður sumarsins hefur verið ansi tíðindamikill. Á dögunum gaf Karfan.is út mjög ótímabæra kraftröðun þar sem staðan á liðunum er metin. Í þessum þætti förum við yfir liðin í Dominos deild kvenna ásamt Bryndísi Gunnlaugsdóttur og spáum í spilin. Umsjón: Ólafur Þór og Da...

Ótímabær kraftröðun Dominos deildar karla - Power Ranking 31.07.2018

Nú þegar styttast fer í undirbúningstímabil flestra liða eru leikmannahópar liðanna að skýrast. Enn er margt óljóst en leikmannamarkaður sumarsins hefur verið ansi tíðindamikill. Á dögunum gaf Karfan.is út mjög ótímabæra kraftröðun þar sem staðan á liðunum er metin. Í þessum þætti förum við yfir liðin í Dominos deild karla ásamt Bryndísi Gunnlaugsdóttur og spáum í spilin. Umsjón: Ólafur Þór og Dav...

Leyfið ljósunum að skína í Los Angeles 18.07.2018

Rúmar tvær vikur eru liðnar síðan að opnað var fyrir leikmannamarkað NBA deildarinnar. Nokkuð mikið hefur gerst síðan, þar sem meðal annarra nokkrir allra bestu leikmanna deildarinnar hafa skipt um lið fyrir komandi tímabil. Í þættinum er farið yfir nokkur stærstu nöfnin, sem og pælt í hvaða áhrif þetta muni hafa á deildirnar á næsta tímabili. Umsjón: Davíð Eldur, Ólafur Þór og Sigurður OrriDagskr...

Hannes um landsliðin, Dominos deildirnar, erlenda leikmenn og fleira 13.07.2018

Í annað skiptið í sumar náði Karfan.is að tryggja sér viðtal við formann KKÍ til að spjalla um allt körfuboltatengt. Hannes Jónsson settist niður með Karfan.is og ræddi landsliðin og nýafstaðin töp A-landsliðs karla og hvaða merkingu það hafi að þeir séu dottnir úr undankeppni HM. Bosman-reglan bar á góma og Hannes útskýrði hvað gerðist til að reglugerðarbreytingin fór í gegn. 1. deild kvenna verð...

Arnar Guðjóns í spjalli - Tekur við Stjörnunni og kveður landsliðið 23.06.2018

Borgfirðingurinn Arnar Guðjónsson settist niður með Podcasti karfan.is á dögunum og ræddi um heima og geima. Arnar sem hefur komið víða við á sínum ferli, allt frá Höfn í Hornafirði til Aarhus í Danmörku hefur frá ýmsu að segja. Arnar er nýráðinn þjálfari Stjörnunnar í Garðabæ og er fyrrum aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla. Hann er gestur þáttarins að þessu sinni. Umsjón: Ólafur Þór og Davíð Eldu...

Neyðarþáttur - Tryggvi í NBA deildina? 20.06.2018

Í kvöld fer fram NBA nýliðavalið 2018 en í þetta skiptið er það sérlega spennandi fyrir okkur íslendinga. Ástæðan er sú að Bárðdælingurinn Tryggvi Snær Hlinason er talinn líklegur til að vera á meðal leikmanna sem valdir verða í eitthvert lið. Þessi neyðarútgáfa af Podcasti karfan.is er því helguð NBA nýliðavalinu og umræðan mest á Tryggva Hlinasyni. Gestur þáttarins er Arnar Guðjónsson núverandi...

Yngvi Páll: Körfuboltabúðir Vestra, starfið á Ísafirði og aðlögunarhæfni þjálfara 14.06.2018

Blaðamaður Karfan.is var fyrir vestan í körfuboltabúðum Vestra og tók nokkur stutt og laggóð viðtöl við þjálfara og leikmenn sem voru þar. Yngvi Páll Gunnlaugsson, yfirþjálfari Vestra og einn af skipuleggjendum körfuboltabúðanna, kom í viðtal daginn eftir að búðunum lauk til að ræða þær. Við ræddum hvernig hann sæi næsta tímabil fyrir sér og hvernig gengi að fá leikmenn vestur á Ísafjörð. Starfið...

Hannes Jónsson: Körfubolti er orðin heilsárs-íþrótt 13.06.2018

Blaðamaður Karfan.is var fyrir vestan í körfuboltabúðum Vestra og tók nokkur stutt og laggóð viðtöl við þjálfara og leikmenn sem voru þar. Að þessu sinni fékkst formaður KKÍ, Hannes S. Jónsson, til að mæta í stutt viðtal. Við ræddum Vestra körfuboltabúðirnar og sumarstarf KKÍ ásamt yngri landsliðaverkefni (og verkefni A-landsliðanna) í sumar. Að lokum ræddum við vöxt körfubolta á Íslandi og hvert...

Fer LeBron James til Rockets eða Lakers? 12.06.2018

NBA tímabilið kláraðist á dögunum með sigri Golden State Warriors. Úrslitaserían var frekar ósanngjörn þar sem að Cavaliers lágu 4-0 fyrir meisturunum. Í þessum síðasta þætti tímabilsins er farið yfir úrslitakeppnina og við hverju megi búast af leikmannamarkaðinum í sumar. Þátturinn er einnig á iTunesUmsjón: Davíð Eldur & Sigurður OrriTryggvi Snær á leið í deildina (00:30)Casey til Pistons (10...

Elvar Már um háskólaboltann, landsliðið og þjálfun 08.06.2018

​Blaðamaður Karfan.is er fyrir vestan í körfuboltabúðum Vestra og er að taka stutt og laggóð viðtöl við þjálfara og leikmenn sem eru þar. Enn annar þjálfunarþáttur af Podcasti Karfan.is er því kominn í loftið. Elvar Már Friðriksson var leynigestur í búðunum í ár og Karfan.is var svo lánsamt að ná eldsnöggu viðtali við hann. Elvar ætti að vera flestum körfuboltaunnendum góðkunnur eftir landsliðsævi...

Jóhannes Kristbjörnsson um þjálfun, hugarfar og Njarðvík 06.06.2018

Blaðamaður Karfan.is er fyrir vestan í körfuboltabúðum Vestra og er að taka stutt og laggóð viðtöl við þjálfara sem eru þar að taka þátt. Enn annar þjálfunarþáttur af Podcasti Karfan.is er því kominn í loftið. Þar er rætt við Jóhannes Albert Kristbjörnsson, Njarðvíking og reynslubolta, bæði sem leikmaður og þjálfari. Jói talar um eftirminnilega tapleiki og hvaða lærdóm megi draga af þeim. Einbeiti...

Kristjana um þjálfun, Keflavík og eljuna 05.06.2018

Nýr þjálfunar þáttur af Podcasti Karfan.is er kominn í loftið. Þar er rætt við Kristjönu Eir Jónsdóttur, þjálfara yngri flokka Keflavíkur, aðstoðarþjálfara U-16 stúlkna og aðalþjálfara U-14 stúlkna. Elja er til umræðu og hvernig leikmenn geti þjálfað það upp í sér sem og hvernig það skilar sér inni á vellinum. Þjálfarar Keflavíkur og sigurvilji Keflvíkinga ber á góma og við ræðum hvaða hlutverki t...

Brynjar Þór um þjálfun, síðustu tímabil með KR og framtíðina 02.06.2018

Nýr þáttur af Podcasti Karfan.is er kominn í loftið. Þar er rætt við Brynjar Þór Björnsson, fimmfaldan Íslandsmeistara með KR og stofnanda körfuboltaþjálfunar Brynjars. Við ræðum KR og Laugardalinn, streetball með gömlum hetjum og körfuboltaþjálfun Brynjars. Brynjar segir frá hvað honum finnst skipta máli í skotum og hvernig maður verður góður skotmaður. Landsliðið er rætt og við förum gegnum hlut...

Upphitun fyrir lokaúrslit NBA deildarinnar 30.05.2018

Annað kvöld hefjast lokaúrslit NBA deildarinnar þar sem að Cleveland Cavaliers og Golden State Warriors mætast í fyrsta leik. Fjórða árið í röð sem þessi lið mætast í úrslitum, en þó má segja að um eilítið breytta hópa sé að ræða. Í þessari síðustu útgáfu af NBA podcasti Körfunnar er farið yfir málefni dagsins, undanúrslitin sem voru að klárast og það einvígi sem eftir er. Umsjón með þættinum hafa...

Er LeBron James besti leikmaður allra tíma? 22.05.2018

Úrslitakeppni NBA deildarinnar er nú vel komin af stað. Fyrsta umferð óneitanlega meira spennandi en sú önnur, og sú þriðja ekki ennþá innihaldið spennandi leik. Þó vissulega séu bæði einvígin mjög áhugaverð. Í þættinum er farið yfir þessar viðureignir og reynt að sjá fyrir hvernig þetta muni spilast það sem eftir líður. Gestur þáttarins er ritstjóri NBA Ísland og sérfræðingur Stöð 2 Sport, Baldur...

Ágúst: Hvernig ná leikmenn árangri? 22.05.2018

Nýr þáttur af Podcasti Karfan.is er kominn í loftið. Þar er rætt við Ágúst Björgvinsson, þjálfara Vals, um þjálfun yfir sumarið, körfuboltabúðir og hvað skipti hann máli á æfingum. Ágúst fer yfir þjálfaranámskeiðin hjá KKÍ ásamt menntun þjálfara á Íslandi og nefnir nokkra áhrifamestu kennara sína og bækur. Hann ræðir það sem honum finnst skipta máli fyrir árangur hjá liðum og leikmönnum, vinnusemi...

Listen to the Karfan podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.