Handkastið

Handkastið

Sports IS ↓ 353 episodes

Podcast by Handkastið

Author

Handkastið

Category

Sports

Podcast website

soundcloud.com

Latest episode

Jul 9, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Handkastið - Haukur og Haukar á eldi og Þrefaldur GústiJó 01.05.2019

Ásbjörn Friðriksson spilandi þjálfari FH er gestur Handkastsins í þessum þætti. Í þættinum fórum við yfir úrslitaeinvígið hjá stelpunum þar sem Valsstelpurnar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn á sunnudaginn eftir 3-0 sigur á Fram. Einnig fórum við yfir undanúrslitaleikina karlamegin sem fóru fram í gærkvöldi. Í lokin tókum við stutt spjall við Ásbjörn um tímabilið hjá FH. Þátturinn er í boði BK...

Handkastið - Ránfuglinn sýnir klærnar, slúðurmolar og RúnarsKáraHornið 25.04.2019

Í þættinum fórum við yfir úrslitaeinvígið í kvennaboltanum, oddaleik Hauka og Stjörnunnar auk þess sem við töluðum um undanúrslitaeinvígin karla megin sem hefst á þriðjudaginn í næstu viku. Við fórum síðan yfir nokkra slúðurmola og í lokin buðum við upp á RúnarsKáraHornið. Þátturinn er að vanda í boði BK Kjúklings.

Handkastið - Páskakraftaverk og Bikarmeistararnir farnir í sumarfrí 22.04.2019

Í þættinum fórum við yfir fyrstu tvær umferðirnar í 8-liða úrslitunum í Olís-deild karla. Hituðum upp fyrir úrslitaeinvígið kvennamegin og ræddum umspilið í Grillinu bæði hjá strákunum og stelpunum. Í lok þáttar völdum við síðan Coolbet leikmann vikunnar. Þátturinn er að vanda í boði BK Kjúklings.

Handkastið - Landsliðsumræða, sameiginlegt úrvalslið karla og kvenna og hitað upp fyrir playoffs 18.04.2019

Fyrrum stjórnendur Fríkastsins, þeir Ingvar Örn Ákason og Baldvin Fróði Hauksson, voru mættir í New Balance stúdíóið ásamt Ponzunni. Rætt var um landsliðið og leikina gegn Norður-Makdóníu. Hitað upp fyrir úrslitakeppnina karla- og kvennamegin og rýnt í umspilið um sæti í Olísdeildunum. Í lok þáttar völdum við sameiginlegt úrvalslið Olísdeildar karla og kvenna. Þátturinn er í boði BK-kjúklings

Handkastið - Dr. Gaupi fer yfir Olís-deild karla 08.04.2019

Það þarf ekkert að lýsa þessu eitthvað mikið meira. Einfaldlega njótið. Þátturinn sem hlustendur Handkastsins hafa beðið eftir í allan vetur! Þátturinn er í boði BK Kjúklings og í samstarfi við Áttan Miðlar.

Handkastið - Saturday night edition! 06.04.2019

Handkastið sefur aldrei! Í þessum laugardagsþætti fóru Ponzan, Sérfræðingurinn og Keli the Cat yfir lokaumferðina í Olísdeild karla og fyrstu leikina í úrslitakeppninni kvennamegin. Einnig var spáð í spilin fyrir umspilið í Grillinu karla- og kvennamegin.

Handkastið - Ekki lengur lítill fugl og Fram áfram í bullandi fallbaráttu 03.04.2019

Næst síðasta umferðin í Olís-deild karla fór fram í kvöld og var umferðin gerð upp í þessum þætti Handkastsins. Gestur þáttarins er Styrmir Sigurðsson, fyrrum markvörður Stjörnunnar á gullaldar tímabili félagsins. Nokkrum slúðurmolum var hent út í kosmósinn og staðan bæði í fallbaráttunni og undanúrslitin hjá stelpunum skoðuð. Handkastið er í boði BK Kjúklings.

Handkastið - Titlaóður Gústi Jó, strákarnir hans Geirs á lífi og Gróttan fallin 31.03.2019

Ponzan og Sérfræðingurinn fóru yfir þriðju síðustu umferðina í Olís-deild karla, þar sem línur eru farnar að skýrast en þó talsverð spenna á flestum stöðum töflunnar. Farið var yfir stöðuna í Olís-deild kvenna, þar sem Ágúst Þór Jóhannsson bætti við enn einni dollunni í safnið. Farið yfir Coolbet-stuðlana fyrir næstu umferð Olís-deildar karla & kvenna og spáð í framhaldið.

Handkastið - Staða handboltans á Íslandi og nýjasti landsliðshópurinn 28.03.2019

Þeir Arnar S. Gunnarsson og Ásgeir Gunnarsson eru gestir Handkastsins í þessum þætti. Aðalumræðan í þættinum er staða handboltans á Íslandi. Í þættinum ræddum við einnig val GummaGumm. á íslenska landsliðshópnum fyrir leikina gegn Norður-Makedóníu. Í lok þáttar fórum við yfir stuðlana fyrir næstu umferð í Olís-deild karla og kvenna.

Handkastið - Næstum því liðin töpuðu bæði, Haukar í bílstjórasætinu og slúðursprengja frá Akureyri 24.03.2019

19. umferðin í Olís-deild karla hófst í dag með fimm leikjum og henni lýkur á morgun með leik Vals og Akureyrar. Gestur Handkastsins í þættinum er Árni Stefán Guðjónsson. Guðlaugur Arnarsson þjálfari Vals er í símaviðtali í upphafi þáttar. Haukar eru komnir með þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar þegar þrjár umferðir eru eftir og línur eru að skýrast í botnbaráttunni. Í lok þáttar völdum vi...

Handkastið - Er krísa hjá Val? Styttist í titil hjá Selfyssingum og hvaða lið fellur með Gróttu? 18.03.2019

18. umferðin í Olís-deild karla var gerð upp í þættinum að þessu sinni. Við fengum lögfræðinginn Jóhann Skúla Jónsson í þáttinn og fengum við hann til að greina umferðina í þaula. Aðeins fjórar umferðir eru eftir af deildinni og því eru línurnar að fara skýrast. Hvaða lið verður Deildarmeistari? Hvaða lið falla? Hvað er að gerast á Hlíðarenda? Eyjamenn á fljúgandi siglingu og fyrsti sigur Geirs Sv...

Handkastið - Final4 uppgjör og dómara-fíaskó 10.03.2019

Í Handkastinu að þessu sinni fórum við yfir Final4 sem fór fram um helgina. Þar voru FH og Valur sem stóðu uppi sem sigurvegarar í karla og kvennaflokki. Það var ekki hægt að ræða um Final4 án þess að ræða dómarabíó-ið sem var á föstudagskvöldið. Gestur þáttarins nýráðinn þjálfari Hauka í Olís-deild kvenna, Árni Stefán Guðjónsson. Í lok umferðar fórum við yfir stuðlabergið í næstu umferð í Olís-de...

Handkastið - Raggi Njáls í spjalli og Final4 umræða 05.03.2019

Í þessum þætti var farið yfir Final4 helgina sem framundan er. Undanúrslitin í CocaCola bikar karla og kvenna fara fram á fimmtudag og föstudag og úrslitaleikirnir á laugardaginn. Gestir þáttarins voru þeir Tómas Þór Þórðarson þáttastjórnandi Seinni Bylgjunnar og Ragnar Snær Njálsson nýjasti leikmaður Stjörnunnar í Olís-deild karla. Handkastið er í boði Coolbet og BK Kjúklings og í samstarfi við Á...

Handkastið - Selfoss vinnur deildina og Grótta fellur 01.03.2019

Í þessum þætti var farið yfir fimm leiki í 17. umferð Olís-deildar karla en leik ÍBV og Akureyrar var tvívegis frestað. Gestur þáttarins var góðvinur þáttarins, íþróttafréttamaðurinn Benedikt Grétarsson. Í þættinum fórum við einnig yfir stöðuna í deildinni og er Sérfræðingurinn fullviss um að Selfoss verði Deildarmeistarar og Grótta falli. Handkastið er í boði Coolbet og BK Kjúklings og í samstarf...

Handkastið - Tíðindamikil umferð, Basti69 og Halldór Jóhann á línunni 25.02.2019

16. umferðin í Olís-deild karla varð gerð upp í þætti Handkastsins að þessu sinni. Gestur þáttarins var Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður á RÚV og Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari FH var á línunni í byrjun þáttar. Í þættinum var einnig velt því upp hver gæti tekið við FH liðinu í sumar en Halldór Jóhann gaf það út í vikunni að hann myndi hætta með FH eftir tímabilið. Stuðlarnir á C...

Handkastið - Er Selfoss næsta næstum því liðið, ólseigir FH-ingar og Elvar um Stuttgart 20.02.2019

Í þætti Handkastsins af þessu sinni var farið yfir 8-liða úrslitin í Coca-Cola bikar karla auk þess sem við fórum yfir þá leiki sem búnir eru kvennamegin. Gestir þáttarins voru þeir Gunnar Birgisson dagskrárgerðarmaður í Landanum á RÚV og Elvar Ásgeirsson leikmaður Aftureldingar og nýjasti íslenski handboltaatvinnumaðurinn okkar. Við ræddum komandi tíma hjá Elvari sem er á leið til Þýskalands sem...

Handkastið - Ponzan japlar á sokk og Aggi með brjósklos eftir að hafa lyft öllum þessum bikurum 11.02.2019

Í þættinum fórum við yfir 15. umferðina í Olís-deild karla sem lauk í kvöld með tveimur leikjum. Agnar Smári Jónsson leikmaður Vals kom í óvænta heimsókn og ræddum við til að mynda Tælandsferðir hans. Einnig völdum við Coolbet leikmann umferðarinnar sem var virkilega drjúgur í þessari umferð.

Handkastið - Er veðmálavandi í íslenskum handbolta? 09.02.2019

Gestur þáttarins að þessu sinni er Guðmundur Sigurðsson nemi við sálfræði við HÍ en hann gerði BS-rannsókn um veðmálaþátttöku handboltamanna á Íslandi. Í rannsókninni kom fram að tæp­lega 47% leik­manna úr fé­lagsliðum Íslands­móts­ins hafi tekið þátt í pen­inga­spil­um. Af þeim sem veðjuðu á hand­bolta­leiki höfðu 38% veðjað á leiki í eig­in deild og rúm­lega 10% veðjað á eig­in leik. Við ræddum...

Handkastið - HM strákarnir heitir, Fram í Fuck it mode og Sverre í viðtali 04.02.2019

Í þættinum fórum við yfir 14. umferðina í Olís-deild karla en gestur þáttarins var Ingvar Örn Ákason aðstoðarþjálfari Fram sem eru í bullandi fallbaráttu eftir tap gegn KA um helgina. Við hringdum síðan norður og heyrðum í Sverre Jakobssyni sem var rekinn sem þjálfari Akureyrar í upphafi árs en er nú kominn í þjálfarateymi KA. Einnig völdum við Coolbet leikmann umferðarinnar, fórum yfir stöðuna í...

Handkastið - Hitað upp fyrir Olís-deild karla og dregið í Final4 leik Coolbet 31.01.2019

Í þættinum að þessu sinni hituðu Sérfræðingurinn og Ponzan upp fyrir fyrstu umferðina í Olís-deild karla eftir áramót en deildin fer aftur af stað á laugardaginn. Rýnt var í það sem hefur gerst í handboltafréttum síðustu daga og vikur, stuðlarnir skoðaðir á Coolbet og að lokum drógum við út vinningshafa í tveimur leikjum hjá okkur. Tæplega klukkutíma handboltaumræða sem þú vilt ekki láta framhjá þ...

HM Handkastið - Gatorade bræður fara yfir HM, einkunnargjöf og risa Olís-deildarpakki 23.01.2019

Í HM þætti Handkastsins að þessu sinni voru gestir þáttarins fyrrum þáttastjórendur Gatorade sem var á dagskrá Áttunar ekki fyrir svo löngu síðan. Hermann Árnason íþróttaspekúlant og Davíð Örn Atlason sem kemur úr mikilli handboltafjölskyldu voru gestir þáttarins. Í þættinum fórum við yfir lokaleik Íslands á HM, gáfum íslensku landsliðsmönnunum einkunnir fyrir frammistöðu sína í Þýskalandi. Í sein...

HM Handkastið - Tvö töp en dýrmætur skóli og Spurt&Svarað með Læðunni 20.01.2019

Í HM þætti Handkastsins að þessu sinni komu gestirnir úr Hlíðunum. Æskufélagarnir Atli Már Báruson leikmaður Hauka í Olís-deildinni og og Arnar Sveinn Geirsson, leikmaður Vals í Pepsi-deildinni. Í þættinum fórum við yfir síðustu tvo leiki Íslands á HM gegn Þjóðverðum og Frökkum. Í lok þáttar var síðan Spurt&svarað með Læðunni og einnig tilkynntum við sigurvegara í Coolbet leikjum okkar síðustu dag...

HM Handkastið - Milliriðlar HERE WE COME!! og Benóný Friðriks í beinni frá Munchen 17.01.2019

Í HM þætti Handkastsins að þessu sinni komu gestirnir úr Hafnarfirðinum. Feðgarnir Guðjón Árnason og Árni Stefán Guðjónsson. Guðjón er fyrrum landsliðsmaður og Árni Stefán góðkunningi þáttarins. Í þættinum fórum við yfir síðustu tvo leiki Íslands á HM gegn Makedóníu og Japan. Ísland er komið í milliriðil og við spáðum í næstu leiki að auki. Í byrjun þáttar heyrðum við í fréttaritara þáttarins í Mu...

HM Handkastið - Dóri DNA og Geiri Sly fara yfir leikina gegn Spáni og Barein 14.01.2019

Í HM þætti Handkastsins að þessu sinni komu gestirnir úr Mosfellsbænum. Þeir Halldór Laxness Halldórsson betur þekktur sem Dóri DNA og Ásgeir Jónsson þekktur undir viðurnefninu Geiri Sly. Í þættinum fórum við yfir síðustu tvo leiki Íslands á HM gegn Spáni og Barein, ræddum við Dóra um handboltaferil hans og þættina Afturelding sem eru í bígerð. Í byrjun þáttarins kynntum við Final4 leik Handkastsi...

HM Handkastið - Króatíu leikurinn brotinn til mergjar! 11.01.2019

HM er farið af stað og Handkastið fylgist með strákunum okkar. Gestir þáttarins að þessu sinni voru þeir Ásbjörn Friðriksson leikmaður FH og Þorgrímur Smári Ólafsson leikmaður Fram í Olís-deild karla. Í þættinum fórum við yfir fyrsta leik Íslands á HM gegn Króatíu, fórum yfir frammistöður einstakra leikmanna og spáðum í spilin fyrir leikinn gegn Spáni. RúnarsKára hornið var á sínum stað og síðan g...

Listen to the Handkastið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.