Karfan
Karfan
Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Fókus: Vörutalning í Subway deild kvenna - Farið yfir öll lið og gengi síðustu vikna 10.02.2022 1:12:26
Fókus kom saman og fór yfir síðustu leiki Subway deildar kvenna og velti fyrir sér stöðu hvers liðs í deildinni og hvernig framhaldið verður. Þá er einnig spáð í spilin í fyrstu deild kvenna. Umsjónarmaður Fókus er fyrrum leikmaðurinn og þjálfarinn Ólöf Helga Pálsdóttir Woods, en henni til halds og trausts í dag voru ritstjóri Körfunnar Davíð Eldur Baldursson og þjálfari Hamars/Þórs í fyrstu deild...
Subway deildar uppgjör Aukasendingarinnar: Hvað gengur vel, hvað er að klikka og valið í íslenska landsliðið fyrir leikina gegn Ítalíu 08.02.2022 1:46:04
Aukasendingin kom saman með Þeim Hundtrygga Hraunari Karl og Þeim Kvíðna Guðmundi Auðunn til þess að fara yfir fréttir vikunnar, fyrstu deildina, aðra deildina og síðustu leiki í Subway deildinni. Farið er yfir spá deildarinnar fyrir tímabilið með tilliti til þess hvar liðin standa í dag, hvort að stuðningsmenn geti verið ánægðir, hvað hafi gengið vel og hvað hafi farið úrskeiðis. Þá er farið yfir...
Social Chameleon #17 – Falur Harðarson um ferilinn, lífið og þegar að Drazen Petrovic grillaði hann árið 1992 05.02.2022 1:43:52
Dominykas Milka ræðir við Keflvíkinginn Fal Harðarson um feril hans í háskólaboltanum í Bandaríkjunum, með Keflavík og KR á Íslandi, tveimur félögum í Finnlandi og íslenska landsliðinu. Social Chameleon mun koma reglulega út í vetur, en í því mun Dominykas ræða við áhugavert fólk bæði um hin ýmsu málefni sem snerta körfuknattleik, sem og málefni líðandi stundar. Social Chameleon er í boði Kristal...
Aukasendingin – Hvaða goðsagnir gætu hjálpað sínum liðum mest í dag, yfirferð yfir leikmannamarkaðinn og margt fleira 01.02.2022 1:28:51
Aukasendingin kom saman með Þeim Hundtrygga Hraunari Karl og Þeim Kvíðna Guðmundi Auðunn til þess að fara yfir fréttir vikunnar, fyrstu deildina, aðra deildina, breytingar á leikmannahópum Subway deildarinnar og margt fleira. Undir lokin eru svo tilnefndar þær goðsagnir sem best gætu hjálpað sínum liðum mest eins og þau eru í dag. Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils og Subway. Samstarfsaðila...
Undir Körfunni: Dagný Lísa um USA, áskoranir í viðtölum og titilvonir í Dalhúsum „Það er ekki pláss fyrir neinn annan á toppnum“ 31.01.2022 1:45:55
Dagný Lísa Davíðsdóttir, leikmaður Fjölnis, er gestur í tíunda þætti af Undir Körfunni. Í þættinum ræðir Dagný leikferill sinn til þessa og þá sérstaklega tímann sinn í Bandaríkjunum þar sem hún lék með Westtown School, Niagara Purple Eagles og Wyoming Cowgirls. Dagný skipti frá Hamar-Þór yfir til Fjölnis fyrir tímabilið sem nú stendur yfir. Dagný greinir frá því hvers vegna hún valdi Fjölni og s...
Þristurinn: Úrvalslið fyrri hluta tímabils og yfirferð yfir síðustu leiki 28.01.2022 1:15:16
Erik, Rökkvi og Hinrik fara yfir frestuðu leikina og fyrri helming tímabilsins í nýjustu útgáfunni af Þristinum. Það kom inn nýr liður hjá Erik sem heitir "Hver vinnur í slag" og þar að auki eru þeir með lið fyrri hluta umferðarirnnar og margt fleira í þætti dagsins. Umsjón: Erik, Rökkvi og Hinrik Podcast Körfunnar er í boði Lykils, Subway og Kristalls. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónu...
Undir Körfunni: Bjössi um KR titlana, litríka liðsfélaga og Valsríginn “Það var alltaf eitthvað vesen utan vallar“ 24.01.2022 1:10:01
Björn Kristjánsson, leikmaður KR, er viðmælandi í níunda þætti af Undir Körfunni. Björn fer yfir leikferill sinn og öll liðin sem hann hefur spilað fyrir, bikar söfnun hjá KR og bestu augnablikin. Shawn Glover yfirgaf KR fyrir síðustu mánaðamót og Björn kemur inn á viðskilnað Glover við KR liðið. Björn ræðir einnig hvernig stemningin hafi verið hjá KR eftir einvígið gegn Val í úrslitakeppninni á s...
Social Chameleon #16 - Daniela Wallen um ferðalagið frá Caracas til Keflavíkur, suðuramerískan körfubolta og frægð á Tik-Tok 20.01.2022 1:51:09
Dominykas Milka ræðir við leikmann Keflavíkur í Subway deild kvenna Daniela Wallen Morillo um ferðalag hennar frá Caracas í Venusúela til Keflavíkur, en áður en hún kom til Keflavíkur hafði hún leikið sem atvinnumaður í Ástralíu, Finnlandi, Svíþjóð og í bandaríska háskólaboltanum. Daniela kom fyrst til Keflavíkur fyrir tímabilið 2019-20 og er því á sínu þriðja með félaginu. Hefur hún allar götur s...
The Uncoachables: New Year's Rundown in New Studio 19.01.2022 58:15
Helgi and David met up in a new studio and made a very concise 60 minute episode. They give out awards for 2021, discuss the highlights of last year and then talk about the men's and women's leagues. Finally they go over recent player transfers and what's in store next year. Enjoy! Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson and David Patchell Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Tactica, Lengjan...
Aukasendingin - Vörutalning og slúður í Subway: Einkunn fyrir hvert lið, bestu leikmenn valdir og hverjir eiga mest inni 17.01.2022 1:26:25
Aukasendingin fékk til sín Þann Hundtrygga Hraunar Karl og Þann Kvíðna Guðmund Auðunn til þess að gefa tímabili allra liða Subway deildar karla einkunn, velja besta leikmann hvers liðs og finna út hver á mest inni fyrir seinni helming deildarkeppninnar. Þá eru einnig til umræðu fyrsta og önnur deild, fréttir vikunnar, slúður, nýjir leikmenn og margt fleira. Í lokin er svo farið yfir leikina sem fr...
Social Chameleon #15 - Davíð Eldur um íslenskan körfubolta, Keflavík og margt, margt fleira 08.01.2022 1:02:22
Dominykas Milka ræddi við ritstjóra Körfunnar Davíð Eld Baldursson um hina ýmsu fleti íslensks körfubolta, hvernig það hafi verið að alast upp sem stuðningsmaður Keflavíkur, hvernig það kom til að hann tók við Körfunni og margt, margt fleira. Tekið er fram að þátturinn er tekinn upp á milli jóla og nýárs 2021. Social Chameleon mun koma reglulega út í vetur, en í því mun Dominykas ræða við áhugave...
Aukasendingin: Hannes um frekara norrænt samstarf, Höllina, VÍS bikarinn og Covid frestanir “Verðum að geta treyst hverjum og einum” 07.01.2022 28:13
Vegna sóttkvíar og einangrunar stjórnenda Aukasendingarinnar var brugðið á það ráð að fresta hefðbundinni umfjöllun þáttarins um íslensku deildirnar fram í næstu vikur. Í staðinn var heyrt í formanni KKÍ Hannesi Jónssyni og hann spurður út í hin ýmsu málefni sem brenna á aðdáendum þessa dagana. Ræðir Hannes frekara samstarf Norðurlandana, frestanir tengdar kórónuveirufaraldrinum, færslu VÍS bikark...
Ársins 2021 - Social Chameleon #6 - Brenton Part 1 - A conversation about New York City, high school and college basketball 31.12.2021 1:04:51
Dominykas Milka ræðir við goðsögnina Brenton Birmingham um að alast upp í New York, en bæði hann og Dominykas ólust upp í borginni. Þá ræðir hann einnig hvernig það var að leika fyrir framhals- og háskólalið þar og margt fleira. Viðtalinu við Brenton var skipt upp í tvo hluta, en í þeim seinni ræðir hann atvinnumannaferilinn. Social Chameleon mun koma reglulega út í vetur, en í því mun Dominykas r...
Ársins 2021 - Social Chameleon #6 - Brenton Part 2 - Going pro, Iceland and dealing with injuries 31.12.2021 1:10:27
Dominykas Milka ræðir við goðsögnina Brenton Birmingham um hvernigþað hafi verið að gerast atvinnumaður, að koma til Ísland, eiga við meiðsli og margt fleira. Viðtalinu við Brenton var skipt upp í tvo hluta. Sá fyrri er aðgengilegur hér, en í honum ræðir hann hvernig það hafi verið að alast upp í New York og spila með framhalds- og háskólaliðum þar. Social Chameleon mun koma reglulega út í vetur,...
Ársins 2021 - Undir Körfunni - Embla um erfið meiðsli sín, dólgslegan leikstíl, barneigna tilkynningar og erjur við þjálfara á ferlinum „Ég setti fótinn niður og sagði hingað og ekki lengra“ 31.12.2021 1:14:49
Embla Kristínardóttir, leikmaður Skallagríms, er viðmælandi í fimmta þætti Undir Körfunni. Embla ræðir um feril sinn hingað til, helstu ástæður vegna félagaskipta og tilveruna í Borgarnesi. Embla tilkynnti á dögunum að hún ætti von á sínu öðru barni og mun ekki spila meira á tímabilinu með Skallagrím. Embla svarar slúðursögum sem hafa gengið á varðandi tilkynningar hennar til félagsins og Embla ræ...
Undir Körfunni – 2/2 – Þröstur um ríginn milli Keflavíkur og Njarðvík, um gælunafnið Sölli Tattoo Passport Smoker og mikilvægi hans í liði Keflavíkur, „Kæruleysið er mér svo kært“ 30.12.2021 1:02:25
Þröstur um ríginn milli Keflavíkur og Njarðvík, um gælunafnið Sölli Tattoo Passport Smoker og mikilvægi hans í liði Keflavíkur, „Kæruleysið er mér svo kært“ Þröstur Leó Jóhannsson, leikmaður Keflavíkur, er gestur í áttunda þætti af Undir Körfunni. Áttundi þætti er skipt upp í tvo hluta og í seinni hluta ræðir Þröstur meira um ríginn milli Keflavíkur og Njarðvík sem er innbyggður í alla íbúa í Reyk...
Undir Körfunni - 1/2 - Þröstur um leikinn stóra gegn Njarðvík, um tímann sinn með Tindastól og Þór Akureyri sem og vonir og eftirsjár af ferli sínum „Ég er mikill kex kall“ 29.12.2021 53:52
Þröstur Leó Jóhannsson, leikmaður Keflavíkur, er gestur í áttunda þætti af Undir Körfunni. Áttundi þætti er skipt upp í tvo hluta og í fyrri hluta fer Þröstur vel og ítarlega yfir körfuboltaferill sinn til þessa og segir sögur frá tímanum sínum með Tindastól og Þór Akureyri sem og allskonar sögur úr Keflavík. Þröstur ræðir vonir og eftirsjár af ferli sínum og hvers vegna honum tókst aldrei að koma...
Aukasendingin - Áramótabomba: Verðlaun fyrir almanaksárið 2021 í öllum flokkum 27.12.2021 1:02:19
Aukasendingin fékk til sín Snáða 1 Ísak Wium og Þann Hundtrygga Hraunar Karl til þess að gera upp árið 2021 í sannkallaðri áramótabombu. Veitt eru verðlaun fyrir bestu leikmenn, valið í úrvalslið, besti ungi leikmaður, besti þjálfari, besti landsliðsmaður og margt, margt fleira. Þá eru einnig til umræðu stærstu fréttir og félagaskipti ársins, sem og hver staðan í annarri og fyrstu deildinni hefur...
Undir Körfunni: Katla Rún um ferilinn sinn til þessa, ótrúlega yngri flokka í Keflavík og stórleikinn gegn Njarðvík í næstu umferð „Þau hafa montréttinn núna en það breytist þann 29. des“ 26.12.2021 1:13:00
Katla Rún Garðarsdóttir, leikmaður Keflavíkur, mætti í sjöunda þátt af Undir Körfunni. Katla fer yfir körfubolta feril sinn til þessa, bestu og verstu augnablikin og uppáhalds hluti. Katla hefur alla tíð leikið með Keflavík en hún fer meðal annars yfir ótrúlegt gengi Keflavíkur í yngri flokkunum og eftirminnanlegan fyrsta tapleik á ferlinum. Fraumundan hjá Kötlu er stórleikur þegar Keflavík tekur...
Social Chameleon #14 - Everage um ferðalagið frá Brooklyn til Breiðabliks, 42 stig að meðaltali í Þýskalandi og hvernig það er að leiða Subway deildina í framlagi 35 ára að aldri 22.12.2021 1:10:07
Dominykas Milka ræðir við leikmann Breiðabliks Everage Richardson um bernskuna í New York, háskóla boltann í Suður Karólínu og hvernig það hafi verið að vera atvinnumaður í Þýskalandi og Lúxemborg. Þá ræða þeir komu hans til Íslands og hvernig hann hefur á síðustu árum verið einn besti leikmaðurinn í nokkrum deildum hér á landi. Everage kom upphaflega til Íslands 2017 og lék fyrir Gnúpverja. Tímab...
The Uncoachables: Holiday cheer and more report cards 18.12.2021 1:28:47
Helgi and David finished up their report cards before Christmas and discussed the Icelandic national team games plus their predictions and some news stories that have come up. Enjoy and happy holidays! Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson and David Patchell Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill. Hér heimsækir þú Körfuna
The Uncoachables: Report cards and Rúnar Ingi 17.12.2021 2:09:31
Helgi and David had a great guest from Njarðvík for this episode, Rúnar Ingi Erlingsson. Rúnar Ingi is head coach of the Njarðvík women's team that just got promoted to the Subway league and are currently in the top spot on the table. We talked to Rúnar about his team, their identity, transitioning from playing to coaching and where he sees his team going. Later (00:42:00) we did report card...
Undir Körfunni - Hilmar Pétursson um brottför Bilic, tímann undir Israel Martin, framtíðarplön sín og vonir Breiðabliks „Sætasti sigurinn á enn þá eftir að koma“ 16.12.2021 54:24
Hilmar Pétursson, leikmaður Breiðabliks, er til tals í sjötta þætti af Undir Körfunni. Hilmar ræðir um feril sinn, bestu og verstu augnablik. Hilmar kemur af mikilli körfuboltafjölskyldu, í Breiðablik leikur hann með bróðir sínum, Sigurði Péturssyni, undir stjórn föður þeirra, Pétri Ingvarssyni. Næstu leikir Hilmars með Breiðablik eru gegn frænda hans, Kára Jónssyni, hjá Val og besta vini hans, Hi...
Fókus: Bras í Borgarfirðinum, sigling á Njarðvík og Fjölni og næsta umferð Subway deildarinnar 15.12.2021 52:48
Fókus kom saman og fór yfir síðustu umferð Subway deildar kvenna, spáði fyrir um þá næstu og velti fyrir sér vandræðum Skallagríms, sem á dögunum dró lið sitt úr keppni í Subway deildinni. Umsjónarmaður Fókus er fyrrum leikmaðurinn og þjálfarinn Ólöf Helga Pálsdóttir Woods, en henni til halds og trausts í dag var ritstjóri Körfunnar Davíð Eldur. Fókus er í boði Kristalls, Lykils og Subway. Samstar...
Aukasendingin – Njósnir í Grindavík, uppgjöf í Borgarnesi og hverjir eru bestu erlendu leikmenn deildarinnar 14.12.2021 1:12:45
Aukasendingin fékk til sín Hrafn Kristjánsson og Guðmund Auðunn til þess að ræða fréttir vikunnar, Subway deild karla og VÍS bikarkeppnina. Þá er í lokin valið í tvö byrjunarlið. Það fyrra af bestu bandarísku leikmönnum deildarinnar, en það seinna bestu evrópsku leikmenn deildarinnar. Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils og Subway. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Tactica, Lengjan, Krista...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.