Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Comedy IS ↓ 681 episodes

Tveir mömmustrákar með mikil gestalæti segja sögur í leit að ást, samþykki og viðurkenningu.

Author

Helgi Jean Claessen

Category

Comedy

Podcast website

www.spreaker.com

Latest episode

Jul 9, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

"Stundum þarf að ljúga til að segja satt" - #81 01.06.2020

Hjálmar fékk sent myndband sem árvökull hlustandi náði af Sölva og Helga á Akureyri - myndbandið lét Hjálmar fá kjánahroll í kjálkana. Umræðan fjallaði einnig um hvenær væri rétt að huga að mælingu á stærð typpa - og í leikþættinum hringdi hlustandi í Rás 2 með óvanalegt vandamál. IG: hjalmarorn110 & helgijean. Takk fyrir að hlusta & Munið að subscribe-a!

Karen Björg: "Ég heiti reyndar Magnús" - #80 28.05.2020

Til okkar mætti upprennandi uppistandarinn Karen Björg. Við ræddum um hvernig er að flytja úr smábænum í Grenivík - í borg óttans: Reykjavík. Hvernig er að koma sér á framfæri - starta sínu eigin giggi - og láta hlutina gerast! IG: karenbjorg & helgijean & hjalmarorn110

"Það má alveg sleppa sér meira" - #79 25.05.2020

Tilkynning: Vantar þig skemmtun fyrir hópinn eða fyrirtækið? - Pub-quiz eða bingó? Live eða online? Hafðu samband á FB-síðu Hæ hæ - og við komum með fjörið! Þáttur dagsins #79 Ertu screamer í kynlífi? Þetta er eitthvað sem Hjálmar hugsaði um Helga. Af hverju er snobbað fyrir því að búa niðri í bæ? Hvað eru ofverndandi foreldrar? Og svo hringdi skrýtinn kall inn í stjörnuspekiþátt Marinós. Takk fyr...

Jón Gnarr: "Grínið bjargaði mér" - #78 21.05.2020

Til okkar mætti fyrirmynd okkar í lífinu: Jón Gnarr! Við spjölluðum um hvernig er að setja vinstri hurð á Volvo, karakterana í Fóstbræðrum, hrekkina í Tvíhöfða, borgarstjóraferilinn - hendina sem Jón festi milli bumbanna á tveimur grátandi mönnum í jarðaför - og undraráð við þunglyndi. IG: hjalmarorn110 & helgijean Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a!

"Ég er búinn að vera að ljúga að þér" - #77 18.05.2020

Í þætti dagsins játaði Hjálmar lygavef sem hann hefur notað til að fá sínu fram gegn Helga. Ljósbrá, kona Hjálmars, sendi þættinum skilaboð um hvernig Hjálmar "ætlaði" að kaupa nýjan tannbursta handa henni. Og svo svæsin umræða um áhrif Covid á sambönd og einhleypa. Leikþátturinn fer svo út um gluggann. IG: helgijean & hjalmarorn110 Minnum á rafræn pub-quiz fyrir hópa og fyrirtæki! Hafðu samband á...

Ernuland: "Ég hef aldrei sagt sálu þetta" - #76 15.05.2020

Til okkar mætti Erna Kristín - drottning af Ernulandi. Erna hefur unnið úr allskonar uppákomum lífsins - og vinnur nú með jákvæða sjálfsmynd. Hún skellti í grjótharða játningu - sagði frá klandri með kvensjúkdómalækninn og áfallinu sem mótaði hana. Takk fyrir að hlusta - MUnið að subscribe-a! IG: Ernuland - helgijean - hjalmarorn110

"Allir graðir" - #75 11.05.2020

Í þætti dagsins fórum við yfir laugardagskvöld og tilfinningar. Líka hvað maður á að gera við alla þessa sól og birtu - með og á móti handabandinu - og topp 5 Íslendingar sem voru einu sinni frægir og sjást ekki lengur. Haukur Guðna hringdi svo að sjálfsögðu inn í Útvarp Sögu. Takk fyrir að hlusta - Munið að subscribe-a. IG: helgijean & hjalmarorn110

Kristín Péturs: "Ástin er óútreiknanleg" - #74 07.05.2020

Til okkar mætti Kristín Péturs og ræddi um hvernig er að vera leikkona, flugfreyja og áhrifavaldur. Einnig hvernig er að vera single - og hvað er hægt að gera þegar maður hreinlega pissar í sig af hlátri. IG: kristinpeturs & hjalmarorn110 & helgijean. Takk fyrir að hlusta & Munið að subscribe-a!

"Að standa í framkvæmdum er eins og að vera í neyslu" - #73 04.05.2020

Í þætti dagsins förum við yfir hvernig það er að standa í framkvæmdum. Hvernig þvottamál standa á heimili Hjálmars eftir að Ljósa hætti að þvo. Með og á móti að fá sér hund. Og topp fimm frasar sem eru óþolandi í fjölskyldum. Ekki missa af HÆ hæ Live Show á FB 7. maí: https://tix.is/is/event/9984/h-h-facebook-live-show-og-skemmtikvold-/ Ef þig vantar pub-quiz fyrir hópinn - þá er það líka í boði h...

Björn Bragi: "Your wish has been granted" - #72 30.04.2020

Til okkar mætti Björn Bragi Djöfulsson og fór vítt og breitt um ævi sín og störf. Upp poppuðu sögur af prakkarastrikum, yfirheyrslum, játningum, mögulegum barneignum og lífinu í gríninu. Takk fyrir að hlusta. Munið að subscribe'a! IG: helgijean & hjalmarorn110 & bjornbragi

"Allt í einu var nærbuxnaskúffan mín tóm" - #71 26.04.2020

Okkur er það ánægja að kynna "HÆ hæ Live Show" á Facebook! Við verðum við í beinni á FB og alls konar karakterar koma við sögu: Hvítvínskonan, Marinó, Pétur á Útvarpi Sögu & Haukur Guðna - og allir hinir! Hvenær: Fimmtudagurinn 7. maí kl. 20:00 Verð: 990 kr. - Greiðir fyrir viðburðinn á Kass appinu. Hvar: Finnur FB hópinn: "Hæ hæ Live Show 7. maí" Þegar þú hefur greitt með Kass - ertu samþykkt/ur...

John Tómas: "Ég vissi að ég átti ekki sjéns í lífið" - #70 23.04.2020

Til okkar mætti lífsreynsluboltinn John Tómas en hann hefur marga fjöruna sopið. Enda fór hann úr harðri neyslu og fann sinn Guð í köldum sjónum við Íslandsstrendur. Í þetta blandast svo frásögn af bakpoka frá innbrotsþjóf sem endaði að fá óvænt karma! IG: hjalmarorn110 & helgijean Takk fyrir að hlusta & Munið að subscriba!

"Ef maður setur barnapúður á punginn ..." - #69 20.04.2020

Í þessum þætti mælir Hjálmar með barnapúðri á punginn. Við ræðum hlýðni við Víðni - og hversu langt það getur gengið. Helgi er búinn að fitna og ræðir hvernig hann tekur á því öðruvísi en áður. Andlegir Önglar skrensa inn og ræða um unað og nánd í heimi 2 metra reglunnar. Takk fyrir að hlusta! IG: helgijean & hjalmarorn110

Jón Jónsson: "Maður þorir ekki að segja þetta ..." - #68 16.04.2020

Til okkar mætti unaðurinn Jón Jónsson sagði frá sætu stelpunni sem hann byrjaði með í Versló - og börnunum sem þau eiga í dag. Ruslinu sem hann er nýbyrjaður að flokka í samkomubanninu. Tækifærinu að verða heimsfrægur með Sony plöturisanum - Íslandsmeistaratitlunum sem hann vann og tapaði - og hamingjuna sem finnst í litlu hlutunum. IG: jonjonssonmusic - helgijean - hjalmarorn110

"Þú varst að borða pizzu í hönskunum!" - #67 13.04.2020

Í þætti dagsins var talað um tilgerðina á Tik Tok - Hjálmar veit ekki hvað "shuffle" er - en borðaði pizzu í plasthönskum. Umræðan skiptir svo yfir í hluti sem eru breyttir út af veseninu hér í bæ. Ásamt því að íhuga hvað við værum tilbúnir að gera til að losna við skalla. Takk fyrir að hlusta - og munið að subscriba! IG: helgijean & hjalmarorn110

Camilla Rut: "Þegar ég var rekin af pabba mínum ..." - #66 09.04.2020

Til okkar mætti Camilla Rut og ræddi um aðdáendurna sem horfa inn um gluggann hjá henni, pabbann sem rak hana úr vinnu, snappið sem hún sendi óvart af sér allsberri - og lexíuna sem hún tók úr djúpa þunglyndinu. IG: camillarut & helgijean & hjalmarorn110 Muna að subscriba! :)

"Það er ekki ónýtt að vera jákvæður" - #65 06.04.2020

Í þætti dagsins förum við jákvæðir yfir stöðu mála. Við byrjum á að tala um Dýragarðsbörnin og Christiane F sem varð háð heróíni 11 ára gömul. Ganginn í átakinu hjá Hjálmari sem er háður nammi. Förum yfir skoðanakönnun um klæðnaðinn hans Hjálmars. Kveikir áttræð Pamela Anderson í Helga? Topp fimm hlutir við Covid sem eru eins og andlegt retreat. Og endum partýið svo á laufléttri Útvarp Sögu: Pétur...

Ebba Guðný: "Ég er ekkert rosalega spéhrædd" - #64 02.04.2020

Til okkar mætti yndið hún Ebba Guðný sem segir okkur sögur bakvið tjöldin í sjónvarpinu og ævintýrin í einkalífinu. Þegar hún læsti sig úti allsber í slopp með lit í hárinu, fullkomnunaráráttuna í 'Allir geta dansað', áskoranir í barnauppeldi - og vináttuna við Oscar Pistorius, Ólympíumethafann sem varð umdeildur á heimsvísu eftir að hafa orðið valdur að dauða kærustu sinnar. Hlý, einlæg og skemmt...

"Við höldum partýinu gangandi" - #63 30.03.2020

Í þætti dagsins förum við og ræðum um hverja við myndum vilja vera með í sóttkví. Hjálmar mumlar lög í pub-quiz sem er ómögulegt að þekkja. Við spilum 5 lög sem peppa í erfiðu ástandi. Er í tísku að vera með spegil þar sem maður getur horft á sig í alls konar aðstæðum. Og síðast en ekki síst er sápuópera í Árbæ - erfiðar aðstæður í sóttkví! IG: helgijean & hjalmarorn110

Jónas Sig: "Ég er með svo ruglaðar tengingar í hausnum" - #62 26.03.2020

Í þætti dagsins fengum við tónlistarmanninn og hugsuðinn Jónas Sig. til okkar. Hann ræðir um ferilinn frá því að hann var í Sólstrandargæjunum - ferðalagið í umbreytingu og öll vandræðulegu mómentin í lífinu. Hjarta og gleði til allra! IG: helgijean & hjalmarorn110

"Ef fólk finnur ekki áhyggjur - þá er alltaf hægt að búa þær til" - #61 23.03.2020

Bein útsending á Pub-Quiz í Keiluhöllinni á Facebook - 26. mars kl. 21:00! Í þætti dagsins var farið um víðan völl. Við ræddum um sveitaböll, hneykslun, afsakanir sem hægt er að nota í kringum Covid - og myndi Hjálmar frekar vilja halda í nammi og sjónvarp - eða Helga sinn Jean. Takk fyrir að hlusta IG: helgijean & hjalmarorn110

Þórunn Ívars: "Núna er ég búin að segja öllum þetta." - #60 19.03.2020

Til okkar mætti áhrifavaldurinn Þórunn Ívars sem trúði okkur fyrir einlægu ástarbréfi sem olli nánast hjónaskilnaði - fræga fólkinu sem hún hitti í LA - lífinu á samfélagsmiðlum og ótrúlegri sögu af bíllykli sem leiddi hana til að kynnast manninum sínum! IG: thorunnivars - helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscriba!

"Alltaf þegar maður er alvarlegur - þá er bara ekki gaman" - #59 16.03.2020

Í dag var gyllti þátturinn. Þá var talað um skrifstofuna hans Helga - dýru fötin sem Hjálmar keypti á netinu - dýrin sem Hjálmar er - og hvort Hjálmar vildi frekar vera húmorslaus eða Eva Ruza. Þetta er rándýrt prógram! IG: helgijean & hjalmarorn110

Orri Erlends: "Ég var snúinn niður af því ég labbaði á Dalai Lama" - #58 12.03.2020

Til okkar mætti dulmagnaði andlegi meistarinn Orri Erlendsson. Hann er sjáandi sem sér það sem fæst okkar sjá. Hann lifir alveg í flæðinu - sem leiddi hann til þess að kynnast Dalai Lama eftir að hafa labbað á hann. Takk fyrir að hlusta: IG: ´helgijean´ - ´hjalmarorn110´ - og gesturinn ´orri.opi´

"Hvað er að þessari stund akkúrat núna?" - #57 09.03.2020

Í þessum þætti ræddum við um fimm frábærar leiðir til að styrkja ónæmiskerfið - bestu leiðina til að glíma við afbrýðissemi - orð með "pi" - og hamfarablæti tók á sig alveg nýja mynd! Takk fyrir að hlusta IG: hjalmarorn110 & helgijean

Listen to the Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.