Hæglætishreyfingin
Hæglætishlaðvarpið
Hlaðvarp Hæglætishreyfingarinnar. Hæglætishreyfingin er hreyfing fólks sem hefur tileinkað sér eða hefur áhuga á að tileinka sér hæglæti (e. slow living, einnig simple-living). Hæglæti er svar við hraða og streitu samfélagsins. Í hlaðvarpinu fjöllum við um hæglæti frá ýmsum hliðum og um leiðir til að tileinka sér hæglæti sem lífsstíl. Lagið sem hljómar í bakgrunni heitir "Orð til þín" og er flutt af og er eftir Pálma Sigurhjartarson og Þóru Jónsdóttur.
Author
Hæglætishreyfingin
Category
Podcast website
Latest episode
Jun 8, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
24. þáttur - Hæglæti og innsæi - Hrund Gunnsteinsdóttir 08.06.2026 55:19
Hvað er InnSæi? Hvað er að nota innsæi sitt? Hvernig ræktar maður innsæið og tengist því betur? Og hvernig tengist það hæglæti? Hrund Gunnsteinsdóttir hefur lifað afar áhugaverðu lífi. Hún rauk upp metorðastigann á þrítugsaldri, starfaði meðal annars í Kosovo eftir stríð við mannúðarstörf og bauðst æviráðning hjá Sameinuðu þjóðunum mjög ung að árum. Hún upplifði í kjölfarið áföll sem urðu til þes...
23. þáttur - Hæglæti og lífið eftir örmögnun - Kristín Þóra Haraldsdóttir er gestur þáttarins 02.04.2026 48:57
Hæglætishlaðvarpið vaknar nú aftur eftir hvíld. Í þessum þætti fær Þóra Jónsdóttir Kristínu Þóru Haraldsdóttur í heimsókn. Kristín Þóra deilir sögu sinni og lærdómi af því að hafa örmagnast. Hún hefur gert mjög áhugaverðar uppgötvanir sem gætu nýst öðrum sem eru í sambærilegum sporum. Mjög áhugavert spjall sem við vonum að verði ykkur innblástur. Kristín Þóra er leikkona og nemandi í jákvæðri sá...
22. þáttur - Samtal við Carl Honoré, the Voice of the Slow Movement (in English) 23.11.2024 46:40
English below. Í þessum þætti Hæglætishlaðvarpsins talar Þóra Jónsdóttir við Carl Honoré sem nefndur hefur verið talsmaður hæglætishreyfingarinnar (The Voice of the Slow Movement). Hann hefur skrifað nokkrar bækur um ávinning hæglætis, m.a. bókina Lifum lífinu hægar, In Praise of Slow sem kom út árið 2004 og hefur síðan vakið heimsathygli fyrir boðskap sinn um ávinning hæglætis og hægara samfélags...
21. þáttur - Hæglæti og hlustun - Þóra og Anni Haugen 01.04.2024 1:02:40
Í 21. þætti Hæglætishlaðvarpsins eiga þær samtal Þóra Jónsdóttir, stjórnarkona í Hæglætishreyfingunni og Anni Haugen, félagsráðgjafi sem er hætt störfum. Anni starfaði lengi við barnaverndarþjónustu og við kennslu í félagsráðgjöf. Þóra lýsir Anni sem fyrirmynd sinni sem hæglætis"lífveru", í upphafi þáttar, en Anni lifir hæglætislífi ásamt eiginkonu sinni í sveitasælu í miðri Reykjavík. Anni og Þór...
20. þáttur - Hæglæti, ADHD og jóga nidra - Ingibjörg Ólafs og Sigrún Jónsdóttir 01.03.2024 53:33
Í þessum 20. þætti Hæglætishlaðvarpsins er Sigrún Jónsdóttir, ADHD- og einhverfumarkþjálfi og jóga nídra kennari gestur okkar. Í samtali við Ingibjörgu Ólafsdóttur segir hún frá ferðalagi sínu í gegnum þrot sem hún tengir mikið við sín ADHD einkenni í gegnum árin, sem voru aðallega ofvirkni, vinnusemi, streituvaldandi vinnuumhverfi í fjölmörg ár sem þroskaþjálfi, en líka framkvæmdagleði, ofvirkur...
19. þáttur - Hæglæti og sköpunargleði - Bjarney Kristrún og Birna Dröfn 01.02.2024 34:48
Sköpunargleðifræðingurinn Birna Dröfn Birgisdóttir og Bjarney Kristrún Haraldsdóttir, stjórnarkona Hæglætishreyfingarinnar, spjalla saman um hæglæti og sköpunargleði. Þær ræða meðal annars um hvað felst í sköpunargleði, hvernig hún tengist hæglæti, hvernig er að efla sköpunargleði, hvernig takmarkanir geta reynst jákvæðar við sköpunargleðiferli og hvaða áskoranir geta verið til staðar. #haeglaeti...
18. þáttur – Hæglæti og jólahátíðin – Nína og Bjarney Kristrún 01.12.2023 34:51
18. þáttur – Hæglæti og jólahátíðin – Nína og Bjarney Kristrún Í þessum þætti Hæglætishreyfingarinnar spjalla þær Nína Jóns og Bjarney Kristrún um hæglæti og jólahátíðina. Þær ræða meðal annars um hæglæti á aðventunni, gjafainnkaup og öðruvísi gjafir, mikilvægi samveru við fjölskyldu og vini, jólahefðir, minningar og væntingar til jólanna. S já meira um Nínu Jónsdóttir hér: instagram og um Bjarney...
17. þáttur - Hæglæti og núvitund - Ingibjörg og Ragnhildur 31.10.2023 1:01:36
Fjölskyldufræðingurinn Ragnhildur Birna Hauksdóttur og Ingibjörg Ólafsdóttir, stjórnarkona Hæglætishreyfingarinnar, spjalla saman um núvitund. Ragnhildur hefur sérhæft sig í núvitund, áfallafræðum og taugavísindum. Ingibjörg kynntist og nýtti sér núvitund í bataferli sínu upp úr burnouti. Þær fjalla m.a. um kosti núvitundar fyrir heila og taugakerfi barna og fullorðinna, og áskoranir þess að ástun...
16. þáttur - Hæglæti og fjárhagsleg heilsa - Þóra Jóns 26.09.2023 34:03
Í þættinum fjallar Þóra Jónsdóttir, stjórnarkona í Hæglætishreyfingunni um hvernig hæglæti getur hjálpað til við að bæta fjárhagslega heilsu. Hún segir frá eigin reynslu af því að hafa verið í heldur neikvæðri fjárhagslegri hegðun fyrri hluta fullorðinsáranna, en með hægara lífi lært að taka betri ákvarðanir og bætt fjárhagslega heilsu sína og fjölskyldunnar. Hún deilir góðum ráðum í átt að bættri...
15. þáttur - Hæglæti og samskipti - Þóra og Dögg Árnadóttir hjá SamskiptaRæktinni 01.08.2023 1:07:54
Í þessum þætti ræðir Þóra Jóns við Dögg Árnadóttur, nýja stjórnarkonu í Hæglætishreyfingunni. Dögg er lýðheilsufræðingur og viðskiptafræðingur, þriggja barna einstök móðir. Hún er að hefja starfsemi nýsköpunarhugmyndar sem ber heitið SamskiptaRæktin en hún veitir þjónustu fyrir fólk sem vill ástunda samskipti sem eru heilsurækt. Í samtali Þóru og Daggar birtast augljós jákvæð tengsl hæglætis og sa...
14. þáttur - Hæglæti og verkir - Bjarney Kristrún og Hekla Guðmundsdóttir 20.02.2023 53:22
Í 14. þætti Hæglætishlaðvarpsins spjalla Bjarney Kristrún og Hekla Guðmunds um hæglæti og króníska verki. Þær deila með hlustendum ýmsum bjargráðum til að draga úr krónískum verkjum. Hvernig geta þeir sem eru með króníska verki tileinkað sér hæglæti? Hver er gagnsemi þess að nýta hæglæti við iðkun æfinga og mikilvæg þess að setja sjálfan sig í fyrsta sæti? Munum að árangur tekur tíma og hve mikilv...
13. þáttur - Hátíð í hæglæti II - Þóra og Guðrún Helga 28.11.2022 37:01
Í þessum þætti Hæglætishlaðvarpsins spjalla Þóra og Guðrún Helga um hæglæti yfir aðventuna og í aðdraganda jólanna, umhverfisvæn jól, jólaskreytingar, jólagjafir, jólahefðir og samveru með fjölskyldu. Líka um sjálfsumhyggju í aðdraganda jóla, um vonir og hóflegar væntingar og hvernig megi hlusta vel á og vera í athygli og meðvitund með fólkinu sínu á aðventunni. Hæglætishlaðvarpið er oftast tekið...
12. þáttur - Hæglæti og fjármál - Þóra og Nína 01.10.2022 1:02:50
Í þessum þætti fjalla Þóra og Nína um fjármál og hvernig hæglætislíf styður við heilbrigð fjármál. Í þættinum bendir Nína á bókina "The barefoot investor" eftir Scott Pape. www.barefootinvestor.com . Aðrir hlekkir á góð hlaðvörp um fjármál fyrir áhugafólk: Leitin að peningunum: https://open.spotify.com/show/2hM42oDmVZObrg2LFulz0G?si=c877b0f72778498c Peningakastið: https://open.spotify.com/show/3XU...
11. þáttur - Slow food - Viðtal við Dominique Plédel Jónsson, formann Slow food Reykjavík og á Norðurlöndum 01.04.2022 1:09:57
Í þessum þætti ræðir Þóra Jónsdóttir við Dominique Plédel Jónsson, formann Slow food hreyfingarinnar í Reykjavík og á Norðurlöndum. Dominique er uppfull af dýrmætum fróðleik um Slow food hugmyndafræðina og um gagnsemi hennar fyrir lífríkið og samfélög. Mjög gott og upplýsandi spjall við konu sem hefur barist lengi fyrir vitundarvakningu þegar kemur að lífrænni ræktun og ábyrgri matvælaframleiðslu...
10. þáttur - Markmið og hæglæti - Þóra, Ágústa Margrét og Nína 31.01.2022 1:18:44
Í 10. þætti Hæglætishlaðvarpsins hittast Þóra, Ágústa Margrét og Nína og spjalla saman um markmið og hæglæti. Hvernig tengjast markmið hæglæti? Passar að setja sér markmið þó manneskja velji að lifa í hæglæti? Hvernig nýtast markmið hæglætislífi? Það er spennandi hvað hægt er að lifa auðugu lífi og gera margt og skemmtilegt í hæglæti. Þannig nýtast markmiðin nefnilega vel. Án þess að ætla að spill...
9. þáttur - Hátíð í hæglæti - Þóra og Guðný Valborg 01.12.2021 59:43
Í desemberþætti Hæglætishlaðvarpsins er fjallað um hátíðahöld í hæglæti, jól og jólaundirbúning í minna stressi og í núvitund. Þóra og Guðný Valborg spjalla um hefðir, tilgang þeirra og mismikinn heilagleika, leiðir til að einfalda lífið í jólaundirbúningi og um jól með minimalísku ívafi. Viðhorf okkar til jóla eru misjöfn eftir því hver bernskureynslan er, sumir upplifa jól sem töfrandi tíma en a...
8. þáttur - Hæglæti í huga - Ingibjörg og Sólveig 01.11.2021 33:09
Í 8. þætti Hæglætishlaðvarpsins tala þær Ingibjörg og Sólveig um hæglæti í huga. Þær tala um hvers vegna það er mikilvægt að huga að hugsunum sínum og ná stjórn á þeim. Hvaða aðferðir má nota til þess að hægja á huga og hvers vegna getur það reynst okkur gagnlegt í hröðum veruleika. Ingibjörg heldur úti síðunni streita-kulnun-hvíld á instagram og Facebook og Sólveig er með miðilinn utiveraogbornin...
7. þáttur - Fjarvinna og hæglæti - Guðrún Helga og Þóra 11.10.2021 35:10
Í 7. þætti Hæglætishlaðvarpsins spjalla Guðrún Helga og Þóra saman um fjarvinnu og hvernig það að vinna fjarvinnu getur stuðlað að hæglátara lífi. Guðrún Helga og Þóra vinna báðar fjarvinnu heiman að frá sér úr sveitinni, flesta daga vikunnar. Þær fjalla í þessum þætti um tengsl fjarvinnu og hæglætis, kosti og galla fjarvinnu og gefa góð ráð um hvernig hægt er að taka fyrsta skrefið í átt til fjar...
6. þáttur - Haustið í hæglæti - Nína á Nýja-Sjálandi 02.09.2021 22:47
Í þessum þætti heyrum við hugleiðingar Nínu Jónsdóttur, sem býr ásamt fjölskyldu sinni á Nýja-Sjálandi, um árstíðaskipti. Sérstaklega talar hún um haustið sem er hennar uppáhalds árstíð. Hún deilir með hlustendum fallegum hugmyndum til að hægja á og taka betur eftir sérkennum hverrar árstíðar og njóta betur, skapa minningar og nýta náttúruna til að skreyta umhverfi sitt. Notaleg hlustun.
5. þáttur - Þóra og Eddi - Hæglætisákvarðanir okkar 01.07.2021 50:23
Í þessum þætti spjalla hjónin Þóra Jónsdóttir og Eggert Þór Jónsson um lífið sittí hæglæti. Þau deila með hlustendum hæglætislífssýn sinni, segja frá ákvörðunum um að einfalda líf sitt með því að flytja úr borg í sveit, Eddi segir frá því hvernig hann ræktar hæglætið fyrir sig, þau spjalla um samskipti við börn með hæglæti og um góðar aðferðir fyrir barnafjölskyldur til að lifa hægara lífi.
4. þáttur - Sólveig María og Guðný Valborg - Samvera, náttúran, útivera og hæglæti 01.06.2021 39:31
Í 4. þætti Hæglætishlaðvarpsins spjalla Sólveig María og Guðný Valborg saman um hæglætislífsstílinn og hvernig þær hafa fléttað hann inn í sín líf. Þær leggja báðar áherslu á samveru fjölskyldna, útiveru og náttúrutengingu í hægu huglægu tempói. Þær útskýra hvaða gildi og þýðingu það hefur fyrir þær í því hraða nútímasamfélagi sem við búum í.
3. Þáttur - Hæglæti og samskipti - Nína og Ágústa Margrét 01.05.2021 1:10:18
Í 3. þætti Hæglætishlaðvarpsins fjalla Nína Jónsdóttir og Ágústa Margrét Arnardóttir um Hæglæti og samskipti. Nína, sem er búsett á Nýja-Sjálandi, er mjög áhugasöm um hæglætisuppeldi og umhverfismál. Hún smíðar leikföng í tómstundum sínum og fjölskyldan nýtur lífsins í fallegri náttúrunni. Nína er með instagram reikninginn @the.slow.living.mama. Ágústa Margrét býr ásamt fjölskyldunni sinni á Djúpa...
2. þáttur - Hæglæti og streita - Ingibjörg-og-Sólveig 31.03.2021 37:41
Í þessum 2. þætti Hæglætishlaðvarpsins fjalla Ingibjörg Ólafsdóttir og Sólveig María Svavarsdóttir um Hæglæti og streitu, ofurmennsku og kulnun, en þær eru báðar í bata eftir kulnun. Þær fjalla meðal annars um það hvernig hæglæti getur verið gagnlegt til að fyrirbyggja kulnun eða ofstreitu eða til að ná bata?
1. þáttur. Hugmyndafræði Hæglætishreyfingarinnar, Þóra og Sólveig 28.02.2021 40:19
Í þessum fyrsta hlaðvarpsþætti Hæglætishreyfingarinnar spjalla Þóra Jónsdóttir og Sólveig María Svavarsdóttir um hugmyndafræði Hæglætishreyfingarinnar og ávinning hæglætislífsstíls í hraða samfélagsins. Þakka þér fyrir að hlusta. Fylgdu okkur endilega á facebook og Instagram og gakktu til liðs við hópinn Hæglætishreyfingin á facebook. Heimasíðan okkar er www.haeglaeti.is
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.