Karfan

Karfan

Sports IS ↓ 679 episodes

Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.

Author

Karfan

Category

Sports

Podcast website

www.karfan.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Social Chameleon #13 - Khalil Ahmad um árið á Íslandi, Drew sumardeildina og hvernig það hafi verið spila við Ball bræður í yngri flokkum 13.12.2021

Dominykas Milka ræðir við fyrrum leikmann Keflavíkur Khalil Ahmad um ferðalag hans frá Kaliforníu til atvinnumennsku á Íslandi og í Danmörku. Þá ræðir hann einnig hvernig það er að æfa með NBA leikmönnum á sumrin, en hann hefur síðustu ár leikið í Drew sumardeildinni þar sem margar af skærustu stjörnum boltans láta sjá sig. Khalil kom upphaflega til Íslands árið 2019, en á sínu fyrsta tímabili í a...

Aukasendingin - Keflvíkingar komnir á toppinn, fallbaráttan að harðna og íslenskir leikmenn sem valdið hafa vonbrigðum 07.12.2021

Aukasendingin fékk til sín Þann Hundtrygga Hraunar Karl og Þann loftslagskvíðna Guðmund Auðunn til þess að ræða fréttir vikunnar, Subway deild karla og fyrstu deildina. Þá er í lokin farið yfir hvaða íslensku leikmenn hafa verið bestu viðbæturnar við sín lið í Subway deildinni og hvaða leikmenn hafa ekki skilað því sem til var ætlast. Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils og Subway. Samstarfsa...

Undir Körfunni - Embla Kristínardóttir um erfið meiðsli sín, dólgslegan leikstíl, barneigna tilkynningar og erjur við þjálfara á ferlinum „Ég setti fótinn niður og sagði hingað og ekki lengra“ 06.12.2021

Embla Kristínardóttir, leikmaður Skallagríms, er viðmælandi í fimmta þætti Undir Körfunni. Embla ræðir um feril sinn hingað til, helstu ástæður vegna félagaskipta og tilveruna í Borgarnesi. Embla tilkynnti á dögunum að hún ætti von á sínu öðru barni og mun ekki spila meira á tímabilinu með Skallagrím. Embla svarar slúðursögum sem hafa gengið á varðandi tilkynningar hennar til félagsins og Embla ræ...

Social Chameleon #12 – Callum Lawson um líf atvinnumannsins, breskan körfubolta og hvað hann ætli að gera eftir ferilinn 05.12.2021

Dominykas Milka ræðir við leikmann Vals Callum Lawson um breskan körfubolta, erfiða byrjun á atvinnumannaferil og hvað hann ætli að gera eftir að körfuboltaferil hans lýkur. Callum kom upphaflega til Íslands tímabilið 2019-20, en frá því hann kom hefur hann leikið með Keflavík, Íslandsmeisturum Þórs og nú Val. Social Chameleon mun koma reglulega út í vetur, en í því mun Dominykas ræða við áhugaver...

Fókus: Njarðvík rígheldur í efsta sætið, Fjölnir á siglingu og hverjir eru efnilegustu leikmenn Íslands? 03.12.2021

Fókus kom saman og fór yfir síðustu umferð Subway deildar kvenna, spáði fyrir um þá næstu og velti fyrir sér hverjir væru efnilegustu leikmenn landsins. Umsjónarmaður Fókus er fyrrum leikmaðurinn og þjálfarinn Ólöf Helga Pálsdóttir Woods, en henni til halds og trausts í dag var ritstjóri Körfunnar Davíð Eldur. Fókus er í boði Kristalls, Lykils og Subway. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Tactic...

Undir Körfunni – Dúi Þór um lífið á Akureyri, körfubolta áhugann sem og viðureignir við og með Þór Akureyri. „Það eru fáir í deildinni sem geta unnið mig í 100 metra spretthlaupi“ 29.11.2021

Dúi Þór Jónsson, leikmaður Þórs Akureyri, er viðmælandi í fjórða þætti Undir Körfunni. Dúi fer yfir feril sinn til þessa, yngri flokkana og þá sérstaklega hörð einvígi Stjörnunnar við Þór Akureyri og svo skipti Dúa yfir til Þórs. Dúi ræðir fyrstu skref sín inn í meistaraflokk, hans helstu fyrirmyndir og fjölskyldumeðlimi, ásamt því hverjum hann myndi helst vilja syngja með í dúett. Dúi gefur upp d...

Social Chameleon #11 - Jaka Brodnik um erfiðleika í byrjun ferilsins, að spila með Jokic og Nurkić í NBA sumardeildinni og ferðalagið til Íslands “Deildin á Íslandi er vanmetin” 28.11.2021

Dominykas Milka ræðir við leikmann Keflavíkur Jaka Brodnik um hvernig það hafi verið að alast upp í slóvenskum körfubolta, erfiðleika á fyrstu árum atvinnumennsku, ferðalag vestur um haf í sumardeild NBA deildarinnar, hvernig hann hafi endað á Íslandi og margt fleira. Jaka kom upphaflega til Íslands til Þórs í nóvember 2018. Þaðan fór hann til Tindastóls og var með þeim frá 2019 til 2021 áður en h...

Fókus: Sterkur sigur Njarðvíkur og vandræði í Kópavogi 26.11.2021

Fókus kom saman og fór yfir fyrstu leiki eftir landsleikjahlé, mikilvægan sigur Grindavíkur á Breiðablik, vafaatriði í Dalhúsum, erfitt gengi Skallagríms og margt fleira. Umsjónarmaður Fókus er fyrrum leikmaðurinn og þjálfarinn Ólöf Helga Pálsdóttir Woods, en henni til halds og trausts í dag var ritstjóri Körfunnar Davíð Eldur. Fókus er í boði Kristalls, Lykils og Subway. Samstarfsaðilar Körfunnar...

Social Chameleon #10 - Logi Gunnarsson um Njarðvík, árin í Evrópu, landsliðsævintýrin og hvernig það sé að eldast sem körfuboltamaður “Vill ekki hætta fyrr en ég er tilbúinn til þess” 24.11.2021

Dominykas Milka ræðir við leikmann Njarðvíkur og fyrrum leikmann íslenska landsliðsins Loga Gunnarsson um ferilinn með Njarðvík, liðum víðsvegar í Evrópu, landsliðsævintýrin og hvernig það sé að eldast sem körfuboltamaður. Social Chameleon mun koma reglulega út í vetur, en í því mun Dominykas ræða við áhugavert fólk bæði um hin ýmsu málefni sem snerta körfuknattleik, sem og málefni líðandi stundar...

Aukasendingin - Máté rýfur þögnina, verðlaun fyrir fyrstu sjö í Subway og umræða um landsliðsvalið 22.11.2021

Aukasendingin fékk til sín Þann Hundtrygga Hraunar Karl og Snáða 2 Máté Dalmay til þess að ræða fréttir vikunnar, landsliðsvalið og fyrstu deildina. Þá eru veitt verðlaun fyrir fyrstu sjö umferðir Subway deildar karla, þar sem besti leikmaður, mestu framfarir, besti þjálfari, fimma manna úrvalslið og magt fleira er valið. Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils og Subway. Samstarfsaðilar Körfunn...

Undir Körfunni - Raggi Braga um erfiðan viðskilnað í Breiðholtinu, bleika hárið og Íslandsmeistaratitilinn í Þorlákshöfn „Við höfum trú á því að við getum unnið alla“ 22.11.2021

Ragnar Örn Bragason, leikmaður Þórs Þorlákshafnar, er þriðji viðmælandinn Undir Körfunni. Ragnar ræðir ferilinn sinn, lífið sem Íslandsmeistari og hvernig það er að spila undir stjórn Lárusar Jónssonar. Ragnar fer yfir hörð einvígi á parketinu við fyrirmynd sína í körfuboltanum, Brynjar Þór Björnsson, ásamt því að segja sögu af Kinu Rochford, útskýra mismunandi hárliti sína, fara yfir stemninguna...

The Uncoachables: National team and trade windows 19.11.2021

Helgi and David sat down to talk about trade windows and what teams changed up their rosters. They also discussed the women's national team games and the men's national team roster. Enjoy! Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson and David Patchell Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill. Hér heimsækir þú Körfuna

Aukasendingin - Ægir Þór um lífið á Spáni, Subway deildina og landsleikina sem framundan eru 17.11.2021

Aukasendingin ræddi við leikmann íslenska landsliðsins og Acunsa GBC á Spáni um hvernig það hafi verið að flytja með fjölskylduna til Spánar nú í haust, hverjar væntingar fyrir tímabilið séu í San Sebastian, hvernig honum lítist á gengi liða í Subway deildinni á þessu tímabili og hvernig hann sjái landsliðsgluggann sem framundan er fyrir sér. Þá spáir Ægir í restina fyrir um leiki 7. umferðar Subw...

Undir Körfunni - Helena og nýliðar Njarðvíkur stefna á þann stóra "Við getum farið alla leið" 17.11.2021

Í öðrum þætti mætir Helena Rafnsdóttir, leikmaður Njarðvíkur, undir körfuna og ​ræðir uppgang Njarðvíkur liðsins og væntingar liðsins fyrir tímabilið 2021/22.  Helena fer yfir gengi hins umtalaða 2003 árgangs og velur úrvalslið sitt í Subway deildinni. Undir Körfunni er í boði Lykils, Kristalls og Subway. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill. Hér heimsækir þú K...

Undir Körfunni - Styttist í endurkomu Hauks Helga Pálssonar á parketið. „Ökklinn minn hefur ekki verið í lagi síðan 2014“ 11.11.2021

Í fyrsta þætti undir körfunni mætir Haukur Helgi Pálsson, leikmaður Njarðvíkur, og ræðir um ferilinn sinn til þessa. Haukur ræðir sína löngu sögu meiðsla og aðgerðina sem hann fór í nýlega til að koma sér aftur í stand.  Rætt er um bestu og verstu leiki Hauks og Haukur gefur upp draumalið sitt af leikmönnum sem hann hefur spilað með ásamt því að stilla upp það sem er að hans mati, bestu leikmenn S...

Aukasendingin - Nýtt blóð í Breiðholtið og hvaða lið þurfa mest að breyta til? - Styrmir Snær í viðtali frá Davidson “Þú verður að vera harður víkingur eins og Jón Axel” 09.11.2021

Aukasendingin fékk Þann Hundtrygga og Siggeir Ævarsson til að ræða fréttir vikunnar, síðustu og næstu umferð í Subway deild karla og margt fleira.  Þá er í lokin viðtal við fyrrum leikmann Íslandsmeistara Þórs, Styrmi Snær Þrastarson um nýtt upphaf hans með Davidson í bandaríska háskólaboltanum, en deildarkeppni þeirra er að rúlla af stað þessa vikuna. Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils og...

Social Chameleon #9 - Reggie Dupree on his supposed retirement, hardest competitors and best teammates 09.11.2021

Dominykas Milka ræðir við fyrrum leikmann Keflavíkur Reggie Dupree um hvernig lífið sé að fara með hann eftir körfubolta, en hann lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil.  Reggie kom fyrst til Íslands árið 2012, en hann hóf feril sinn með Reynir í fyrstu deildinni. Árið 2014 var hann kominn í lið Keflavíkur þar sem hann hefur leikið allar götur síðan. Þá fer Reggie yfir hvaða leikmönnum var er...

Aukasendingin - Óþarfa drama í Skagafirðinum, Subway/VÍS yfirferð og valið í landsliðið 02.11.2021

Aukasendingin fékk Þann Hundtrygga og Hrafn Kristjánsson til þess að fara yfir fréttir vikunnar,  ræða bikarkeppnina, síðustu/næstu í Subway deild karla, fyrstu deildina og margt fleira. Þá er valið í landslið karla, en seinna í mánuðinum mun liðið leika fyrstu leiki sína í undankeppni HM gegn Hollandi og Rússlandi. Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils og Subway. Samstarfsaðilar Körfunnar eru...

Social Chameleon #8 - Travis Atson on his short stint with Grindavik, injuries and a wild college career 31.10.2021

Dominykas Milka ræðir við fyrrum leikmann Grindavíkur Travis Atson, en honum var sagt upp nú um helgina eftir að hafa leikið fjóra leiki með liðinu. Travis lék á sínum tíma með sama framhaldsskólaliði og Dominykas í New York, Christ the King, en báðir unnu leikmennirnir titla með skólanum. Farið er yfir líflegan skólaferil Travis, veruna á Íslandi, að eiga við alvarleg meiðsli og margt, margt flei...

The Uncoachables: Coaches gone, Predictions wrong 30.10.2021

Now that a couple of rounds have been played in the new Subway leagues on the men's and women's side, Helgi and David discuss how they were wrong and how they were right. They go over two coaches being gone and which teams should and should not be adding players. They also talk about disrespect towards youth teams not in the capital area and what can be done. Enjoy! Hosts: Helgi Hrafn Ól...

Social Chameleon #7 - Brenton Birmingham Part 2 - Going pro, Iceland and dealing with injuries 28.10.2021

Dominykas Milka ræðir við goðsögnina Brenton Birmingham um hvernigþað hafi verið að gerast atvinnumaður, að koma til Ísland, eiga við meiðsli og margt fleira. Viðtalinu við Brenton var skipt upp í tvo hluta. Sá fyrri er aðgengilegur hér, en í honum ræðir hann hvernig það hafi verið að alast upp í New York og spila með framhalds- og háskólaliðum þar. Social Chameleon mun koma reglulega út í vetur,...

Aukasendingin – Grindvíkingar á siglingu, tölfræði fyrir langt leidda og ætlar enginn að taka við ÍR? 26.10.2021

Aukasendingin fékk þann hundtrygga Hraunar Karl og körfuboltatölfræðinginn Hörð Tulinius til þess að fara yfir fréttir vikunnar, síðustu umferð í Subway deild karla, spá fyrir þeirri næstu og margt fleira. Þá fer Hörður lauslega yfir hvað fjórþáttagreining sé, en henni heldur hann úti fyrir efstu tvær deildir karla og kvenna. Fjórþáttagreiningin á Grid Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils og...

Social Chameleon #6 - Brenton Birmingham Part 1 - A conversation about New York City, high school and college basketball 25.10.2021

Dominykas Milka ræðir við goðsögnina Brenton Birmingham um að alast upp í New York, en bæði hann og Dominykas ólust upp í borginni. Þá ræðir hann einnig hvernig það var að leika fyrir framhals- og háskólalið þar og margt fleira. Viðtalinu við Brenton var skipt upp í tvo hluta, en í þeim seinni ræðir hann atvinnumannaferilinn. Social Chameleon mun koma reglulega út í vetur, en í því mun Dominykas r...

Fókus: Fyrstu umferðir Subway, bikarkeppnin og leikmenn erlendis með Kristjönu Eir 19.10.2021

Fókus kom saman og fór yfir fyrstu umferðir Subway og fyrstu deildarinnar, VÍS bikarkeppnina, gengi íslenskra leikmanna erlendis og margt, margt fleira. Umsjónarmaður Fókus er fyrrum leikmaðurinn og þjálfarinn Ólöf Helga Pálsdóttir Woods, en henni til halds og trausts í þessum þætti er þjálfari toppliðs ÍR í fyrstu deildinni Kristjana Eir Jónsdóttir. Fókus er í boði Kristalls, Lykils og Subway. Sa...

Aukasendingin -  Leikmenn sem verða að fara, botnbaráttan búin snemma og lesið í fyrstu umferðirnar 19.10.2021

Aukasendingin fékk Snáða 1 og þann hundtrygga til þess að fara yfir aðra umferð Subway deildar karla og spá fyrir umferð 3 sem hefst á fimmtudaginn. Þá er einnig farið yfir fréttir vikunnar, fyrstu deildirnar og valið í lið erlendra leikmanna sem gera lítið sem ekkert fyrir liðin sín. Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils og Subway. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Tactica, Lengjan, Krista...

Listen to the Karfan podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.