Handkastið
Handkastið
Podcast by Handkastið
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Handkastið - Landsliðsumræða (Taka 2) 07.01.2019 1:24:28
Nýr þáttur á nýju ári. Fyrsti þáttur Handkastsins árið 2019 er kominn út og það þurfti tvær tökur til. Í fyrri tökum voru í settinu Sérfræðingurinn, Ponzan og Guðjón Guðmundsson en því miður eyðilagðist stór partur af þeim tökum og því var ekki hægt að birta þann þátt. Í þætti kvöldsins tók Ponzan út leikbann eftir frammistöðu sína á takkaborðinu í fyrri tökunni og því var Sérfræðingurinn einn við...
Handkastið - Senur á Selfossi, rauð jól, vonbrigði í Safamýri og púðurskot á Nesinu 17.12.2018 1:23:05
Gestur þáttarins að þessu sinni var Óskar Bjarni Óskarsson þrautreyndur þjálfari bæði hér heima og erlendis. Í þættinum var farið yfir síðustu umferðina í Olís-deild karla fyrir áramót en 13. umferðin fór fram um helgina. Að lokum fórum við yfir stöðuna í deildinni fyrir frí en næsta umferð í deildinni er ekki fyrr en í byrjun febrúar. Coolbet leikmaður umferðarinnar var valinn í lok þáttar.
Handkastið - Landsliðsumræða, Úrvalslið "Ekki landsliðsmanna" og RúnarsKáraHornið 14.12.2018 1:27:22
Gestur þáttarins að þessu sinni var fyrrum atvinnu- og landsliðsmaðurinn Einar Örn Jónsson sem starfað hefur verið sem íþróttafréttamaður á RÚV til fjölda ára. Í þættinum ræddum við 16-liða úrslitin í bikarkeppninni, 28-manna landsliðshópinn sem Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari valdi á dögunum. Við völdum úrvalslið leikmanna sem ekki eru í 28-manna hópnum og þá var RúnarsKáraHornið á...
Handkastið - Bleik jól í Hafnarfirði, gul jól á Akureyri og Eyjamenn á fljúgandi siglingu 10.12.2018 1:26:50
Gestur þáttarins að þessu sinni var eftirherman ógurlega, Davíð Már Kristinsson. Í þættinum fórum við yfir 12. umferðina í Olís-deild karla þar sem tveir grannaslagir fóru fram. Í Hafnarfirði enduðu leikar með jafntefli eftir flautumark frá Adami Baumruk og fyrir norðan verða gul jól eftir eins marks sigur KA-manna. Að lokum völdum við Coolbet leikmann umferðarinnar.
Handkastið - Uppgjör fyrri hluta Olís-deildar karla og Seðillinn kom í spjall 06.12.2018 2:03:50
Í þættinum að þessu sinni fóru Sérfræðingurinn og Ponzan yfir fyrri hluta Olís-deildar karla sem hálfnuð er, ásamt góðvini þáttarins, Árna Stefáni Guðjónssyni. Farið var yfir hvert lið vel og vandlega. Farið var yfir gengi liðanna og spáð var í spilin fyrir seinni hlutann. Einnig var valið úrvalslið fyrri umferðarinnar. Í lok þáttarins kom Siggi Seðill, markvörður Stjörnunnar í létt spjall og feng...
Handkastið - 3some á toppnum, FramkvæmdaBeggi og myndataka óheimil í Krikanum 03.12.2018 1:32:19
Gestur þáttarins að þessu sinni í Handkastinum var Árni Stefán Guðjónsson. Í þættinum fórum við yfir alla leikina í 11. umferð Olís-deildar karla en nú er deildin hálfnuð. Gríðarleg spenna er á bæði toppi og botni deildarinnar. Coolbet leikmaður umferðarinnar var valinn í lok umferðar.
Handkastið - Benóný í beinni frá Kenía, lið vanmetinna leikmanna og rosalegt skúbb frá Eyjum! 29.11.2018 1:17:51
Í þætti Handkastsins að þessu sinni var farið yfir leik Gróttu og Selfoss í lokaleik 10. umferðar Olís-deild karla. Benóný Friðriksson var á línunni frá Kenía og talaði tæpitungulaust um stöðu ÍBV-liðsins. Símasambandið frá Afríku hefði mátt vera betra en allt komst þó til skila. Valið var lið vanmetinna leikmanna í Olís-deildinni og farið var yfir stuðlanna fyrir næstu umferð sem verður svakaleg....
Handkastið - No Ási no party, Seðillinn vann fyrir seðlunum, jarðarför og eru ekki allir kúl? 26.11.2018 1:39:09
Gestur þáttarins hjá Handkastinu að þessu sinni var hinn óútreiknanlegi aðstoðarþjálfari Aftureldingar, Ásgeir "Sly" Jónsson. Í þættinum var farið yfir fyrstu fimm leikina í 10. umferð Olís-deildar karla þar sem baráttan á öllum vígstöðum harðnar og harðnar með hverjum deginum. Einnig var farið yfir Evrópuleik Selfyssinga sem fram fór um helgina. Ásalausir FH-ingar máttu þola tap fyrir norðan gegn...
Handkastið - Gjaldþrot í Eyjum, Hver er Einar Birgir? RúnarsKáraHornið, Tom velur draumalið 22.11.2018 1:45:51
Gestur þáttarins að þessu sinni var þáttastjórnandi Seinni Bylgjunnar á Stöð2Sport, Tómas Þór Þórðarson. Í þættinum var farið yfir tvo síðustu leiki 9. umferðar í Olís-deild karla, Evrópuleik Selfyssinga sem fram fer á laugardaginn. Einnig fórum yfir stöðuna í Olís-deild kvenna sem er komin í jólafrí. RúnarsKáraHornið var á sínum stað og þá valdi Tom draumalið leikmanna sem gætu farið út í atvinnu...
Handkastið - VAR var þrisVAR, skúbb frá Akureyri, besta vítaskytta landsins og Benni fellir Gróttu 19.11.2018 1:17:28
Gestur þáttarins í Handkastinu að þessu sinni var hinn þrautreyndi fjölmiðlamaður og gleðigjafi Benedikt Grétarsson. Í þættinum fórum við yfir fyrstu fjóra leikina í 9. umferð Olís-deildar karla, spáðum í spilin fyrir Evrópuleik Selfyssinga næstkomandi laugardag og næstu tvo leiki í Olís-deild karla. Auk þess ræddum við áhrifin sem það hefur haft á Olís-deildina að Stöð2Sport hafi fengið sýningarr...
Handkastið - Markmiðablað fyrir Selfoss stelpur, síðasti séns Ella Rich? Lið FreeAgent leikmanna 15.11.2018 1:08:12
Það var fámennt en góðmennt í sautjánda þætti Handkastsins í kvöld. Þeir bakkabræður, Ponzan og Sérfræðingur voru tveir í NewBalance stúdíó-inu. Farið var yfir 9. umferðina í Olís-deild kvenna þar sem stórleikur umferðarinnar fór fram í Origo-höllinni í kvöld. Spáð var í spilin og farið var yfir stuðlabergið fyrir næstu umferð í Olís-deild karla sem fram fer um helgina. Að lokum bjó Handkastið til...
Handkastið - Selfyssingar ekki ósigrandi, Rjúpna-Þrándur, Góu Hraun í Krikanum og RúnarsKára-hornið 13.11.2018 1:37:26
Gestur þáttarins að þessu sinni var hinn eitur hressi grunnskólakennari í Öldutúnsskóla Árni Stefán Guðjónsson. Farið var yfir 8. umferðina í Olís-deild karla og spáð var í spilin fyrir næstu umferðir í deildinni en fimm umferðir eru fram að jólafríi. Auk þess völdum við Coolbet leikmann umferðarinnar. - Elvars lausir Selfyssingar lentu á Danna Inga veggnum - Andlausir Eyjamenn halda áfram að vald...
Handkastið - Patti Jó um litríkan feril, skrautlegar sögur og hæðir og lægðir með landsliðinu 08.11.2018 2:09:13
Gestur þáttarins að þessu sinni í Handkastinu var Patrekur Jóhannesson núverandi þjálfari Selfoss og austurríska landsliðsins. Rætt var um athyglisverðan feril Patreks sem hófst í Garðabænum, stutt viðkoma í Hafnarfirðinum áður en hann flutti til Akureyrar þar sem ferilinn fór almennilega á flug. Patti á að baki 241 landsleik og lék í fjölda ára í atvinnumennsku bæði í Þýskalandi og á Spáni með mö...
Handkastið - Jólasveinar með flautu, hundur í settinu og Óli (ó)sýnilegi 05.11.2018 1:26:33
Gestur þáttarins að þessu sinni var Baldvin hinn Fróði Hauksson þjálfari akademíunnar í Kópavogi. Í þættinum fórum við yfir 7. umferðina í Olís-deild karla, ræddum aðeins um Grillið og tvær meiðslasögur duttu inn í lokin. Umferðin var söguleg í meira lagi því fjórir leikir af sex enduðu með jafntefli og mikil umræða skapaðist á samfélagsmiðlum yfir dómgæslunni. Þjóðin er greinilega að fylgjast með...
Handkastið - Bongó í Breiðholti, Vængbrotnir Framarar og Vonbrigðalið Toggu 01.11.2018 1:33:06
Gestur þáttarins í Handkastinu af þessu sinni sem var í boði Altis Bæjarhrauni var hin skelegga Þorgerður Anna Atladóttir fyrrum landsliðsgella og atvinnukona. Í þættinum fórum við yfir frestaðan leik ÍR og FH í Olís-deild karla, 7. umferð í Olís-deild kvenna auk þess sem við gerðum upp fyrstu sjö umferðirnar í kvennaboltanum. Sérfræðingurinn valdi Úrvalslið Olís-deildar kvenna og Togga valdi Vonb...
Handkastið - Einar Andri um A & U21 landsliðið, The class of '90 og The DreamTeam 28.10.2018 1:33:50
Gestur þáttarins í Handkastinu af þessu sinni er Einar Andri Einarsson þjálfari Aftureldingar í Olís-deild karla og nýráðinn þjálfari U-21 árs landsliðs karla. Í þættinum ræddi Einar Andri um farsælan leikmannaferil sinn sem endaði fyrr en áætlað var og í kjölfarið tók hann þá ákvörðun að verða þjálfari. 25 ára tók hann við þjálfun hjá meistaraflokki FH. Í þættinum ræddum við einnig um leik Ísland...
Handkastið - Rúnar Sigtryggs um landsliðið, ferilinn, Pascal Hens og nærbuxnaupphitun 25.10.2018 1:28:59
Gestur þáttarins að þessu sinni var hinn þrautreyndi þjálfari og fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður, Rúnar Sigtryggsson sem í dag er þjálfari Stjörnunnar í Olís-deild karla. Rætt var um landsliðið, kynslóðaskiptin, athyglisverðan feril Rúnars sem hófst í Þorpinu fyrir norðan. Á ferlinum lék Rúnar til að mynda með einum besta handboltaleikmanni sögunnar, Talant Dujshebaev. Einnig völdum við Coolbet-...
Handkastið - Slök FRAMmistaða, leikmannakrísa að Hlíðarenda og Jói fór á markaðinn 21.10.2018 1:39:21
Gestur þáttarins að þessu sinni var örvhenta undrið úr Safamýrinni, Jóhann Gunnar Einarsson sérfræðingur Seinni Bylgjunnar. Í þættinum fjölluðu strákarnir um leiki helgarinnar í Olís-deild karla, en nú er Olís-deildin komin í stutt landsleikjafrí. Í lok þáttarins skilaði Jóhann Gunnar síðan heimavinnunni sinni þegar hann fór á félagaskiptamarkaðinn fyrir öll félögin í Olís-deild karla. - Slök FRAM...
Handkastið - KlukkuToggi í veseni, La Valsia, meiðslasögur markvarða og Vonbrigðaliðið 18.10.2018 1:34:41
Gestur þáttarins að þessu sinni var góðkunningi lögreglunnar, Árni Stefán Guðjónsson. Í þættinum fóru strákarnir í Handkastinu yfir lokaleikina í 5. umferð karla og fyrsta leikinn í 6. umferð. Auk þess sem farið var yfir úrslitin í síðustu leikjum í Olís-deild kvenna. - Læðan læddi tveimur stigum í hús á Ásvöllum í sveiflukenndum leik - KlukkuToggi svæfði Valsmenn fyrir austan fjall - Er Aftureldi...
Handkastið - Selfoss komið á kortið í Evrópu, Sérfræðingurinn kjaftstopp og lið húmorista 14.10.2018 1:29:20
Gestur þáttarins að þessu sinni var Ingvar Örn Ákason (Byssan) aðstoðarþjálfari Fram í Olís-deild karla. Farið var yfir fyrstu þrjá leikina í 5. umferð Olís-deild karla og síðustu tvo leikina í 4. umferð Olís-deildar kvenna ásamt umræða um leiki íslensku liðanna í Evrópukeppninni. - Fram eru taplausir á heimavelli eftir hörkuleik gegn Akureyri. - Haukasigur í Hertz-kofanum. - Bjóðum Stjörnumenn ve...
Handkastið - Lið Grjótharða-gella, hver er Sigvaldi og vinnur Fram þrefalt? 11.10.2018 1:23:26
Gestir þáttarins að þessu sinni voru þau Tómas Þór Þórðarson og Þorgerður Anna Atladóttir. Farið var yfir síðasta leik 4. umferðar í Olís-deild karla og rýnt í stuðlana í næstu leikjum auk þess sem farið var yfir síðustu leiki í Olís-deild kvenna og spáð í næstu leiki. - Selfyssingar náðu í tvö stig í Eyjum þrátt fyrir ómannlega frammistöðu Kolla í marki ÍBV. - Stjörnustelpur komu til baka eftir h...
Handkastið - Heimsmet á Akureyri, rauðu risarnir á flugi og SeBASLian Alexandersson 09.10.2018 1:25:38
Gestur þáttarins Árni Stefán Guðjónsson spekúlant úr 220. Farið var yfir 4.umferðina í Olís deild karla og 3.umferðina í kvenna. -Tvö met sett í naglbítnum í KA heimilinu -Akureyri bitu frá sér gegn sjóðheitum Mosfellingum -Stjörnubatamerki í Krikanum, þar sem dómararnir fengu fyrirsagnirnar -Valur og Haukar minna á sig með öruggum sigrum -SeBASLian Alexandersson í basli með markvarðarlausar Stjör...
Handkastið - Bad boys liðið, Rúnars Kára hornið og skotklukku umræða 05.10.2018 1:21:17
-Tómas Þór Þórðarsson í Seinni bylgjunni var með strákunum í Handkastinu að þessu sinni. -Leikmaður septembermánaðar - Landsliðspásan - Umgjörðin - Markvarslan í Olís-deildinni - Er skotklukka málið? -Bad boys lið Olís-deildar karla var valið af Ponzunni -Rúnars Kára hornið - Dregið út í Facebook og Twitter leiknum þar sem árituð treyja frá Bjarka Má Elíssyni var í verðlaun. - Farið yfir stuðlana...
Handkastið - Aftaka í Garðabæ, nýliðaupset og dómarafíaskó 25.09.2018 1:31:47
-Uppgjör tveggja skemmtilegustu liðanna í deildinni á Selfossi -KA tapar með lykilmann á Anfield -Hvað er í gangi í Vestmannaeyjum? -Afhroð Stjörnumanna - “rasssíðir með bumbu” -Er Ásbjörn Friðriksson besti leikmaður Íslandsmótsins síðustu 10 ár? -Upset í Olísdeild kvenna og tæknifeilar toppslagnum -Dómarafíaskó í Grillinu -Úrvalslið kjötaðra leikmanna
Handkastið - 2. umferð Olísdeildar karla og Gaupa eftirhermukeppni 18.09.2018 1:21:40
Sérfræðingurinn og Ponzan fóru vandlega yfir 2. umferð Olísdeildar karla, ásamt Davíð Má Kristinssyni handknattleiksþjálfara. Handboltaumræða á mannamáli. Í lok þáttar fóru Ponzan og Davíð Már í Gaupa eftirhermukeppni. Auk þess var 1. umferð Olís deildar kvenna skoðuð.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.