RÚV

Íþróttavarp RÚV

Sports IS ↓ 44 episodes

Hlaðvarpsþættir um íþróttir.

Author

RÚV

Category

Sports

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jun 21, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Aron Jóhanns fer á HM í Brasilíu 2014 21.06.2026

Aron Jóhannsson varð fyrstur Íslendinga til að spila á heimsmeistaramóti í knattspyrnu. Það gerðist 2014 þegar mótið var haldið í Brasilíu. Aron fæddist í Bandaríkjunum 1990 þegar foreldrar hans voru þar í námi. Það olli nokkru fjaðrafoki að hann skyldi velja að spila fyrir bandaríska landsliðið sumarið 2013. Í þessum þætti rifjum við upp ótrúlegt ævintýri um hvernig strákur úr Grafarvogi, sem þrá...

Sportrásin: HM umræða nördanna 15.06.2026

HM í knattspyrnu er hafið í Bandaríkjunum. Stefán Pálsson sagnfræðingur og fjármálaspekúlantinn Björn Berg Gunnarsson eru ótrúlega fróðir um sögu keppninnar. Þeir fara á kostum þegar þeir fjalla um HM í Bandaríkjunum og segja margar skemmtilegar sögur frá fyrri keppnum.

Góð Íþrótt-Gulli Betri: Pétur Guðmunds í LA Lakers 22.03.2026

Um þessar mundir eru 40 ár síðan Pétur Guðmundsson körfuboltamaður gekk til liðs við NBA-liðið Los Angeles Lakers. Árið er 1986 og þarna var Lakers er á hátindinum með Magic Johnson og Kareem Abdul Jabbar innanborðs. Vegurinn sem Pétur gekk í áttina til Lakers var grýttur og hann þurfti svo sannarlega að hafa fyrir því að komast þangað. Í þessum þætti segjum við alla sögu hans. Umsjón: Gunnlaugur...

Góð Íþrótt-Gulli Betri: Eygló Fanndal 01.03.2026

Eygló Fanndal er einn mest spennandi íþróttamaður sem við eigum. Hún varð evrópumeistari í ólympískum lyftingum í fyrra en nokkrum mánuðum síðar lenti hún í erfiðum bakmeiðslum sem hún er enn að glíma við. Við rifjum upp ótrúlega sögu hennar, hvernig hún byrjaði að æfa lyftingar og hvað verður til þess að hún verður afrekskona á heimsmælikvarða í sinni íþróttagrein. Við fáum einnig innsýn í Afreks...

Góð íþrótt Gulli betri: Fjórar Vetrarólympíuleika sögur 15.02.2026

Vetrarólympíuleikarnir á Ítalíu eru í fullum gangi og af því tilefni rifjum við upp fjórar ótrúlegar sögur úr litríkri sögu leikanna. Við tökum fyrir íshokkíleik Bandaríkjanna og Sovétríkjanna árið 1980 í miðju kalda stríðinu. Tvær skondnar sögur koma frá leikunum í Calgary í Kanada 1988 en þar stökk Bretinn Eddie the Eagle í skíðastökki og bobsleðalið Jamaíku sigraði hjarta alls heimsins með fram...

Góð íþrótt-Gulli Betri: Super Bowl 2026 08.02.2026

Super Bowl eða Ofurskálin, stærsti íþróttaviðburður Bandaríkjanna, er í kvöld í Santa Clara í Kaliforníu. New England Patriots og Seattle Seahawks spila til úrslita um NFL-titilinn í amerískum fótbolta. Fanney Birna Jónsdóttir og Andri Ólafsson fræða okkur um þennan viðburð, hvað einkennir liðin sem mætast og hvernig leik má eiga von á. Hálfleikssýningin er fastur liður í þessum stóra leik og að þ...

Góð íþrótt-Gulli betri: Dagur Sig - Ferillinn (þáttur 3) 23.01.2026

Í þessum þriðja og síðasta þætti um feril Dags Sigurðssonar gerum við upp dvöl hans í Japan, þar sem hann var landsliðsþjálfari, og þegar hann óvænt tók við Króatíska landsliðinu í byrjun árs 2024 þegar liðið var í krísu. Í lok þáttarins er Dagur spurður um framtíð sína, hvað hann ætlar sér að þjálfa lengi og hvort það sé markmið að þjálfa íslenska landsliðið.

Góð íþrótt-Gulli betri: Dagur Sig - Ferillinn (þáttur 2) 18.01.2026

Í þessum þætti byrjar þjálfaraferill Dags. Eftir að hafa gert frábæra hluti í Austurríki og hjá Fucshe Berlin er hann ráðinn landsliðsþjálfari Þýskalands árið 2014 og gerir liðið að Evrópumeisturum tveimur árum síðar. Sama ár segir hann upp hjá þýska landsliðinu og flytur heim. En hvers vegna? - þið komist að því í þessum öðrum þætti um Feril Dags Sigurðssonar.

Góð íþrótt-Gulli betri: Dagur Sig - Ferillinn (þáttur 1) 12.01.2026

Dagur Sigurðsson handboltaþjálfari hefur aldrei gefið ferilsviðtal við íslenskan fjölmiðil. Gunnlaugur Jónsson fékk Dag í ítarlegt viðtal í byrjun desember 2025 og þetta verða alls þrír þættir þar sem við rekjum allan feril hans og meira til. Dagur er mikill tónlistaráhugamaður og í hverjum þætti spjalla þeir um tónlist og önnur áhugamál hans. Umsjón: Gunnlaugur Jónsson

Aron Pálmarsson mætir á Biðstofuna 12.01.2026

Óvæntur leynigestur mætir á svæðið, Aron Pálmarsson, einn besti leikmaður Íslands fyrr og síðar. Farið verður um víðan völl, íslenska liðið í dag, hvar hann sér okkar möguleika, sögur og augnablik úr ferlinum.

Biðstofan: Íslenska liðið — stöðu fyrir stöðu 09.01.2026

Óli, Kári og Logi fara yfir veikleika og styrkleika allra leikmanna liðsins, stöðu fyrir stöðu. Ræða mögulegt byrjunarlið. Hverjir þurfa að stíga upp og hvaða leikmenn verða í mikilvægum hlutverkum.

Biðstofan: Krafa á undanúrslit? 08.01.2026

Helga, Óli, Logi og Kári fara yfir árangur íslenska landsliðsins á síðasta móti, ræða stöðu  þjálfarans Snorra Steins komandi inn í þetta mót. Hverjar eru kröfurnar á liðið og hvað er ásættanlegur árangur á mótinu?

Mýtan um beinbrot Jóhannesar á Borg 17.06.2025

Eitt stærsta „Hvað ef“ í íslenskri íþróttasögu er: Hvað ef Jóhannes Jósefsson hefði ekki viðbeinsbrotnað í undanúrslitum grísk-rómversku glímunnar á Ólympíuleikunum í London árið 1908? Hefðu Íslendingar þá mögulega eignast gullverðlaunahafa í frumraun sinni á Ólympíuleikum? Jóhannes gat ekki beitt sér í undanúrslitaviðureign glímunnar vegna meiðsla sinna og mætti svo ekki til leiks í bronsglímuna,...

Stofan: HM draumar 10.01.2025

Ólafur Stefánsson, Logi Geirsson og Kári Kristján Kristjánsson sérfræðingar Stofunnar á RÚV fara yfir víðan völl í upphitun fyrir HM í handbolta sem hefst í næstu viku. Fyrsti leikur Íslands á HM er 16. janúar. Umsjónarmaður: Helga Margrét Höskuldsdóttir

Gunnar Huseby 04.11.2023

Ein af fyrstu íþróttastjörnum Íslands, Gunnar Huseby, fæddist 4. nóvember 1923 eða fyrir 100 árum. Hann var tvöfaldur Evrópumeistari í kúluvarpi en vandamál með áfengi varð til þess að hann keppti aldrei á Ólympíuleikum. Síðar setti hann þó tappann í flöskuna alveg sjálfur. Gunnar setti fjölda Íslandsmeta í kúluvarpi og kringlukasti og var landsfrægur. Í þessum þætti er saga Gunnars Huseby sögð og...

Anton Sveinn McKee 25.08.2023

Gestur Íþróttavarpsins í dag er sundkappinn Anton Sveinn McKee. Anton fer yfir víðan völl um andlegu hliðina, um Ólympíuleikana í París á næsta ári og mánuðina og mótin fram undan, en gerir líka upp síðustu mót auk þess að ræða almennt um lífið og tilveruna. Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Ingi Þór Ágústsson

HM í fótbolta 2023 - Úrslitaleikurinn fram undan 18.08.2023

Það er komið að endastöð á heimsmeistaramótinu í fótbolta árið 2023, úrslitaleikurinn er fram undan nú á sunnudag en þar mætast Spánn og England eftir sigra í fjörugum undanúrslitaleikjum. Hér í þætti dagsins ætlum við að fara yfir undanúrslitaleikina tvo og kryfja úrslitaleikinn. Gestir Íþróttavarpsins að þessu sinni eru Gunnar Birgisson og Albert Brynjar Ingason, þeir velja líka leikmann mótsins...

HM í frjálsíþróttum - Sigurbjörn Árni fer yfir líklega hápunkta á HM 17.08.2023

Heimsmeistaramótið í frjálsíþróttum hefst í Búdapest á laugardaginn. Við tókum hús á Sigurbirni Árna Arngrímssyni á Laugum í Reykjadal. Sigurbjörn mun af sinni alkunnu snilld lýsa HM í frjálsíþróttum. Spurningin er hins vegar hvort hann verði búinn að finna símann sinn fyrir mótið. Ísland á þrjá keppendur á HM, sleggjukastarann Hilmar Örn Jónsson, kringlukastarann Guðna Val Guðnason og kúluvarpara...

HM kvenna í fótbolta 2023 - 8-liða úrslitin gerð upp 14.08.2023

8-liða úrslitin á heimsmeistaramóti kvenna í fótbolta voru spiluð um helgina og eftir standa fjögur lið fyrir undanúrslitin sem eru framundan. Adda Baldursdóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir fara yfir nýjustu leikina og spá í spilin fyrir framhaldið. Verður það Spánn/Svíþjóð eða Ástralía/England sem leika til úrslita? Geta heimakonur farið alla leið? Og svo er það stóra spurningin; hefði Ísland átt e...

HM kvenna í fótbolta 2023 - 16-liða úrslitin gerð upp 09.08.2023

Það er hlé á heimsmeistaramótinu í fótbolta í dag og á morgun og 8-liða úrslitin fara af stað aðfaranótt föstudags. Albert Brynjar Ingason og Hörður Magnússon fara yfir 16-liða úrslitin og spá í spilin fyrir 8-liða úrslitin með Helgu Margréti Höskuldsdóttur. Hrun Bandaríkjanna, sannfærandi japanskt lið og fleira er til umræðu í þættinum þar sem Albert og Hörður spá líka fyrir um heimsmeistara. Ums...

HM kvenna í fótbolta 2023 - riðlakeppnin búin 04.08.2023

Riðlakeppninni á heimsmeistaramóti kvenna í fótbolta er lokið. Sextán lið eru komin áfram og útsláttarkeppnin hefst á laugardag. Edda Sif Pálsdóttir, Gunnar Birgisson og Adda Baldursdóttir fara yfir allt sem þið þurfið að vita eftir riðlakeppnina og spá í spilin fyrir framhaldið. Bestu liðin, þjálfararnir, það sem hefur komið á óvart, hverjar eru efni í heimsmeistara, hverjar hafa valdið vonbrigðu...

HM í fótbolta 2023 - Spáum í spilin 18.07.2023

Heimsmeistaramót kvenna í fótbolta 2023 hefst á fimmtudaginn, 20. júlí. Allir leikir mótsins verða í beinni útsendingu á RÚV og flautað verður til leiks á fimmtudagsmorgun klukkan 7:00. Í þessum þætti Íþróttavarpsins förum við yfir riðlana átta með sérfræðingum RÚV á mótinu, Alberti Brynjari Ingasyni og Öddu Baldursdóttur. Hvaða lið verða best, hvaða lið koma á óvart, verða einhver lið í brasi? Vi...

Martin Hermannsson 29.06.2023

Martin Hermannsson er besti körfuboltamaður landsins og þarf varla að kynna. Hann sleit krossband í leik með félagsliði sínu, Valencia, í maí 2022 en er kominn á gott skrið með liðinu á nýjan leik. Meiðslin tóku á andlegu hliðina en á sama tíma gafst tími fyrir fjölskyldu og vini. Martin fer yfir lífið í Valencia, grátlegan endi á undankeppni HM og lífið utan vallar í íþróttavarpi dagsins. Umsjón:...

Kjartan Atli Kjartansson 23.06.2023

Kjartan Atli Kjartansson stýrði á síðasta tímabili körfuboltaliði Álftaness upp í efstu deild í fyrsta skipti í sögu félagsins. Kjartan hefur undanfarin átta ár stýrt Körfuboltakvöldi, sjónvarpsþætti sem fjallar einmitt um efstu deild á Íslandi en stígur nú frá borði. Hann hefur komið víða við í fjölmiðlum, til að mynda stýrt eigin útvarpsþætti, verið umsjónarmaður í Íslandi í dag og komið að þátt...

Halli Egils og Vitor Charrua 14.06.2023

Gestir Íþróttavarpsins í dag eru pílukastararnir Halli Egils og Vitor Charrua en þeir eru á leiðinni til Frankfurt þar sem þeir munu keppa fyrir Íslands hönd á Heimsbikarmótinu í pílukasti eða World Cup of Darts. Þetta er í fyrsta skipti sem Ísland er með þátttökurétt á mótinu og óhætt að segja að þetta sé stærsta pílukeppni sem Íslendingar hafa tekið þátt í. Halli og Vitor fara yfir mótið, stöðu...

Listen to the Íþróttavarp RÚV podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.