Stefán Þór Þorgeirsson

Heimsendir

Society IS ↓ 152 episodes

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar. Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Au...

Author

Stefán Þór Þorgeirsson

Category

Society

Latest episode

Apr 27, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#77 Karrímorðinginn í Wakayama 21.03.2023

Árið 1998 átti sér stað skrýtinn atburður í Wakayama héraði í suðvestur Japan. Fólk lést eftir að hafa borðað karrírétt með hrísgrjónum en enginn vissi hvað hafði gerst fyrr en rannsókn á málinu leyddi ýmislegt í ljós. Í þessum þætti fjalla ég um karrímorðin í Wakayama og fólkið á bakvið þann myrka atburð.  Kæri hlustandi, þessi þáttur er í opinni dagskrá en ég minni á Patreon appið fyrir þau ykka...

#76 Lífið í Tokyo - Sértrúarsöfnuðurinn Happy Science 14.03.2023

ÞESSI ÞÁTTUR ER Í ÁSKRIFT Á PATREON. Sjáumst þar! Happy Science er einn stærsti sértrúarsöfnuður Japans. Leiðtoginn og stofnandinn er guðinn El Cantare endurfæddur en eftir nýlegt andlát hans er framtíð safnaðarins óljós. Í þættinum reyni ég líka að svara spurningunni hvort japanir séu meira hneigðir til sértrúar en aðrar þjóðir og mögulegar ástæður fyrir því. 

#75 Butoh og tveir pólar Japans með Snæfríði Ingvarsdóttur 07.03.2023

Snæfríður Ingvarsdóttir er leikkona og Japansvinur. Við hittumst síðast í Tokyo í byrjun árs 2023 og í þessum þætti spjöllum við um upplifun hennar af Japan, dans- og listforminu Butoh, menningarmun þjóðanna og margt fleira.  Kæri hlustandi, þessi þáttur er í opinni dagskrá en ég minni á Patreon appið þar sem þú getur nálgast alla þætti Heimsendis í áskrift og þannig stutt við bakið á þessu hlaðva...

#74 Lífið á Íslandi 02.03.2023

ÞESSI ÞÁTTUR ER Í ÁSKRIFT. KOMIÐ YFIR Á PATREON! Ég er á Íslandi og það er næs. Í þessum þætti fjalla ég um ferðalagið vestur til Íslands og taktbreytinguna sem ég upplifi hér samanborið við Japan. Þetta er eintalsþáttur þar sem ég tala í frjálsu flæði um allt og ekkert, kem aðeins inná sértrúarsöfnuði sem mig langar að taka fyrir nánar í næstu þáttum. Takk fyrir að hlusta og við skulum sjást á Pa...

#73 Lífið í Tokyo - Hættuleg dýr, glæpamenn og skrýtnar staðreyndir Japans 14.02.2023

Þessi þáttur er í áskrift. Ég mæli með að hlusta í Patreon appinu!  Hver eru hættulegustu dýr Japans? En glæpamenn? Hverjar eru frægustu konur Japans? Skrýtnar auglýsingar, staðreyndir og ríkasta fólkið. Allt þetta og meira til í þætti dagsins þar sem ég fjalla um topp 5 Japans í ýmsum flokkum. Önnur umræðuefni eru baðhúsamenning, hjólreiðar og hlutabréf. Kæri hlustandi, árið 2023 ætla ég að stækk...

#72 Versta flugslys í sögu Japans 07.02.2023

Japan Airlines 123 var versta flugslys í sögu Japans. Bilun kom upp í stórri Boeing þotu félagsins með 524 manns um borð. Í þessum þætti fjalla ég um aðdrög og afleiðingar slyssins sem lifir enn í manna minnum hér í Japan.  Kæri hlustandi, þessi þáttur er í opinni dagskrá en ef þú vilt styrja þáttinn OG fá fullan aðgang að öllum þáttum mæli ég með að ná í Patreon appið og gerast áskrifandi. Takk f...

#71 Lífið í Tokyo - Hvað gerist ef maður borðar bara kjöt og ávexti? 31.01.2023

ÞESSI ÞÁTTUR ER Í ÁSKRIFT. Ég mæli með að ná í Patreon appið og hlusta þar, það kostar ekki nema 700 kr. á mánuði! Í þessum þætti fjalla ég um mataræði síðustu vikna: svínasteik, epli, nautasteik, lifur, bláber, jógúrt, camembert, kjúklingur, og mikið af eggjum. Hverjir eru kostir þessa mataræðis? Hverjir eru gallarnir? Hvernig eru hægðirnar? Önnur umræðuefni eru stærstu ógnir ársins 2023.

#70 Músík og módelstörf með Tyler Toic 24.01.2023

Tyler Toic er tónlistarmaður, leikari og fyrirsæta í Tokyo. Við kynntumst þegar við unnum sem lífverðir (eða þvíumlíkt) fyrir Gucci. Í þessum þætti ræðum við líf listamannsins í Japan - tónlist, leiklist og módelstörf. Seinna í þættinum rýnum við hart í félagsleg vandamál Japans og möguleika og tækifæri framtíðar.  Kíkið á tylertoic.com fyrir allt sem Tyler hefur uppá að bjóða! Kæri hlustandi, ef...

#69 Japanski hermaðurinn sem gafst ekki upp 17.01.2023

Þessi þáttur er í áskrift á Patreon.com/heimsendir - ÉG MÆLI MEÐ AÐ HLUSTA Í PATREON APPINU! Hiroo Onoda var japanskur hermaður í seinni heimstyrjöldinni sem barðist á Lubang eyju Filippseyja. Hann er frægastur fyrir heldur síðbúna uppgjöf en hann gafst ekki upp fyrr en árið 1974, þá hafði hann búið í frumskóginum í um 30 ár. Þessi þáttur Heimsendis er ákveðinn söguþáttur sem fjallar um líf Onoda...

#68 Japönsk dystópía með Sólbjörtu Sigurðardóttur 10.01.2023

Er Japan dystópía eða útópía? Í þessum þætti ræðum við Sólbjört Sigurðardóttir, dansari og leikaranemi, um upplifun hennar af Japan, leiklistina og listir almennt, og hvort heimsendir sé í nánd.  Kæri hlustandi, þessi þáttur er í opinni dagskrá en ef þú vilt fullan aðgang að öllum þáttum þá mæli ég með að ná í Patreon appið og skrá þig þar. Takk fyrir að hlusta!

#67 Frí frá Tokyo - Syðstu eyjar Japans og deilur við Kína 03.01.2023

ÞESSI ÞÁTTUR ER AÐGENGILEGUR Á PATREON! Hlekkur: https://www.patreon.com/heimsendir Ath. best að hlusta í Patreon appinu. Ryukyu-eyjar Japans voru eitt sinn sjálfstætt konungdæmi með verslun við Taiwan og Kína. Nú tilheyra þær Japan og mynda eina mikilvægustu varnarkeðju landsins - fyrstu eyjakeðjuna. Í þessum þætti fjalla ég um sögu eyjanna og mikilvægi. Ég tek fyrir Okinawa, Ishigaki, Yonaguni o...

#66 Lífið í Tokyo - Japönsk jól og áramót 20.12.2022

JÓL Í JAPAN! Í þessum þætti fjalla ég um japanskar jóla- og áramótahefðir, matarmenningu (KFC), skreytingar, neysluhyggju og fleira. Önnur umræðuefni þáttarins eru japönsk brúðkaup og líf leikarans í Japan.  Þessi þáttur er í opinni dagskrá en ég minni á patreon.com/heimsendir fyrir fullan aðgang að öllum þáttum. Tilvalin jólagjöf fyrir þig og þau sem þú elskar. Takk fyrir að hlusta og gleðileg jó...

#65 Lífið í Tokyo - Er Japan woke? 13.12.2022

Þessi þáttur er í áskrift. Skráið ykkur á patreon.com/heimsendir fyrir fullan aðgang að öllum þáttum! Kvenréttindi, hinsegin og kynsegin fólk, rasismi og menningarnám. Er þriðja stærsta hagkerfi heims eins framarlega í woke-menningu eins og það er í kapítalisma? Það er spurning dagsins.

#64 Japönsk matarmenning með Jóni Foss 06.12.2022

Japanskur matur er miklu meira en sushi og ramen. Við Jón Foss Guðmundsson, verðandi ferðamálafræðingur, förum yfir japanska matarmenningu og gestristni. Hvað geta íslendingar lært af japönum og hvað geta japanir lært til baka?  Þessi þáttur er í opinni dagskrá en ef þú, kæri hlustandi, vilt meira af Heimsendi þá geturðu skráð þig á patreon.com/heimsendir fyrir fullan aðgang að öllum þáttum. Yoros...

#63 Yakuza - Glæpasamtök á heimsmælikvarða 29.11.2022

Þátturinn er aðgengilegur í fullri lengd inná:  https://www.patreon.com/heimsendir Yakuza eru alþjóðleg glæpasamtök - stundum þekkt sem japanska mafían - sem hafa starfað í rúm 300 ár. Í þessum þætti fjalla ég um Yakuza dagsins í dag og hvernig samtökin hafa dreift sér um heiminn. Komdu á Patreon og njóttu þar! Það kostar gott sem ekki neitt og þar hefurðu fullan aðgang að öllum þáttum Heimsendis....

#62 Lífið í Tokyo - Hentai er japanskur pervert 22.11.2022

Hentaimenning og japanskt teiknimyndaklám. Í þessum þætti fjalla ég um þennan afkima japanskrar menningar sem spilar þó stórt hlutverk í hugsunarhætti (þetta er mín skoðun) margra japanskra karlmanna. Önnur efni þáttarins eru hljóð vikunnar, lítið japönskuhorn, gerjaðar sojabaunir, hvort það sé í lagi að keyra eftir 0.5% bjór og margt fleira.  Þessi þáttur er í opinni dagskrá en kíkið á patreon.co...

#61 Yakuza - Saga og uppruni 15.11.2022

Þátturinn er aðgengilegur í fullri lengd inná:  https://www.patreon.com/heimsendir Yakuza eru alþjóðleg glæpasamtök - stundum þekkt sem japanska mafían - sem hafa starfað í rúm 300 ár. Í þessum þætti fjalla ég um uppruna og sögu samtakanna, hvernig þau eru uppbyggð, hefðir þeirra, reglur og gildi. Komdu á Patreon og njóttu þar! Það kostar gott sem ekki neitt og þar hefurðu fullan aðgang að öllum þ...

#60 Kjarnorkustríð 08.11.2022

Er heimsendir í nánd? Mun Pútín nota kjarnorkuvopn í Úkraínu? Er þriðja heimstyrjöldin á næsta leiti? Í þessum þætti fjalla ég almennt um kjarnorkustríð og hvort það sé eitthvað sem við ættum að hafa áhyggjur af.  Kæri hlustandi, komdu líka á Patreon fyrir aðgang að öllum þáttum! Skráðu þig á patreon.com/heimsendir, þá verð ég svo þakklátur!

#59 Lífið í Tokyo - Súmóglíma og einmanaleiki 01.11.2022

Þátturinn er aðgengilegur í fullri lengd inná:  https://www.patreon.com/heimsendir Súmóglíma er þjóðaríþrótt Japans og keppendur eru RISASTÓRIR. Í þessum þætti fjalla ég líka um geðræna fyrirbærið hikikomori eða komoribito og einmanaleika í útlöndum. Komdu á Patreon og njóttu þar! Það kostar gott sem ekki neitt og þar hefurðu fullan aðgang að öllum þáttum Heimsendis. Á Patreon eru mismunandi þrep...

#58 Shishamenning, ást til sölu og stoðtæki með Binna 25.10.2022

Er Össur í Japan? Er hægt að kaupa ást? Hvaða áhugamál eru vinsæl hjá japönum og hver er munurinn á þeim og íslendingum? Í þessum þætti ræðum við Brynjólfur Magnús Brynjólfsson, betur þekktur sem Binni, um upplifun útlendinga í Japan, menningarmun og líkindi.  Kæri hlustandi, ertu með hugmynd að umræðuefni? Komdu þá í Facebookhópinn Heimsendir og deildu hugmyndunum. Þú getur líka sent mér skilaboð...

#57 Lífið í Tokyo - Sitjandi uppistand, áfengi og eiturlyf í Japan 18.10.2022

Ég er að koma úr sýningarviku í japanska leikhúsinu þar sem við settum upp sýningu um "rakugo" menningu sem er japanskt uppistand (sitjandi). Þetta var frumraun mín með japönskum leikhóp og mikil reynsla og lærdómur. Önnur umræðuefni þáttarins eru drykkja og reykingar í Japan, eiturlyf og harðar refsingar við þeim, smáatriði í japönsku og fleira.  Kæri hlustandi, takk fyrir að hlusta! Ertu með hug...

#56 Nýr heimur með Unni Elísabetu 04.10.2022

Unnur Elísabet Gunnarsdóttir er listakona sem hefur meðal annars varið síðustu árum í sköpun og framleiðslu á ÉG BÝÐ MIG FRAM seríunum. Nýjasta serían ber nafnið NÝR HEIMUR og verður sýnd í Tjarnarbíó í haust. Við ræðum heim dagsins í dag, bjartsýnis sem og svartsýnisspár, heimsenda, framtíð og fortíð. Takk fyrir að hlusta kæru hlustendur. PLEASE skrifið umsögn og gefið einkunn á hlaðvarpsveitum!...

#55 Lífið í Tokyo - Flugvélar og fótaóeirð 27.09.2022

Ég, CEO of Heimsendir, er mættur aftur til Tokyo. Í þessum þætti fjalla ég um ferðalagið langa, sjúkdóminn Restless legs syndrome (AKA. Willis-Ekbom Disease), jet-lag, COVID í Japan, kurteisi og þjónustulund, japönsk onsen-böð og fleira og fleira!  Takk fyrir að hlusta og ef þér hafið lausa stund þá bið ég yður um að gefa Heimsendi einkunn og skrifa umsögn á Spotify eða Apple Podcasts. Þakka yður,...

#54 Lífið í Reykjavík með Almari Blæ Sigurjónssyni 20.09.2022

Hver er munurinn á Reykjavík og Tokyo? Túristar og tímaferðalög, mávar í Garðabæ, post-covid leikhús og fleiri umræðuefni prýða þennan þátt með góðvini Heimsendis, Almari Blæ Sigurjónssyni, leikara við Þjóðleikhúsið.  Kæri hlustandi, takk fyrir að hlusta! Í haust heldur veislan áfram með Lífið í Tokyo sem og gestaþáttum. Það verða hljóð og katakana, vettvangsferðir og afkimar japanskrar menningar....

#53 Lífið í Tokyo - Frumbyggjar í Japan 30.08.2022

Ainu eru frumbyggjar Japans. Þau numu eyjuna Hokkaido langt á undan japönum og byggðu upp samfélag við Okhotskhaf í sátt og samlyndi við náttúruna. En hvað er Ainu í dag? Af hverju heyrum við svo lítið af þeim? Í þessum þætti fjalla ég um Ainu fólkið og samband þeirra við Japan. Önnur umræðuefni eru áfengi í apótekum og ríkisstjórn sem vill að ungt fólk drekki meira, þúsund tilkynningar á lestarst...

Listen to the Heimsendir podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.